Frá þingflokki VG
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fagnar niðurstöðu
Skipulagsstofnunar um Kárahnjúkavirkjun og þakkar stofnuninni vandlega unninn, ítarlegan og vel rökstuddan úrskurð um þá framkvæmd sem henni var lögum samkvæmt falið að meta.
Hins vegar lítur þingflokkurinn alvarlegum augum viðbrögð ýmissa ráðherra ríkisstjórnarinnar við þeirri niðurstöðu sem þeim er ekki að skapi og harmar ummæli þeirra í garð Skipulagsstofnunar. Þeim ummælum virðist ætlað að rýra trúverðugleika stofnunarinnar og gera lítið úr stofnuninni sjálfri og starfsfólki sem þar vinnur.
Skipulagsstofnun er hluti af því eftirlits- og matskerfi sem Alþingi ákvað að tæki á málum af þessu tagi. Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum er Skipulagsstofnun falið að "kveða upp rökstuddan úrskurð um mat á umhverfisáhrifum á grundvelli fyrirliggjandi gagna". Það hefur hún gert. Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands geta ekki leyft sér að kasta rýrð á störf fólks sem sinnir lögboðnum skyldum sínum af fagmennsku og trúnaði.
Látið hefur verið liggja að því að verði farið að úrskurði Skipulagsstofnunar muni byggð á Austfjörðum stefnt í voða og jafnvel að með úrskurðinum séu afskrifaðar allar virkjanir norðan Vatnajökuls.
Um árabil hefur Austfirðingum verið haldið í gíslingu vegna stóriðjuáforma ríkisstjórnarinnar sem hefur skellt skollaeyrum við varnaðarorðum um að byggja atvinnuþróun í þessum landshluta nánast eingöngu á slíkum hugmyndum. Það er ekki að undra að landsmenn, ekki síst á Austfjörðum, reiðist því þegar í ljós kemur að þessi áform standast hvorki mat á umhverfisáhrifum né efnahagslegar forsendur.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs hefur ítrekað bent á hversu alvarlegar afleiðingar það getur haft að stuðla að einhæfni í atvinnulífi í stað þess að skapa forsendur fyrir fjölbreytni og nýsköpun.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs hefur lagt fram ákveðnar tillögur um uppbyggingu atvinnulífs og fjölbreytt atvinnutækifæri bæði á Austfjörðum og annars staðar á landinu. Því miður hafnaði meirihluti Alþingis tillögu þingflokksins um að boðað yrði til sérstaks aukaþings í sumar til að fjalla um byggðaröskun og móta markvissa stefnu um hvernig skipuleggja megi atvinnu og samfélagsþjónustu um land allt.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs mun í upphafi þings í haust leggja til að Alþingi veiti sérstöku fjármagni til uppbyggingarstarfs á Austfjörðum.

