Fréttir

Að loknum landsfundi

26.10.2001

     Viku eftir að landsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lauk ættu flestir að vera búnir að draga andann og tími komin til að snúa sér að næstu verkefnum.
    
Áður en vikið verður að þeim vil ég þó minnast nokkrum orðum á landsfundinn sjálfan og þakka öllum sem með þátttöku sinni í fundinum eða starfi í tengslum við hann áttu hlut að því að gera hann jafn glæsilegan og raun bar vitni. Flestir þeirra sem ég hef hitt að máli eftir að fundinum lauk og fylgdust með í fjölmiðlum sjá fundinn sem sterka og vel heppnaða samkomu. Það er að sjálfsögðu ánægjulegt fyrir okkur að skilaboð landsfundarins kölluðu fram jákvæð viðbrögð. Ennþá meira virði er þó sú góða tilfinning sem þátttaka í kraftmikilli samkomu skilur eftir, þátttaka og vinsemd fjölda fólks á fundinum þar sem allir vildu leggja gott mála og taka þátt í að byggja upp nýtt stjórnmálaafl. Veikburða tilraunir fáeinna aðila til að draga eitthvað neikvætt fram sem fundinum tengist eru mislukkaðar og fyrst og fremst til marks um smæð þeirra sem ekki geta unnt öðrum velgengni og gleði yfir vel unnu verki.
    
Verkefnin framundan eru margvísleg og mikilvæg. Í tugum sveitarfélaga um allt land er undirbúningur hafinn að sveitarstjórnarkosningum næsta vor. Þátttaka í kosningunum, stofnun fleiri flokksfélaga og uppbygging almenns flokksstarfs með söfnun nýrra félaga, málefnavinnu og öðru slíku eru tvímælalaust mikilvægustu verkefnin til vorsins. Samtímis því að sinna þessu þurfum við öll, hvert á sínum vettvangi, að sinna hinni daglegu pólitík, tala fyrir okkar málstað með rökum og gagnrýna það sem er gagnrýnivert. Við skulum halda okkar striki og ekki láta þá andstæðinga okkar, sem eru hræddir við rökræðuna og reyna að flýja á náðir slagorðanna, trufla okkur. Við erum vel nestuð í næsta áfanga leiðarinnar með mikinn efnivið frá starfsömum og vel heppnuðum landsfundi - og vopnuð bjartsýni og baráttuvilja að auki.

Steingrímur J. Sigfússon

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica