Fréttir

Auglýsing frá kjörstjórn á höfuðborgarsvæðinu

25.10.2006

Framboð í forval VG á höfuðborgarsvæðinu vegna alþingiskosninga 2007

 

Auglýst er eftir framboðum í forval Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs
vegna alþingiskosninga 2007 í kjördæmunum Reykjavík suður, Reykjavík norður og Suðvesturkjördæmi. 

 

Framboðsfrestur er til kl. 17.00 laugardaginn 11. nóvember 2006 og skulu tilkynningar um framboð berast skriflega fyrir þann tíma merktar sem hér segir

 

Vinstrihreyfingin ? græn framboð

b.t. kjörstjórnar VG á höfuðborgarsvæðinu

Pósthólf 175

121 Reykjavík

 

Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það einnig skriflega til kjörstjórnar. Uppástungur þurfa að berast eigi síðar en  4. nóvember 2006 og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Uppástungum um frambjóðendur á að fylgja heimilisfang þeirra og símanúmer.

 

Kjörstjórn VG á höfuðborgarsvæðinu



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica