Fréttir

Félagar erlendis geta tekið þátt í forvali VG

20.10.2006

Til að velja fólk á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar hafa stjórnir kjördæmisráða í Suðvestur- og Reykjavíkurkjördæmum innan VG ákveðið að ganga til sameiginlegs forvals. Það forval verður haldið 2. desember næstkomandi og verða þar valdir fjórir efstu frambjóðendurnir á þrjá framboðslista svæðisins. Ákveðið var að gefa félögum búsettum erlendis kost á að taka þátt í forvalinu með póstkostningu, en tilkynna þarf þátttöku fyrir 24. nóvember.

Reglur frá kjörstjórn um póstkosninguna eru þessar:

Í 6. grein reglna um forval vegna alþingiskosninga 2007 fyrir Vinstrihreyfinguna ? grænt framboð í Reykjavík norður, Reykjavík suður og Suðvesturkjördæmi segir:

 ?Félagsmenn VGR og VGSV sem eru búsettir erlendis geta fengið kjörseðil sendan í tölvupósti ef þeir óska þess. Um slíka póstkosningu skal fara samkvæmt reglum sem kjörstjórn setur.?

 

1. Félagsmenn VG í kjördæmunum Reykjavík suður, Reykjavík norður og Suðvesturkjördæmi geta óskað eftir að fá kjörseðil sendan í tölvupósti. Ósk um að fá kjörseðil sendann skal berast vg@vg.is eigi síðar en 24. nóvember. 

2. Þegar kjörseðill berst skal viðtakandi prenta hann út og ganga frá kosningu sinni í samræmi við 12. grein þar sem segir ?Kjósandi skal raða að hámarki tólf frambjóðendum en aldrei færri en níu í sæti nr. 1-4 þannig að hann gefur þremur frambjóðendum númerið 1, þremur númerið 2, þremur númerið 3 og ef vill þremur númerið 4.?

 

3. Kjörseðillinn skal lagður í ómerkt umslag sem síðan er sett í annað umslag merkt á eftirfarandi hátt:

 

Vinstrihreyfingin ? grænt framboð
b.t. kjörstjórnar á höfuðborgarsvæðinu
Pósthólf 175
121 Reykjavík

 

Kjósandi skal jafnframt skrifa nafn sitt og kennitölu yfir flipa ytra umslagsins.

 

4. Atkvæðið skal sent kjörstjórn merkt eins og að framan greinir og skal hafa borist eigi síðar en 2. desember 2006.

 

Forvalsreglurnar má nálgast hér: /default.asp?news_id=6568

Ég hvet alla félaga til að nýta sér þetta tækifæri til að hafa áhrif á uppröðun framboðslista fyrir alþingiskosningarnar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica