Aðalfundur Ungra Vinstri-grænna
Aðalfundur Ungra Vinstri-grænna verður haldinn á Hótel Lind við Rauðarárstíg kl. 15:00 sunnudaginn 30. september.
Ungir Vinstri-grænir hafa starfað í eitt ár. Á þeim tíma hefur verið haldinn fjöldi málfunda og heimasíðan www.uvg.vg sett á stofn.
Nú er kominn tími til að meta starfið og endurýja í stjórninni. Ásamt öðrum aðalfundarstörfum munum við ræða utanríkismál og stöðu Íslands í breyttri heimsmynd. Þeir sem hafa hug á að sitja landsfund VG í október eru beðnir að gefa sig fram svo hægt verði að koma ábendingum um fulltrúa úr röðum okkar til uppstillinganefndar.

