Fréttir

Samfylkingin situr hjá

11.10.2001

?Pólitík snýst um hvers konar þjóðfélag við viljum skapa, um markmiðin og leiðirnar og forgangsröð verkefna ? þar skilur á milli stefnu ríkisstjórnarinnar og Samfylkingarinnar,? sagði talsmaður Samfylkingarinnar í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í upphafi haustþings. Og meðal lokaorða talsmannsins var þetta: ?Alþingi er pólitískur orrustuvöllur og lagasmiðja."
  
Eins og oft áður eru nú miklar annir í þinginu í desember. Mörg viðamikil og umdeild mál hafa annaðhvort verið afgreidd eða bíða afgreiðslu. Þar má nefna sölu hlutabréfa í Landsbanka og Búnaðarbanka, stuðningsyfirlýsingu við Fljótsdalsvirkjun, flutning Byggðastofnunar til iðnaðar-ráðuneytisins og fjárlögin. Það hefur vakið athygli margra áhugamanna um pólitík að þegar kemur að atkvæðagreiðslu eru átakalínurnar jafnan á milli ríkisstjórnarinnar og Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs.

Í umræðum um hlutabréfasöluna í bönkunum fóru stöku þingmenn Samfylkingar mikinn, einkum Jóhanna Sigurðardóttir. Tveir þingmenn Samfylkingar sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, aðrir greiddu atkvæði með ríkisstjórninni. Aðeins þingmenn VG og Frjálslyndra greiddu atkvæði gegn tillögunni.

Þegar þingsályktunartillaga iðnaðarráðherra um stuðning við Fljótsdalsvirkjun kom til afgreiðslu í iðnaðarnefnd var hún samþykkt með 6 atkvæðum stjórnarliða gegn einu atkvæði Vinstri grænna. Samfylkingin sat hjá.

Þegar fjárlög voru afgreidd til 3. umræðu lögðu þingmenn VG fram fjöldann allan af breytingartillögum, studdu þær breytingartillögur meirihlutans sem þeir gátu samþykkt en greiddu atkvæði gegn öðrum. Samfylkingin dró sínar breytinga-tillögur til baka og sat hjá allan tímann. Hvort sem greidd voru atkvæði um tillögur stjórnarmeiri-hlutans, Frjálslyndra eða Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs þá sat Samfylkingin hjá.

Það er því engin furða þótt fólk þurfi stundum að klípa sig í handlegginn og rifja það upp að Samfylkingin á 17 menn á þingi. Á þeim pólitíska orrustuvelli sem talsmaður Samfylkingarinnar haslaði sér í byrjun október fer ekki mikið fyrir þeim sem sitja alltaf hjá.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica