Fundur í Kópavogi
Vinstri grænir í Kópavogi halda félagsfund þriðjudaginn 27. nóvember kl. 20.30 í Þinghóli, Hamraborg 11, 3. hæð.
Sævar Tjörvason fjallar um þátttökulýðræði. Steingrímur J. Sigfússon ávarpar fundinn og svarar fyrirspurnum. Kynntur verður undirbúningur að bæjarstjórnarkosningum. Almennar umræður.
Fundurinn er opinn bæði félagsmönnum, stuðningsmönnum og öðrum sem hafa áhuga á að kynna sér starf og stefnu VG í Kópavogi.
Á félagsfundi 9. október sl. var samþykkt að leita eftir því við stjórn Samfylkingarinnar í Kópavogi að athugaður yrði möguleiki á samstarfi við komandi sveitarstjórnarkosningar. Í kjölfarið hafa farið fram könnunarviðræður. Fastir vinnu- og umræðufundir eru á þriðjudagskvöldum kl. 20 í Þinghóli, Hamraborg 11, og eru allir velkomnir sem áhuga hafa á að taka þátt í þessu starfi.
Í stjórn félagsdeildarinnar í Kópavogi eru:
Einar Ólafsson, Trönuhjalla 13, s. 564-2854, einarol@centrum.is
Sigurrós Sigurjónsdóttir, Gullsmára 9, s. 554-3616, rosam@islandia.is
Hafsteinn Hjartarson, Vogatungu 87, s. 554-5082 / 694-7940

