Vel heppnuð námsstefna
Laugardaginn 21. apríl síðastliðinn efndi Vinstrihreyfingin ? grænt framboð til námsstefnu um mat á umhverfisáhrifum stóriðjuframkvæmda. Þrátt fyrir að kynning mats á fyrirhugaðri stækkun álversins á Grundartanga hafi fallið út af dagskrá námsstefnunnar, þar sem Norðurál hefur hætt vinnu við matsskýrslu, reyndist tíminn síst of rúmur til að gera hugsanlegum framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun og Reyðarál góð skil. Um 60 manns sóttu námsstefnuna sem haldin var í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík.
Kristín Halldórsdóttir setti ráðstefnuna og fór nokkrum orðum um umfang framkvæmdanna. Að því loknu tók Hjörleifur Guttormsson við fundarstjórn.
Fyrstur tók til máls Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Landverndar, og kynnti Rammaáætlun um nýtingu og vernd vatnsfalla og jarðvarma, en að henni er unnið á vegum iðnaðarráðuneytisins í samráði við umhverfisráðuneyti. Tryggvi gerði grein fyrir tilgangi Rammaáætlunarinnar, að finna bestu leiðirnar til að virkja og vernda.
Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Reyðaráls, og Sigfús Jónsson frá Nýsi hf. kynntu matsskýrslu Reyðaráls vegna álverksmiðju í Reyðarfirði. Fram kom í máli þeirra að fullbyggt myndi álverið losa hátt í 800.000 tonn af gróðurhúsalofttegundum á ári. Samfélagsleg áhrif yrðu mikil og margvísleg, s.s. meiri og fjölbreyttari atvinna, hærri laun og líkleg fólksfjölgun.
Ráðgjafar Landsvirkjunar, Sigurður St. Arnalds, Gísli Gíslason og Kristinn Haukur Skarphéðinsson, kynntu matsskýrslu Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar sem yrði á við þrjár Búrfellsvirkjanir. Miðlunarlón hennar myndi verða 55 km2 og þar af færu 33 km2 gróðurlendis undir vatn. Vatnsborðssveiflan yrði 75 m eftir árstímum og miklar breytingar á rennsli í Lagarfljóti þar sem gríðarlegt vatnsmagn yrði flutt þangað úr Jökulsá á Dal.
Mörgum stórum spurningum var velt upp af fundarmönnum milli erinda. Einkum virtist fólk hafa áhyggjur af náttúruspjöllum, vatnaflutningum, áhrifum framkvæmdanna á aðra þætti atvinnulífsins, losun gróðurhúsalofttegunda, loftmengun í Reyðarfirði og gróðurfarslegum áhrifum í nágrenni uppistöðulónsins innan við Kárahnjúka.

