Fréttir

Mótmælum sölu Landsímans

12.10.2001

Þingflokkur og varaþingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs héldu síðari fund sinn á þessu ári 14. og 15. september. Á fundinum voru helstu viðfangsefni stjórnmála líðandi stundar til umræðu, m.a. sala Landsíma Íslands, en eins og menn muna voru þingmenn VG ötulir í málflutningi gegn sölunni sl. vor þegar um hana var fjallað á Alþingi. Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun:

Þingflokkur VG mótmælir harðlega fyrirætlunum um sölu Landsíma Íslands. Fjarskipti og gagnaflutningar eru grunnþjónusta sem allir landsmenn eiga að hafa jafnan aðgang að. Með því að halda Landsímanum í ríkiseign er hægt að tryggja jöfnuð í þjónustu og gjaldskrá og jafnframt beita styrk fyrirtækisins til áframhaldandi uppbyggingar á fjarskiptakerfi landsmanna. Landsíminn hefur sinnt vel sínu hlutverki og auk þess skilað miklum fjármunum í ríkissjóð.

Nú er ríkinu ætlað afsala sér arðinum af starfsemi Landsímans en standa eftir sem áður undir þeirri þjónustu sem ekki skilar arði. Til að bæta gráu ofan á svart er fyrirhugað að selja stofnunina við mjög óhagstæðar aðstæður í viðskiptaheiminum.

Sala á Landsímanum nú gengur þvert á loforð um að fyrirtækið verði áfram í meirihlutaeigu Íslendinga. Þess í stað á nú að afhenda erlendum fjárfesti meirihlutavald í stjórn og forgang að meirihlutaeign síðar. Þannig er erlendum aðilum veitt lykilstaða í fyrirtæki sem í raun hefur einokunarstöðu á markaði hérlendis.

Þingflokkur VG skorar á ríkisstjórnina og stuðningsflokka hennar að endurmeta allar hugmyndir sínar um sölu Landsímans.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica