Fréttir

Vetrarstarf Eldri vinstri grænna

6.11.2006

Eldri vinstri græn á SV-horni landsins boða til fyrsta fundar vetrarins fimmtudaginn 9. nóv. kl. 20. Fundurinn verður í húsi Eldri borgara í Reykjavík að Stangarhyl 4.  ?  Á dagskrá er m.a.:  
 
1) Svipmyndir úr baráttu fyrir sjálfstæði og herlausu landi: Ragnar Arnalds, rithöfundur og fyrrverandi ráðherra bregður upp ljósmyndum frá liðnum tíma og ræðir framtíðarviðhorfin.
 
2)Mannauður og hugmyndaauðgi eða 20 tonn af brennisteini? ? Vangaveltur um viðhorf til mögulegrar stækkunar álversins í Straumsvík: Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framhaldsskólakennari og bæjarfullrúi VG í Hafnarfirði.
 
3) Heimsókn frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar:  Hljómsveitin ENKIDU, Þórður G. Hermannsson, sellóleikari. Sigursveinn Magnússon skólastjóri aðstoðar.
 
Þótt fundurinn sé haldinn á vegum eldri félaga í VG eru allir flokksfélagar og gestir þeirra, án tillits til aldurs eða flokksaðildar, velkomnir á fundinn.     

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica