Árásir á varnarlaust fólk
Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Kópavogi 9. október 2001 lýsir yfir samúð með öllum þeim sem um sárt eiga að binda vegna ódæðanna í Bandaríkjunum 11. september s.l. Fundurinn fordæmir þau heilshugar.
Jafnframt lýsir fundurinn andúð sinni á hernaði Bandaríkjanna og Breta í Afganistan sem þegar hefur bitnað á saklausu og varnarlausu fólki. Við minnum á að almenningur hefur engar sannanir séð sem sýna fram á að höfuðpaura ódæðisverkanna í Washington og New York sé að finna í Afganistan.
Fundurinn undrast og fordæmir skammsýni og blint þýlyndi þeirra stjórnmálamanna sem hlakka yfir þegar sprengjur falla á hrjáða þjóð.
Heimsfriðnum er ekki ógnað af fólki á asnakerrum og friður verður ekki tryggður með því að sprengja þjóð aftur á steinöld. Þessar aðgerðir munu aðeins auka ótta og umburðarleysi í heiminum og breikka gjá glórulauss haturs á milli menningarheima.

