Fréttir

Stærsta umhverfismál nútímans

30.10.2001

Nú er að hefjast fundur aðildarríkja að rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar  í Marrakech í Marokko. Fulltrúar um það bil 180 ríkja sækja ráðstefnuna þar á meðal fulltrúar íslensku ríkisstjórnarinnar. Allar götur frá því rammasáttmáli SÞ um loftlagsbreytingar var tilbúinn til undirritunar á Ríó-ráðstefnunni 1992 hefur farið fram kröftug umræða á heimsvísu um tilraunir alþjóðasamfélagsins til að bregðast við þessu stærsta umhverfismáli samtímans. Rammasamkomulagið hefur tekið breytingum á þeim ráðstefnum sem haldnar hafa verið frá undirritun samkomulagsins en í því sambandi ber hæst ráðstefnuna í Kyoto árið 1997. Árið eftir var ráðstefnan haldin  í Buenos Aires í Argentínu en í kjölfar hennar var um það rætt í umhverfisnefnd  að eðlilegt væri að  Alþingi legði meiri rækt við að fylgjast með þróun mála á þessu sviði  og sendi fulltrúa á vettvang.  Slíkt væri í samræmi við vinnubrögð annarra þjóðþinga. Sem dæmi má nefna að á ráðstefnuna í Marrakech sendir finnska þingið þrjá fulltrúa og Norðmenn munu senda fimm þingmenn á kostnað Stórþingsins. Frá Íslandi fer umhverfisráherra og sveit embættismanna en enginn fulltrúi Alþingis.

Fyrir allnokkru síðan lýsti þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs þeirri skoðun sinni að Alþingi bæri að senda fulltrúa á vettvang. Í septembermánuði barst stjórn þingsins síðan fyrirspurn frá umhverfisráðuneytinu um fyrirætlanir Alþingis í þessu efni. Forseti Alþingis, í nafni forsætisnefndar, svaraði umhverfisráðuneytinu á þann veg að ekki stæði til að Alþingi sendi fulltrúa á ráðstefnuna. Þess skal getið að Árni Steinar Jóhannsson varaforseti þingsins bókaði mótmæli gegn þessari ákvörðun.

Þegar neikvæð afstaða stjórnar Alþingis lá fyrir var sú ákvörðun tekin í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að þess yrði engu að síður freistað að senda fulltrúa þingflokksins á ráðstefnuna á kostnað þingflokksins sjálfs, að því tilskyldu að sá fulltrúi nyti réttinda sem þingmaður  hliðstætt því sem gerist almennt um þingmenn á slíkum ráðstefnum.. Umhverfisráðuneytið svaraði erindi þingflokksins um þetta efni á þá lund að það væri komið undir stjórn Alþingis hvort fulltrúinn hlyti slíka viðurkenningu. Þegar þingflokkurinn sneri sér til forseta Alþingis til að fá staðfestingu á því að fulltrúi þingflokks VG færi í nafni Alþingis var því formlega  hafnað.

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs mótmælir harðlega þessum vinnubrögðum en hvetur jafnframt til þess að Alþingi endurskoði afstöðu sína til þátttöku í alþjóðasamstarfi. Það er ekki nema sjálfsagt að  ráðherrar og embættismenn sem hafa það verkefni að fylgjast með þessu brýna hagsmunamáli sæki mikilvægar ráðstefnur af þessu tagi. Hitt er fráleitt að fulltrúum þjóðþinganna sem setja lögin sé haldið utan við slíkar ráðstefnur.  Minna má á að væntanlega kemur til kasta Alþingis innan tíðar að staðfesta Kyótó-bókunina og taka í framhaldi af því margar ákvarðanir sem lúta að loftslagsmálunum. Víðast hvar í heiminum er það óumdeilt að á loftslagsráðstefnum Sameinuðu Þjóðanna er fjallað um eitt mikilvægasta hagsmunamál jarðarbúa. Íslensk stjórnvöld virðast hafa skilning á mikilvægi þessara fundahalda enda fara 5 fulltrúar þriggja ráðuneyta til fundarins í Marrakech að umhverfisráðherra meðtöldum Fulltrúum Alþingis er hins vegar meinað að  sækja ráðstefnuna í nafni þingsins, jafnvel þótt Alþingi hefði engan beinan kostnað af förinni. 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica