Fréttir

Sumarferð á Austurlandi

12.10.2001

Sumarferð Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs á Austurlandi verður farin sunnudaginn 12. ágúst n.k.
Lagt verður af stað frá Söluskála KHB á Egilsstöðum kl. 9:30 árdegis og farið að lón-og stíflustæði fyrirhugaðrar Káranjúkavirkjunar austan Jöklu.
Ekið verður að Brú á Jökuldal og um söguslóðir Hrafnkelssögu Freysgoða. Úr Hrafnkelsdal er ekið að Hálsöldu, en legra verður ekki ekið að Jöklu að austan og sunnan Kárahnjúka. Gengið verður 7-8 km leið um Lindur og niður með Jökulsárgili að Fremra-Kárahnjúk. Þetta er létt 3-4 tíma ganga. Þeir sem ekki treysta sér í gönguna geta farið í stytti göngur undir leiðsögn Helga Hallgrímssonar.
Gott útsýni er yfir Dimmugljúfur og fyrirhugað stíflustæði af Fremri-Kárahnjúk og Kárahnjúkaskarði.
Boðið verður uppá létta máltíð að göngu lokinni (ath. þátttakendur þurfa að nesta sig að öðru leyti) og heimleiðin látin ráðast af veðri og tíma.
Leiðsögumenn: Skarphéðinn Þórisson og Helgi Hallgrímsson
Verð kr. 2000.- frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
Ferðin er öllum opin.
Skráning í símum: 471-1531, 861-9031, 854-8981,
Netfang: thback@althingi.is

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica