Ályktun um húsnæðis- og efnahagsmál
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs kom saman til fundar í dag og ræddi þann vanda sem uppi er í húsnæðismálum og stöðu efnahagsmála. Þingflokkurinn samþykkti eftirfarandi ályktun:
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs varar við afleiðingum þess ástands sem skapast hefur að undanförnu í efnahagsmálum.
Í annað sinn á nokkurra ára tímabili eru hundruð fjölskyldna að verða fyrir stórfelldum áföllum vegna affalla á markaðsvæddum húsnæðislánum. Í stað lána úr húsnæðislánasjóðum á föstum vöxtum til langs tíma eru húsbyggjendur eða kaupendur nú ofurseldir sveiflum á skuldabréfamarkaði með sínar fjárfestingar, sem yfirleitt eru þær stærstu á lífsleið venjulegra fjölskyldna.
Vinstrihreyfingin ? grænt framboð mun berjast fyrir því að koma á fót á nýjan leik félagslegu húsnæðislánakerfi og fjölga úrræðum almennings í húsnæðismálum, ekki síst auka framboð á tryggu leiguhúsnæði á góðum kjörum.
Undanfarna daga hefur komið glöggt í ljós að einkavæddar fjármálastofnanir setja hagnaðarkröfur nýrra eigenda í öndvegi og taka þær fram yfir þjónustuhlutverk við almenning eða framlag sitt til að viðhalda stöðugleika á innlendum verðbréfamarkaði.
Vinstrihreyfingin ? grænt framboð gagnrýnir harðlega aðgerðaleysi og ráðleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Endurteknar vaxtahækkanir hafa hvorki slegið á verðbólgu né þenslu. Háir vextir, verðbólga og versnandi rekstrarskilyrði skapa útflutningsatvinnuvegunum vaxandi erfiðleika og viðskiptahallinn, sem var gríðarlegur fyrir, vex enn. Ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar hafa svo verkað eins og olía á eldinn. Má þar nefna lækkanir á innflutningsgjöldum stærstu og dýrustu bifreiða o.fl. lúxusvarningi, flatar skattalækkanir undanfarin ár sem hafa komið hátekjufólki og fjármagnseigendum auk þess sem skattar af hagnaði fyrirtækja hafa lækkað.
Góðæri ríkisstjórnarinnar hefur fyrst og fremst verið góðæri fjármagnseigenda en ekki almennings og allra síst láglaunafólks, barnafjölskyldna og elli- og örorkulífeyrisþega. Þenslan í hagkerfinu nú um stundir er að verulegu leyti drifin áfram af eyðslu umfram efni, byggðaröskun og væntingum um áframhaldandi veisluhöld í efnahagsmálum, en á sér ekki innistæður í aukinni framleiðslu og verðmætasköpun nema að litlu leyti.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs telur óhjákvæmilegt að horfast í augu við veruleikann og grípa til aðgerða. Ljóst er að peningamarkaðsaðgerðir einar og sér duga ekki. Ríkisstjórn, sem ekki einu sinni viðurkennir tilvist vandans, er ekki líkleg til að ná tökum á ástandinu og ætti því að fara frá. Setja verður fjármálageiranum skorður og stöðva útlánaþenslu, draga úr eyðslu og hvetja til sparnaðar og síðast en ekki síst jafna tekjuskiptinguna þannig að þeir sem mest hafa leggi meira af mörkum til samfélagsins.

