Fréttir

frost

Þegar dag tekur að lengja! - 24.12.2009

Þrátt fyrir skammdegismyrkur og veðragang eru vetrarsólstöður, jól og áramót kærkominn tíma á sinn hátt. Þá gefst örlítið næði frá hversdags amstrinu, til samveru með fjölskyldu og vinum, til þess að horfa yfir farinn veg sem og að huga að framtíðinni. Þegar horft er til baka yfir árið sem nú er að renna sitt skeið á enda verður seint annað sagt en það hafi verið bæði viðburða- og afdrifaríkt. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hlaut eldskírn sína í ríkisstjórn, kom fyrirvaralítið að stjórn landsins við einhverjar erfiðustu aðstæður sem nokkur ríkisstjórn lýðveldisins hefur glímt við. Í kjölfarið fóru fram kosningar og þar hlutum við sterkt umboð frá kjósendum. Aðrar kosningarnar í röð urðum við Vinstri græn helsti sigurvegarinn, fórum úr tæplega 9% fylgi í rúm 14% í kosningum vorið 2007 og síðan í tæp 22% sl. vor. Þingmannafjöldinn rúmlega tvöfaldaðist, úr 5 í 14. Saga íslenskra flokkastjórnmála geymir enga hliðstæðu við sögu okkar Vinstri grænna og það segir líka sína sögu að þrátt fyrir allt sem gengið hefur á skulum við þó vera stödd þar sem við erum í dag. Það endurspeglar mikinn styrk og hversu gott starf liðsmenn VG hafi unnið á þeim 10 árum sem liðin eru frá því hreyfingin var stofnuð.

Lesa meira
 
VG_logo_slagord

Gleðileg jól - 24.12.2009

Vinstri græn óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Við þökkum stuðninginn á árinu sem er að líða og munum ekki láta okkar eftir liggja í því stóra verkefni sem þjóðin glímir við, hvort sem er á landsvísu eða í sveitastjórnarmálum á komandi ári.

Lesa meira
 

Forval á Akureyri - 17.12.2009

Á félagafundi svæðisfélags VG á Akureyri og nágrenni var samþykkt að forval yrði fyrir sveitarstjórnarkosningar á Akureyri laugardaginn 6. febrúar á 11 ára afmæli flokksins. Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og verður jafn hlutur kynja tryggður við endanlega uppröðun ef þörf krefur, gegnum paraðan fléttulista. Framboðsfrestur rennur út laugardaginn 16. janúar. Félagsmönnum heimilt að koma með ábendingar um vænlega frambjóðendur til 9. janúar. Framboðum og ábendingum skal komið á netfang kjörstjórnar: jer@akureyri.is

Lesa meira
 

Lýst eftir framboðum - 14.12.2009

Kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík lýsir eftir framboðum í forvali flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Forvalið verður haldið þann sjötta febrúar n.k. í samræmi við reglur sem samþykktar hafa verið á félagsfundi.

Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og verður jafn hlutur kvenna tryggður við endanlega uppröðun ef þörf krefur. Framboðsfrestur rennur út laugardaginn sextánda janúar. Jafnframt er félagsmönnum heimilt að koma með ábendingar um vænlega frambjóðendur eigi síðar en til níunda janúar.

Lesa meira
 

Ítarlegar tillögur Vinstri grænna til að bæta aðbúnað barna og tekjulágra í Reykjavíkurborg - 10.12.2009

Þessar tillögur lagði Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi fram í borgarráði í dag. Þeirra á meðal eru tillögur um að nýta hækkun útsvars til hækkunar fjárhagsaðstoðar og fræðslumála, systkynaafslátt á skólamáltíðir og svo mætti áfram telja. Hér að neðan má sjá hvernig VG vill forgangsraða upp á nýtt í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2010

Lesa meira
 

Starfskraftur óskast í Suðurgötuna - 4.12.2009

Óskað er eftir manneskju til starfa fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Starfsviðið er hefðbundin skrifstofustörf, símavarsla, móttaka gesta, félagaskráning og annað sem til fellur í stórum flokki. Viðkomandi mun vinna með framkvæmdastýru flokksins á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Æskilegt er að viðkomandi sé þjónustulundaður, greiðvikinn, sveigjanlegur, hafi þekkingu á flokknum, búi yfir tölvukunnáttu og hugsjónum til góðra verka. Nánari upplýsingar um starfið veitir Drífa Snædal í netfangi drifa@vg.is. Umsóknir skulu berast: Vinstrihreyfingin – grænt framboð, pósthólf 175, 121 Reykjavík, fyrir 15. desember. Æskilegt er að nýr starfskraftur geti tekið til starfa fljótlega á nýju ári.

Lesa meira
 

Hagræðing í skólum verður að vera í samráði við starfsfólk - 25.11.2009

Fulltrúi Vinstri grænna í menntaráði getur ekki fallist á þær forsendur sem gefnar hafa verið við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010. Ber þar hæst óbreytt útsvarsprósenta þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað og minni tekjur borgarinnar. Tilgangur útsvars er að fjármagna sameiginlegan rekstur borgarbúa og því eðlilegt að þegar harðnar í ári dreifist kostnaðurinn með sanngjörnum hætti á borgarbúa. Fullnýtt útsvarsprósenta gæti skapað borginni 630 – 700 miljónir króna í tekjur árið 2010. Niðurskurðurinn er því enn meiri en nauðsyn krefur að mati Vinstri grænna. Þess má geta að ef sveitarfélög fengju aukna heimild til að hækka útsvarsprósentu t.d. um 1% til viðbótar myndi það gjörbreyta rekstrarforsendum borgarinnar, en myndi aðeins hækka útsvar um 6.250 krónur á mánuði hjá manni með 500 þúsund kr. í laun á mánuði.

Lesa meira
 

Hart tekist á um fjárlagagerð hjá borginni - 24.11.2009

Verið er að leggja lokahönd á fjárlögin hjá borginni þessa dagana og forgangsröðun meirihlutans kemur skýrt í ljós. Miskunnarlaus niðurskurður í menntamálum og velferðarmálum á meðan enn er gælt við framkvæmdir sem mega bíða betri tíma. Á fundi velferðarráðs í dag bókaði fulltrú VG, Drífa Snædal, eftirfarandi:

 

Fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði Reykjavíkurborgar getur ekki fallist á þær forsendur sem gefnar hafa verið við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010. Ber þar hæst óbreytt útsvarsprósenta þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað og minni tekjur borgarinnar. Tilgangur útsvars er að fjármagna sameiginlegan rekstur borgarbúa og því eðlilegt að þegar harðnar í ári dreifist kostnaðurinn með sanngjörnum hætti á borgarbúa. Fullnýtt útsvarsprósenta gæti skapað borginni 630 miljónir króna í tekjur árið 2010. Niðurskurðurinn er því enn meiri en nauðsyn krefur að mati Vinstri grænna.

Lesa meira
 

Fundagerðir sveitastjórnarráðs komnar á vefinn - 23.11.2009

Sveitastjórnarráð VG hefur óskað eftir því að fundagerðir þess verði settar á vef VG líkt og fundagerðir stjórnar flokksins. Þetta er því allt aðgengilegt á síðunni undir Um VG/Fundagerðir. Njótið vel.

Lesa meira
 

Benedikt Davíðsson - minning - 20.11.2009

Með Benedikt Davíðssyni er fallinn frá einhver traustasti og eljusamasti forystumaður verkalýðsbaráttunnar undanfarna áratugi. Benedikt átti ekki langt að sækja skilning sinn og samúð með kjarabaráttu launafólks, kominn af vestfirsku alþýðufólki og alinn upp við sjómennsku og fiskvinnslu á Patreksfirði. Hann stóð traustum fótum í lífsbaráttu alþýðufólks á Íslandi. Benedikt sótti sér síðan iðnmenntun til Reykjavíkur og helgaði upp úr því stóran hluta starfsævi sinnar félagsstörfum og kjarabaráttu fyrir sína félaga á því sviði. Hann skipaði sér í raðir sósíalista og tilheyrði róttækustu stjórnamálsamtökum landsins á hverjum tíma upp frá því. Forystustörfum hans fyrir Trésmíðafélag Reykjavíkur, Alþýðusamband Íslands og Samband byggingarmanna verða ugglaust gerð betri skil af þeim sem til þess eru færari en ég. Okkar leiðir lágu fyrst og fremst saman í gegnum stjórnmálastarfið, innan Alþýðubandalagsins og síðan Vinstri grænna.

Lesa meira
 

ESB-vefur VG - 17.11.2009

Vert er að benda á að fréttir af fundum um Evrópusambandið sem haldnir hafa verið undanfarið er að finna hér á vefnum undir "Stefna VG" og "ESB umræða". Njótið vel.
Lesa meira
 

Tíu hollráð fyrir þig sem hyggur á þátttöku í stjórnmálum - 13.11.2009

Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu. Höfundar eru fulltrúar kvenna úr öllum flokkum, Drífa Hjartardóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Kolbrún Stefánsdóttir, varaformaður Frjálslynda flokksins, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og Þórey A. Matthíasdóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna.

Lesa meira
 

VGR vill að breytingar á kosningalögum fari fyrir stjórnlagaþing - 12.11.2009

Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík haldinn 12. nóvember 2009 telur best fara á því ef stjórnlagaþingi yrði falið að móta tillögur um ný kosningalög sem tekið gætu gildi fyrir næstu Alþingiskosningar. Mikil þörf er á rækilegri endurskoðun kosningalaga, en fundurinn getur ekki fallist á frumvarp sem kemur í veg fyrir að flokkar geti tryggt jafnræði frambjóðenda með tilliti til kyns, aldurs og aðgangs að fjármagni. Jafn viðamikla breytingar og verið er að ræða nú um mundir verða að vera vandlega ígrundaðar og unnar í sátt við kjósendur.

Lesa meira
 

Vinstri græn í Reykjavík samþykkja forval 6. febrúar - 12.11.2009

Vinstri græn í Reykjavík héldu félagsfund í kvöld þar sem ákveðið var að boða til forvals þann 6. febrúar 2010 vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Á fundinum var ákveðið að kjörstjórn skipi þau Ármann Jakobsson, Helga Björg Ragnarsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Sigríður Kristinsdóttir og Stefán Pálsson. Þá var gengið frá forvalsreglum sem eru svohljóðandi:

Lesa meira
 

Stjórnarformaður OR fer með rangt mál - 5.11.2009

Yfirlýsing frá Þorleifi Gunnlaugssyni, fulltrúa VG í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vegna ummæla Guðlaugs Sverrissonar stjórnarformanns Orkuveitunnar um að Orkuveitan sjái fram á hundruð milljóna króna kostnaðarauka vegna tafa á Helguvíkurverkefninu, óvissu um Suðvesturlínur og orkuskatta sem valdi því að Orkuveitan geti ekki staðfest pöntun á Mitzubishi-aflvélum frá Japan og reyni nú að mæta tafakostnaði með hærra orkuverði frá Norðuráli.

Lesa meira
 

Meirihlutinn í Reykjavík stingur athugasemdum um vatnsverndarsvæðin undir stól - 5.11.2009

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík átelur að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn Reykjavíkur stingi undir stól athugasemdum nefnda borgarinnar um möguleg áhrif Suðvesturlínu á vatnsverndarsvæði borgarinnar.

Það vekur upp spurningar um hverra hagsmuna meirihluti borgarráðs er að gæta þegar hann metur fjárhagslega hagsmuni Orkuveitu Reykjavíkur ríkari en vatnsverndarsvæði borgarbúa. Afar veigamiklar athugasemdir umhverfis- og samgöngusviðs og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur um möguleg áhrif Suðvesturlínu á vatnsverndarsvæðin eru ekki nefndar eða þeirra getið í bréfi borgarráðs til Skipulagsstofnunar þann 22. október varðandi mat á Suðvesturlínum.

Lesa meira
 

Enginn frambjóðandi eyddi meiru en 300 þúsund í forvali - 4.11.2009

Í dag birti Ríkisendurskoðandi upplýsingar um uppgjörsskil frambjóðenda í prófkjörum flokkanna fyrir síðustu kosningar. Af því tilefni er rétt að taka það fram að samkvæmt lögum Vinstri grænna er lagt bann við auglýsingum frambjóðenda og enginn af þeim 103 sem buðu sig fram í forvölum á vegum hreyfingarinnar fór yfir 300 þúsund króna markið í kostnaði. Þrátt fyrir þetta var gerð krafa um skil hvers einasta frambjóðanda um vottorð þessa efnis.  Við hvetjum þá frambjóðendur sem eiga eftir að skila að gera það sem fyrst.

Lesa meira
 
Bergur Sigurdsson NET

Nýr framkvæmdastjóri þingflokksins - 3.11.2009

Nýr framkvæmdastjóri, Bergur Sigurðsson, hefur verið ráðin til starfa hjá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Bergur nam umhverfisefnafræði við Háskólann í Osló á árunum 1994-2000 og starfaði í framhaldi af því við heilbrigðiseftirlit á Suðurnesjum í sex ár. Síðastliðin þrjú ár gegndi hann starfi framkvæmdastjóra hjá Landvernd en fram að því sat hann í stjórn Náttúruverndarsamtaka Íslands. Í aukastörfum hefur Bergur tekið að sér leiðsögn fyrir erlenda ferðamenn, jafnt ofansjávar sem neðan, og kennt sportköfun við Sportköfunarskóla Íslands. Bergur tekur við starfinu af Drífu Snædal sem hefur frá síðustu kosningum haldið utan um störf þingflokksins auk þess að vera framkvæmdastýra flokksins en hún heldur þeim störfum áfram. Bergur hóf störf síðustu mánaðamót.

Lesa meira
 

VG á Akureyri varar við einkavæddu hermangi - 3.11.2009

Stjórn Svæðisfélags Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri fordæmir þær fyrirætlanir að hefja útleigu á orrustuþotum á Íslandi. Ísland á í miklum efnahagsvanda og atvinnuleysi meira en boðlegt er. Þrátt fyrir það mega Íslendingar ekki tapa sjálfsvirðingu sinni og þurfa nú sem aldrei fyrr á öllu sínu siðferðisþreki að halda. Hluti af því er að taka ekki öllum uppástungum um atvinnustarfssemi gagnrýnilaust. Atvinnustarfssemi byggð á einkareknu hermangi er ekki boðleg leið til endurreisnar atvinnustarfsemi á Íslandi.

Lesa meira
 
atli-toppur

Góður fundur í Vestmannaeyjum - 29.10.2009

Atli Gíslason þingmaður og svæðisfélag Vinstri- grænna í Vestmannaeyjum stóðu fyrir opnum almennum fundi í Vestmannaeyjum  í gærkvöldi ( miðvikudag). Fundurinn var vel sóttur, málefnalegur og afar gagnlegur. Landsmálin almennt voru trædd, farið yfir þróun stjórnmála á Íslandi frá því fyrir efnahagshruðið á síðasta ári og hvað síðan hefur gerst. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Alþingis voru ræddar hugað að framtíðarhorfum þjóðarinnar eftir þau gjörningaveður sem hún hefur og er að ganga í gegn um.  Þá voru tekin til umræðu þau mál sem helst brenna á Vestmannaeyingum og öðru landsbyggðarfólki nú um þessar mundir.

Lesa meira
 

VG leggur til 18.000 króna hækkun á fjárhagsaðstoð - 28.10.2009

Fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði Reykjavíkurborgar, Drífa Snædal, lagði til að fjárhagsaðstoðin yrði hækkuð um 18.000 krónur. Þetta er í takt við það sem Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi hefur talað fyrir og í samræmi við þær hækkanir sem launafólk hefur fengið síðustu mánuði og væntanlegar eru. Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar er nú 115.000 krónur á mánuði og því engin ofrausn að hækka hana um 18.000 og má ekki minna vera.

Lesa meira
 

Öflugur fundur á Suðurnesjum með Atla, Svandísi og Sigmundi Einarssyni - 23.10.2009

Um 60 manns mættu á fund VG á Flughóteli í Reykjanesbæ í kvöld, fimmtud. 22. okt. Þar höfðu framsögu Atli Gíslason alþingismaður, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Sigmundur Einarsson jarðfræðingur á Náttúrufræðistofnun.

Lesa meira
 

Opnir fundir næstu daga - 21.10.2009

Þingmennirnir okkar ætla að nýta næstu daga fundahalda og eru allir hvattir til að nýta tækifærið og eiga orðastað við okkar kjörnu fulltrúa. Fundirnir eru að sjálfsögðu öllum opnir. Þeir fundir sem þegar hafa verið ákveðnir eru:

Lesa meira
 

Sveitastjórnarfólk undirbýr kosningar - 17.10.2009

Sveitastjórnarráð Vinstri grænna stóð fyrir fjölmennri ráðstefnu í Fjölbrautaskóla Akraness um helgina þar sem fólk kom sér í stuð fyrir komandi vetur og kosningabaráttu. Margir hópar voru starfandi sem fjalla um sveitastjórnarmál frá öllum hliðum, þjónustu, fjármál, skipulag og svo framvegis. Auk þess var starfandi hópur um kosningabaráttuna og upplegg hennar. Ein ályktun var samþykkt á fundinum og er hún svohljóðandi:

Fundur Sveitastjórnarráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn á Akranesi 16. október 2009, telur áríðandi að heimildir sveitarfélaga til aukinnar tekjuöflunar verði rýmkaðar.

Lesa meira
 
belja

Góður fundur á Hvolsvelli um landbúnaðarmál - 16.10.2009

Fundur um málefni landbúnaðarins og stöðu bænda var haldinn á Hvolsvelli 14. október. Atli Gíslason, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra héldu framsögur á fundinum og að þeim loknum hófust góðar umræður.  Vítt og breitt var farið í umræðunum og þó fundarefnið væri landbúnaðarmál og staða bænda þá snérust umræður þar að auki um Icesave, samstarfið við AGS, Evrópusambandið, málefni lífeyrissjóðanna, fjárlögin, virkjanir og álver svo fátt eitt sé nefnt. Fundargestum var sérstaklega hugleikið hátt raforkuverð og auðvitað skuldastaða bænda. Á fundinum kom líka fram mikill áhugi bænda fyrir lífrænni ræktun og voru þeir Jón og Atli sérstaklega hvattir til að beita sér fyrir því að gera áhugasömum bændum kleift að færa sig yfir í lífrænan búskap.

Lesa meira
 

Einhugur um ráðherrana í NA-kjördæmi - 13.10.2009

Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi haldinn í Mývatnssveit 11. október 2009 lýsir yfir ánægju sinni með að flokkurinn skyldi ganga til stjórnarsamstarfs við Samfylkinguna eftir alþingiskosningar á síðasta vori.  Jafnframt lýsir fundurinn yfir fyllsta stuðningi við störf ráðherra flokksins.  Fundurinn beinir þeim eindregnu tilmælum til þingflokks Vinstri grænna að hann standi einhuga að baki ráðherranna við erfið verkefni þeirra.

Lesa meira
 

Ný stjórn og ályktun frá svæðisfélagi VG á Akureyri - 13.10.2009

Aðalfundur Svæðisfélags Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri og nágrenni fór fram 1.október og var þar ný stjórn kosin: Formaður er Guðbergur Egill Eyjólfsson, ritari Edward H. Huijbens, gjaldkeri Kristín Sigfúsdóttir og meðstjórnendur Drengur Óla Þorsteinsson og Klara S. Sigurðardóttir.

 

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Lesa meira
 

VG boðar til sveitastjórnarráðstefnu - 12.10.2009

Vinstri græn eru farin að huga að sveitastjórnarkosningum og um helgina blæs sveitastjórnarráð flokksins til ráðstefnu í Fjölbrautarskólanum á Akranesi. Ráðstefnan er öllum opin en fulltrúar svæðisfélaga, sveitastjórnarfulltrúar og fólk sem hugar að þátttöku í sveitastjórnarmálum á næsta kjörtímabili er sérstaklega boðið velkomið. Nauðsynlegt er að skrá sig til leiks hjá hermann.valsson@reykjavik.is

Lesa meira
 
Ogmundur Jonasson NET

Ögmundi verði boðið aftur sæti í ríkisstjórn - 10.10.2009

Húsfyllir var á fundi félagsmanna VG með Ögmundi Jónassyni í Kragakaffi í Kópavogi í dag. Fundurinn hófst með ávarpi frá Ögmundi þar sem hann skýrði aðdragandann og ástæður fyrir brotthvarfi   sínu úr ríkisstjórn Íslands. Ögmundur sagðist fara frá með miklum trega en að hann hefði ekki átt annarra kosta völ, enda hefðu honum verið settir afarkostir með hótunum um að ríkisstjórnin spryngi ef ráðherrar hennar yrðu ekki allir á einu máli um Icesave. Hann hefði viljað að ríkisstjórnin starfaði áfram og þess vegna sagt af sér embætti heilbrigðisráðherra. Ögmundur sagðist hafa lagt þunga áherslu á að Alþingi ætti að fá Icesave-málið skuldbindingarlaust til meðferðar og að leitast ætti við að ná um það breiðri samstöðu.

Lesa meira
 

Sóknaráætlun gegn landsbyggðinni mótmælt - 7.10.2009

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Skagafirði sendir frá sér svohljóðandi ályktun:

Svæðisfélög Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Húnavatnssýslum og Skagafirði harma framgöngu forystumanna stjórnarflokkanna gagnvart landsbyggðinni og Norðurlandi vestra sérstaklega. Um leið og það er viðurkennt að allir þurfi að taka á sig auknar byrðar nú er því mótmælt að vegið sé að einum landshluta umfram aðra með þeim tillögum að niðurskurði sem kynntar hafa verið.

Lesa meira
 

Ályktanir VG í Borgarbyggð - 1.10.2009

Á fundi svæðisfélags VG í Borgarbyggð 29. október voru samþykktar tvær ályktanir svohljóðandi:

Lesa meira
 
alfheidur ingadottir 2

Álfheiður Ingadóttir nýr heilbrigðisráðherra - 1.10.2009

Álfheiður Ingadóttir tók við embætti heilbrigðisráðherra á ríkisráðsfundi fyrir stundu af Ögmundi Jónassyni sem óskaði lausnar í gær. Álfheiður hefur verið virk í stjórnmálum um áratuga skeið og tók sæti á þingi eftir kosningar 2007. Á þingferlinum hefur hún setið í heilbrigðisnefnd ásamt allsherjarnefnd, kjörbréfanefnd, efnahags- og skattanefnd og Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009. Þá hefur hún gegnt formennsku í viðskiptanefnd frá ríkisstjórnarskiptum í febrúar.

Lesa meira
 

Eindreginn stuðningur við ríkisstjórnina innan þingflokks VG - 30.9.2009

Á þingflokksfundi sem haldinn var klukkan 14-16 í dag kom fram eindreginn stuðningur við ríkisstjórnina. Hún á mörg verk óunnin og þingmenn Vinstri grænna eru tilbúin í þau verk á þingi og í ríkisstjórn. Þá var rætt um Icesave-samninginn og stöðu hans og ákveðið að halda þeim umræðum áfram í kvöld.

Lesa meira
 
Ogmundur Jonasson NET

Mikilvægt að ríkisstjórnin haldi velli - 30.9.2009

Ögmundur Jónasson sagði af sér sem heilbrigðisráðherra í dag. Ástæða afsagnarinnar var misjafnar skoðanir á Icesave-málinu innan ríkisstjórnarinnar. Ögmundur mun áfram sitja sem þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og lýsir yfir fullum stuðningi við ríkisstjórnina.

Lesa meira
 
svandis

Úrskurður umhverfisráðherra um Suðvesturlínu - 29.9.2009

Umhverfisráðherra hefur fellt úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmda vegna Suðvesturlínu og öðrum tengdum framkvæmdum. Málinu hefur verið vísað aftur til Skipulagsstofnunar til efnilegrar meðferðar og úrlausnar.

Lesa meira
 

Ályktun aðalfundar VGR - 29.9.2009

Aðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík, haldinn í Reykjavík 28. September 2009 lýsir þungum áhyggjum vegna þess ástands sem blasir við í samfélaginu eftir allt of langa setu hægristjórnar í stjórnarráðinu.

Fundurinn fagnar því að loksins sé á landinu vinstristjórn og lýsir fullum stuðningi við hana og krefst þess að sú endurmótun sem fram þarf að fara í samfélaginu verði í anda kvenfrelsis, félagslegs réttlætis, friðar og umhverfisverndar.

Lesa meira
 
David Stefansson NET

Ný stjórn Vinstri grænna í Reykjavík - 28.9.2009

Aðalfundur VGR var haldinn 28. september og var ný stjórn kjörin. Formaður eru Davíð Stefánsson en aðalstjórn ásamt honum skipa: Anna Friðriksdóttir, Ása Björk Ólafsdóttir, Guðlaug Teitsdóttir, Heimir Björn Janusarson, Hermann Valsson og Þorgerður Agla Magnúsdóttir. Í varastjórn voru kjörnir þeir Kristján Ketill Stefánsson og Friðrik Dagur Arnarson.

Lesa meira
 

Áskorun úr Skagafirði - 28.9.2009

Stjórn Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði skorar á ráðherra í ríkisstjórn Íslands, að sjá til þess að allar upplýsingar og öll gögn er varða umsókn Íslands að Evrópusambandinu verði birt opinberlega á íslensku, þjóðtungu landsins.

Þannig verði  tryggt að allir hafi möguleika á að kynna sér þau gögn er umsóknina varða, óháð tungumálakunnáttu.

Lesa meira
 
Jan Eric Jessen

Ný stjórn Ungra vinstri grænna - 28.9.2009

Landsfundur Ungra vinstri grænna var haldinn á Hvolsvelli um helgina og lét Steinunn Rögnvaldsdóttir af embætti formanns og við tók Jan Eric Jessen. Aðrir fulltrúar í stjórn eru: Guðrún Axfjörð Elínardóttir varaformaður, Tómas Gabríel Benjamin ritari og Þórunn Rögnvaldsdóttir gjaldkeri. Meðstjórnendur voru kjörin þau: Andrés Ingi Jónsson, Bjarni Þóroddsson, Elín Sigurðardóttir, Kolbrún Ýrr Rolandsdóttir og Þórir Ingvarsson. Varamenn eru Katrín Pálmadóttir, Daniel Haukur Arnarsson og Rúna Vala Þorgrímsdóttir.

Lesa meira
 
jon_hjartarson

Að sá í akur óvinar síns - 24.9.2009

Eftir Jón Hjartarson bæjarfulltrúa í Árborg:

Í þrjátíu kynslóðir og nokkrum betur hafa íslenskar kotungsfjölskyldur borið uppi líf og dauða þessarar þjóðar og haft betur. Flutt hafurtask sitt innar í heiðina þegar harðnar á dalnum og þraukað af harðindi með sauðkindinni og landinu. Þolgæði og þrautseigja hefur einkennt fólkið þar sem saman fór þvermóðska sauðkindarinnar og lífsvilji.

Umliðin veltiár voru ár ókunnra gilda sem óvænt höfðu haldið innreið sína í íslenskst samfélag. Í krafti þeirra skrúfaði hver annan áfram í stöðugri viðleitni til að eignast meira, gera meira, græða meira og byggja stærra.

Lesa meira
 

Áfram rauðgræn ríkisstjórn í Noregi - 15.9.2009

Eftir úrslit kosninganna í Noregi í gær var sent svohljóðandi skeyti til systurflokks Vinstri grænna, SV:

 

Kjære alle sammen!

Gratulerer hjertelig med resultatet etter Stortingsvalget i går.  Vi vet at det er en hard kamp, men vi jubler over fortsatt rödgrönn regjering som jo var det viktigste.

Våre beste lykkeönskninger fra  venner og partifeller  i den islandske rödgrönne regjering.

Lesa meira
 
katrin-toppur

Mikilvægt skref til að hvetja fólk til náms - 9.9.2009

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu félags- og tryggingamálaráðherra og menntamálaráðherra um að hækka grunnframfærslu Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 20%, samhliða ýmsum aðgerðum sem ætlað er að tryggja sparnað í námslánakerfinu og atvinnuleysistryggingakerfinu sem þessari hækkun svarar.

Lesa meira
 

Borgarstjórn hafni samningi um sölu HS orku - 8.9.2009

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á Félagsfundi VGR um Orkumál sem haldinn var mánudaginn 7. september kl. 20.00 að Vesturgötu 7, Reykjavík:

Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík fordæmir fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um að selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Það er eindregin skoðun fundarins eins og þorra þjóðarinnar að orkufyrirtæki eigi að vera í almannaeigu. Nú þegar þjóðin stendur frammi fyrir tímabundnum erfiðleikum er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að standa vörð um auðlindir okkar og nýtingu þeirra til framtíðar. Sala orkufyrirtækja til einkaaðila undir þessum kringumstæðum er glapræði.

Lesa meira
 

Áskorun frá VG í Skagafirði: Komum í veg fyrir erlent eignarhald á orkuauðlindum þjóðarinnar - 7.9.2009

Stjórn Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði skorar á þingmenn og ráðherra flokksins, sérstaklega formann flokksins og fjármálaráðherra, að koma í veg fyrir erlent eignarhald á orkuauðlindum þjóðarinnar.

Lesa meira
 

Ályktun um afnám verðtryggingar á flokksráðsfundi - 4.9.2009

Þegar ályktanir af flokksráðsfundi Vinstri grænna 28.-29. ágúst voru birtar á vefnum láðist að birta eina ályktun sem var samþykkt á fundinum, en hún varðar afnám verðtryggingar og er svohljóðandi:

Flokksráð Vinstri grænna beinir því til ríkisstjórnarinnar að verðtrygging lána verði afnumin hið fyrsta og forsendur við endurgreiðslu allra lána verði leiðréttar með jafnréttis- og réttlætissjónarmið að leiðarljósi. Til að koma í veg fyrir að önnur eins kollsteypa endurtaki sig, þarf að gera upp við þá efnahagslegu og félagslegu hugmyndafræði sem byggði upp það kerfi sem hrundi og sem fól í sér hrun þess.

Lesa meira
 

Yfirlýsing frá borgarfulltrúa vegna tillögu VG um sölu bilastæðahúsa - 4.9.2009

Tillaga Borgarráðsfulltrúa  Vinstri grænna um að borgarráð feli Umhverfis og samgöngusviði að kanna kosti þess að bílastæðahús borgarinnar verði seld hefur vakið athygli en hún var samþykkt í borgarráði í dag. Af þessu tilefni vill undirritaður koma eftirfarandi á framfæri.

Lesa meira
 
Arndis Soffia Sigurdard NET

Áhættusafnt að velja Njáluslóð sem fundarstað VG - 1.9.2009

Varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Suðurlandi, Arndís Soffía Sigurðardóttir, flutti upphafsávarpið á flokksráðsfundinum sem hófst á föstudaginn síðasta og stóð fram á laugardag. Ræða hennar er birt hér með góðfúslegu leyfi:

Lesa meira
 

Fundagerðir stjórnar á vefnum - 1.9.2009

Vegna áskorunar frá félaga tók stjórn þá ákvörðun á fundi sínum 21. ágúst síðastliðinn að birta fundagerðir stjórnar hér á vefnum. Héðan í frá má því lesa þær undir flokkinum "um vg". Lesa meira
 

Samþykktar tillögur af flokksráðsfundi Vinstri grænna á Hvolsvelli - 29.8.2009

Flokksráðsfundi Vinstri grænna var slitið upp úr hádegi 29. ágúst og voru fjölda ályktana samþykktar og fleirum vísað áfram til stjórnar, sveitastjórnarhóps og næsta flokksráðsfundar til frekari umfjöllunar. Þær ályktanir sem samþykktar voru eru svohljóðandi:

Lesa meira
 

Flokksráðsfundur hafinn - 28.8.2009

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hófst á Hvolsvelli í dag og stendur til hádegis á morgun. Arndís Soffía Sigurðardóttir varaþingkona Vinstri grænna á Suðurlandi bauð fólk velkomið og þótti flokkurinn hugaður að halda fund á Njáluslóðum eftir hið mikla átakasumar. Hún þótti þess hins vegar fullviss að fundagestir slíðri sverðin og eigi góðan fund.

Lesa meira
 

Stjórn VG vill stöðva framsal auðlinda - 26.8.2009

Á fundi stjórnar VG síðastliðinn föstudag var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs mótmælir harðlega áformum um varanlegt framsal á jarðvarmaauðlindum. Á erfiðleikatímum er freistandi að afla erlends gjaldeyris á kostnað auðlindanna en jafnframt hefur það sjaldnar verið mikilvægara að standa vörð um verðmæti þjóðarinnar og eignir landsins. Þjóðin er þegar skaðbrennd af ábyrgðalausri frjálshyggju og einkavæðingu mörg undanfarin ár og nú er tími til kominn að snúa við blaðinu. Skorar stjórn VG á ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að gera allt í sínu valdi til að stöðva áform um framsal auðlindanna þegar í stað.

Lesa meira
 

Danir ræða skyldur Íslands í Kristjánsborg - 24.8.2009

 Þingkona Enhedslisten, í Danmörku, Line Barfod hefur lagt fram fyrirspurn á þinginu um hvort forsætisráðherra Danmerkur telji að Ísland eigi að fá stuðning  frá alþjóðasamfélaginu til að komast  í gegnum kreppuna án þess að velferðarsamfélaginu sé stefnt í voða?

Lesa meira
 
or_logo

Stöðvum varanlegt framsal auðlinda - 21.8.2009

Vinstri græn héldu opinn fund í Grindavík í gærkveldi um málefni Hitaveitu Suðurnesja. Fundurinn var fjölsóttur og höfðu framsögu þau Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík og Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi í Reykjavík og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur. Fundurinn ályktaði svo:

Lesa meira
 

Dagskrá flokksráðsfundar - verkefni vetrarins - 19.8.2009

Föstudaginn 28. ágúst hefst flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Hvolsvelli, en hefð er fyrir því að starf vetrarins hefjist á flokksráðsfundi í lok ágúst utan höfuðborgarsvæðisins. Allir félagar í VG hafa seturétt á fundinum. Eins og kom fram fyrr í sumar er skráningu lokið en félagar eru að sjálfsögðu velkomnir á fundinn þó að of seint sé að skrá sig í mat og gistingu á hótelinu.

Nú þegar stefnir í fjölmennasta flokksráðsfund VG frá upphafi en gríðarlegur áhugi er fyrir starfinu og því verður gefinn góður tími til almennra umræða. Horft verður til vetrarins og þeirra verkefna sem okkar bíða jafnt í sveitastjórnarmálum sem landsmálum en dagskráin er sem hér segir:

Lesa meira
 
or_logo

Yfirlýsing frá fulltrúum VG í Reykjavík í stjórn OR vegna tilboðs Magma Energy í hlut OR í Hitaveitu Suðurnesja - 16.8.2009

Fulltrúi VG í Reykjavík í Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur greiddi atkvæði gegn því að haldið yrði áfram viðræðum við Magma Energy um kaup þess á hlut OR í HS Orku.

Það var ljóst á sínum tíma að með ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á hlutafé Grindavíkurkaupstaðar og Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja var Orkuveita Reykjavíkur að gæta samfélagslegra hagsmuna. Kaupin áttu sér stað að frumkvæði umræddra sveitarstjórna sem töldu„veitustarfsemi á Suðurnesjum betur komna á vegum Orkuveitunnar en annarra sem gert hafa tilboð í hlutafé félagsins.“  eins og segir í bókun stjórnar OR 2. Júlí 2007.

Lesa meira
 
Þuríður Backman

Viðtal við Þuríði Backman í Austurglugganum: Við ætlum að standa vaktina - 27.7.2009

Félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði hittust í miðstöð sinni á Egilsstöðum fyrir viku til að ræða helstu álita málin í íslenskum stjórnmálum um þessar mundir við  þingmanninn Þuríði Backman. Meðal flokksfélaga í kjördæminu hefur verið mikil óánægja með að þingmenn flokksins skyldu styðja þingsályktunartillögu um að hefja viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Nú vofir yfir næsta stóra mál, ríkisábyrgð fyrir Icesave skuldbindingunum. Austurglugginn hitti Þuríði á heimili hennar um seinustu helgi og ræddi við hana um ESB, kosningaloforðin, Icesave og heilbrigðismál. „Þetta var meira en spjall,“ segir Þuríður um fundinn sem stóð í á fjórða tíma. „Það var mjög nauðsynlegt að við félagarnir gætum sest niður og talað hreint út.“

Lesa meira
 

Ályktun frá VG Hornafirði um efnahagslega stöðu Íslands - 27.7.2009

Stjórn Vinstrihreifinginarinnar Græns framboðs á Hornafirði harmar þá stöðu sem íslenskt efnahagslíf er komið í. Við vitum að orsakarinnar er að leita í gengdarlausri græðgisstefnu þeirra sem fengu að stjórna landinu frá 1991 til 2009. Nú skal almenningur á Íslandi borga brúsann. 

Við treystum því að þeir glæpamenn sem gengu á lagið, mokuðu sparifé okkar í skattaskjól sín og hafa nú flestir flúið land verði  sóttir til saka og látnir bera ábyrgð á gjörðum sínum.

Lesa meira
 

Ávarp frá Steingrími J. Sigfússyni - 16.7.2009

Ágætu félagar,

 

Alþingi hefur nú samþykkt að Ísland óski eftir því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið og að möguleg niðurstaða þeirra verði lögð í dóm kjósenda. Höfum það þó í huga að enn hefur engin ákvörðun verið tekin um að ganga í Evrópusambandið, hún verður ekki tekin fyrr en öll spil hafa verið lögð á borðið og það verður þjóðin sem mun taka hana komi til þess. Þannig er þessi niðurstaða vel samrýmanleg landfundarályktun í mars síðastliðnum sem lögð var fram í kjölfar mikils starfs innan flokksins sem allir flokksmenn gátu tekið þátt í.

Lesa meira
 

Stuðnings- og baráttukveðjur til þingflokks - 16.7.2009

Óskað hefur verið eftir því að eftirfarandi kveðja til þingflokks VG yrði birt á heimasíðunni: „Nú þegar þingflokkur Vinstri grænna stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun um stórt og viðamikið þingmál vilja undirrituð koma eftirfarandi á framfæri til sinna kjörnu fulltrúa: Vorið 2009 gerðist sá sögulegi atburður að vinstri stjórn tveggja flokka var mynduð á Alþingi Íslendinga. Margir höfðu beðið þeirrar stundar lengi eftir áratuga eyðimerkurgöngu með samsuðustjórnum til hægri eða vinstristjórnum með þátttöku Framsóknarflokksins...“

Lesa meira
 

Áskorun til þingmanna VG og bréf til Steingríms - 15.7.2009

Sérstaklega hefur verið óskað eftir því birt sé á heimasíðu flokksins eftirfarandi áskorun til þingmanna VG og bréf til Steingríms J. Sigfússonar, formanns flokksins. Smellið á "Lesa meira" til að lesa áskorunina og bréfið.

Lesa meira
 

Ályktun stjórnar VG á Héraði - 14.7.2009

Á stjórnarfundi Félags Vinstri grænna á Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði eystra, sem haldinn var á skrifstofu félagsins á Egilsstöðum mánudaginn 13. júlí 2009, var eftirfarandi samþykkt gerð:

“Stjórn Félags Vinstri grænna á Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði eystra skorar á þingmenn Vinstri grænna að greiða atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu...

Lesa meira
 

Skráning á flokksráðsfund - 13.7.2009

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs verður haldinn að Hvolsvelli 28. – 29. ágúst næstkomandi. Flokksráðsfundurinn er opinn öllum félögum í VG en atkvæðisrétt hafa landsfundakjörnir fulltrúar í flokksráði, allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaalþingismenn, formaður Ungra Vinstri Grænna, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmisráða.

Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku á fundinum FYRIR 20. JÚLÍ næstkomandi með því að fylla út skráningareyðublað.

Lesa meira
 

Ályktun frá VG í Borgarbyggð - 9.7.2009

Stjórn Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs í Borgarbyggð hefur samþykkt eftirfarandi ályktun og sent þingmönnum VG:

Stjórn svæðisfélags VG í Borgarbyggð vill minna forystu og þingmenn flokksins á landsfundarályktun VG um ESB frá því í mars síðastliðnum. Mikil umræða undanfarin misseri um aðild Íslands að Evrópusambandinu hlýtur að kalla á að hugur þings og þjóðar til málsins sé kannaður. Umræðan ein má þó ekki verða til þess að menn hverfi frá sannfæringu sinni eða hætti að ræða neikvæðar hliðar aðildarinnar...

Lesa meira
 

Skráning í sumarferð hafin - 8.7.2009

Vinstri græn boða til sumarferðar síðustu helgina í ágúst í Þórsmörk. Að vanda er hún farin í tengslum við flokksráðsfund en hann hefst á Hvolsvelli 28. ágúst og stendur fram að hádegi laugardaginn 29. ágúst, að sjálfsögðu er hann öllum félögum opinn.

Lesa meira
 

Hagsmunir Kópavogsbúa virtir að vettugi - 24.6.2009

Stjórn VG í Kópavogi hefur sent frá sér svohljóðandi ályktun:

Stjórn VG í Kópavogi fordæmir áframhaldandi samstarf Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Kópavogi og telur það sýna vilja til að viðhalda þeirri spillingu og eiginhagsmunapoti sem hefur fengið að viðgangast í bæjarpólitíkinni undanfarin ár og að hagsmunir bæjarbúa séu virtir að vettugi. Þá undrast stjórnin að meirihlutinn ætli að sitja áfram þrátt fyrir skýrar kröfur um breytingar innan beggja flokka. Vegna Lífeyrissjóðsmálsins(LSK) telur stjórn VG í Kópavogi réttast að allir þeir kjörnu fulltrúar er sátu í fráfarandi stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogs víki úr sæti sínu í bæjarstjórn á meðan lögreglurannsókn fer fram.

Lesa meira
 

Ályktun frá svæðisfélagi VG í Hveragerði og Ölfusi - 24.6.2009

Svæðafélag Vinstrihreyfingarinnar græns framboð í Hveragerði og Ölfusi tekur undir ályktun svæðafélags VG í Skagafirði sem birt var í morgunblaðinu þann 15.06.2009 en þar segir meðal annars:

  Félag vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði minnir á samþykktir flokksins og yfirlýsingar fyrir nýliðnar alþingiskosningar þar sem alfarið er hafnað Evrópusambandsaðild og ítrekað að hagsmunum Íslendinga sé best borgið utan sambandsins.

Lesa meira
 

Upplýsingar um Icesave-samkomulagið - 18.6.2009

Mikið hefur verið rætt og skrifað um Icesave-samningana svokölluðu að undanförnu. Meginábyrgðin á Icesave-málinu liggur að sjálfsögðu hjá þeim stjórnvöldum sem leyfðu Icesave-reikningana að safnast upp á ábyrgð íslenska innlánstryggingakerfisins án þess að aðhafast nokkuð í málinu þrátt fyrir mörg hættumerki. Ríkisstjórnin sem nú situr, með aðild Vinstri grænna, fékk það erfiða verkefni að leysa úr vandanum og lágmarka skaðann sem af málinu hlýst.

Lesa meira
 

Dregið í happdrætti VG - 4.6.2009

Dregið hefur verið í happdrætti Vinstri grænna. Ef þú ert svo heppin/n að hafa fengið hafðu þá samband við skrifstofu VG í síma 552 8872 eða á netfangi vg@vg.is. Vinningsnúmerin eru þessi:

Lesa meira
 

Vinningar í happdrætti tilkynntir á fimmtudaginn - 2.6.2009

Vinningsnúmer í kosningahappdrætti VG verða tilkynnt fimmtudaginn 4. júní hér á síðunni. Lesa meira
 

Tekjur, eignir og hagsmunatengls þingmanna - 28.5.2009

Á þessari síðu hafa verið uppfærðar upplýsingar um tekjur, eignir og hagsmunatengsl þingmanna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Þessar upplýsingar má nálgast hér.

Lesa meira
 
andres ingi jonsson

Nýr fulltrúi VG í stjórn Kvenréttindafélags Íslands - 25.5.2009

Á fundi stjórnar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, föstudaginn 22. maí síðastliðinn var ákveðið að Andrés Ingi Jónsson verði fulltrúi VG í aðalstjórn Kvenréttindafélags Íslands í stað Silju Báru Ómarsdóttur, varakona er sem fyrr Svanhildur Kaaber.

Lesa meira
 

Ályktun frá VG í Kópavogi - 25.5.2009

Aðalfundur Svæðisfélags VG í Kópavogi fagnar því að fyrsta hreina vinstri stjórn Íslands skuli vera orðin að veruleika og vonar að samstarf Vinstri grænna og Samfylkingar eigi eftir að verða langt og farsælt.

Vegna þeirrar niðurstöðu sem fékkst í ESB-málinu skorar félagið á þingmenn sína í Kraganum að greiða atkvæði gegn tillögu um aðildarumsókn að ESB.

Lesa meira
 

Svandís leggur til miðstöð fyrir ungt fólk í atvinnuleit - 20.5.2009

Á fundi borgarstjórnar í gær var samþykkt tillaga Svandísar Svavarsdóttur um miðstöð fyrir ungt fólk í atvinnuleit. Þannig var samþykkt að leita eftir samstarfi við Lýðheilsustöð, Rauða krossinn og menntamálaráðuneytið með það að markmiði að fá Austurbæjarbíó að láni og starfrækja þar mistöð fyrir ungt fólk í atvinnuleit. Húsið verður opið í sumar en mögulega lengur ef vel gengur.

Markmiðið með þessu er að virkja frumkvæði og sköpunarkraft ungmenna í Reykjavík með því að skapa þeim vettvang til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Þannig fá ungmennin tækifæri til að blása lífi í Austurbæjarbíó og byggja upp starfsemi þar út frá eigin hugðarefnum og áhugamálum. Þar geta jafnframt sprottið upp hugmyndir sem ekki endilega þarf að vinna í húsinu, möguleg atvinnusköpun, sjálfboðaliðaverkefni, stofnun grasrótarhópa, hljómsveita, leik- og danshópa og fleira.

Lesa meira
 

Guðfríður Lilja formaður þingflokks - 13.5.2009

Gudfridur Lilja NETÁ þingflokksfundi í dag var kjörin ný stjórn þingflokksins, en í stjórn þingflokksins eru formaður, varaformaður og ritari.

Nýr formaður þingflokksins er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir er áfram varaformaður en Björn Valur Gíslason ritari.

Lesa meira
 

Ályktun sveitarstjórnarráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs - 12.5.2009

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi sveitarstjórnarráðs VG um helgina. Sveitarstjórnarráð er skipað öllum aðal- og varafulltrúum í sveitarstjórnum sem eru félagsbundnir í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði.

"Sveitarstjórnarráð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fagnar því að tekin skuli til  starfa velferðarstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs  og Samfylkingarinnar sem leggur áherslu á að tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika og þjóðarsamstöðu.

Lesa meira
 

Ríkisstjórnarsáttmáli og 100 daga áætlun - 11.5.2009

Söguleg meirihlutastjórn vinstriflokkanna er nú tekin við og eru verkefnin þau erfiðustu sem ríkisstjórn síðari tíma hefur þurft að glíma við hér á landi. Metnaður var lagður í ríkisstjórnarsáttmálann en auk hans er lögð fram áætlun fyrstu 100 daga nýrrar ríkisstjórnar. Listann í heild má finna hér:

Lesa meira
 

Ályktanir flokksráðsfundar - 10.5.2009

Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er nýlokið. Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktanir með þorra atkvæða:

Flokksráð VG mælir með því að mynduð verði ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingarinnar á grundvelli þeirrar samstarfsyfirlýsingar sem fyrir liggur.

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs beinir þeim tilmælum til formanns flokksins að tryggja jöfn kynjahlutföll í nýrri ríkisstjórn. Lesa meira
 

Blaðaútgáfa hjá VG í miklum blóma - 6.5.2009

Nokkur félög innan Vinstri grænna hafa til margra ára gefið út blöð í tilefni baráttudags verkalýðsins og var sami háttur á  nú þrátt fyrir annasamar kosningar. Við getum boðið upp á vefútgáfu af 1. maí blaði svæðisfélagsins í Vestmannaeyjum og blaði norðanmanna Norðurstjörnunni. Njótið vel.

Lesa meira
 

Hamingjuóskir streyma inn - 5.5.2009

Vinstri grænum hafa borist hamingjuóskir frá ýmsum löndum og greinilegt að systurflokkar okkar fylgjast náið með framvindu mála hér á landi. Þegar við gengum til kosninga héldu SF í Danmörku landsfundinn sinn og sendu okkur myndband með kveðju. Enhedslisten þar í landi sendi sömuleiðis hamingjuóskir:

Lesa meira
 
Steingrimur J Sigfusson NET

VG, ævintýri seinni tíma stjórnmála á Íslandi - 4.5.2009

Vinstrihreyfingin – grænt framboð varð til í febrúar árið 1999. Ýmsir töldu þá að þessi nýja hreyfingin ætti sér litlar lífslíkur og stjórnmálaskýrendur kepptust við að reyna að sanna að Vinstri græn myndu ekki ná manni á þing. Hrakspárnar reyndust rangar og urðu höfundum og fræðimannsheiðri þeirra til skammar. VG hlaut 9,1% atkvæða og sex þingmenn í kosningunum 1999, þar af 22% í Norðurlandskjördæmi eystra. Eftir að hafa misst einn mann í kosningum árið 2003 þrátt fyrir að hafa fengið 8,8% fylgi unnum við svo stórsigur árið 2007 með 14,3% atkvæða og níu þingmenn – og urðum þriðji stærsti flokkurinn á Alþingi. Þar með varð Vinstrihreyfingin – grænt framboð að einum stærsta alvöru vinstri flokki og græna flokki í Evrópu og það svo athygli vakti á hinum Norðurlöndunum, í Evrópu og víðar.

Lesa meira
 

1. maí kaffi - 30.4.2009

Vg Í Reykjavík býður alþýðu borgarinnar til kaffisamsætis og baráttufundar 1. maí að Vesturgötu 7. Lesa meira
 

Glæsilegur sigur - 26.4.2009

Vinstri græn unnu enn einn kosningasigurinn í nótt þegar ljóst var að við bættum við okkur 52% fylgi og fimm þingmönnum. Sigurinn varð til þess að vinstristjórnin heldur velli og næsta skref eru stjórnarmyndunarviðræður við Samfylkingu. Við bjóðum nýja þingmenn hjartanlega velkomin í hópinn, þau Ásmund Einar Daðason, Lilju Mósesdóttur, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, Svandísi Svavarsdóttur, Lilju Rafney Magnúsdóttur og Björn Val Gíslason. Þeim félögum sem lögðu hönd á plóginn bera að þakka sérstaklega – sigurinn er okkar!

Lesa meira
 

Á fjórða þúsund manns í kosningakaffi - 25.4.2009

kosnkaffi2

Á sjöunda tímanum höfðu á fjórða þúsund manns komið í kosningakaffi hjá Vinstri grænum í Reykjavík. Minnugir félagar telja að um sé að ræða fjölmennasta kosningakaffi VG frá upphafi! Ljóst er að það stefnir í spennandi kosninganótt, en kosningavakan í Reykjavík hefst kl. 21 á Kaffi Reykjavík.

Lesa meira
 

Fullt út úr dyrum á kosningakaffi í Reykjavík - 25.4.2009

Kosningakaffi2009Rífandi stemmning er í kosningakaffi Vinstri grænna á kosningamiðstöðinni í Reykjavík. Mikill stuðningur er meðal gesta og gangandi og frambjóðendur eru á staðnum að spjalla við óákveðna kjósendur og stuðningsfólk VG. Greinilegt er að Reykvíkingar vilja skapa norrænt velferðarsamfélag með Vinstri grænum í vor! Enginn hörgull er á kaffi, kökum og öðru góðgæti og allir velkomnir svo lengi sem kjörfundur stendur yfir.

Lesa meira
 

Norrænt velferðarsamfélag - 25.4.2009

Kata og SteingrímurÍ kosningunum í dag veljum við nýja framtíð fyrir Ísland. Við Vinstri græn höfum boðið upp á skýran valkost við þá hugmyndafræði sem beið skipbrot síðastliðið haust. Sá valkostur er norrænt velferðarsamfélag. Í því felst að forgangsraða í þágu velferðar fjölskyldna og einstaklinga líkt og best hefur tekist til á hinum Norðurlöndunum. Þessari stefnu höfum við reynt að fylgja í þá 80 daga sem eru liðnir síðan Vinstri græn tóku sæti í ríkisstjórn og endurreisn íslensks samfélags hófst. Þessari stefnu – norræna velferðarstefnu – viljum við fá tækifæri til að koma í verk strax á morgun.

Lesa meira
 

Lokasprettur kosningabaráttunnar hafinn - 24.4.2009

Í dag verða frambjóðendur Vinstri grænna um allt land að tala við kjósendur og kynna stefnumálin. Hægt er að kíkja í kaffi á kosningamiðstöðvar um allt land í dag og á morgun, upplýsingar um þær er að finna í síðum kjördæmanna hér: http://www.vg.is/kjordaemi/ . Fram til baráttu! Allir að kjósa! X-V!

Lesa meira
 
Grimsey SJS 090423

Nyrsti kosningafundur á Íslandi - 23.4.2009

Fjölmenni var á kosningafundi Steingríms Sigfússonar í Grímsey í morgun, Sumardaginn fyrsta. Alls komu 23 kosningabæir íbúar eyjunnar á fundinn, nærri helmingur kosningabærra Grímseyinga. Um er að ræða fyrsti kosningafundur nokkurs stjórnmálaflokks í í Grímsey í vor. Bátar voru nokkrir á sjó en lengstur tími fundarins fór í umræður um sjávarútvegsmálin þar sem Steingrímur skýrði út fyrir heimamönnum stefnu og markmið VG í sjávarútvegsmálum. Heimamenn þökkuðu Steingrími fyrir komuna og voru ánægðir með að fá tækifæri til að ræða málin við formann Vinstri grænna.
Lesa meira
 
Bjorg_Eva_Erlendsdottir

Björg Eva Erlendsdóttir ráðin framkvæmdastýra Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum - 23.4.2009

Björg Eva Erlendsdóttir tekur við framkvæmdastjórn samstarfsvettvangs Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum í sumar. Starfið snýr aðallega að skipulagningu samstarfsins og miðlun upplýsinga á milli systurflokkanna sem eru: Vänsterpartiet í Svíþjóð, Socialistisk Folkeparti og Enhedslisten í Danmörku, Sosialistisk Vensterparti í Noregi, Vaxemmistoliitto í Finnlandi, Inuit Ataqatigiit í Grænlandi og Tjoðveldisflokkurinn í Færeyjum.

Þetta er í fyrsta sinn sem starfið fellur í skaut Íslendinga og fögnum við því sérstaklega enda verður miðstöð samstarfsins rekin hér á landi. Vinstri græn hafa ávallt lagt mikla áherslu á gott norrænt samstarf og óskum við Björgu Evu hjartanlega til hamingju með nýja starfið.

Lesa meira
 

Vinstri græn leggjast ekki gegn olíuleit á Drekasvæðinu - 22.4.2009

Vinstrihreyfingin – grænt framboð áréttar að flokkurinn hefur ekki lagst gegn olíuleit á Drekasvæðinu. Þingmenn Vinstri grænna studdu málið á Alþingi 2001 og sátu hjá ásamt Samfylkingunni við breytingar á lögunum 2007 og aftur fyrir jól 2008, vegna breytinga á skipulagslögum og mengunarvarnarreglugerð.

Lesa meira
 

Engin áform um eignaskatt - 21.4.2009

Það eru engin áform uppi hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði um að taka aftur upp eignaskatt í fyrri mynd. Sú hugmynd hefur hins vegar eðlilega komið upp í grasrót hreyfingarinnar að skoða hvort einhver tegund skattlagningar á mjög tekjuhátt stóreignafólk komi til greina til að mæta þeim mikla fjárlagahalla ríkisins sem fyrirsjáanlegur er á næstu árum. Slíka skattlagningu þyrfti að samræma fjármagnstekjuskatti og annarri skattheimtu sem óhjákvæmilegt er að gera einhverjar breytingar á til að borga þær gríðarlegu skuldir sem landsmenn sitja uppi með eftir efnahagsóstjórn Sjálfstæðisflokksins. Við segjum það hins vegar fullum fetum að ekki stendur til að leggja eignarskatt á venjulegt fólk og þeirra eðlilegu eignir.

Lesa meira
 
isafjordur fundur

Gríðarlega góður fundur á Ísafirði - 21.4.2009

Rífandi stemming var á fundinum með Steingrími og Lilju Rafney á Ísafirði í gærkvöldi. 150 manns sóttu fundinn. Allir stólar í tvöföldum sal hótelsins fylltust svo sækja þurfti stóla á kosningamiðstöðina, en dugði ekki til svo sumir þurftu að standa. Eftir framsögur Lilju og Steingríms voru fjölmargar fyrirspurnir og stóð fundurinn í tvo og hálfan tíma. Það var mál fundargesta að fundurinn hafi verið mjög málefnalegur. Fjölmargir skráðu sig í flokkinn eftir fundinn.

Lesa meira
 
arborg opnun

Stuð í Árborg - 18.4.2009

Kosningaskrifstofa VG á Selfossi var opnuð í Selinu við Engjaveg. Þar var fjölmenni og góð stemning. Einar Már rithöfundur las upp og Atli og Jórunn ávörpuðu gesti. Arndís mætti á fund um landbúnaðarmál á sama tíma á hótelinu.

Lesa meira
 

Sjálfstæðismenn koma í veg fyrir að valdið farið til þjóðarinnar - 17.4.2009

Eftir margra vikna þrautseiga baráttu hefur Sjálfstæðismönnum tekist að koma í veg fyrir að náttúruauðlindir séu sameign okkar allra, að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mál sem varða almannahag og  að stjórnarskráin verði endurskoðuð á stjórnlagaþingi.

Nefnd hefur verið að störfum á Alþingi til að reyna að ná málamiðlun en með tillöguflutningi eins og hann var kynntur í nefndinni staðfestir minni hluti Sjálfstæðisflokksins í fyrsta lagi andstöðu sína við að náttúruauðlindir séu í þjóðareign og verði ekki látnar varanlega af hendi og setur í öðru lagi fótinn fyrir tillögur sem auðvelda breytingar á stjórnarskrá. Í þriðja lagi gerir minni hlutinn ekki ráð fyrir því að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mál er varða almannahag og í fjórða lagi, eins og fram hefur komið, hafnar minni hlutinn því að almenningur geti valið fulltrúa sína á stjórnlagaþing til að endurskoða stjórnarskrána. Með tillögunum hefur minni hluti Sjálfstæðisflokksins í raun slegið á útrétta sáttahönd meiri hluta nefndarmanna í sérnefnd um stjórnarskrármál.

Lesa meira
 
vestmannaeyjar kj og j

Kata í Eyjum - 16.4.2009

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra heimsótti Vestmannaeyjar í gær, miðvikudag.  Hún fór í fylgd bæjarstjórans Elliða Vignissonar um bæinn, heimsótti framhaldsskólann, fékk golfkennslu, skoðaði þekkingarsetrið og safnhúsið sem hýsir bókasafn sem og minjasafn staðarins. Eyjarnar skörtuðu sínu fegursta í blíðskapar vorveðri.

Katrín kom að sjálfsögðu við á kosningamiðstöð VG við Skólaveg og sést hér á spjalli við Jórunni Einarsdóttur frá Vestmannaeyjum, en Jórunn skipar þriðja sæti á framboðslista VG í Suðurkjördæmi.

Lesa meira
 
happdraettismidinn_net

HAPPDRÆTTI! - 16.4.2009

Nú hefur kosningahappdrætti Vinstri grænna verið hrundið af stað. Eins og endranær er eftir miklu að slægjast enda vinningarnir ekki af verri sortinni

Með því að festa kaup á miða gætir þú átt von á því að:

-bergja á sagnabrunni Ármanns Jakobssonar um Vonarstræti 12

-fara í skoðunarferð um húsið hennar Birnu Þórðardóttur í boði hennar sjálfrar og gæða þér á portkonupasta og víni hússins

-dvelja í viku með fjölskyldunni í gestahúsi að Gunnarsstöðum, sigla um á trillu og þeysast um á hestbaki í boði Steingríms J. Sigfússonar

-gista á hótelinu í Flatey, borða dýrindis kvöldverð og fara í bátsferð um Breiðafjörð í boði Álfheiðar Ingadóttur

-stunda golf- og grillæfingar í Grímsnesinu í boði Atla Gíslasonar

Lesa meira
 
Kolbrun Halldors NET

Stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs í dag - 16.4.2009

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri í dag um kl. 16:45. Gestastofan verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum.Við þetta tækifæri mun umhverfisráðherra jafnframt undirrita reglugerð um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs til norðurs og verður þá Trölladyngja í heild, Askja og stór hluti Ódáðahrauns hluti af þjóðgarðinum.

Í ferð sinni austur mun umhverfisráðherra einnig þiggja heimboð Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Sambandið sendi umhverfisráðherra heimboð í febrúar og óskaði eftir að fá að kynna fyrir henni þau áhrif sem stóriðja hefur haft á landsfjórðunginn. Umhverfisráðherra mun því snæða hádegisverð með fulltrúum Fjarðarbyggðar í Ráðhúsinu Reyðarfirði og fara síðan í skoðunarferð um Reyðarfjörð og nærsvæði.

Lesa meira
 
uvg blonduos 5

Góð stemmning hjá Vinstri grænum á Blönduósi - 15.4.2009

Ungir frambjóðendur á lista Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi voru í góðri stemmningu á Árbakkanum síðastliðið laugardagskvöld. Hljómsveitin Svörtu sauðirnir spiluðu og fólk dillaði sér í sætunum í takt við tónlistina. Ungir frambjóðendur eru í miklum meirihluta í efstu sætum listans, mætt voru Ásmundur Einar Daðason, Telma Magnúsdóttir og Páll Rúnar Heinesen Pálsson. Efsti maður listans, Jón Bjarnason kíkti við síðar um kvöldið.

Lesa meira
 

Stjórnarsetur þingmanna VG - 14.4.2009

Í Fréttablaðinu birtist grein um tengsl þingmanna við hlutafélög. Þar kom fram að innan þingflokks VG væru þrír varamenn og einn stjórnarmaður í stjórnum fyrirtækja og einn endurskoðandi. Ekki kom fram í fréttinni um hvaða þingmenn ræðir en allar upplýsingar um þá er að finna hér.

Hið rétta er að Álfheiður Ingadóttir er varamaður í stjórn Plássins ehf. og Árni Þór Sigurðsson er stjórnarmaður Sjóminjasafnins í Reykjavík þar sem hann gegnir stöðu varaformanns. Sjóminjasafnið er sjálfseignarstofnun. Enginn annar þingmaður gegnir störfum í stjórnum fyrirtækja.

Lesa meira
 
opnun kosningamidstodvar i keflavik 2

Vinstri græn opna í Hafnargötu í Keflavík - 13.4.2009

Síðastliðinn fimmtudag 9. apríl opnaði kosningamiðstöð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs með pompi og prakt að Hafnargötu 36 a í Reykjanesbæ. Boðið var upp á pylsur, kaffi og meðlæti sem rann ljúflega í viðstadda. Atli Gíslason, fyrsti maður lista V.G. í Suðurkjördæmi,  ávarpaði samkunduna, ásamt Kolbrúnu Halldórsdóttur umhverfisráðherra og Bergi Sigurðssyni sem prýðir  4. sæti listans. Margt var um manninn og mikil stemmning í fólki fram eftir degi. Skrifstofan er opin daglega  frá klukkan 13.00 og eru lesendur hvattir til að heilsa upp á frambjóðendur þar og fá sér kaffisopa og spjall.

Lesa meira
 

Af gefnu tilefni - 10.4.2009

Undanfarna daga hafa fréttir af fjármálum flokkanna tröllriðið fjölmiðlum landsins. Í þeirri umræðu hafa flokkar verið hvattir til þess að opna bókhald sitt. Vegna þess vill VG koma eftirfarandi á framfæri:

VG hefur verið með opið bókhald frá upphafi, kynnt ítarlega reikninga á landsfundi, frá 2003 látið löggilta endurskoðendur árita reikninga flokksins og hefur birt þá á vefnum, sett kjörnum fulltrúum siðareglur og birt upplýsingar um öll fjárhagsleg tengsl kjörinna fulltrúa og nú einnig frambjóðenda.

Áður en lög um fjármála stjórnmálaflokka vor samþykkt unnu Vinstri græn eftir eigin reglum að öll fjárframlög yfir 500.000 skyldu birt í ársreikningi, þ.e. hver gaf og hversu mikið. Í einu tilfelli er um slíkt að ræða, árið 2006 fékk VG styrk frá Samvinnutryggingum að upphæð 1.000.000. Frá þessu er greint í áritun stjórnar í ársreikningi það ár.

Lesa meira
 
opnun_skagafirdi

Baráttuandi sveif yfir vötnum við opnun kosningamiðstöðvar VG á Sauðárkróki - 10.4.2009

Í dag var opnuð kosningamiðstöð VG á Sauðárkróki. Kristján Eldjárn Hjartarson og Kristjana Arngrímsdóttir fluttu baráttusöngva af sinni alkunnu snilld á meðan fólk gæddi sér á kaffibrauði og með því. Jón Bjarnason þingflokksformaður VG og leiðtogi hreyfingarinnar í NV kjördæmi fór yfir stöðu mála og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til og aðrar sem eru að koma til framkvæmda af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þá kynnti hann kosningaáherslur flokksins.

Lesa meira
 
Steingrímur J. Sigfússon

Fleiri störf með réttum skilyrðum - 9.4.2009

Tillögur Vinstri grænna í atvinnumálum voru kynntar blaðamönnum í gær. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, kynnti þá greinargerð hreyfingarinnar fyrir því hvernig til geta orðið að minnsta kosti 16-18 þúsund störf á næstu árum með réttum skilyrðum og stuðningi stjórnvalda. Vinstir græn leggja hins vegar áherslu á að störf eru ekki sköpuð af stjórnmálaflokkunum sjálfum, og eftirfarandi tillögur eru því ekki loforð um ný störf, hvorki á vegum hins opinbera né annars staðar, heldur greinargerð um það hvernig störf geta orðið til með framsækinni stefnumótun og stuðningi stjórnvalda.

Lesa meira
 
opnun_isafirdi_1

Mikil stemming við opnun kosningamiðstöðvar á Ísafirði - 8.4.2009

VG opnaði í kvöld kosningamiðstöð á Ísafirði. Samkoman var vel sótt og mikil stemming. Formaður VG á Vestfjörðum, Guðný Hildur Magnúsdóttir setti samkomuna. Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir sem skipa 2, 3 og 4 sæti framboðslistans fluttu ávörp og Jóna Benediktsdóttir fór með sígild baráttuljóð.

Lesa meira
 

Alltaf opið bókhald hjá VG - 8.4.2009

Af gefnu tilefni skal tekið fram að bókhald Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur ávallt verið opið og ársreikningar frá því árið 2003 aðgengilegir hér á vefnum. Áður en lög um fjármál stjórnmálaflokka voru samþykkt hafði flokkurinn þær reglur að upplýsa í reikningum hvaðan öll fjárframlög umfram 500 þúsund væru fengin.

Lesa meira
 

Vinstri græn leggjast gegn Helguvík á Alþingi - 7.4.2009

Fulltrúar Vinstri-grænna í þremur nefndum Alþingis hafa lýst andstöðu sinni við frumvarp um fjárfestingarsamning um álver í Helguvík og telja óverjandi að samþykkja frumvarpið enda séu á því miklir annmarkar. 

Lesa meira
 
2009-04-05-vg_kosningamidstod kop

Fjölmenni, söngur og gleði hjá VG í Kópavogi - 7.4.2009

Vinstri græn opnuðu kosningaskrifstofu að Hamraborg 1-3 á sunnudaginn. Fjöldi fólks lagði leið sína á opnunina og hlýddi á ávarp Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur oddvita lista VG í Kragakjördæminu. Þá söng Guðrún Gunnarsdóttir söngkona nokkur lög fyrir gesti. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sem skipar annað sæti lista VG í kjördæminu og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG heilsuðu einnig upp á gesti.

Lesa meira
 
Kolbrun Halldors NET

Kolbrún fær samþykkta tillögu til atvinnusköpunar - 6.4.2009

Í kjölfar tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðherra sem samþykkt var í ríkisstjórn um að framkvæmdum við ofanflóðavarnir verði hraðað, hefur ofanflóðanefnd óskað eftir heimild fjármálaráðuneytisins til að bjóða út framkvæmdir við varnargarða í Neskaupstað og í Ólafsfirði. Umhverfisráðherra lagði til við ríkisstjórn að tæpum 1.100 milljónum króna yrði varið í ofanflóðavarnir til viðbótar við þær tæpar 700 milljónir sem ákveðið var að veita í málaflokkinn samkvæmt fjárlögum.

Lesa meira
 

Fjölmenni við opnun kosningaskrifstofu á Egilsstöðum - 6.4.2009

Kosningaskrifstofa Vinstri grænna í Kaupvangi 5 á Egilsstöðum var opnuð formlega síðastliðinn laugardag, 4. apríl og voru allir efstu frambjóðendur á lista flokksins í Norðausturkjördæmi viðstaddir opnunina.
Lesa meira
 
opnun_kosno

Uvg vígja kosningamiðstöðina - 5.4.2009

 

Ung vinstri græn hafa hertekið skrifstofur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að Suðurgötu 3 og reka þaðan sína eigin kosningaskrifstofu. Þar var opnað með pompi og prakt á laugardagskvöld og fjöldi fólks lagði leið sína um miðstöðina. Á Suðurgötunni verður opið alla daga frá 16 til 22.

Lesa meira
 

Vinstri græn mælast með 27,7% fylgi - 2.4.2009

Í Gallup-könnun sem birt var í dag mælast Vinstri græn með 27,7% fylgi á landsvísu. Athygli vekur sérstaklega sterk staða flokksins í Norðausturkjördæmi þar sem fylgið mælist 35,4% eða langmest allra flokka. Samkvæmt könnuninni myndu Vinstri græn telja 19 þingmenn eftir kosningar, vaska sveit til að fylgja eftir félagslegum umbótum samfélagsins.

Lesa meira
 

Fimm svæði friðlýst í Hafnarfirði - 2.4.2009

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Lúðvík Geirsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar munu friðlýsa fimm svæði innan marka Hafnarfjarðar kl. 13:00 á morgun, föstudaginn 3. apríl. Athöfn fer fram við Hleina, skammt frá Hrafnistu í Hafnarfirði. Aldrei hafa svo mörg svæði verið friðlýst í sama sveitarfélaginu í einum vettvangi.

Þrír fólkvangar og tvö náttúruvætti verða friðlýst til útivistar og verndunar á lífríki og hraunmyndunum. Fólkvangar verða stofnaðir við Hvaleyrarlón, Hleina og í Stekkjahrauni. Litluborgir og hluti af Kaldárhrauni verða friðlýst sem náttúruvætti.

Lesa meira
 

Ályktun Kjördæmisráðs VG í Norðvesturkjördæmi - 2.4.2009

Fundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, haldinn í Borgarnesi 29. mars 2009, lýsir yfir afdráttarlausum stuðningi við störf þingflokks VG, þingmanna og ráðherra VG, undanfarin misseri.

Þingflokkur VG hefur af elju og dugnaði haldið fram sjónarmiðum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og tryggt þeim brautargengi, sem skiptir máli ekki síst nú, þegar þjóðin stendur frammi fyrir gífurlegum efnahagserfiðleikum og álitshnekki erlendis, af völdum óheftrar græðgisvæðingar þjóðfélagsins undanfarin ár í skjóli fyrri ríkisstjórna

Lesa meira
 

Um skattatillögur Vinstri grænna - 1.4.2009

Nokkur umræða hefur farið fram um skattamál að undanförnu. Rétt er í því sambandi að benda á tillögur VG um skattamál eins og þau koma fram í kosningaáherslum flokksins sem samþykktar voru á landsfundi:

Lesa meira
 

Allir framboðslistar VG tilbúnir - 31.3.2009

Nú eru allir framboðslistar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs tilbúnir. Nýjasti framboðslistinn, í Norðvesturkjördæmi, var samþykktur í gær hjá fundi kjördæmaráðs í Borgarfirði.

Listana má nálgast hér á síðunni undir dálkinum Kosningar.

Lesa meira
 

Ríkisstjórnin samþykkir stefnu um vistvæn innkaup - 29.3.2009

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra undirrituðu stefnu um vistvæn innkaup síðastliðinn föstudag. Ríkisstjórnin samþykkti stefnuna á fundi sínum sama dag. Í stefnuninni er sagt fyrir um hvernig samþætta á umhverfissjónarmið innkaupum hjá ríkinu.

Lesa meira
 

Fundur um NATO á Akureyri - 29.3.2009

Mánudaginn 30. mars verða liðin sextíu ár síðan Alþingi samþykkti aðild Íslands að hernaðarbandalaginu NATO. Af því tilefni verður samkoma um kvöldið á kosningaskrifstofu VG á Akureyri, Geislagötu 7, kl. 20.00 þar sem áhersla verður lögð á kröfuna um að Ísland standi utan allra hernaðarbandalaga og að Nató verði lagt niður.

Lesa meira
 

Álag á há laun - 28.3.2009

Töluverðar umræður hafa skapast undanfarið um tillögur Vinstri grænna um álag á há laun. Starfsmenn flokksins hafa tekið saman stutta greinargerð um tillöguna. Við megum eiga von á því að verða spurð mikið um þetta tiltekna atriði og því gött að vera með skýr svör á reiðum höndum.

Lesa meira
 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla - 25.3.2009

Þeir sem af einhverjum ástæðum komast ekki á kjörfund 25. apríl í sínu kjördæmi geta kosið utan kjörfundar til og með kjördags. Vinstri græn geta aðstoðað við að leita upplýsinga og koma atkvæðinu til skila. Munið að listabókstafur Vinstri grænna er V. Lesa meira
 

Sjávarútvegsstefna VG - 24.3.2009

Sjávarútvegsstefna flokksins, Hafið bláa hafið - Áherslur og tillögur Vinstri grænna í sjávarútvegsmálum, er nú komin á vefinn. Lesa meira
 

Frestur til að kæra sig inn á kjörskrá rennur út á miðvikudaginn - 23.3.2009

Við minnum á fresturinn til að kæra sig inn á kjörskrá rennur út á miðvikudaginn næstkomandi (25. mars). Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili utan landsins síðustu átta ár eru hvattir til að kæra sig inn á kjörskrá því þeir gætu hafa misst kosningarétt sinn. Komið þessum skilaboðum til allra sem gætu verið í þessum aðstæðum svo að öll Vinstri græn atkvæði skili sér á kjördag!

Hægt er að kæra sig inn á kjörskrá hér: http://www.thjodskra.is/eydublod/kjorskra/

Lesa meira

 

Landsfundur: Vegur til framtíðar varðaður - 22.3.2009

Áherslur Vinstri grænna í lýðræðis-, velferðar-, atvinnu- og efnahagsmálum voru samþykktar nýlega á landsfundi.

Lesa meira
 

Landsfundur: Ályktun um Palestínu samþykkt - 22.3.2009

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn 20.-22. mars 2009 áréttar stefnu Íslands varðandi Ísrael og Palestínu sem samþykkt var einróma á Alþingi 18. maí 1989. Þar var lögð áhersla á að virða beri sjálfákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar, tilverurétt Ísraelsríkis og jafnframt rétt palestínskra flóttamanna til að snúa aftur til fyrri heimkynna sinna. Landsfundurinn ályktar að á grundvelli stefnu Íslands um sjálfsákvörðunarrétt þjóða beri Íslandi að viðurkenna þau stjórnvöld sem Palestínumenn kjósa sér.

Lesa meira
 

Landsfundur: Ályktun um utanríkismál samþykkt - 22.3.2009

Miklar og sögulegar breytingar hafa á undanförnum árum gengið yfir heiminn á sviði utanríkis- og öryggismála og viðskipta og stjórnmála. Eftir langt kyrrstöðutímabil kaldastríðsáranna þar sem kjarnorkuvígbúið ógnarjafnvægi hélt heiminum í helgreipum hafa hlutirnir verið á fleygiferð. Þessar breytingar lúta ekki aðeins að upplausn Sovétríkjanna og þar með gerbreyttum stjórnmálaaðstæðum í Evrópu, heldur einnig að hnattvæðingu á forsendum fjármagns og stórfyrirtækja, stríði um olíu og aðrar auðlindir.  Þá hafa hnattrænar umhverfisbreytingar af mannavöldum bæst við sem ógnvaldur og brýnt er að við þeim sé brugðist ef komast á hjá stórfelldum ófarnaði.  Í friðar- og öryggismálum eru áfram margar blikur á lofti. Árásarstríð Bandaríkjanna og NATO geisa enn í Afganistan og Írak og framferði Ísraelsstjórnar gegn palestínsku þjóðinni jaðrar við þjóðarmorð.  Í Afríku standa yfir átök og jafnvel hreinar kynþáttahreinsanir á fleiri en einum stað. Allt eru þetta ótvíræðar vísbendingar um að aðferðafræði hernaðarhyggjunnar, hnefaréttarins og hernaðar­bandalaganna er gjaldþrota sem leið til að tryggja öryggi.

Lesa meira
 

Landsfundur: Ályktun um félagshyggjustjórn eftir kosningar samþykkt - 22.3.2009

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn að Hótel Nordica 20.-22 mars 2009, ályktar að Vinstrihreyfingin – grænt framboð sækist eftir því að mynda félagshyggjustjórn að loknum kosningum í vor. Það er mjög mikilvægt á þeim erfiðu tímum sem við nú göngum í gegnum að ríkisstjórn landsins starfi í þágu jöfnuðar og réttlætis. Sjaldan hefur það verið jafn mikilvægt að standa vörð um og byggja upp öflugt velferðarkerfi, sem mismunar engum, sem gengur ekki á auðlindir barna okkar og sem hyglir ekki auðmönnum umfram almenning. Við viljum ríkisstjórn sem forgangsraðar í þágu fólks, ekki fjármagns, ríkisstjórn sem velur frið í stað hernaðaru

Lesa meira
 

Kosning í flokksráð - Úrslit - 22.3.2009

Kosning í flokksráð - Úrslit Lesa meira
 

Síðasti dagur landsfundar - 22.3.2009

Í dag er þriðji og síðasti dagur landsfundar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Nordica í Reykjavík.  Fundurinn hófst í morgun með kosningu til flokksráðs og nú skila málefnahópar af sér afrakstri vinnu sinnar. Eftir hádegi verða lagabreytingar afgreiddar og lýkur svo fundinum með afgreiðslu kosningaáherslna og ályktana. Blaðamannafundur með efstu frambjóðendum hefst klukkan 17:00.

Lesa meira

 

Kosningaúrslit - 21.3.2009

Kosning til stjórnar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fór fram í morgun. Embættin skipast þannig: Lesa meira
 

Framboðslisti V-lista í Suðurkjördæmi samþykktur - 21.3.2009

Kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi samþykkti framboðslista í gærkveldi. Hann er svo skipaður: Lesa meira
 

Annar dagur landsfundar - 21.3.2009

Í dag hefst annar dagur sjötta landsfundar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Nordica í Reykjavík. Gærdeginum lauk með almennum stjórnmálaumræðum þar sem fjölmargir tóku til máls. Fundurinn er vel sóttur og dagskráin í dag er þéttskipuð. Klukkan 10:00 fer fram kosning formanns, varaformanns, ritara, gjaldkera og annarra stjórnarmanna. Framboði til flokksráðs lýkur svo á hádegi. Eftir hádegishlé klukkan 14:00 taka málefnahópar til starfa og hópastarfinu lýkur klukkan 18:00. Í kvöld verður blásið til glæsilegrar veislu í Þjóðleikhúskjallaranum og hefst landsfundarballið klukkan 21:00.

Lesa meira
 

Setningarræða Steingríms J. Sigfússonar - 20.3.2009

Ég vil byrja á því að bjóða ykkur öll velkomin til sjötta reglulega landsfundar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Það hefur mikið vatn til sjávar runnið síðan við hittumst á sambærilegum vettvangi í febrúar 2007 í aðdraganda Alþingiskosninga. Í þeim kosningum vann Vinstrihreyfingin grænt framboð góðan sigur, við urðum helsti sigurvegari þeirra kosninga, bættum við okkur fjórum þingmönnum og fengum 14,3% atkvæða sem gerði okkur að stærsta vinstri eða vinstri græna flokknum á Norðurlöndunum, ef frá eru taldir systurflokkar okkar í Færeyjum og á Grænlandi.

Lesa meira
 

Fjölmennasti landsfundur frá upphafi - 20.3.2009

Í dag hefst sjötti landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Nordica í Reykjavík. Fundurinn verður sá og langfjölmennasti til þessa, enda hefur mikil fjölgun orðið í flokknum undanfarin misseri og eru félagar orðnir yfir 5000 talsins. Fulltrúarnir koma frá alls 32 svæðisfélögum víðs vegar um landið og meira að segja utan landsteinanna en nýjasta svæðisfélagið í Kaupmannahöfn og suður-Svíþjóð sendir fulltrúa.

Lesa meira
 

Framboðslisti V-lista í Suðvesturkjördæmi samþykktur - 19.3.2009

Á kjördæmisfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Suðvesturkjördæmi hinn 19. mars var framboðslisti V-lista samþykktur einróma. Hann er svona skipaður:

Lesa meira
 

Framboðslistar V-lisa í Reykjavíkurkjördæmunum samþykktir - 19.3.2009

Á kjördæmisfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík 19. mars voru framboðslistar V-lista samþykktir einróma. Þeir eru svona skipaðir:

Lesa meira
 

Framboðslisti V-lista í Norðausturkjördæmi samþykktur - 15.3.2009

Kjördæmisþing VG í Norðausturkjördæmi haldið 15. mars, samþykkti framboðslistann til Alþingiskosninga 25. apríl næstkomandi einróma. Listinn er svona:

Lesa meira
 
kvennamerkid

Jöfn kynjahlutföll hjá VG - 15.3.2009

Úrslit úr öllum forvölum Vinstri grænna liggja nú fyrir og ljóst að karlar og konur skipta með sér að leiða listana. Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir munu leiða listana í Reykjavík, Guðfríður Lilja er í fyrsta sæti í Suðvesturkjördæmi, Atli Gíslason í Suðurkjördæmi, Steingrímur J. Sigfússon í Norðausturkjördæmi og Jón Bjarnason í Norðvesturkjördæmi. Ef skoðað er hverjir lentu í fjórum efstu sætunum í öllum kjördæmum eru konur 13 af 24 eða 54% þeirra sem hlutu brautargengi. Á listunum blandast saman nýliðar og reynsluboltar en allir sitjandi þingmenn náðu kjöri meðal efstu frambjóðenda. Meðalaldur frambjóðendanna er 45 ár, sá yngsti er 26 ára og sá elsti 65 ára. Frekari upplýsingar um úrslit forvala má nálgast á vef hvers kjördæmis: /kjordaemi/

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

Úrslit í forvali VG í Norðvesturkjördæmi - 15.3.2009

Jón Bjarnason, þingmaður, sem skipaði hefur efsta sæti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi frá upphafi, sigraði með yfirburðum í nýafstöðnu forvali og fékk 254 atkvæði í fyrsta sætið. Atkvæði greiddu 375 en 524 voru á kjörskrá.

Í öðru sæti varð Lilja Rafney Magnúsdóttir á Suðureyri með 124 atkvæði í 1 - 2 sæti og í þriðja sæti Ásmundur Einar Daðason, Lambeyrum í Dölum, með 165 atkvæði í 1 - 3. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Reykholti hreppti annað sætið, Telma Magnúsdóttir Blönduósi varð í því fimmta og í sjötta sæti Grímur Atlason í Búðardal. Prófkjörið var framkvæmt með póstkosningu og eru niðurstöður birtar með fyrirvara um samþykki kjördæmisráðs.

Lesa meira
 

Úrslit í forvali VG í Suðvesturkjördæmi - 15.3.2009

Úrslit í forvali Vinstri grænna í Suðvesturkjödæmi lágu fyrir rétt eftir miðnætti og voru þessi:

Á kjörskrá voru 1178, 738 greiddu atkvæði og voru 31 seðil ógíldur.

Í fyrsta sæti með 478 atkvæði lenti Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, í öðru sæti með 526 atkvæði lenti Ögmundur Jónasson. Í þriðja sæti var Ólafur Þór Gunnarsson með 216 atkvæði, í þriðja var Andrés Magnússon með 261 atkvæði, í því fimmta lenti Margrét Pétursdóttir með 290 atkvæði og í því sjötta var Ása Björk Ólafsdóttir með 227 atkvæði.

Lesa meira
 

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Álftanesi - 13.3.2009

Vinstrihreyfingin grænt framboð á Álftanesi hélt aðalfund sinn þann 18. febrúar sl. Formaður hreyfingarinnar var kjörin Anna Ólafsdóttir Björnsson og meðstjórnendur Gunnsteinn Ólafsson og Hrafnkell Tumi Kolbeinsson. Gestir fundarins voru þau Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varaþingmaður. Fundurinn samþykkti að senda frá sér eftirfarandi ályktanir:

Lesa meira
 

Fullt út úr dyrum hjá VG í Garðabæ. - 13.3.2009

Fullt var út úr dyrum hjá VG í Garðabæ í gærkvöldi þegar Félag VG í bænum var endurreist og stofnað. Mikil stemmning var á staðnum og hugur í fundarmönnum að mála Garðabæ í fleiri litum en þeim bláa. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur stýrði fundinum og rifjaði upp sögur úr Garðabæ. Hún sagði að sér hefði stundum fundist hún vera eins og "The only gay in Little Britain"  að vera vinstrigræn í Garðabæ, en nú væru bersýnilega að renna upp nýir tímar. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra flutti ávarp og talaði um nauðsyn þess fyrir íslenskt samfélag að aðrar og breyttar áherslur og nýtt gildismat réði hér ríkjum næstu misserin og því væri úrslitaatriði að góður kosningasigur ynnist í apríl. Það tæki ár en ekki bara vikur að endurreisa Íslands og til þess þyrfti félagshyggjufólk að vinna saman.

Lesa meira
 

Vinstri græn í Kaupmannahöfn álykta - 12.3.2009

Stjórn Vg í Kaupmannahöfn og suður Svíþjóð vill sjá róttækar breytingar í málefnum íslenskra námsmanna erlendis og hvetur menntamálaráðherra og stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til að umbylta því kerfi sem námsmenn lifa við í dag.

Það er óásættanlegt að LÍN hafi í mörg ár gefið bönkunum færi á að nýta sér stöðu námsmanna með því að greiða námslán ekki fyrirfram. Slíkt fyrirkomulag gerir bönkunum kleift að bjóða námsmönnum fyrirgreiðslu með svimandi háum vöxtum, enda eiga fæstir nemar um annað að velja. Stjórn Vg í Kaupmannahöfn og suður Svíþjóð hvetur til þess að LÍN bjóði upp á fyrirframgreiðslur til námsmanna.

Lesa meira
 

Forvalið í Suðvesturkjördæmi - 11.3.2009

Á laugardaginn, 14 mars, er haldið forval vinstri grænna í Suðvestur-kjördæmi, Kraganum, vegna alþingiskosninganna 2009. Alls eru 15 sem gefa kost á sér, en kjósa skal í allt að sex efstu sæti listans.

Lesa meira
 

Dagskrá landsfundar - 10.3.2009

Sjötti reglulegi landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn á Hótel Nordica helgina 20.-22. mars næstkomandi. Dagskrá liggur nú fyrir og lítur hún svona út:

Lesa meira
 

Ályktun af aðalfundi svæðisfélagi VG á Vestfjörðum - 8.3.2009

Aðalfundur svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum, haldinn 5. mars 2009, telur það forgangsverkefni fyrir samfélagið á Vestfjörðum að brugðist sé við vaxandi atvinnuleysi á svæðinu. Skipulagðar aðgerðir verða að stuðla að uppbyggingu bæði til skemmri og lengri tíma.  Mikilvægt er að þjónusta við atvinnulausa verði bætt og að fólk sem missir vinnuna geti haldið áfram að vera virkir þátttakendur í samfélaginu.  Mikilvægt er fyrir uppbyggingu atvinnulífsins til lengri tíma litið að grunnatvinnuvegir svæðisins, landbúnaður og sjávarútvegur, verði efldir.  Einnig að stuðlað verði að meiri fjölbreytni og nýsköpun í atvinnutækifærum og þróun í ferðaþjónustu verði samtvinnuð náttúru, menningu, mat og sögu Vestfjarða.

Lesa meira
 

Úrslit í Reykjavíkurfovali - 8.3.2009

Endanlega úrslit í forvali Vinstri grænna í Reykjavík liggja nú fyrir. Alls kusu 1101 félagi í fimm efstu sætin í tveim kjördæmum. Atkvæði skiptust þannig:

 

 

  • Katrín Jakobsdóttir, 856 atkvæði í 1. sæti
  • Svandís Svavarsdóttir, 616 atkvæði í 1. sæti
  • Lilja Mósesdóttir, 480 atkvæði í 2. sæti
  • Árni Þór Sigurðsson, 342 atkvæði í 2. sæti
  • Álfheiður Ingadóttir, 479 atkvæði í 3. sæti
  • Kolbrún Halldórsdóttir, 446 atkvæði í 3. sæti
  • Ari Matthíasson, 467 atkvæði í 4. sæti
  • Auður Lilja Erlingsdóttir, 376 atkvæði í 4. sæti
  • Davíð Stefánsson, 474 atkvæði í 5. sæti
  • Steinunn Þóra Árnadóttir, 447 atkvæði í 5. sæti
Lesa meira
 

Fyrstu tölur í forvali VG í Reykjavík - 8.3.2009

Þegar öll atkvæði fyrir utan þau atkvæði sem bárust utan kjörfundar hafa verið talin í Reykjavíkurkjördæmunum er atkvæðafjöldi í þessari röð:

1.       Katrín Jakobsdóttir

2.       Svandís Svavarsdóttir

3.       Lilja Mósesdóttir

4.       Árni Þór Sigurðsson

5.       Álfheiður Ingadóttir

6.       Kolbrún Halldórsdóttir

7.       Ari Mattíasson

8.       Auður Lilja Erlingsdóttir

9.       Davíð Stefánsson

10.   Steinunn Þóra Árnadóttir

Lesa meira
 

Úrslit úr póstkosningu Vinstri grænna í Suðurkjördæmi - 7.3.2009

Forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi er nú lokið en kosið var póstkosningu. Niðurstöður talningar eru svo:

1 .sæti Atli Gíslason, alþingismaður

2. sæti Arndís Soffía Sigurðardóttir, ferðaþjónustubóndi

3. sæti Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri

4. sæti Jórunn Einarsdóttir, kennari

5. sæti Þórbergur Torfason, veiðieftirlitsmaður

Vegna kynjaskiptingar færðust Bergur og Þórbergur upp um eitt sæti hvor. Endanleg ákvörðun um röðun á listanum verður tekin á fundi kjördæmisráðs.

Lesa meira
 

Kosningavaka á Tryggvagötunni - 7.3.2009

Úrslit úr forvali Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum verður tilkynnt í kvöld í kosningamiðstöð flokksins að Tryggvagötu 11. Kjörstaður að Suðurgötu 3 lokar klukkan tíu en stefnt er að því að tölur verði kynntar um miðnætti.

Lesa meira
 

Frambjóðendabæklingur fyrir SV kominn á netið - 5.3.2009

Bæklingur með upplýsingum um frambjóðendur í forvali Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi er kominn á vefinn. Hægt er að nálgast bæklinginn hér.

 

Ný stjórn VG á Vestfjörðum - 5.3.2009

Aðalfundur svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum var haldinn 5. mars síðastliðinn. Á fundinum var kjörin ný stjórn og rætt vítt og breitt um ástand mála og stjórnmál líðandi stundar. Atvinnumálin og orkumál og sjávarútvegsmál voru efst á baugi og voru líflegar umræður um lausnir VG í þessum málaflokkum. Guðný Hildur Magnúsdóttir var kjörin formaður en með henni í stjórn sitja Ágústa Guðmundsdóttir, Jóna Benediktsdóttir, Gunnar Sigurðsson og Svava Rán Valgeirsdóttir. Varastjórn skipa Stefán Björgvin Guðmundsson og Halldóra Játvarðardóttir. Félagslegir endurskoðendur voru kjörnir Birkir Friðbertsson og Gígja Sigríður Tómasdóttir.

Lesa meira
 

Hægt að kæra sig inn á kjörskrá til 25. mars! - 5.3.2009

Vegna sérstakra aðstæðna við þingkosningar hefur Alþingi samþykkt lög um að heimilt sé að kæra sig inn á kjörskrá til 25. mars næstkomandi. Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili utan landsins síðustu átta ár eru hvattir til að kæra sig inn á kjörskrá. Það er hægt að gera hér: http://www.thjodskra.is/eydublod/kjorskra/. Látið berast!

Lesa meira
 

Úrslit úr forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi - 4.3.2009

Talningu í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi er lokið og var kjörsókn tæplega 63%. Einn kjörseðill var úrskurðaður ógildur. Alls gaf 21 félagi kost á sér í forvalinu. Steingrímur J. Sigfússon fékk afgerandi kosningu í fyrsta sætið en alls var kosið í átta sæti. Frambjóðendur raðast þannig:

Lesa meira
 

Fundur á Ísafirði - 4.3.2009

Aðalfundur í svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum verður haldinn á Ísafirði fimmtudagskvöldið 5. mars næstkomandi í sal Verkalýðsfélags Vestfirðinga Pólgötu 2 klukkan 20. Á fundinum verður kjörin ný stjórn og landsfundafulltrúar skipaðir.

Lesa meira
 

Úrslit úr forvali VG í Norðausturkjördæmi væntanleg í kvöld - 4.3.2009

Vegna tafa á póstsamgöngum verða úrslit í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi tilkynnt í kvöld, miðvikudagskvöld 4. mars. Lesa meira
 
forvalsbaekl_NV_forsida

Frambjóðendabæklingur NV-kjördæmis kominn á vefinn - 2.3.2009

Í tilefni forvals Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi var gefinn út bæklingur með kynningu á öllum frambjóðendunum. Þessi bæklingur er nú aðgengilegur hér á vefnum í pdf-formi. Aðrar upplýsingar má einnig nálgast hér.

Lesa meira
 

Hvað ber framtíðin í skauti sér hvað varðar húsnæðismál íbúa höfuðborgarsvæðisins? - 28.2.2009

Borgarstjórnarflokkur VG efnir til almenns fundar um húsnæðismál á höfuðborgarsvæðinu. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhússins miðvikudaginn 4. mars kl. 20:00 og er öllum opinn.

Frummælendur verða þau Steingrímur J Sigfússon fjármálaráðherra, Ásta Rut Jónasdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, Guðmundur Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs og Páll Gunnlaugsson arkitekt og fyrrverandi formaður Búseta.

Lesa meira
 

103 í framboði hjá Vinstrihreyfingunni - grænu framboði - 28.2.2009

Vinstri græn standa fyrir forvölum í öllum kjördæmum fyrir Alþingiskosningarnar 2009. Alls hafa 103 félagar gefið kost á sér og ljós að aldrei hefur verið jafn mikill áhugi á að starfa með flokknum og nú. Í Reykjavíkurkjördæm-unum verður sameiginlegt forval og hafa 32 félagar gefið kost á sér þar. Í Suðvesturkjördæmi eru 15 í framboði, 13 í Suðurkjördæmi. Í Norðausturkjördæmi er 21 félagi í framboði og í Norðvesturkjördæmi eru frambjóðendurnir 22. Upplýsingar um nöfn frambjóðenda og tilhögun kosninga má nálgast á vef Vinstri grænna.

Lesa meira
 

22 frambjóðendur gefa kost á sér í forvali VG í Norðvesturkjördæmi - 28.2.2009

Framboðsfrestur í forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi rann út föstudaginn 27. febrúar. Alls gáfu 22 félagar kost á sér. Þeir sem eru skráðir félagar í Vinstri grænum í kjördæminu fá sendan kynningarbækling með frambjóðendunum auk kjörseðils sem þarf að póstleggja í síðasta lagi 10. mars næstkomandi. Þau sem gáfu kost á sér eru:

Lesa meira
 

Fimmtán frambjóðendur í forvali VG í Kraganum - 27.2.2009

Framboðsfrestur í forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðvestur-kjördæmi vegna alþingiskosninganna í vor er nú liðinn.

Ákveðið var á fundi kjördæmisráðs VGSV að forvalið færi fram þann 14. mars næstkomandi að Hamraborg 1-3 í Kópavogi, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og Hlégarði í Mosfellsbæ kl. 10:00 – 22:00. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram kl. 16.00 – 21.00 að Hamraborg 1-3 í Kópavogi þann 12. og 13. mars 2009. Þeir félagsmenn sem eru erlendis eða úti á landi geta óskað eftir að taka þátt í forvalinu með póstkosningu.

Lesa meira
 
NGLA_logo

Norðurlandahópur Vinstri grænna auglýsir eftir framkvæmdastjóra/-stýru - 27.2.2009

Samstarfsvettvangur Vinstri grænna flokka á norðurlöndum auglýsir eftir nýjum framkvæmdastjóra/-stýru sem þarf að geta hafið störf 1. júní næstkomandi. Sama auglýsing birtist á öllum norðurlöndum (sjá neðan) en ég hvet íslenska félaga sérstaklega til að sækja um. Viðkomandi þarf að sjálfsögðu að hafa Norðurlandatungumál á valdi sínu og vera tilbúinn til ferðalaga milli landa. Aðsetur framkvæmdastjóra/-stýru fer eftir þjóðerni þess sem ráðin/n er.

Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri grænna

Lesa meira
 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst á laugardag! - 26.2.2009

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninganna sem boðaðar eru 25. apríl 2009 hefst við embætti sýslumannsins í Reykjavík þann 28. febrúar nk. og er opin á skrifstofutíma á milli kl. 9:00 – 15:30 virka daga. Um helgar er opið frá kl. 12:00 – 14:00.

Frá og með 1. apríl nk. fer atkvæðagreiðslan fram í Laugardalshöll og þá verður opið alla daga frá kl. 10:00 -22:00 en lokað á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum.

Sýslumaðurinn í Reykjavík

Lesa meira
 
FORSIDA_FRAMBODSBAEKL_RVK

Framboðsbæklingur Reykjavíkurkjördæmis kominn á netið - 25.2.2009

Bæklingur þar sem frambjóðendur í forvali Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum kynna sig, er kominn á vefinn. Bæklingurinn verður einnig sendur öllum félögum sem skráðir eru í Svæðisfélag Vinstri grænna í Reykjavík.

Lesa meira
 
forsida_frambodsbaeklingur_SU

Framboðsbæklingur Suðurkjördæmis kominn á netið - 24.2.2009

Bæklingur þar sem frambjóðendur í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi kynna sig, er kominn á vefinn. Bæklingurinn verður ekki prentaður heldur einungis aðgengilegur í rafrænu formi sem pdf-skjal.

Lesa meira
 
090223_vestmannaeyjar

Fjölmennur og góður fundur VG í Vestmannaeyjum - 24.2.2009

Frambjóðendur til efstu sæta VG í Suðurkjördæmi héldu opinn kynningarfund á Kaffi Kró í Vestmannaeyjum gærkvöldi (23. feb). Sex frambjóðendur sem gefið hafa kost á sér í sæti 2-5 komu til Eyja og kynntu sig og sín sjónarmið á fundinum.  Atli Gíslason þingmaður VG í Suðurkjördæmi átti því miður ekki heimangengt vegna anna á Alþingi en hann nýtur óskoraðs trausts til að leiða framboðslistann í kosningunum 25. apríl nk. 

Fundinn sóttu rúmlega 30 manns og voru umræður fjörugar, málefnalegar og sýna að mikill áhugi er meðal Eyjamanna á stefnu og framgangi Vinstri grænna.  Kynningarfundir frambjóðendanna hafa að undanförnu verið haldnir um Suðurkjördæmið vítt og breytt og í kjölfarið hefst síðan póstkosning um skipun efstu sætanna.

Lesa meira
 

32 í framboði í forvali VG í Reykjavík - 23.2.2009

Framboðsfrestur í forval VGR vegna alþingiskosninganna í vor er nú liðinn. Eins og ákveðið var á félagsfundi VGR fer forvalið fram 7. mars næstkomandi í húsnæði VGR, Suðurgötu 3, en utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður 5. og 6. mars einnig í Suðurgötu 3. Þeir félagsmenn sem eru erlendis eða úti á landi geta óskað eftir að taka þátt í forvalinu með póstkosningu.

Í forvalinu á að raða fimm frambjóðendum í efstu sæti á listunum tveimur í Reykjavík, alls tíu nöfnum.

Unnið er að gerð kynningarbæklings um frambjóðendur. Bæklingurinn verður sendur til allra félagsmanna VGR.

Samkvæmt reglum um forvalið á að draga um hvaða nafn er efst á listanum og raða nöfnum frambjóðenda í starfrófsröð þar á eftir.

Lesa meira
 

Forval hjá Vinstri grænum í öllum kjördæmum - 22.2.2009

Í dag ákvað kjördæmisþing Norðvesturkjördæmis að nota póstkosningu til að velja á lista fyrir alþingiskosningarnar í vor. Þar með er orðið ljóst að forval verður hjá Vinstri grænum í öllum kjördæmum, ýmist með kjörfundi eða póstkosningu. Fréttir úr hverju kjördæmi um forvalsreglur, frambjóðendur og fleira má nálgast jafn óðum og þær berast á vef hvers kjördæmisfélags fyrir sig hér.

