Græn framtíð í Eyjum
Fimmtudagskvöldið 20. janúar verður annar fundurinn í fundaröð VG sem nefnist Græn framtíð: Atvinna - velferð - umhverfi. Fundurinn verður haldinn á veitingahúsinu Lundanum í Vestmannaeyjum og hefst klukkan 20:30. Framsögumenn verða Steingrímur J. Sigfússon, Svanhildur Kaaber og Ögmundur Jónasson.
Fyrsti fundurinn í þessari fundaröð um græna atvinnustefnu og endurreisn velferðarkerfisins var haldinn á Sauðárkróki sl. miðvikudag. Yfir 40 manns sóttu fundinn þar sem Jón Bjarnason og Steingrímur J. Sigfússon höfðu framsögu. Á fundinum spunnust líflegar umræður sem lofa góðu fyrir framhaldið.

