Fundur VG um Evrópumál

Á fullveldisdaginn laugardaginn 1. desember heldur Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík fund í húsakynnum flokksins á 3. hæð í Hafnarstræti 20 við Lækjartorg. Þar mun Ragnar Arnalds fyrrverandi alþingismaður hafa framsögu um Evrópusambandið og þróun þess. Ragnar hefur eins og kunnugt er skoðað þessi mál sérstaklega og heldur úti heimasíðunni www.fullveldi.is Fundurinn hefst kl. 11 og að framsögu lokinni verða fyrirspurnir og umræður. Heitt verður á könnunni að vanda og allir velkomnir.

