Fréttir

Aðalfundir félaga og landsfundur flokksins

12.10.2001

Um þessar mundir er mikið um að vera í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði enda standa yfir aðalfundir kjördæmisfélaga og deilda og kjör fulltrúa á landsfund flokksins en það verður haldið í Borgartúni 6 í Reykjavík dagana 19. - 21. október næstkomandi. Yfirskrift landsfundarins verður "Byggjum framtíð á fjölbreytni" og þetta hugtak, fjölbreytni verður nokkurs konar uppistöðuþráður í dagskrá landsfundarins.

Aðalfundir félaga og deilda
Ástæða er til að vekja athygli þeirra sem heimsækja heimasíðu VG að undir fyrirsögninni Fundir / samkomur hér til hliðar er að finna yfirlit yfir þá fundi sem næstir eru í tímaröðinni hjá flokknum, kjördæmisfélögunum og deildunum.


 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica