Byggjum framtíð á fjölbreytni
Vinstrihreyfingin - grænt framboð heldur landsfund sinn í Borgartúni 6, Reykjavík, dagana 19. - 21. október nk. Þetta er annar landsfundur flokksins sem var stofnaður 6. febrúar 1999. Fundurinn er opinn öllum skráðum félögum í VG en kjörnir fulltrúar með atkvæðisrétt eru nær 160 talsins.
Setningarhátíð landsfundar VG verður kl. 17 - 19 föstudaginn 19. október
Þar syngur Kvennakór Reykjavíkur, Elísabet Jökulsdóttir flytur ávarp, Þorvaldur Þorvaldsson syngur einsöng og formaður VG, Steingrímur J. Sigfússon, flytur setningarræðu.
Almennar stjórnmálaumræður fara fram á föstudagskvöld og er reiknað með að þær hefjist kl. 20:00.
Fjöldi ályktana um ýmis mál liggja fyrir landsfundinum og munu fjölmiðlar fá afhenta möppu með öllum fundargögnum í Borgartúni 6 strax við setningu landsfundarins. Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður (862 4808 ) og Sigtryggur Jónsson sálfræðingur (698 1701) sem bæði eru fulltrúar á landsfundinum hafa tekið að sér tengsl og aðstoð við fréttamenn.
Laugardaginn 20. október kl. 15.30 - 17:00 verður sérstakur dagskrárliður um þema landsfundarins "Byggjum framtíð á fjölbreytni"
Ármann Jakobsson hefur framsögu en síðan verða hringborðsumræður með þátttöku fólks af hinum ýmsu sviðum mannlífsins, lista, atvinnulífs, heimspeki, fjölmenningar, fjölmiðlunar og umhverfismála.
Sérstakur gestur landsfundarins verður Kristin Halvorsen, formaður Sosialistisk Venstreparti í Noregi og mun hún ávarpa fundinn að loknum hringborðsumræðunum laugardaginn 20. október. Meðfylgjandi er örstutt yfirlit um Kristinu. Fjölmiðlar sem vilja ræða við hana eru beðnir að hafa samband við þau Kolbrúnu eða Sigtrygg með góðum fyrirvara því Kristin getur því miður ekki dvalið á Íslandi nema rúman sólarhring. Reiknað er með að hún hitti fjölmiðla á sunnudagsmorgun.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð vonar að fjölmiðill þinn hafi tækifæri til að fylgjast með störfum landsfundarins og segja frá þeim í fjölmiðlinum bæði í almennum fréttum og með ítarlegri umfjöllun í fréttaskýringum og/eða umræðuþáttum.

