Fréttir

Laugardagskaffi

15.11.2001

Næstkomandi laugardag, 17. nóvember, verður að venju opið hús hjá Vinstri grænum í Reykjavík frá kl. 11 - 13 í húsnæði flokksins á 3. hæð í Hafnarstræti 20.

Fulltrúar Vinstri grænna munu gera grein fyrir stöðunni í yfirstandandi könnunarviðræðum við Framsókn og Samfylkingu vegna borgarstjórnarkosninganna á næsta ári. Birna Þórðardóttir blaðamaður stýrir umræðum.

Gera má ráð fyrir að brátt fari að nálgast úrslit í viðræðunum og eru félagar hvattir til að mæta, viðra sjónarmið sín og skiptast á skoðunum.

Heitt verður á könnunni að vanda.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica