Fréttir

Frá VG í Hafnarfirði

8.11.2001

Hjá félagsdeild VG í Hafnarfirði er öflugt starf í gangi. Félagsdeildin kemur saman til fundar á hverju mánudagskvöldi kl. 20:00 á kaffihúsinu Súfistanum við Strandgötu Í Hafnarfirði. Þar sem talsvert hefur fjölgað í hreyfingunni hér í Hafnarfirði, bjóðum við nýtt fólk velkomið í okkar hóp.

Öllum er heimilt að koma á fundi félagsdeildarinnar í Hafnarfirði og láta í ljósi skoðanir sínar á því hvernig bæjarfélagið Hafnarfjörður á að þjóna íbúum sínum best. Sú þjónusta og þær áherslur, sem núverandi bæjarstjórnarmeirihluti hefur boðið uppá er engan veginn yfir gagnrýni hafin og því er bráðnauðsynlegt að afturkalla umboð hans sem fyrst. Við hvetjum unga, sem aldna sem vilja sjá breytingar á þessu mynstri til þess að taka þátt í þessu með okkur.

Formaður félagsdeildar VG í Hafnarfirði er Sigurbergur Árnason. Hafið samband við hann hér: sigurbergur@tark.is.

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica