Fréttir

Framboð í Hafnafirði

12.10.2001

Vinstrihreyfingin - Grænt framboð í Hafnarfirði er að hefja undirbúning að framboði til bæjarstjórnarkosninga á vori komanda. Félagsdeild VG í Hafnarfirði heldur almennan félagsfund mánudaginn 1. október nk. Á fundinum verður farið yfir stöðu mála á hinum pólítíska vettvangi í Hafnarfirði og rætt með hvað hætti hreyfingin geti lagt Hafnfirðingum best lið á næsta kjörtímabili. Í ljósi þess sem hefur gerst á þessu kjörtímabili, er veruleg þörf á því að rödd hreyfingarinnar heyrist sem best. Ýmis mikilvæg málefni bíða úrlausnar eftir stjórnartíð núverandi meirihluta í Hafnarfirði.

Fundurinn verður á veitingahúsinu A.Hansen og hefst kl. 21:00 stundvíslega. Allir félagar í Vinstrihreyfingunni-Grænu framboði og þeir sem hafa áhuga á starfi VG eru hvattir til þess að mæta.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica