Fréttir

Fundur VG um endurreisn skipasmíðaiðnaðar

27.11.2001

skipmirMiðvikudagskvöldið 28. nóvember heldur Vinstrihreyfingin - grænt framboð almennan fund um atvinnumál með sérstaka áherslu á sjávarútvegsmál og endurreisn skipasmíðaiðnaðar á Íslandi.

Fundurinn verður á veitingahúsinu Kænunni í Hafnarfirði, Óseyrarbraut 2, við suðurhöfnina. Hann hefst stundvíslega kl. 20.30. Framsögu hafa Steingrímur J. Sigfússon, Ögmundur Jónasson og Árni Steinar Jóhannsson. Fundarstjóri verður Sigurbergur Árnason.

Fundurinn er öllum opinn og eru fundarmenn hvattir til að nota tækifærið og bera upp fyrirspurnir um fyrrgreint fundarefni svo og hvaðeina sem þeim er ofarlega í huga.  

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica