Fréttir

Fjölbreytni gleður og glæðir

20.10.2001

Manneskjan hefur gaman af tilbreytingu og hefur vafalaust ætíð haft.  Einmanaleiki og fásinni hafa í huga okkar dapur-legan hljóm og við vitum vel að maður er manns gaman og manneskjan félagsvera.  Hvers vegna í ósköpunum ættum við annars að vera hér? Stöldrum aðeins við og veltum fyrir okkur þeim breytingum er við sem erum á miðjum aldri höfum upplifað.  Kannski er hnattvæðingin það orð sem skilgreinir breytingarnar bezt.  Sú jákvæða hnattvæðing sem birtist í þekk-ingu, þeirri þekkingu sem eyðir ótta, en getur vissulega líka vakið hann.

Orðið hugmynd öðlaðist nýja merkingu hjá mér fyrir nokkrum árum þegar ég þurfti að útskýra það fyrir erlendum vini mínum.  Þetta er í raun og veru alveg dásamlega ríkt orð.  Bragðið þið aðeins á því - mynd í huganum.  Það er allt annað en flatneskjan idé  á erlendum málum.  Hugmyndirnar geta verið réttar og rangar, ríkar og fátækar, en þær eru ómetanlegar og grund-völlur alls sem til framtíðar horfir.  Við höfum sjálfsagt öll gert okkur eigin hugmyndir um hvernig Gunnar á Hlíðarenda leit út, að ekki sé minnzt á Hallgerði og ýmsar aðrar sögupersónur.  Við gerðum okkur líka hugmyndir um það hvernig aðrir þjóðflokkar og lönd litu út.  Höfum við ekki öll fengið hroll við tilhugsunina um að við hefðum verið flutt á hinar józku heiðar?  Það kom mér algjörlega í opna skjöldu að sjá hvað þær voru vinalegar og með öllu óskyldar íslenzkum heiðum þótt ekki ætli ég að leggja fegurðarmatið huglæga á þessi ólíku heiðalönd.

Nú fáum við þetta allt framreitt í myndmáli, alþjóðamáli okkar tíma.  Ekki nóg með það, heldur hefur nútíminn fært okkur möguleika til þess að heimsækja önnur lönd og kynnast öðrum þjóðum af eigin raun - og jafnvel búa með þeim.  Sú fjölbreytta reynsla sem við þannig getum öðlazt er ómetanleg þegar hún leiðir til aukins skilnings og umburðarlyndis.  Hið sama á raunar einnig við í okkar heimalandi.  Það auðgar og gleður að umgangast fólk með mismunandi hugsunarhátt og lífsmynstur, af mismunandi kynferði, aldri, kynhneigð, starfsgreinum o.s.frv.   Hið óendanlega mannlega litróf er í raun uppsprettan að allri sköpun, framþróun og velferð - allri gleði. Til þess að geta nýtt okkur reynslu, þekkingu og minningar þurfum við hins vegar tíma og hann er hörgulvara í dag.  Við þurfum tíma til að vinna úr þeim áhrifum sem við verðum fyrir, flokka í skúffur í heilabúinu og setja í viðbragðasjóðinn.

Staðreyndaþekkingin sem myndmálið í sjónvarpi, blöðum, tölvum og kvikmyndum færir okkur er verulegt áreiti.  Hraðinn eykst stöðugt og allt á að vera svo ofboðslega skemmtilegt að úrvinnslutíminn má helzt enginn verða. Vönduð vinnubrögð eru orðin hallærisleg af því að þau hefta hraðann.  Þar skapast firringin, því við getum ekki tekið endalaust við heldur hættum að taka inn, að ekki sé talað um að melta.  Þess vegna tala morgunþulirnir á röflrásunum um loftárásirnar á Afganistan eins og umferðina á

Miklubrautinni á meðan röddin í þeim gengur í bylgjum í takt við hvernig þeir hossa sér í stólnum, af því þarf að vera svo mikið stuð.  Það er líka þess vegna sem sífellt fleiri dreymir um griðastað í sveit, fjarri símalínum, örbylgjum og hávaðamengun.  Þar sem hægt er að sitja í fallegri náttúru með góðan texta og bragða á orðunum.  Fjarri áreiti kapítalismans sem dælir í okkur ærandi tónlist og auglýsingum til að örva neyzluna.

Það er yndislegt að upplifa þá tíma sem færa okkur alla þessa upplýsingu sem við getum nýtt okkur til betri skilnings og samkenndar en það er enginn fjölmiðill eða margmiðill sem getur komið í staðinn fyrir það að vera hluti af hópi og andrúmslofti, þar sem orð sprettur af orði og hugmynd af hugmynd. Kæru félagar ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin til annars lands-fundar Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs undir kjörorðinu Byggjum framtíð á fjölbreytni.   Sérstaklega vil ég bjóða félagana af landsbyggðinni velkomna til Reykjavíkur, með öllum sínum kostum og göllum.  Við skulum nota þessa þrjá daga til þess að hlýða á hið talaða og ljóðaða orð, alla orðsnill-inga þessa flokks, njóta þess og bragða á því, láta hugann reika, skiptast á skoðunum, - okkur öllum og hugmyndum okkar um betra líf til framdráttar.

Sigríður Stefánsdóttir

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica