Fréttir

Fréttir af húsnæðismálum VG á Akureyri

31.10.2006

ny husakynni a akureyri.jpg

Gengið hefur verið frá samningum Vg við byggingaraðila sem keypt hefur alla húseignina að Hafnarstræti 98 á Akureyri. Hyggst hann rífa húsið og reisa nýtt og stærra hús á lóðinni. Vg lætur sína gömlu eign upp í 50 m2 eign á götuhæð í nýja húsinu. Á hæðinni við hlið Vg verður Kristjánsbakarí með verslun og kaffihús,  en íbúðir verða á tveimur hæðum ofar. Húsið teiknar Logi Enarsson arkitekt og þykir það hið glæsilegasta. Gamla húsið verður ekki rifið fyrr en eftir kosningar í vor og nýja húsnæðið afhent í síðasta lagi í mars 2008. Hugsa félagar sér gott til glóðarinnar í framtíðinni með svo glæsilega aðstöðu á besta stað í miðbæ Akureyrar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica