Kraftmikill aðalfundur í Reykjavík
Þriðjudaginn 26. september sl. var aðalfundur kjördæmisfélags VG í Reykjavík haldinn í Norræna húsinu í Reykjavík. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf auk framsögu Ögmundar Jónassonar um hræringar í alþjóðastjórnmálum. Fundurinn var fjölsóttur og umræður mjög líflegar. Fundarstjóri var Sjöfn Ingólfsdóttir og fundarritari Guðlaug Teitsdóttir.
Sigríður Stefánsdóttir var endurkjörin formaður og aðrir í stjórn Ármann Jakobsson, Birna Þórðardóttir, Guðmundur Magnússon, Kolbrún Rúnarsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Rúnar Sveinbjörnsson, Steinar Harðarson og Tryggvi Friðjónsson. Úr stjórn gengu að eigin ósk Guðlaug Teitsdóttir, Guðrún Gestsdóttir og Sigurbjörg Gísladóttir.
Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík hefur skipað framkvæmdanefnd um borgarmál og í henni eiga sæti Kolbeinn Óttarsson Proppé, Sigríður Stefánsdóttir og Tryggvi Friðjónsson.
Á aðalfundinum voru samþykktar tvær ályktanir, annars vegar um menntamál að tillögu stjórnar og hins vegar um útrýmingu fátæktar og aukið starf að málum alþýðu borgarinnar. Síðarnefndu tillöguna báru þeir Jón Kjartansson, Þórir Karl Jónasson og Ragnar Stefánsson upp. Ályktanirnar má lesa

