Fréttir

Athyglisverð könnun

11.10.2001

Í 75. árgangi skólablaðs Menntaskólans í Reykjavík er meðal annars að finna niðurstöður könnunar á fylgi stjórnmálaflokka meðal nemenda. Könnunin virðist hafa náð til allra bekkja skólans, að minnsta kosti er spurt hvaða flokk fólk myndi kjósa ef kosið væri nú og það hefði kosningarétt.
  
Útkoman er sú að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 48,9%, Vinstrihreyfingin - grænt framboð 26,5%, Samfylkingin 12,1%, Frjálslyndi flokkurinn fengi 4,9% og Framsóknarflokkurinn 3,4%. Alls nefna 4% aðra flokka. Það sem einkum vekur athygli í þessum tölum er slök útkoma miðjuflokkanna, einkum og sér í lagi Framsóknar sem virðist í bráðri útrýmingarhættu í skólanum. Kantarnir eru hins vegar afar sterkir þótt hlutföllin milli þeirra mættu gjarnan vera talsvert önnur.

Könnun úr einum menntaskóla gefur út af fyrir sig ekki tilefni til að berja sér á brjóst og syngja hástöfum: ?Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd ...? Engu að síður er það gleðilegt að VG skuli njóta stuðnings rúmlega fjórða hvers nemanda. Þessi könnun er líka vísbending um það að ungt fólk hafi litla samúð með stagli Framsóknarmanna um öfgar og afturhald stjórnmálaafls sem hefur sett umhverfismál á oddinn í sinni hugmyndafræði.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica