Fréttir

17 gefa kost á sér í forvali VG í Norðaustur-kjördæmi

7.11.2006

Frestur til að tilkynna um þátttöku í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðaustur kjördæmi rann út  5. nóvember.  Forvalið fer fram með póstkosningu og hafa kjörseðlar nú verið sendir til allra félagsmanna.  Frestur til að skila inn kjörseðlum er til 20. nóvember.  Uppstillinganefnd mun hafa úrslit forvalsins til leiðbeiningar við röðun á framboðslista sem verður lagður fram og endanlega ákveðinn á kjördæmisþingi í desember.

Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til að skipa eitthvert af 6 efstu sætum listans:

 

Anna Margrét Birgisdóttir, 45 ára kennari, Breiðdalsvík

Ásbjörn Björgvinsson, 49 ára forstöðumaður, Húsavík

Ásmundur Páll Hjaltason, 31 árs vélamaður, Neskaupsstað

Bjarkey Gunnarsdóttir, 41 árs kennari, Ólafsfirði

Björn Valur Gíslason, 47 ára sjómaður, Ólafsfirði

Finnur Dellsén, 22 ára nemi, Akureyri

Hlynur Hallsson, 38 ára myndlistarmaður, Akureyri

Ingibjörg Hjartardóttir, 54 ára rithöfundur, Dalvíkurbyggð

Jóhanna Gísladóttir, 50 ára framkvæmdastjóri, Seyðisfirði

Jón Kristófer Arnarson, 44 ára garðyrkjufræðingur, Akureyri

Jósep Helgason, 31 árs verkamaður Akureyri

Klara Sigurðardóttir, 54 ára skrifstofumaður, Akureyri

Steingrímur J. Sigfússon, 51 árs alþingismaður, Þistilfirði

Trausti Aðalsteinsson, 45 ára framkvæmdastjóri, Húsavík

Þorsteinn Bergsson, 42 ára bóndi, Fljótsdalshérað

Þórunn Ólafsdóttir, 21 árs nemi, Fáskrúðsfirði

Þuríður Backman, 58 ára alþingismaður, Egilsstöðum

 

Einnig hafa fjölmargir aðilar haft samband við uppstillinganefnd og lýst áhuga sínum á að skipa eitthvert af neðri sætum listans.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica