Fréttir

Frá VG á Suðurlandi

12.10.2001

Aðalfundur kjördæmisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Suðurlandi var haldinn á Hótel Selfoss mánudagskvöldið 1. október. Steingrímur J. Sigfússon ávarpaði fundinn og gerði grein fyrir stjórnmálaviðhorfunum í upphafi þingtímans. Einn stjórnarmaður baðst undan endurkjöri vegna annríkis, en annars var stjórnin endurkjörin og er Þorsteinn Ólafsson á Selfossi formaður kjördæmisfélagsins.

Fundarmenn voru sammála um að skerpa þyrfti áherslur í sveitastjórnarmálum og var ákveðið að hefja undirbúning að framboði undir merkjum flokksins eða í samstarfi við aðra í Árborg og víðar í kjördæminu fyrir sveitastjórnarkosningarnar næsta vor. Bæjarmálahópur VG í Árborg mun hefja fundaröð í þessum mánuði og verður byrjað á því að ræða skólamál í Árborg. Fundirnir verða auglýstir síðar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica