Frá opnum þingflokksfundi í Þjórsárverum
Eftirfarandi samþykkt var gerð einróma á opnum þingflokksfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sem haldinn var í Þjórsárverum laugardaginn 21. júlí:
Opinn fundur þingflokks Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs haldinn í Þjórsárverum, laugardaginn 21. júlí 2001, telur að vernda eigi Þjórsárver og umhverfi þeirra en ekki spilla þessu einstaka, friðaða landsvæði og umhverfi þess með frekari virkjunum. Fundurinn tekur undir tillögur sem fram hafa komið um að friðlandið verði stækkað og mörk þess dregin þannig að sem mest af gróðurlendi svæðisins lendi innan friðlýsingarmarkanna. Fundurinn mótmælir þess vegna harðlega framkomnum hugmyndum um Norðlingaöldumiðlun og þeirri skerðingu friðlandsins í Þjórsárverum sem af henni hlytist. Í stað þess að hrófla við Þjórsárverum frekar en orðið er þarf að endurmeta á faglegum forsendum hvar eðlileg mörk friðlandsins eiga að vera og færa þau út í samræmi við það. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs mun í upphafi þings beita sér fyrir því að þegar verði hafist handa í þessu máli.
Greinargerð
Þjórsárver eru að hluta friðlýst enda þykir svæðið einstakt vegna landslags, gróðurfars og dýralífs. Í friðlýsingu Þjórsárvera kemur fram að ekki skuli virkja ef rannsóknir sýna að lónsmyndun yrði til þess að náttúruverndargildi veranna rýrnaði.
Nú þegar hefur 40% af Þjórsá verið veitt til Þórisvatns og síður en svo er séð fyrir endann á þeim áhrifum sem þessar veitur munu hafa á umhverfi Þjórsárvera og verin sjálf. Hætt er við að frekari breytingar á vatnafari svæðisins muni hafa ófyrirséð og alvarleg áhrif. Niðurstöður rannsókna dr. Þóru Ellenar Þórhallsdóttur um gróður og miðlunarlón í Þjórsárverum sýna að veruleg áhætta er tekin með myndun uppistöðulóns eins og nú eru hugmyndir um. Slík lónsmyndun hefði mikil áhrif á svæðinu öllu og rýrði náttúruverndargildi veranna umtalsvert. Einnig er nauðsynlegt að hafa í huga að stórframkvæmdir með tilheyrandi vegagerð, línulögnum og öðrum mannvirkjum í nágrenni við friðlýsta svæðið hefðu að sjálfsögðu keðjuverkandi áhrif og kæmu niður á friðlandinu.
Mikil áhersla hefur á undanförnum árum verið lögð á gróðurvernd og uppgræðslu og kapp lagt á að hefta fok frá hálendi landsins. Hafa verður í huga að lón í Þjórsárverum myndi sökkva 7 km² gróins lands og orsaka öldurof og strandmyndun í vel grónu landi við Þjórsá. Það hefði í för með sér alvarlegan uppblástur og víðtæk áhrif á gróður á stóru svæði. Slíkar framkvæmdir væru því í fullkominni mótsögn við viðleitni til að hefta uppblástur og jarðvegseyðingu á hálendi landsins.
Umtalsvert gróðurlendi er utan marka núverandi friðlands. Líta verður á það sem hluta af heildarsvæðinu, því ásamt verunum, jökulkvíslunum, jöklinum að baki og aðliggjandi auðnum myndar allt þetta einstakt vistkerfi og er hluti stórfenglegrar landslagsheildar með margbreytilegu fugla- og dýralífi, gróskumiklu gróðurfari og fjölbreyttu vatnakerfi.

