Forvalsreglur í NA-kjördæmi
Kjördæmisráð Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi samþykkti á aðalfundi sínum á Akureyri 7. október sl. að haldið verði leiðbeinandi forval við uppröðun á framboðslista flokksins í kjördæminu. Forvalið fer fram með póstkosningu og skulu þátttakendur rita nöfn sex einstaklinga sem þeir vilja sjá í efstu sætum framboðslistans á seðil. Með valseðlinum skal fylgja listi yfir þá sem gefið hafa kost á sér til að vera meðal hinna sex efstu. Leyfilegt er að skrifa á kjörseðilinn nöfn annarra en þeirra sem þegar hafa gefið kost á sér og nefnd eru á listanum.
Aðalfundurinn kaus fimm manna uppstillinganefnd til að annast um framkvæmd forvalsins og hefur hún í samræmi við samþykkt fundarins gengið frá eftirfarandi forvalsreglum og stjórn kjördæmisráðs samþykkt þær:
Tilkynna skal framboð til uppstillinganefndar fyrir 1. nóvember 2006.
Forvalið fer fram með póstkosningu og verða vallistar sendir til allra sem skráðir eru félagsmenn VG í Norðausturkjördæmi 1. nóvember 2006. Með fylgir umslag til að senda útfylltan valseðil til baka. Bréfinu mun fylgja listi þar sem tilgreindir verða þeir einstaklingar sem gefið hafa kost á sér í 6 efstu sæti listans og getið um aldur þeirra, búsetu og starf.
Félagsmenn riti nöfn þeirra 6 einstaklinga sem þeir vilja að skipi efstu sæti listans og er þeim heimilt að skrifa nöfn annara en þeirra sem formlega hafa gefið kost á sér.
Póstleggja skal valseðla eða koma þeim með öðrum hætti beint til uppstillinganefndar fyrir 15. nóvember.
Nefndin gerir tillögu að framboðslista með hliðsjón af niðurstöðum forvals og að teknu tilliti til kynjajafnvægis, búsetu frambjóðenda og fleiri þátta sem nauðsynlegt er að líta til.
Stefnt er að því að boða að nýju til fundar í kjördæmisráðinu eigi síðar en 10. desember þar sem tillaga uppstillinganefndar að framboðslista verður lögð fram og listinn síðan endanlega ákveðin.
Valgerður Jónsdóttir ? formaður, 462-7854
Steinþór Heiðarsson, 464-1970
Ólafur Þ. Jónsson, 462-2834
Þormóður Sigurðsson, 864-0898
Karen Erla Erlingsdóttir, 860-3139

