Ályktun VG á Seltjarnarnesi um málefni innflytjenda
Aðalfundur Vinstri grænna á Seltjarnarnesi haldinn 7. nóvember 2006 leggur áherslu á nauðsyn upplýsandi og fordómalausrar umræðu um málefni nýrra Íslendinga svo og útlendinga í tímabundnum störfum hér á landi. Brýnt er að varpa skýru ljósi á stöðu þeirra mála svo að hægt sé að taka skipulega á þeim þáttum sem óviðunandi eru. Tryggja þarf eftirlit með að kjör og aðbúnaður erlends vinnuafls sé í samræmi við lög og samninga á íslenskum vinnumarkaði hvort sem um er að ræða skammvinna dvöl eða varanlega búsetu. Tryggja ber innflytjendum réttmæta aðstoð við að búa um sig í íslensku samfélagi, tryggja þeim raunhæfa möguleika til íslenskunáms og fræðslu um sögu og uppbyggingu þjóðfélagsins og þau réttindi sem þeir hafa sem Íslendingar. Sérstaklega þarf að huga að tafarlausum úrbótum í skólum landsins til að gera þeim kleift að mæta þörfum barna og fjölskyldna innflytjenda. Fundurinn skorar á stjórnvöld að taka skipulega á þessum málum með mannréttindi og virðingu að leiðarljósi.

