Stuðningur við sjúkraliða og tónlistarskólakennara
Tónlistarskólakennarar
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs hefur í dag m.a. rætt yfirstandandi kjaradeilu tónlistarskólakennara við vinnuveitendur. Þingflokkurinn lýsir yfir stuðningi við tónlistarskólakennara í yfirstandandi kjarabaráttu þeirra og skorar á samninganefnd Launanefndar sveitarfélaga að ganga nú þegar til samninga við Félag tónlistarskólakennara og Félag íslenskra hljómlistarmanna.
Þingflokkurinn telur furðu sæta að launanefnd sveitarfélaga skuli að því er virðist ætla að halda einum hópi kennara untan við þær kjarabætur sem aðrir kennarar sem starfa á vegum sveitarfélaganna hafa fengið. Slíkt vekur óneitanlega efasemdir um að rétt hafi verið að líta svo á að sveitarfélögin sýndu meiri skilning og ábyrgð störfum tónlistarskólakennara en ríkið gerði á meðan samið var við fjármálaráðuneytið.
Menningarlíf í sveit og borg hefur löngum sótt næringu og styrk inn í það skólastarf sem fram fer á hverjum stað ? ekki síst á sviði tónlistarinnar. Þá hefur sveitarfélögunum hentað vel að hampa góðum tónlistarmönnum. Nú er komið að því að meta starf tónlistarskólakennara að verðleikum og tryggja þá undirstöðu sem tónlistaruppeldi barna og unglinga byggir á með kennslunni sem fram fer í tónlistarskólunum.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs skorar á samninganefnd sveitarfélaga að gera sitt ítrasta til að ná samningum við tónlistarskólakennara og sjá til þess að störf og menntun þessa kennarahóps séu metin til jafns við aðra kennara.
Sjúkraliðar
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs hefur í dag m.a. rætt yfirstandandi kjaradeilu sjúkraliða við vinnuveitendur sína. Þingflokkurinn lýsir yfir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu sjúkraliða og krefst þess að viðsemjendur þeirra gangi nú þegar til samninga við Sjúkraliðafélag Íslands.
Kjaradeila sjúkraliða við viðsemjendur sína hefur nú þegar staðið mánuðum saman og alvarlegt ástand hefur skapast á sjúkrastofnunum um allt land. Vandinn mun fara vaxandi ef samningsgerð dregst enn á langinn. Öllum er þó ljóst að starf sjúkraliða myndar mikilvægan grundvöll heilbrigðisþjónustunnar. Til þess að tryggja þann undirstöðuþátt velferðarkerfisins sem heilbrigðisþjónustan er verður að skapa sjúkraliðum og öðrum þeim stéttum sem sinna mikilvægum þjónustu- og umönnunarstörfum viðunandi kjör. Margir sjúkraliðar hafa nú þegar gefist upp á eilífri baráttu fyrir réttmætum kjörum og sagt upp störfum sínum. Hætt er við að það fólk komi seint til starfa innan heilbrigðisþjónustunnar á nýjan leik.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs krefst þess að viðsemjendur Sjúkraliðafélags Íslands gangi þegar í stað til samninga við félagið.

