Við viljum hnattvæðingu án þess að einhver tapi.
Svo hljóðar yfirlýsing frá fulltrúum Vinstri - grænu flokkanna á þingi Norðurlandaráðs:
Hvaða gagn er af því að Norðurlandabúar geti keypt rafhlöður með umhverfismerkinu Svaninum, ef verkamennirnir sem framleiða þau í verksmiðjunni í Kína verða fyrir eituráhrifum. Upp komst að tískuvöruframleiðandinn Hennes og Mauritz seldi peysur sem framleiddar voru í verksmiðju í Kólumbíu, þar sem barnaþrælkun átti sér stað, laun voru langt undir eðlilegum mörkum og fjölmargar samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnuskilyrði voru brotnar. Hnattvæðingin hefur sýnt fram á mörg dæmi um vörur sem seldar eru á Norðurlöndum en eru framleiddar á óábyrgan hátt.
Sýnt hefur verið fram á í fjölmörum alþjóðlegum skýrslum og greinargerðum að Norðurlöndin hafa forsendur til að standa sig vel í alþjóðavæðingunni. Samkeppnishæfni þeirra mælist mikil. Á Norðurlandaráðsþinginu, sem haldið verður í Kaupmannahöfn um mánaðamótin október-nóvember verður meginþemað velferð framtíðarinnar. Allir forsætisráðherrar Norðurlandanna, leiðtogar stjórnarandstöðunnar, fjölmargir stjórnmálamenn, vísindamenn og embættismenn taka þátt í umræðum um þróun norrænu velferðarlíkananna.
Yfirskriftin er ?Norðurlönd sem alþjóðlegt sigursvæði?. En hverjir eru þeir þá sem tapa? Og hvaða velferðarstefnu á að taka ef við viljum hnattvæðingu án þess að einhverjir tapi? Hugum aftur að rafhlöðunum frá Kína:
Á þinginu mun þingmannahópur Vinstri-grænna í Norðurlandaráði leggja fram tillögu um að Norðurlöndin taki forystu í alþjóðlegri ábyrgð. Við leggjum til að á Norðurlöndum verði hannað merki fyrir alþjóðlega ábyrgar vörur. Jákvætt merki sem gefur til kynna að varan sé, á allan hátt, framleidd við heilbrigð og góð vinnuskilyrði og að verkamennirnir hafi fengið greidd eðlileg laun. Að hún sé framleidd í samræmi við samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um réttindi verkamanna og mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Að ábyrgst sé að hvergi í framleiðsluferlinu eigi sé stað barnaþrælkun, að vinnuumhverfi sé ekki óábyrgt, að greidd séu eðlileg laun og að réttindi séu virt. Kaupið hana!
Norræna umhverfismerkið, Svanurinn, veitir neytendum tækifæri á að velja þær vörur sem framleiddar eru út frá náttúruverndarsjónarmiðum. Það er kominn tími til að veita neytendum tækifæri á, að velja þær vörur sem framleiddar eru á félagslega ábyrgan hátt og auka sölu á félagslega sjálfbærum vörum.
Umsjón með nýju merki fyrir Alþjóðlega ábyrgð gæti verið á höndum norrænnar merkjanefndar eins og Svanurinn. Nefndin setur reglur um notkun vörumerkisins og heldur gagnagrunn um viðurkenndar vörur og framleiðsluaðferðir. Yfirvöld í hverju Norðurlandanna myndu sjá um eftirlit á sama hátt og gert er með Svaninn. Skilyrðin fyrir merkingunni skal þróa í samvinnu við neytenda-, mannréttinda-, og atvinnusamtök auk samstarfs við stéttarfélög.
Við viljum hnattvæðingu án þess að einhver tapi.
Line Barfod (EL ? Danmörku)
May Hansen (SV ? Noregi)
Högni Hoydal (TF ? Færeyjum)
Elina Linna (V ? Svíþjóð)
Outi Ojala (vänst ? Finnlandi)
Johan Lund Olsen (IA ? Grænlandi)
May Hansen ( SV ? Noregi)
Steingrímur J. Sigfússon (VG ? Íslandi)
Kristen Touborg (SF ? Danmörku)

