Utanríkisráðherra í stjórnarandstöðu
Nýlegar yfirlýsingar utanríkisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar, um Evrópumál, hafa að vonum vakið athygli. Í fyrsta lagi var það væntanlega engin tilviljun að formaður Framsóknarflokksins valdi að spila út efasemdum sínum um samhengi EES-samningsins við stjórnarskrána í tengslum við fund ungra framsóknarmanna og opnun þeirra í aðildarmálinu.Í öðru lagi var eðlilega að því spurt hverju sætti að ekkert bólaði á þessum efasemdum hjá utanríkisráðherra þegar hann lagði fram skýrslu sína um Evrópumál í vor. Loks hafa vaknað ýmsar spurningar um pólitískt samhengi málsins, stjórnarsamstarfið, vegferð Framsóknarflokksins til hægri í innanríkismálum, t.d. varðandi einkavæðingu, og inn á hefðbundna Evrópusamrunalínu krata í þeim málum.Sérstaða Framsóknarflokksins er þannig óðum að hverfa og þótti þó ýmsum ekki af miklu að taka (Já, já og nei, nei, opinn í báða enda og allt það).

