Fréttir

Hraða verður endurskoðun á stjórn fiskveiða

11.10.2001

Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kom saman til fundar laugardaginn 3. febrúar sl. Á fundinum var meðal annars rætt um hina alvarlegu stöðu í atvinnumálum fiskverkafólks. Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum:

?Fundur flokksráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs, haldinn í Reykjavík laugardaginn 3. febrúar, lýsir þungum áhyggjum af uppsögnum fiskvinnslufólks og versnandi atvinnuástandi víða um land. Uppsagnir minna á það öryggisleysi sem fiskverkafólk og aðrir íbúar sjávarbyggðanna búa við og er ein undirrót byggðavandans.

Vinstrihreyfingin ? grænt framboð leggur áherslu á að yfirstandandi endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar verði hraðað og róttækar breytingar gerðar til að treysta stöðu byggðanna og skapa íbúum viðunandi öryggi. Flokksráðið minnir einnig á tillögur þingflokksins um aðgerðir í byggðamálum og um að Alþingi komi saman til sérstaks aukafundar um byggðamál á komandi sumri.?

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica