Þingmenn á faraldsfæti
Þingmenn Vinstri grænna hyggjast nýta vel hléið milli reglulegra þingfunda og eru nú óðum að tygjast til ferðalaga um hin ýmsu byggðarlög landsins. Þingmennirnir í Norðausturkjördæmi, Árni Steinar Jóhannsson, Steingrímur J. Sigfússon og Þuríður Backman, verða á ferð um kjördæmið dagana 7. til 12. janúar nk. Þau munu heimsækja fólk og vinnustaði, efna til almennra viðtalstíma og funda með félögum. Dagskráin verður eftirfarandi:
Mánudaginn 7. janúar bjóða þingmennirnir upp á kaffi og verða til viðtals kl. 17 - 19 á Gamla Bauk á Húsavík og kl. 20.30 verður fundur með félögum og stuðningsmönnum á sama stað.
Þriðjudaginn 8. janúar verða þingmennirnir með viðtalstíma kl. 16 - 18 í Ásbyrgi, Kelduhverfi, og kl. 20.30 verða þeir í Öxi á Kópaskeri.
Miðvikudaginn 9. janúar bjóða þingmenn upp á kaffi og viðtöl kl. 14 - 16 á Hótel Norðurljósum á Raufarhöfn.
Sama dag verða þeir til viðtals í Félagsheimilinu á Þórshöfn kl. 17 - 19 og þar verður svo fundur með félögum og stuðningsmönnum kl. 20.30.
Fimmtudaginn 10. janúar verða þingmennirnir með viðtalstíma kl. 13 - 14.30 í Grunnskólanum á Bakkafirði.
Sama dag kl. 17 -19 verður viðtalstími á Hótel Tanga á Vopnafirði og þar verður einnig fundur með félögum og stuðningsmönnum kl. 19.30.
Föstudaginn 11. janúar verða þingmennirnir til viðtals kl. 9.30 - 11 á Hótel Svartaskógi í Jökulsárhlíð.
Sama dag kl. 16 - 18 verða þingmennirnir með viðtalstíma kl. 16 - 18 í fundarsal Íþróttamiðstöðvarinnar á Seyðisfirði.
Að kvöldi föstudagsins kl. 20.30 verður svo fundur með félögum og stuðningsmönnum í Gistihúsinu Egilsstöðum.
Laugardaginn 12. janúar er boðið upp á viðtalstíma kl. 10 - 12 í Gistihúsinu Egilsstöðum. Um miðjan daginn kemur svo stjórn kjördæmisráðsins saman þar til fundar.
Sama dag, þ.e. laugardaginn 12. janúar, er svo boðið upp á "Pólitík og pönnukökur", samverustund með léttri dagskrá, í Gistihúsinu Egilsstöðum.