Lesa meira
 

Frá VG í Suðvesturkjördæmi - 21.2.2009

Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi ákvað á fundi sínum þann 21. febrúar 2009 að kjörfundur vegna forvals verði laugardaginn 14. mars 2009 en EKKI dagana 5. og 6. mars eins og áður hefur verið auglýst.
Framboðsfrestur er til kl. 24.00 fimmtudaginn 26. febrúar. Þeir sem vilja gefa kost skulu senda til kjörstsjórnar á netfangið kjorstjornvgsv@gmail.com .
Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það með sama hætti og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á.
Allir þeir sem hafa áhuga á því að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuði, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvattir til að gefa kost á sér.

Lesa meira
 
frambjodendabaekl_kapa

Kynningarbæklingur með frambjóðendum í forvali VG í NA-kjördæmi - 20.2.2009

Gefinn hefur verið út bæklingur með kynningu á öllum frambjóðendum í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi. Bæklinginn má nálgast á rafrænu formi hér að neðan en hann verður einnig sendur öllum skráðum félögum ásamt atkvæðaseðli. Nánar um tilhögun forvalsins má lesa í forvalsreglunum og reglum um póstkosningu.

Lesa meira
 

Framboð í forvali VG í NA - 18.2.2009

Eftirfarandi framboð hafa borist í forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi en framboðsfrestur er runninn út. Kosningarétt hafa allir félagsmenn í VGNA sem skráðir eru 23. febrúar 2009 en þá verður kjörskrá lokað.

Kjörfundur verður haldinn 28. febrúar 2009 en kjördæmisráð Norðausturkjördæmis mun annast kynningu á frambjóðendum með sérstöku kynningarefni sem og standa fyrir fundum.

Lesa meira
 

Val á framboðslistum VG fyrir kosningarnar - 17.2.2009

Nú liggur fyrir í flestum kjördæmum hvernig valið verður á lista Vinstri grænna fyrir komandi alþingiskosningar. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vg.is jafn óðum og þær berast en fljótlega verður komið upp síðum fyrir hvert kjördæmi fyrir sig þar sem kynntar verða forvalsreglur og frambjóðendur.   Lesa meira
 

Forval Suðvesturkjördæmis - 17.2.2009

Stjórn kjördæmisráðs VG í Suð-vesturkjördæmi hefur ákveðið að efna til forvals vegna komandi alþingiskosninga. Skipuð hefur verið fimm manna kjörstjórn sem mun leggja til á almennum fulltrúaráðsfundi kjördæmisráðsins sem boðaður er þann 21. febrúar dagsetningar sem snerta fresti og forvalsdag. Tillagan hljóðar á þá leið að forvalið fari fram þann 5. og 6. mars. Auglýstur framboðsfrestur er til 23. febrúar.

Því er auglýst eftir fólki sem vill gefa kost á sér í eitt af efstu sex sætum á lista VG í SV-kjördæmi. Þeir sem það vilja sendi póst á kjorstjornvgsv@gmail.com.

Lesa meira

 

Forval VG í Reykjavík - 13.2.2009

Kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík auglýsir eftir frambjóðendum í 5 efstu sæti á framboðslistunum tveim í kjördæmunum Reykjavík norður og Reykjavík suður.

Framboðsfrestur rennur út kl. 17:00 þann 19. febrúar 2009. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar í pósthólf 175/121 Reykjavík.

Lesa meira
 
NGLA_logo

Ályktun Vinstri grænna á Norðurlöndum - 11.2.2009

Um helgina var haldinn aðalfundur NGLA sem er samstarfsvettvangur Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum. Ísland hefur farið með forystu í samstarfinu síðasta ár og af því tilefni var fundurinn haldinn í tengslum við tíu ára afmæli Vinstri grænna. Á fundinum var samþykkt sameiginleg yfirlýsing um áherslur flokkanna í efnahagsmálunum. Hún er svohljóðandi:

Lesa meira
 
nei_logo

Viðtal við Steingrím í vefritinu Nei - 11.2.2009

Við bendum á forsíðuviðtal við Steingrím J. Sigfússon í róttæka vefritinu Nei. Í viðtalinu er fjallað um nýfrjálshyggju, ábyrgð hugmyndafræðinnar sem Steingrímur segir mikla, ábyrgð fjölmiðla sem hann segir hafa tekið gagnrýnilaust þátt í gullæðinu auk þess sem farið er vítt og breitt yfir sviðið.

Lesa meira
 

Forval VG í Suðurkjördæmi - 10.2.2009

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Suðurkjördæmi auglýsir hér með eftir fólki sem vill bjóða sig fram í eitt af 5 efstu sætum á lista VG í Suðurkjördæmi í kosningum til Alþingis 25. apríl 2009.

Framboðsfrestur rennur út  kl 17:00 föstudaginn 19. febrúar.

Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til formanns kjörstjórnar Kjartans Ágústssonar, Löngumýri,  Skeiðum,  801 Selfoss eða í tölvupósti langamyri@uppsveitir.is og taka fram eftir hvaða sæti eða sætum þeir sækjast.

Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðendum skulu einnig gera það skriflega til formanns kjörstjórnar fyrir 16. febrúar.  Kjörstjórn mun þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á.

Allir þeir sem hafa áhuga á því að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuð, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvattir til að gefa kost á sér.

Kosningarétt hafa allir félagsmenn í VG í Suðurkjördæmi miðað við 19. febrúar 2009.

Lesa meira
 

Forval hjá vinstri grænum í Reykjavík - 8.2.2009

Ákveðið hefur verið að efna til forvals í hjá Vinstri grænum í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi alþingiskosningar. Fimm manna kjörstjórn leggur til að forvalið fari fram 6.mars nk. og framboðsfrestur sé til 19. febrúar. Tillaga að þessum dagsetningum verður lögð fyrir félagsfund VGR næstkomandi fimmtudag. Á fundinum verða einnig lagðar fyrir reglur sem kosið verður eftir jafnframt því að velja fulltrúa félagsins á landsfund flokksins sem fram fer 20.-22. mars. Fundurinn verður haldinn á Vesturgötu 7 fimmtudaginn 12. febrúar og hefst hann kl. 20.

Lesa meira
 

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ! - 6.2.2009

 
afmalislogo

Afmælisdagskráin - 5.2.2009

Vinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar tíu ára afmæli sínu um næstu helgi á Grand Hóteli í Reykjavík. Fjöldi félaga og gesta mun fagna þessum tímamótum og frá Norðurlöndum eru væntanlegir formenn systurflokka Vinstri grænna eða fulltrúar þeirra. Á laugardeginum verður haldinn aðalfundur Norðurlandasamstarfs Vinstri grænna flokka (NGLA) en VG hefur farið með formennsku í samstarfinu undanfarið ár.

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

Jón Bjarnason formaður þingflokks Vinstri grænna - 3.2.2009

Á nýloknum fundi þingflokks Vinstri grænna var Jón Bjarnason kjörinn formaður þingflokksins en hann tekur við af Ögmundi Jónassyni. Jón hefur setið á þingi fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð síðan hreyfingin bauð fyrst fram árið 1999. Hann er þingmaður Norðvesturkjördæmis.

Lesa meira
 

Forval í Norðausturkjördæmi - 3.2.2009

Kjörstjórn auglýsir eftir frambjóðendum í átta efstu sæti á framboðslista VG í Norðausturkjördæmi.

Framboðsfrestur rennur út kl. 17:00 þann 16. febrúar 2009. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar í tölvupósti á netfangið brell@simnet.is eða bréfleiðis í pósthólf 195, 602 Akureyri.

Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það einnig skriflega til kjörstjórnar fyrir 9. febrúar og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Lesa meira

 
afmalislogo

Vinstri græn 10 ára! - 2.2.2009

Tíu ár eru brátt liðin síðan við stofnuðum stjórnmálaafl um hugsjónir okkar í anda vinstristefnu, kvenfrelsis, náttúruverndar og sjálfstæðis - því ber að fagna. Við efnum til hátíðar, eigum saman skemmtilega stund í tali og tónum, rifjum upp baráttuna og skipuleggjum framtíðina helgina 6.-7. febrúar 2009 á Grand Hóteli í Reykjavík.

Lesa meira
 
090201 bladamannafundur

Verkefnaskrá ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna - 1.2.2009

Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs verður til við afar erfiðar aðstæður í íslensku samfélagi. Stjórnin er mynduð til að tryggja landinu starfhæfa ríkisstjórn sem hrindi í framkvæmd brýnum og mikilvægum aðgerðum, einkum í þágu heimila og atvinnulífs, til endurreisnar bankakerfisins, á sviði endurbóta í stjórnsýslu og aðgerðum í þágu aukins lýðræðis og opins og heiðarlegs samfélags.

Ríkisstjórnin tekur í arf gríðarlega erfiðleika vegna banka- og kerfishruns, einnig miklar og ört vaxandi erlendar skuldir og ábyrgðir þjóðarbúsins. Stjórnin byggir því á mjög aðhaldssamri og ábyrgri stefnu í efnahags- og ríkisfjármálum en mun jafnframt hafa í heiðri félagsleg gildi, hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, kvenfrelsi, jöfnuð og réttlæti.

Ríkisstjórnarflokkarnir eru sammála um mikilvægi þess að efnt verði til kosninga eins fljótt og aðstæður leyfa svo mynda megi ríkisstjórn á grunni endurnýjaðs umboðs frá þjóðinni að þeim loknum.

 

Framsóknarflokkurinn mun verja stjórnina vantrausti. Einnig hefur verið haft samráð við formann Frjálslynda flokksins í stjórnarmyndunarviðræðunum.

Lesa meira
 
090201 thingflokkur

Vinstri græn taka sæti í ríkisstjórn - 1.2.2009

Tilkynnt var rétt í þessu að Vinstrihreyfingin - grænt framboð tekur í kvöld sæti í ríkisstjórn. Tilvonandi ráðherrar munu fara á fund forseta kl. 17:30 í kvöld og taka þá við embættum. Fjármálaráðherra og sjávarúvegs- og landbúnaðarráðherra verður Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG. Heilbrigðisráðherra verður Ögmundur Jónasson. Menntamálaráðherra verður Katrín Jakobsdóttir. Umhverfisráðherra verður Kolbrún Halldórsdóttir.

Lesa meira
 

Ný ríkisstjórn kynnt í dag - 1.2.2009

Vinstri græn og Samfylking hafa boðað til blaðamannafundar klukkan fjögur í dag í Gyllta sal Hótel Borgar til að kynna nýja ríkisstjórn. Lesa meira
 

Á döfinni - 29.1.2009

Fundi í lýðræðishópnum sem átti að vera í kvöld er frestað fram í næstu viku vegna breyttra aðstæðna. Þau sem vilja koma hugmyndum á framfæri og spinna áfram þær umræður sem hafa verið í hópnum hingað er bent á að hafa samband við Héðinn Björnsson; hedinn.bjornssonj@isor.is, sem heldur utan um starf hópsins.

Í kvöld verða Ungliðar með fund í Suðurgötunni ásamt borgarfulltrúum VG í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan átta og er yfirskrift hans „Forgangsröðun í borginni“

Í kvöld er einnig haldinn sameiginlegur aðalfundur í Ölfusi og Hveragerði í Kiwanishúsinu í Þorlákshöfn kl. 19:00. Opinn stjórnmálafundur hefst strax á eftir kl. 20:00. Frummælendur eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ásgeir Ingvi Jónsson fyrrum bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Ölfusi og Daníel Haukur Arnarsson formaður UVG á Suðurlandi.

Svo eru allir félagar hvattir til að fylgjast vel með næstu daga, muna eftir afmælisfagnaðinum 6. og 7. febrúar, vera tilbúin í landsfund í síðasta lagi í Mars og svo auðvitað KOSNINGAR!

Lesa meira
 
090124 stofnfundur í kaupmannahöfn

Vinstri græn í Köben - 28.1.2009

Stofnfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Kaupmannahöfn og Suður – Svíþjóð var haldinn í Jónshúsi laugardaginn 24. janúar 2009. Á fundinum voru samþykkt lög fyrir félagið og þrír félagar kosnir í stjórn, þau Gunnar Örn Heimisson, Dagur Snær Sævarsson og Svala Heiðberg. Drífa Snædal framkvæmdastýra Vinstri grænna stýrði fundinum en Kolbrún Halldórsdóttir þingkona fór yfir stöðu mála og ýtti úr vör líflegum umræðum á fundinum. Félagið er það fyrsta innan flokksins sem stofnað er utan landssteinanna.

Lesa meira
 

Stjórnmálaráðstefna Vg í Suðurkjördæmi - 28.1.2009

Vinstri græn á Suðurlandi boða til stjórnmálaráðstefnu næstkomandi laugardag í kjölfar aðalfundar kjördæmisráðsins. Ráðstefnan sem er öllum opin er haldin á Hótel Selfossi milli klukkan 13 og 16 undir yfirskriftinni Nú sækjum við fram - það er ekkert annað í boði!

Dagskráin er svohljóðandi:

Lesa meira
 

Ályktun flokksráðsins - 27.1.2009

Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er nýlokið. Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktun einróma:

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn í Reykjavík 27. janúar 2009 lýsir yfir stuðningi við þátttöku þingflokksins í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræðum og vonar að þær verði leiddar til lykta með farsælum hætti.

Lesa meira
 
090127 flokksradsfundur

Húsfyllir á flokksráðsfundi - 27.1.2009

Nú stendur yfir flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs þar sem vel á annað hundrað félaga eru mættir. Í upphafi fundar gerði Steingrímur J. Sigfússon grein fyrir stöðunni í samningaviðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar með Samfylkingunni og með stuðningi Framsóknar. Þegar hann lauk máli sínu var mikið klappað og hafa umræðurnar í kjölfarið verið jákvæðar. Félagar hafa hvatt forystuna, brýnt og lagt fram hugmyndir í púkkið. Ekki er ljóst hvenær fundi lýkur.                

Lesa meira
 

Flokksráðsfundur á Grand Hóteli kl. 20:30 í kvöld - 27.1.2009

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn klukkan 20.30 í kvöld, þriðjudaginn 27. janúar. Fundurinn verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík.

Efni fundarins er umfjöllun um stöðu mála og framtíðarhorfur í landstjórninni, sbr. lög Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs þar sem kveðið er á um samráð þingflokks og flokksráðs komi til stjórnarmyndunar með þátttöku flokksins.

Lesa meira
 

Yfirlýsing frá þingflokki Vinstri grænna vegna ummæla Björns Bjarnasonar - 25.1.2009

Vegna órökstuddra ásakana af hálfu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra í garð einstakra þingmanna VG vill þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs koma eftirfarandi á framfæri: Þingflokkur Vinstri grænna fordæmir harðlega hvers kyns ofbeldi, sama hver í hlut á. Ofbeldi í garð lögreglunnar er aldrei og undir engum kringumstæðum réttlætanlegt. Lesa meira
 

Landsfundur 20.-22. mars - 25.1.2009

Á stjórnarfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs síðdegis var ákveðið að stefna að því að halda landsfund flokksins helgina 20.-22. mars. Dagsetning fundarins tekur mið af vilja Vinstri grænna til að gengið verði til kosninga laugardaginn 4. apríl, þ.e.a.s. helgina fyrir páska. Á undan kæmi stutt og snörp kosningabarátta en um það bil tveggja mánaða tímabil fram að henni ætti að tryggja framboðum nægan undirbúningstíma. Miðlæg kosningastjórn VG er þegar tekin til starfa og unnið er að því að koma upp staðbundnum kosningastjórnum í öllum kjördæmum. Opnir málefnahópar hafa verið að störfum og mun flokkurinn beita sér fyrir því að nýir og verðandi félagar taki virkan þátt í því starfi fyrir kosningar. Lesa meira
 

Vöfflukaffi kl. 3 á laugardag - 23.1.2009

Eins og undanfarna laugardaga verður vöfflukaffið á sínum stað í Suðurgötu 3 á morgun, laugardag, eftir kl. 15.00. Lesa meira
 

Kæri félagi - 22.1.2009

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna tók til máls á þingi í dag og hvatti fólk til að halda stillingu sinni. Vinstri græn hvetja til yfirvegaðra og friðsamra mótmæla og harma það að söguleg mótmæli Íslendinga, þar sem tugþúsundir nýta rétt sinn til að koma á framfæri óánægju sinni, hafi endað eins og raun bar vitni í nótt. Steingrímur tók skýrt fram að ríkisstjórnin hefði brugðist, hún hefði ekki mætt óskum samfélagsins um upplýsingar, gagnsæi og heiðarleg vinnubrögð og hafnað kröfum um að fólk sætti ábyrgð.

Við vitum að næstu daga getur dregið til tíðinda og Vinstri græn þurfa að vera viðbúin. Undanfarna mánuði hafa verið haldnir fundir í nafni Vinstri grænna vítt og breitt um landið og því verður fram haldið. Við hvetjum til áframhaldandi góðrar mætingar, hittumst, spjöllum saman, látum í okkur heyra og skipuleggjum endurmótun samfélagsins.

Á döfinni er: Lesa meira

 

Reykjavík: Ályktun um heilbrigðismál - 19.1.2009

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík mótmælir harðlega framkomnum tillögum ríkisstjórnarinnar um breytingar á skipan heilbrigðismála.

Lokun St. Jósepsspítala er stórt spor í átt til einkavæðingar í heilbrigðsþjónustu þegar fyrirhugað er að leggja farsæla starfsemi þar niður og færa starfsfólkið til einkarekinna skurðstofa í Keflavík í eigu „athafnamanns.” Jafnframt er gengið fram hjá áratuga langri faglegri vinnu starfsfólks spítalans sem hefur byggt upp heillavænlegt starf fyrir heilbrigðisþjónustuna.

Með því að sameina heilbrigðisstofnanir úti á landi er verið að skerða mjög þjónustu við fólk í dreifbýli, lokun stofnana eða niðurskurður á þjónustu dregur mjög úr öryggi fólks og stóreykur kostnað þeirra sem á heilbrigðisþjónstu þurfa að halda. Nú þarf fólk víða að sækja eftir þjónustu langa leið sem áður var veitt í heimabyggð. Afleiðing breytinganna er að velta bæði sjúkrakostnaði og ferðakostnaði yfir á sjúklinga. Ef af þessum breytingum verður þurfa sængurkonur úti á landi að sækja í eftirlit og til fæðinga í Reykjavík og eru þannig hraktar úr faðmi fjölskyldu sinnar á viðkvæmum augnablikum.

Jafnframt fordæmir stjórn Vinstri grænna í Reykjavík það pukur og leynimakk sem hefur einkennt alla vinnu við undirbúning þessara tillagna á vegum ríkisstjórnarinnar með Guðlaug Þór heilbrigðisráðherra í fararbroddi.

Lesa meira
 

Árborg: Ályktun vegna fyrirhugðarar þjónustuskerðingar á Heilbrigðisstofnum Suðurlands - 19.1.2009

Svæðisfélag Vg í Árborg mótmælir harðlega þeirri þjónustuskerðingu sem fyrirhuguð er  á Heilbrigðisstofnun Suðurlands samkvæmt tillögum heilbrigðisráðherra. Verði vaktir skurðlæknis, fæðingarlæknis og svæfingarlæknis lagðar af og skurðstofu HSu lokað utan dagvinnutíma og um helgar er verið að færa heilbrigðisþjónustu við Sunnlendinga marga áratugi aftur í tímann.

Með þessari ákvörðun er í raun verið að leggja niður fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem  óhugsandi er að starfrækja fæðingardeild sem ekki er studd af fæðingarlækni á vakt. Fæðingar á HSu voru um 200 árið 2008 auk allrar annarrar þjónustu sem fæðingardeildin veitir.  Það er með öllu óásættanlegt að þessa þjónusta verði færð til Landspítala Háskólasjúkrahúss í Reykjavík með öllu því óhagræði sem því fylgir fyrir notendur þjónustunnar og vandséð að sparnaður nást við slíka ráðstöfun. Lesa meira

 
090118 adalfundur NV

Fjölsóttur fundur kjördæmisráðs NV - 18.1.2009

Aðalfundur kjördæmisráðs Norðvesturkjördæmis var haldinn að Staðarflöt í Hrútafirði 18. janúar. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa voru fjörugar umræður um ástandið og stöðu og ábyrgð Vinstri grænna. Látins félaga Halldórs Brynjúlfssonar var minnst í upphafi fundar. Þórarinn Magnússon á Frostastöðum lét af embætti formanns og í stað hans var kjörinn Lárus Ástmar Hannesson. Með honum í stjórn sitja Hjördís Garðarsdóttir og Stefán Þórarinn Ólafsson. Varastjórn er skipuð í þessari röð: Anna Berg Samúelsdóttir, Jón Jónsson og Úlfar Sveinsson. Skoðunarmenn reikninga eru þau Helena María Jónsdóttir og Ragnar Elbergsson.

Lesa meira
 

Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza - 17.1.2009

Fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök gangast fyrir mótmælafundi í Háskólabíói á sunnudaginn undir kjörorðinu: ÞJÓÐARSAMSTAÐA GEGN FJÖLDMORÐUNUM Á GAZA.

Fundarstjóri er Arnar Jónsson leikari og ræður flytja Guðfríður Lilja Grétarsdóttir stjórnmálafræðingur, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur. Össur Skarphéðinsson, starfandi utanríkisráðherra, ávarpar fundinn. Fjölbreytt tónlistardagskrá verður á fundinum: Trio Nordica, Barnakór Kársnes, Hulda Björg Garðarsdóttir, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Lay Low og fleira.

Eftirtaldir hafa nú þegar staðfest aðild að fundinum:
ASÍ, BSRB, Félagið Ísland-Palestína, Frjálslyndi flokkurinn, KÍ, Landssamband sjálfstæðiskvenna, SFR, Samiðn, Samfylkingin, Starfsgreinasambandið og Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Lesa meira
 

Þingflokkur Vinstri grænna á Akureyri 18.-19. janúar - 16.1.2009

Þingflokkur VG mun funda og sækja heim stofnanir á Akureyri 18.-19. janúar, meðal annars til að kynna sér áhrif fyrirhugaðra breytinga á heilbrigðiskerfinu fyrir heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni. Rétt er í þessu samhengi að benda á ályktun þingflokks sem samþykkt var á þingflokksfundi í gær.

Á sunnudeginum fundar þingflokkurinn sjálfur en á mánudeginum verður m.a. farið í Heilsugæsluna og Fjórðungssjúkrahúsið (FSA). Um kvöldið verða svo opnir fundir með þingmönnum á Grenivík og á Dalvík til að ræða við heimamenn um stöðuna í efnahags- og atvinnumálum.

Lesa meira
 
laknar

Ályktun þingflokks VG vegna breytinga í heilbrigðisþjónustunni - 15.1.2009

Þingflokkur Vinstri grænna mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum í heilbrigðisþjónustunni. Það er mat þingflokksins að breytingarnar séu hvorki til þess fallnar að styrkja þjónustuna né auka öryggi hennar og að þær stefni í voða nærþjónustu í heimabyggð. Engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna að til lengri tíma litið leiði breytingarnar til þjóðhagslegs sparnaðar. Með breytingunum eru sveitarfélögin þvinguð til að taka yfir nærþjónustuna ellegar verði úr henni dregið. Skipulagsbreytingarnar virðast hafa verið undirbúnar löngu áður en yfirstandandi efnahagskreppa skall á þótt þær séu nú kynntar undir því yfirskini að þær séu óhjákvæmilegar.

Lesa meira
 

Vinstri græn á ferð og flugi - 15.1.2009

Sjaldan hefur flokksstarf Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs verið eins líflegt og nú og má finna fjölda funda og viðburða um allt land undir merkjum flokksins.

Í kvöld er opinn fundur á Hótel Stykkishólmi með Jóni Bjarnasyni og Steingrími J. Sigfússyni. Þá verða landbúnaðar- og evrópumál rædd á Egilsstöðum á laugardaginn auk þess sem Reykjavíkurfélagið ræðir heilbrigðismál sama dag.

Á sunnudaginn er aðalfundur kjördæmisráðs Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi og þá um helgin leggur þingflokkurinn upp í ferð um Norðurland með viðkomu í fyrirtækjum, stofnunum og hjá félagasamtökum. Ferðinni lýkur með fundum á Dalvík og Grenivík mánudaginn 19. janúar.

Lesa meira
 
090110 island og evropa

Ísland og Evrópa - 12.1.2009

Vinstri græn héldu málþing síðastiliðinn laugardag undir yfirskriftinni Ísland og Evrópa. Fjölmennt var á þinginu, eða tæplega 100 manns. Því miður varð að bregða út af auglýstri dagskrá þar sem Ågot Valle, þingkona og fyrrum varaformaður Nei til EU – hreyfingarinnar í Noregi forfallaðist á síðustu stundu, en í hennar stað hélt Dag Seierstad erindi. Aðrir fyrirlesarar voru Stefán Már Stefánsson, prófessor, Þórólfur Matthíasson, prófessor og Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar flytja erindi. Rástefnunni stýrði Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna.

Mikill áhugi var á að nálgast erindi fyrirlesaranna og má nálgast glærur við erindi Stefáns hér: Stjórnarskrá og Evrópusambandið og glærur við erindi Þórólfs Matthíassonar hér: Gjaldmiðillinn, fjármálastarfsemin og lífskjörin. Auk þess dreifði Dag Seierstad nokkrum punktum um af hverju hann teldi ekki þjóna hagsmunum Noregs að ganga inn í Evrópusambandið og má finna þá hér: Fjorten grunner til å si nei.

Lesa meira
 

Vinstri græn á Ströndum stofnað - 12.1.2009

Stofnfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Ströndum var haldinn sunnudaginn 11. janúar 2009 að Sævangi. Fjölmennt var á fundinum og gengu margir nýjir félagar til liðs við hreyfinguna. Eftir að félagið hafði verið formlega stofnað tóku margir til máls og brann helst á félögum samgöngumálin og fjarskipti við Strandir, enda er slíkt forsenda fyrir sjálfbærni samfélagsins og atvinnuuppbyggingu. Formaður var kjörinn Jón Jónsson, aðrir í stjórn eru Arnar Jónsson, Katla Kjartansdóttir, Kristinn Schram og Rósmundur Númason. Þau Viðar Guðmundsson og Viktoría Rán Ólafsdóttir voru kjörin varamenn. Skoðunarmenn reikninga eru Þórður Halldórsson og Eva Sigurbjörnsdóttir.

Lesa meira
 

Samstaða með St. Jósefsspítala - 10.1.2009

Stjórn Vinstri grænna í Hafnarfirði lýsir yfir samstöðu með St. Jósefsspítala og lýsir yfir furðu sinni á því hvernig ríkisstjórnin, með heilbrigðisráðherra í fararbroddi hyggst þvínga starfsfólk til þátttöku einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu. Það er ömurlegt að sjá að þetta sé afurð núverandi ríkisstjórnarsamstarfs. Það sést greinilega hvernig stjórnarsáttmáli núverandi ríkisstjórnar nær hér enn einu marmiði sínu sem snýst um frekari einkavæðingu, en í stjórnarsáttmála segir einmitt að hvetja eigi til fjölbreyttari rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu.

Samtímis lýsir stjórn Vinstri grænna í Hafnarfirði yfir stuðningi við megininntak stjórnar Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði, en ólíkt félögum sínum í ríkisstjórn, er andstaða við einkavæðingu heilbrigðiskerfisins ríkari í Hafnarfirði en á stjórnarheilmilinu. Vinstri græn munu í engu láta sitt eftir liggja að styðja við spítalann, sem hefur verið hluti af farsælu Hafnfirsku samfélagi. Fyrirætlanir ráðherra eru í hróplegri andstöðu við það nýja Ísland sem eðlilegt er að stefna að í kjölfar hruns einkavæðingar og frjálshyggju.

Lesa meira
 

Ályktun vegan Gaza - 9.1.2009

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík fordæmir grimmilegar og gengdarlausar árásir Ísraelshers á íbúa herteknu svæðanna á Gaza. Dag og nótt ausa orustuflugvélar sprengjum sínum yfir svæðið og myrða börn og aðra saklausa, varnarlausa íbúa sem eiga sér engrar undankomu auðið. Nýlegar fréttir af  ógnarverkum Ísraela lýsa þvílíkri grimmd að öllum hlýtur að ofbjóða.  Þessum voðaverkum verður að linna.  

Stjórn VGR hvetur  almenning til að sniðganga Ísraelskar vörur í verslunum og  skorar á ríkisstjórn Íslands að slíta nú þegar stjórnmálasamstarfi við Ísraelsstjórn þar til hún lætur af hinu hryllilega framferði sínu gagnvart íbúum Gaza. Lesa meira

 

Stjórnarflokkarnir bera báðir ábyrgð á að Íslendingar eigi kost á góðri heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag! - 8.1.2009

Félagsfundur Vinstri grænna í Borgarbyggð, haldinn 7. janúar 2009, lýsir yfir áhyggjum vegna órökstuddra skipulagsbreytinga í heilbrigðisgeiranum. Fundurinn telur vafasamt að nokkurs staðar fáist umtalsverð hagræðing af breytingunum, en víða verði hún til óhagræðis. Það hefur lengi verið ljóst að flokkur heilbrigðisráðherra vill rústa núverandi kerfi heilbrigðisþjónustu fyrir alla, en hinn stjórnarflokkurinn hefur í orði kveðnu verið annarrar skoðunar. Báðir stjórnarflokkarnir hljóta þó að teljast jafn ábyrgir fyrir afleiðingum þessara breytinga.

Vinstri græn í Borgarbyggð mótmæla sérstaklega nýrri og aukinni skattlagningu á sjúklinga í stað þess að sækja fé með hærri sköttum á hátekjufólk.

Lesa meira
 
icesave

Yfirlýsing frá þingflokki VG - vegna mistaka ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Icesave-málinu og þeirrar ákvörðunar hennar að höfða ekki mál gegn Bretum - 7.1.2009

Þingflokkur Vinstri grænna lýsir fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni vegna alvarlegra og dýrkeyptra mistaka við meðferð Icesave-deilunnar, bæði í aðdraganda og síðar úrvinnslu málsins. Kaflaskil eru í málinu kl. 16 í dag, þegar frestur rennur út til að kæra þá ákvörðun breska fjármálaráðuneytisins að beita hryðjuverkalögum til að frysta íslenskar eignir í Bretlandi. Enn og aftur bregst ríkisstjórnin þeirri skyldu sinni að gæta þjóðarhagsmuna á fullnægjandi hátt með því að nýta ekki möguleika til málshöfðunar fyrir breskum dómstólum til að rétta hlut Íslendinga.

Lesa meira
 
saudarkrokur

Vinstri græn í Skagafirði mótmæla harðlega skipulagsbreytingum og niðurskurði í heilbrigðisþjónustu - 7.1.2009

Vinstri græn í Skagafirði lýsa miklum vonbrigðum með þær einhliða skipulagsbreytingar sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag. Samráð við sveitarfélög, starfsfólk og íbúa er ekkert og vinnubrögðin við skipulagsbreytingarnar forkastanlegar. Ekkert liggur fyrir um að hagræðing náist með því að sameina stjórnun heilbrigðismála Norðurlands undir  Sjúkrahúsið á Akureyri sem  nú þegar verður að bera út fólk vegna fjársveltis. Sameining sem þessi  setur þjónustustig heilbrigðismála í Skagafirði í algert uppnám og sérfræðiþekking í héraði er gerð að engu. Minna má á að Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki , sem nú á að svifta sjálfstæði sínu ,hefur fengið sérstaka viðurkenningu fyrir góðan rekstur og þjónustu.

Með yfirlýsingum heilbrigðisráðherra í dag gerir hann lítið úr starfsfólki, sérfræðingum og íbúum þeirra svæða sem nú missa sjálfræðið yfir staðbundinni heilbrigðisþjónustu. Vandséð er að skipulagsbreytingarnar skili hagræðingu og hætta er á að fjármagn og sérfræðiþekking færist úr héraði og kippi þar með grundvelli undan heilbrigðisþjónustu við íbúa heilla héraða.

Lesa meira
 

Vinstri græn: Ísland og Evrópa - 6.1.2009

Vinstri græn boða til málþings næstkomandi laugardag undir heitinu Ísland og Evrópa á Háskólatorgi, HT 103, kl. 13 til 16. Sérstakur gestur málþingsins er Ågot Valle, þingmaður SV í Noregi og fyrrverandi varaformaður Nei til EU og mun í erindinu svara spurningunni Af hverju sögðu Norðmenn nei? Aðrir fyrirlesarar verða Stefán Már Stefánsson, prófessor með erindið Stjórnarskrá og Evrópusambandið, Þórólfur Matthíasson, prófessor flytur erindið Gjaldmiðillinn, fjármálastarfsemin og lífskjörin og Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar fjallar um Hvað skiptir mestu máli fyrir Íslendinga?

Málþinginu stýrir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna en á eftir hverju erindi verður gefinn kostur á spurningum auk þess sem pallborðsumræðu verð í lok fundar.

Málþingið er opið öllu áhugafólki um Evrópumál.

Lesa meira
 
hafmeyjan

Vinstri græn í útrás - 5.1.2009

Vinstrihreyfingin – grænt framboð boðar til stofnfundar svæðisfélags VG í Kaupmannahöfn og Suður Svíþjóð laugardaginn 24. janúar 2009 klukkan fjögur í Jónshúsi, Øster Voldgade 12 í Kaupmannahöfn. Á fundinum verður félagið formlega stofnað, kosið verður í stjórn auk þess sem Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og Drífa Snædal framkvæmdastýra flokksins ávarpa fundinn.

Nýjir félagar, gamlir félagar og tilvonandi félagar eru hjartanlega velkomnir.

Lesa meira
 

GLEÐILEGT ÁR! - 2.1.2009

Vinstrihreyfingin - grænt framboð óskar öllum landsmönnum gleðilegs ár og þakkar samstarf og stuðning á nýliðnu ári. Nýtt ár ber í skauti sér mörg verkefni sem hreyfingin mun ekki skorast undan að takast á við með kvenfrelsi, félagshyggju, umhverfisvernd og friðarstefnu að leiðarljósi. Við hlökkum til gróskumikils starfs og frjórra lausna á nýju ári.

Lesa meira
 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica