Fréttir

Yfirlýsing vegna heræfinga á Íslandi

11.10.2001

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs mótmælir heræfingum þeim sem nú standa yfir á Íslandi. Óþolandi er að landið sé enn einu sinni gert að vettvangi fyrir æfingar á stríðsaðgerðum. Sérstaklega er það ógeðfellt að liðs- og birgðaflutningar vegna heræfinganna skyldu vera hafnir á sjálfum þjóðhátíðardeginum, 17. júní.

Þingflokkurinn telur að Ísland eigi að skipa sér á bekk með vopnlausum ríkjum og leggja sín lóð á vogarskálar þeirra sem vinna að friði og afvopnun á alþjóðavettvangi. Heræfingar þessar eru mengun í fleiri en einum skilningi og liður í að viðhalda þeirri stöðu sem vígbúnaður hafði á dögum kalda stríðsins, auk þess sem þær sverta þá ímynd landsins að hér megi finna friðsæld og óspillta náttúru.

Þingflokkur VG ítrekar fyrri kröfur sínar um að Ísland verði friðlýst fyrir hvers kyns vopnaskaki og harmar undirtektir ríkisstjórnarinnar við stjörnustríðsáætlanir Bandaríkjaforseta sem yrðu bæði brot á afvopnunarsamningum frá 1972 og upphafið að nýju vígbúnaðarkapphlaupi.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica