Beint í leiðarkerfi vefsins.
Steingrímur J. Sigfússon hefur óskað eftir fundi í Utanríkismálanefnd svo fljótt sem því verður við komið vegna ástandsins á Gasa og til að fara yfir stöðu mála í deilunni vegna Icesave-reikninganna og hvar málarekstur gegn Bretum er á vegi staddur.
Hvað varðar fjöldamorðin á Gasa leggur Steingrímur til að svohljóðandi ályktun verði samþykkt í utanríkismálanefnd:
„Utanríkismálnefnd Alþingis samþykkir að beina þeim eindregnu tilmælum til ríkisstjórnarinnar að hún fordæmi skilyrðislaust ólögmætar hernaðaraðgerðir og fjöldamorð Ísraelstjórnar á hinu hertekna Gasasvæði. Nefndin leggur til að ríkisstjórnin tilkynni ísraelskum stjórnvöldum að láti þau ekki tafarlaust af aðgerðum sínum og komi á vopnahléi verði stjórnmálasambandi við Ísraelsríki slitið.“
Lesa meiraFjárlagafrumvarpið sem nú er til umfjöllunar á Alþingi, frumvarp ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, mun hafa í för með sér gríðarlega erfiðleika í rekstri hins opinbera, ekki síst í velferðarþjónustunni. Frumvarpið byggir í allt of miklum mæli á flötum niðurskurði sem kemur verst við þá sem síst skyldi í samfélaginu. Vinna við fjárlagagerðina er fjarri því að uppfylla kröfur vandaðra og þingræðislegra vinnubragða og enn er óupplýst um mikilvægar grunnforsendur frumvarpsins.
Við slíkar aðstæður og þegar undirstöðugögn vantar er erfitt að fjalla um málið, en megináherslur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs eru skýrar: Við krefjumst heildstæðrar og vandaðrar áætlunar um ríkisbúskapinn, sanngjarnrar tekjuöflunar, sparnaðar þar sem við verður komið, að almannatryggingakerfið sé varið fyrir niðurskurði og dregið úr honum eins og kostur er í heilbrigðis- og menntamálum. Tillögur VG í þessa veru eru meðal annars: Lesa meira
Vinstrihreyfingin – grænt framboð óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum samstarfið á árinu sem senn líður og hlökkum til framhaldsins. Það er mikil barátta framundan sem krefst krafta allra þeirra sem vilja jöfnuð, umhverfisvernd, kvenfrelsi og frið. Þeirri baráttu höldum við áfram á nýju ári og óskum okkur góðs lýðræðislegs árangurs.
Skrifstofa Vinstri grænna verður lokuð fram yfir áramót en hægt er að hafa samband á netfangi vg@vg.is. Lesa meira
Á fundi íþrótta- og tómstundaráðs var samþykkt tillaga fulltrúa Vinstri grænna um að breyta reglum um frístundakortið í þá veru að foreldrar gætu nýtt það til að greiða fyrir frístundaheimili ef þau svo kjósa.
Í frístundaheimilum ÍTR eru börn á aldrinum 6-9 ára kynnt fyrir fjölbreyttu og uppbyggjandi frístundastarfi, auk þess sem þar er markvisst unnið að því að þroska félags- og samskiptafærni barna. Starfið er faglegt og metnaðarfull og uppfyllir öll þau skilyrði sem sett hafa verið fyrir notkun kortsins frá upphafi. Á fyrstu árum í grunnskóla taka börn út mikinn þroska, sem m.a. felst í að þróa með sér áhugamál til framtíðar og skipta frístundaheimilin þá sköpum.
Megintilgangur frístundakortanna er að auðvelda börnum og unglingum í Reykjavík að sinna uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag foreldra. Vinstri græn hafa alla tíð lagt áherslu á að til að frístundakortin virki sem raunverulegt jöfnunartæki, verði frístundaheimilin að vera þar valkostur. Nú, þegar efnahagsástandið krefst endurskoðunar á útgjöldum margra fjölskyldna, er brýnna en nokkru sinni að foreldrar hafi fullt frelsi til að ráðstafa frístundakortinu í þær tómstundir sem þeir telja að nýtist börnum sínum best.
Það er því fagnaðarefni að tillagan hafi loksins verið samþykkt.
Kæri félagi. Nú ætlum við í jólafrí og því verður ekki „opið hús“ í Suðurgötunni fyrr en eftir áramót.
Við sendum þér og fjölskyldu þinni innilegar óskir um gleðilega jólahátíð, þökkum þér samstarfið og vonumst til að sjá þig á nýju ári.
fyrir hönd stjórnar VGR,
Sjöfn Ingólfsdóttir formaður
Lesa meiraInnan VG eru nú starfandi hópar um landbúnaðarmál undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur og Jóns Bjarnasonar, velferðarhópur undir stjórn Katrínar, sjávarútvegshópur undir stjórn Atla Gíslasonar og hópur um aðgerðaráætlun til vors undir stjórn Héðins Björnssonar auk þess sem kvenfrelsishópur sem Sóley Tómasdóttir stýrir er að fara af stað og menntamálahópur undir stjórn Auðar Lilju Erlingsdóttur.
Á stjórnarfundi á föstudag var auk þess ákveðið að koma af stað hópum um atvinnumál, nýsköpunarmál, húsnæðismál og umhverfismál en meginviðfangsefni hópanna verður eðlilega að skoða málaflokkinn út frá efnahagsástandinu og þeim áherslum sem nú er rætt um í stjórnmálum. Nú er auglýst eftir hópstjórum og áhugasömu fólki til að taka þátt í þessu hópastarfi. Skrifstofan mun halda utan um skráningar í hópana og netfangalista þeim tengdum og má skrá sig á veffanginu vg@vg.is og í síma 552 8872. Allir ættu að geta tekið þátt hvar á landinu sem er með aðstoð tækninnar. Lesa meira
Á flokksráðsfundi Vinstri grænna þarsíðustu helgi kom fram mikill áhugi á að ræða næstu skref baráttunnar og búa til aðgerðaráætlun til vorsins með það að leiðarljósi að til kosninga komi í vor. Héðinn Björnsson reið á vaðið og boðar til fundar um þetta efni í dag, þriðjudaginn 16. desember frá kl. 16-18 á Suðurgötu 3. Allir félagar eru velkomnir, nokkrir hafa skráð sig á póstlista af þessu tilefni og fá sendar upplýsingar um framvindu mála eftir fundinn.
Lesa meira
Annað kvöld, þriðjudag klukkan átta boða Vinstri grænar konur til kvennakvölds í Suðurgötu 3 í Reykjavík. Allar konur, háar sem lágar eru hjartanlega velkomnar til að eiga góða stund með tónlist og upplestri, kakó og piparkökum. Guðrún Eva Mínervudóttir og Halla Gunnarsdóttir koma og lesa upp úr nýútgefnum bókum sínum og taka þátt í umræðum um efni bókanna. Þær sem hafa mætt á kvennasmiðjur undanfarinna ára vita að kvennakraftur Vinstri grænna er einstakur, skemmtilegur og ómissandi í baráttunni.
Fjölkvennum!
Lesa meira
Landbúnaðarhópur Vg hélt fyrsta fund sinn í Búðardal í síðustu viku. Þeir sem er áhugasamir um að skrá sig í hópinn og taka þátt í málefnastarfi eru beðnir um að skrá sig í hópinn hjá Huginn Frey Þorsteinssyni (huginn@hi.is) eða Katrínu Jakobsdóttur (katrinja@althingi.is).
Lesa meira
Í lok nóvember flutti Steingrímur J. Sigfússon ræðu fyrir stjórnarnefnd Evrópuráðsþingsins en í henna sitja landsdeildir, formenn flokkahópa og formenn málefnanefnda þingsins. Tilefni ræðunnar var aðgerðir breta gegn Íslendingum í Icesave-deilunni og skýrði Steingrímur málstað Íslands. Ræðan er svohljóðandi:
Lesa meiraEVG: Þriðji fundur vetrarins verður miðvikudaginn 10. desember nk. kl. 20:00 í Stangarhyl 4, húsi eldri borgara í Reykjavík.
Kaffihlé og kleinur um 9-leytið. – Það er tilvalið að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir. – Fyrsti fundur á nýju ári verður miðvikudagskvöldið 4. febrúar 2009.
Lesa meiraFundi flokksráðs Vinstri grænna er nýlokið og sóttu hann yfir 120 félagar. Mikil stemmning var á fundinum, tekist var á um áherslur en skjal stjórnar VG um endurmótun samfélagsins var samþykkt efnislega einróma og vísað til áframhaldandi úrvinnslu í grasrót flokksins - sjá hér
Ályktun um sveitastjórnarmál var samþykkt samhljóða en hún er svo:
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs haldinn 7. desember 2008 á Grand hótel telur það vera sameiginlegt verkefni hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, að standa vörð um hag almennings. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki í endurmótun samfélagsins og mikilvægi þeirra við uppbyggingu og endurmat er ótvírætt í samstarfi við íbúa, félagasamtök og hagsmunaaðila. Þau standa íbúunum næst og sinna verkefnum á sviði velferðar og menntunar. Sérstaklega þarf að styrkja og efla sveitarfélögin við þau skilyrði sem nú eru uppi.
Mikilvægt er að löggjafinn tryggi Lánasjóði sveitarfélaga og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga fé til að lána sveitarfélögum til rekstrar við þær sérstöku aðstæður sem nú ríkja. Þó verði jafnframt tryggt að rekstur sveitarfélaga verði lagaður að þeim aðstæðum sem skapast hafa þannig að Lánasjóðurinn komist ekki í þrot.
Það er skýlaus krafa sveitarstjórnarráðs Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að við mótun efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar verði hagsmunir sveitarfélaganna hafðir í forgangi.
Lesa meiraKatrín Jakobsdóttir, formaður flokksráðs Vinstri grænna setti auka flokksráðsfund nú fyrir stundu. Fyrir fundinum liggja tillögur stjórnar Vinstri grænna um endurreisn í íslenskum þjóðarbúskap og framþróun samfélagsins. Hér má sjá útdrátt úr þeim tillögum sem er til umfjöllunnar hjá Vinstri grænum í dag
Lesa meiraVinstri græn boða til auka flokksráðsfundar á sunnudaginn kemur á Grand hóteli í Reykjavík klukkan 14. Að vanda er fundurinn opinn öllum, félagar eru þó beðnir að láta skrifstofu vita af mætingu í síma 552 8872. Dagksrá fundarins er svo:
14.00 - Katrín Jakobsdóttir formaður flokksráðs setur fundinn og kynnir það efni sem fyrir liggur
14.15 - Steingrímur J. Sigfússon fer yfir aðgerðaáætlun VG um efnahagsmál
14.45 - Almennar umræður
16.00 - Kaffihlé
16.15 - Almennar umræður halda áfram
18.00 - Afgreiðsla mála
Lesa meiraÞorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi segir það vel koma til greina að Félagsbústaðir kaupi íbúðir og leigja þær svo áfram til að leggja sitt af mörkum í því ástandi sem fasteignamarkaðurinn er núna. Þessi lausn er mun betri til langs tíma fyrir alla, leigjendur, íbúðaeigendur sem vilja losna við húsnæði og ekki síst skattgreiðendur. Þetta er mun ódýrari lausn fyrir borgina heldur en að leigja íbúðir og framleigja þær svo aftur innan félagslega kerfisins.
Lesa meira
Aðalfundur var haldinn í svæðisfélagi Vinstri grænna í Mosfellsbæ 29. nóvember síðastliðinn. Ögmundur Jónasson, og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir voru sérstakir gestir og hédu bæði skemmtilega tölu á fundinum. Stjórnin var endurkjörin en í henni sitja Ólafur Gunnarsson, formaður, Einar Hólm Ólafsson, gjaldkeri, Jóhanna B. Magnúsdóttir, ritari, Högni Snær Hauksson og Bryndís Brynjarsdóttir. Varamenn voru kjörnir þau Gísli Ársæll Snorrason og Alma Lísa Jóhannsdóttir.
Lesa meiraSvohljóðandi bréf var sent á föstudaginn síðasta til forsætisráðherra, utanríkisráðherra, viðskiptaráðherra, formanns og nefndarmanna í allsherjarnefnd, efnahags- og skattanefnd, félags- og tryggingamálanefnd, utanríkismálanefnd og viðskiptanefnd Alþingis. Bréfið undirrita fyrir hönd þingflokks VG, Ögmundur, Atli og Jón.
"Fram hefur komið í fréttum að Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra hafi á fundi með fjármálaráðherrum í Evrópu hinn 4. nóvember 2008 fengið afar kaldar móttökur vegna afstöðu ríkisstjórnarinnar til svonefndra Icesave-reikninga í Bretlandi og Hollandi. Þar mun jafnframt hafa verið ákveðið að skipa fimm manna nefnd sem miðlaði málum í deilunni sem hafi svo boðað fund til að birta niðurstöðu sína 7. nóvember 2008. Af því hafi þó ekki orðið þar sem niðurstöðurnar voru taldar með öllu óaðgengilegar fyrir Ísland. Þann 13. nóvember 2008 lýsti Árni M. Mathiesen því yfir að skilyrði Evrópuríkja (þar sem fulltrúar Breta, Þjóðverja, Hollendinga, Frakka og Austurríkismanna hafi farið fremstir í flokki, dyggilega studdir af Evrópusambandinu í heild sinni) væru með öllu óaðgengileg. Undir það tók forsætisráðherra. Fyrir liggur að afgreiðsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á lánafyrirgreiðslu til Íslands tafðist vegna þessarar deilu. Ríkisstjórnin gekk um síðir að kröfum um að ábyrgjast innistæður Icesave-reikninganna og þá fyrst gaf Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn grænt ljós á fyrirgreiðslu."
Lesa meira
Samkvæmt könnun sem vefritið Smugan lét gera horfa kjósendur mjög á vinstristjórn. Fleiri nefna bæði Samfylkinguna og Vinstrihreyfinguna - grænt framboð heldur en Sjálfstæðisflokk þegar spurt er hvaða flokka vilt þú sjá í næstu ríkisstjórn. Könnunina má nálgast hér.
Lesa meiraKæri félagi,
Hér með er boðað til auka flokksráðsfundar 7. desember næstkomandi að Grand hóteli í Reykjavík. Hefst fundurinn klukkan 14 og er áætlað að honum ljúki um sjöleytið.
Ástæða fundarins er að sjálfsögðu sú staða sem upp er komin í þjóðarbúskapnum og viðbrögð Vinstri grænna við henni. Dagskráin er einföld; lögð verður fram áætlun VG um endurreisn þjóðarbúsins til kynningar, umræðu og afgreiðslu.
Þá þarf hreyfingin að vera undir allt búin næstu mánuði og því er nauðsynlegt að stilla saman strengi. Fundurinn er að vanda opinn öllum félögum en nauðsynlegt er að láta vita af mætingu á netfangi vg@vg.is eða í síma 552 8872.
Atkvæðisrétt á flokksráðsfundum eiga 30 landsfundakjörnir fulltrúar í flokksráði, allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaþingmenn, formaður Ungra Vinstri Grænna, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmisráða.
Vinstri græn í Árborg héldu aðalfund sinn í gærkveldi, 26. nóvember. Sædís Ósk var endurkjörin formaður félagsins en auk hennar sitja í stjórn Margrét Magnúsdóttir, Valgeir Bjarnason, Jón Hjartarson og Sigurður Ingi Andrésson. Á fundinum voru samþykktar þrjár álytkanir; um kosningar, um myntbandalag Evrópu og um atvinnumál. Ályktanirnar eru svohljóðandi:
Lesa meira
Ögmundur mætir í kvöld Guðlaugi Þór heilbrigðisráðherra í kappræðum. Það má reikna með fjörugum fundi og smölun á báða bóga. Fundurinn er á vegum Varðar, fulltrúafélags sjálfstæðismanna í Reykjavík og er haldinn í Öskju, húsnæði náttúrufræðideildar Háskóla Íslands klukkan 20.
Það má reikna með að efnahagsástandið, IMF og Evrópusambandið beri á góma en einnig einkavæðing heilbrigðiskerfisins og velferðarmálin almennt – því eins og Sjálfstæðisflokkurinn sagði fyrir síðustu kosningar: „Þegar öllu er á botninn hvolft er traust efnahagsstjórn stærsta velferðarmálið“
Lesa meiraÁ þriðjudagskvöld var haldinn fjölmennur fundur á vegum VGR en frummælendur voru Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir. Eins og vænta mátti voru efnahagsmálin ofarlega á baugi og staða atvinnuveganna, alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og stjórnmálaumræða síðustu daga og vikna. Nítján kröftugar ræður voru fluttar eftir mál frummælenda og kom fram gríðarlegur stuðningur við stjórn og kjörna fulltrúa Vinstri grænna.
Lesa meiraKappræður verða milli stjórnmálamannanna Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra og Ögmundar Jónassonar, þingflokksformanns VG, næstkomandi fimmtudagskvöld í Öskju, húsnæði náttúrufræðideildar Háskóla Íslands og hefst fundurinn kl.20
Þau mál verða tekin fyrir sem mest eru í umræðunni um þessar mundir. Til að mynda Evrópusambandið, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Icesave.
Fundurinn er haldinn á vegum Varðar, fulltrúafélags sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Lesa meiraÁ laugardaginn stóð Vg í Árborg fyrir morgunverðarfundi. Fundurinn var vel sóttur og stóð í rúma tvo klukkutíma. Sérstakur gestur fundarins var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir en hún flutti gott ávarp þar sem hún ræddi m.a. um lýðræðið og þann lýðræðishalla sem einkenndi nútímann með velþóknun ríkjandi stjórnvalda. Hún ræddi um niðurlægingu Alþings, þessu aldagamla flaggskipi lýðræðis og löggjafar í veröldinni, þegar það lét yfirgang framkvæmdavaldsins neyða sig til þess að samþykkja lög í andstöðu við stjórnarskrána. Í máli sínu lagði hún áherslu á að það væri ekki einasta efnahagskreppan sem þyrfti að glíma við heldur samtímis að takast á við endurreisn lýðræðisins. Í raun stjórnar framkvæmdavaldið í dag með tilskipunum og notar Alþingi Íslendinga til að afgreiða tilskipanirnar til að reyna að blekkja framgangsmátann. Guðfríður Lilja kom víðar við og var gerður mjög góður rómur að máli hennar.
Lesa meira
Mánudaginn 24. nóvember fer fram umræða um tillögu um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar að frumkvæði Vinstri grænna. Umræðan hefst klukkan hálf tvö og lýkur um hálf sjö með atkvæðagreiðslu. Félagar í Vinstri grænum eru hvattir til að fylgjast vel með umræðunum ýmist af þingpöllunum eða í beinni útsendingu sjónvarps og útvarps. Þá má minna á að alla virka daga nema föstudaga er opið hús að Suðurgötu 3 milli klukkan fjögur og sex.
Lesa meira
Norska þingið samþykkti í gærkveldi að gera kaup á vændi refsiverð. Af því tilefni sendu Vinstri græn systurflokki sínum í Noregi svohljóðandi skeyti:
Vensterparitet – de grönne i Island önsker dere hjertelig til lykke med den etappe å gjöre kjöb av prostitusjon ulovlig. Vi har lenge kjempet for en tilsvarende lovgivning her i Island, men har ikke lyktes hittil, deres seier er en oppmuntring for oss til å forstsette vår kamp. Likestilling blir ikke oppnådd utan gjensidig respekt. Ett viktigt skridt i den retning er å forby kjöb av kvinners kropper og plassere ansvaret der det hörer hjemme.
Lesa meiraStjórnarandstöðuflokkarnir hafa, að frumkvæði Vinstri grænna, lagt fram vantraust á ríkisstjórnina. Tillagan hljóðar svo: Alþingi ályktar að lýsa vantrausti á ríkisstjórnina. Alþingi lýsir þeim vilja sínum að þing verði rofið fyrir 31. desember og efnt verði til þingkosninga í framhaldinu. Vantrausttillaga er lögð fram sem þingsályktunartillaga og segir í þingsköpum "Umræða má eigi fara fram fyrr en í fyrsta lagi tveimur nóttum eftir að tillögunni var útbýtt". Vantrausttillaga er þó aðeins rædd við eina umræðu ólíkt öðrum þingskapartillögum. Það má því búast við að tillagan verði rædd á þingfundi á mánudaginn. Ennfremur segir í þingsköpum að umræðum um vantrausttillögu skuli útvarpað ef þingflokkur krefst þess.
Lesa meiraVefritið Smugan var opnað 19. nóvember en hún er vettvangur opinna skoðanaskipta og frétta í anda félagshyggju, kvenfrelsis, umhverfisverndar og friðarstefnu óháð markaðsöflunum. Vinstrihreyfingin – grænt framboð tók frumkvæði að stofnun vefritsins en það er rekið sjálfstætt undir stjórn Bjargar Evu Erlendsdóttur og af fyrirtækinu Útgáfufélagið Smugan ehf. Eigendur félagsins eru auk Vinstri grænna fjöldi einstaklinga. Tilgangur Smugunnar er að leggja sitt af mörkum til lýðræðislegrar umræðu með því að veita þeim opinn vettvang sem ekki hafa átt greiðan aðgang að fjölmiðlum hingað til. Smugan vill vera róttækur málsvari fólksins í landinu þegar góð ráð eru dýr.
Lesa meiraVegna umræðu síðustu daga og fjölda áskoranna er rétt að benda á minnihlutaálit sem Atli Gíslason vann vegna nýsamþykktra laga um fjármálafyrirtæki. Varar Atli við að frumvarpið standist ekki stjórnarskrá og færir hann rök fyrir því í álitinu og tekur svo djúpt í árinni að telja frumvarpið „réttarfarslegt slys í uppsiglingu“.
Fyrir þau sem vilja kynna sér málið má nálgast lögin hér
Fyrra minnihlutaálitið má nálgast hér
Seinna minnihlutaálitið má nálgast hér
Lesa meiraÖgmundur Jónasson og aðrir þingmenn VG hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum þess efnis að verðtryggð lán beri aldrei hærri vexti en nemur 2%. Með framlagningu frumvarpsins er ríkisstjórnin hvött til að taka stærri og róttækari skref til að létta greiðslubyrði fólks heldur en gert er í þeim tillögum til greiðslujöfnunar sem lagðar voru fram á Alþingi í gær. Við þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í samfélaginu, óðaverðbólga og háir vextir, er það brýnt réttlætismál og raunverulegar kjarabætur fyrir lántakendur ef frumvarp VG nær fram að ganga.
Lesa meiraSteingrímur J. Sigfússon óskaði í dag eftir fundi í utanríkismálanefnd og krefst þess, með vísan til 24. gr. laga um þingsköp Alþingis, að eftirgreind skjöl verði lögð fram og gerð opinber:
Mótmælin gegn stjórnvöldum magnast hvern laugardag og söfnuðust þúsundir manna saman á Austurvelli laugardaginn var. Að vanda voru Ung vinstri græn áberandi í mótmælunum, merki þeirra runnu út og skiltin vöktu athygli. Eftir mótmælin þáðu fleiri hundruð manns kaffi og vöfflur í húsnæði flokksins í Suðurgötu 3, en það er orðinn fastur liður að félagar komi í Suðurgötuna og ræði málin eftir mótmælin.
Lesa meira
Æraði løgtingsformaður, æraðu løgtingsmenn, góðu vinir okkara í Føroyum, brøður okkara og systur
Eg skal bera tykkum eina heilsu frá íslendska Altinginum og tí íslendsku tjóðini. Tað er mær ein sonn fragd at vitja í Føroyum og ikki minst at vitja Føroya løgting, bróðurting íslendska Altingisins.
Høvuðsendamálið við vitjanini er at bera tykkum tøkk, eina stóra tøkk, frá íslendsku tjóðini, frá forsetanum, Altinginum, ríkisstjórnini og øllum íslendingum, fyri tær fjálgu kenslur og tann stórsinnaða atburð, ið tit hava víst. Íslendska tjóðin hámetur slíkt. Tað fløvaði og kveikti ljós hesa myrku tíðina at frætta, at føroyingar ætlaðu at rætta okkum eina hjálpandi hond í tí truplu støðu, vit eru komin í, og at tað varð gjørt á so stórslignan hátt. Lesa meira
Í dag, föstudag, flytur Steingrímur J. Sigfússon ræðu á færeyska þinginu og nýtir að sjálfsögðu tækifærið til að þakka stuðning Færeyinga við okkur. Ræðan fylgir hér á íslensku og færeysku:
Hæstvirtur formaður færeyska lögþingsins, háttvirtir lögþingsmenn, kæru vinir í Færeyjum, bræður og systur.
Ég flyt ykkur kveðjur frá Alþingi Íslendinga og íslensku þjóðinni. Það er mér sérstakt ánægjuefni að vera hér í Færeyjum og ekki síst að heimsækja færeyska lögþingið sem sannarlega má kalla systurstofnun Alþingis Íslendinga.
Lesa meiraStjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri átelur harðlega að ríkisstjórn Íslands skuli ekki skilyrðislaust hafna fyrirhuguðu loftrýmiseftirliti Bretlands yfir Íslandi. Slíkt loftrýmiseftirlit er ekki nauðsynlegt í ljósi þess að engar hernaðarhættur ógna Íslandi sem og er það algerlega óverjandi að í núverandi stöðu borgi íslenskir skattgreiðendur Bretum fyrir flug herflugvéla yfir Íslandi. Ríkisstjórn Bretlands hefur nú þegar stórskaðað íslenska hagsmuni með því að beita hryðjuverkalöggjöf gagnvart Íslendingum og krefjast svo að íslenskur almenningur taki á sér skuldarbyrðar langt umfram þær ábyrgðir sem kveðið er á um í evrópskri löggjöf. Það er svo ástæða til að árétta vegna orða utanríkisráðherra þess efnis að hann hafi ákveðið að „leggja málið í hendur“ Bretum að það er ráðherrans að ákveða hvort hér sé loftrýmiseftirlit eða ekki.
Lesa meiraNú þegar þrír nýir bankar í eigu ríkisins hefja störf og þeim verða skipuð varanleg bankaráð með fulltrúum m.a. tilnefndum af þingflokki Vinstri grænna leggur þingflokkurinn sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði:
Lesa meiraMánudaginn 10. nóv. boðaði Vinstrihreyfingin – grænt framboð til opins fundar á kaffi Kró Vestmannaeyjum. Fundurinn var haldinn undir yfirskriftinni Fortíð –Nútíð – Framtíð og var fjölsóttur. Frummælendur voru Steingrímur J. Sigfússon formaður VG, Atli Gíslason þingmaður í Suðurkjördæmi og Aldís Gunnarsdóttir varabæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum. Heiða (Ragnheiður Eiríksdóttir) varaþingmaður tók og lagið fyrir fundarmenn.
Lesa meira
Katrín Jakobsdóttir er í forsvari fyrir Evrópuhóp Vinstri grænna sem hélt á dögunum Evrópusmiðju, hún segir: „Á Evrópusmiðjuna mættu margir sem höfðu áhuga á að koma sínum sjónarmiðum áfram og það er okkur sem flokki mjög hollt að skoða evrópumálin út frá ýmsum sjónarhornum rétt eins og öll önnur mál. Aðild að ESB er mjög stór spurning og eitthvað sem ekki er hlaupið í í flaustri í miðri efnahagslægð en hins vega hafa félagar okkar gjarnan viljað ræða evrópumálin og meta þau út frá núverandi aðstæðum. Stefna flokksins er hins vegar óbreytt þó fjölmiðlar hafi viljað leggja mikla merkingu í umræðuna. Eðli Evrópusambandsins er að vera alþjóðleg viðskiptablokk sem útilokar um leið þá sem standa utan við sambandið. Við höfum verið mjög gagnrýnin á slíkar blokkir og bent á að sambandið hefur miðast mjög við þarfir fjármagnsins. Það er kallað eftir umræðu um Evrópusambandið og að sjálfsögðu erum við til í þá umræðu og hyggjumst taka hana frá öllum sjónarmiðum.“
Lesa meiraMikil spurn hefur verið eftir tillögum Vinstri grænna í efnahagsmálum síðustu árin og var ráðist í það verk að safna saman tillögum og greinum frá árinu 2001. Í yfirlitinu sést að þingflokkur Vinstri grænna hefur verið ötull við að leggja til úrbætur á viðskiptaumhverfinu og eftirlitsstofnunum síðustu árin.
Lesa meiraFulltrúum Vinstri grænna var boðið að halda fund með Meistarasambandi byggingamanna í morgun. Góð mæting var á fundinum og margar hugmyndir komu upp til að bregðast við því alvarlega ástandi sem er í byggingariðnaðinum. Iðnaðurinn velti 256 milljörðum á síðasta ári og innan geirans starfa 16.000 manns.
Meðal þeirra hugmynda sem komu fram á fundinum er að rýmka reglur um sjálfstæða atvinnurekendur þegar þeir verða atvinnulausir og innkomu þeirra inn í starfið aftur, sömuleiðis að iðnnemar fái rétt til atvinnuleysisbóta ef þeir missa vinnuna. Á fundinum voru bæði þingmenn frá Vinstri grænum og borgarfulltrúar og var sérstaklega fjallað um ábyrgð sveitastjórna og möguleika þeirra til að fara af fullu afli í viðhaldsverkefni og aðrar mannaflsfrekar endurbætur. Þá er mikið verk enn óunnið til að gera opinberar byggingar aðgengilegar fyrir alla. Hörð gagnrýni kom fram á ríkisstjórnina og stjórn seðlabankans fyrir að hækka stýrivexti og þrengja þannig að atvinnurekstri.
Mikil ánægja var með fundinn á báða bóga og borgarfulltrúar og þingmenn fengu mikið af góðum ráðum í veganesti í hinum erfiðu verkefnum framundan.
Lesa meiraVilt þú hafa áhrif á samfélagið? Ef svarið er já, þá eru Ung Vinstri Græn vettvangur fyrir þig. Komdu á nýliðakvöld Ungra Vinstri Grænna á höfuðborgarsvæðinu (UVG-H) sem haldin verða í fjórum sveitarfélögum í nóvember. Ung vinstri græn teljast þau sem eru félagar í Vinstri grænum og eru 30 ára eða yngri.
1. Hafnarfjörður: Þriðjudaginn 11. nóvember kl. 20 á Súfistanum.
2. Kópavogur: Fimmtudaginn 13. nóvember kl. 21 í Hamraborg 1-3.
3. Mosfellsbær: Þriðjudaginn 18. nóvember kl. 20 á Draumakaffi.
4. Reykjavík: Fimmtudaginn 20. nóvember kl. 20 í Friðarhúsinu (á horni Snorrabrautar og Njálsgötu).
Öll velkomin!
Lesa meiraÞingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lagði í dag fram frumvarp á Alþingi sem afnemur öll sérákvæði um eftirlaun forseta, ráðherra, þingmanna og hæstaréttardómara frá og með 1. janúar næstkomandi. Með frumvarpinu er þessum hópi gert að greiða iðgjöld til lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og njóta frá og með þeim degi réttinda samkvæmt reglum A-deildar LSR. Í frumvarpinu er einnig lagt til að allar launagreiðslur til þessa hóps umfram 450 þúsund krónur skerðist um 20% í átt til launajöfnunar í landinu á erfiðum tímum.
Lesa meiraMikil fjölgun hefur verið í hreyfingunni síðustu vikur og gríðarlegur áhugi á þátttöku í starfi Vinstri grænna. Af því tilefni er boðað til nýliðakvölds föstudaginn 14. nóvember næstkomandi þar sem nýjir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Dagksrá verður auglýst nánar síðar en eitt er víst að dagskráin verður létt og veitingarnar sömuleiðis.
Lesa meiraÍ kvöld, miðvikudag klukkan átta, verður haldinn annar fundur vetrarins í húsi eldri borgara, Stangarhyl 4 í Reykjavík
Dagskráin er fjölbreytt að vanda:
1. „Oft var þörf ?“ –– Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrv. formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og nýkjörin formaður VG í Reykjavík, segir stuttlega frá því sem er á döfinni hjá félaginu. (Hún stýrir einnig fundi í fjarveru Guðrúnar Hallgrímsdóttur).
2. „Óábyrgir þankar um efnahagsmál“ –– Pétur Gunnarsson rithöfundur veltir fyrir sér spurningum á borð við: „Hvað ef vinnan hverfur? Böl eða blessun?“ *)
3. „Þín innsta þrá“ –– Ingibjörg G. Guðmundsdóttir söngkona kemur í heimsókn með gítarinn og spjallar milli laga um þá gömlu góðu daga þegar hljómsveitin „B.G. og Ingibjörg“ gerðu garðinn frægan vestur á Ísafirði.
Kaffihlé og kleinur um 9-leytið. – Það er tilvalið að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir. – Næsti fundur verður svo miðvikudagskvöldið 10. desember.
Lesa meiraHúsnæði Vinstri grænna að Suðurgötu 3 var opnað aftur eftir endurbætur á laugardaginn var. Handagangur var í öskjunni, boðið upp á vöfflur og kaffi sem fólk kunni vel að meta. Um 80 manns mættu í kaffið margir beint eftir mótmælin á Austurvelli. Suðurgatan verður opin milli klukkan 16 og 18 mánudaga til fimmtudaga næstu vikur.
Lesa meira
Vinstri græn hafa lengi haft áhuga á því að víkka út umræðuna um Evrópumál og aðild Íslands að Evrópusambandinu. Á opinberum vettvangi er oftast rætt um þessi mál út frá efnahagslegum forsendum en Evrópusambandsaðild felur annað og meira í sér en myntbandalagið.
Áhugafólk um Evrópuumræðuna hefur úr ýmsu að moða hjá Vinstri grænum næstu daga:
Fimmtudaginn 6. nóvember halda Ung vinstri græn opinn fund um hvað felst í aðild að Evrópusambandinu, fundurinn er haldinn í húsnæði flokksins að Suðurgötu 3 klukkan 20 og framsögu hefur Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Laugardaginn 8. nóvember verður Evrópusmiðja Vinstri grænna haldin að Suðurgötu 3 milli klukkan 11 og 13. Til máls taka Halldóra Friðjónsdóttir, meistaranemi í alþjóðasamskiptum og Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
Miðvikudaginn 12. nóvember verður svo haldinn annar fundurinn í ESB - fundaröð Ungra vinstri grænna kl. 20:00 á Suðurgötu 3. Þá mun Ögmundur Jónasson kynna stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Evrópumálum.
Katrín Jakobsdóttir stýrir Evrópuhópi Vinstri grænna og er áhugasömum bent á að skrá sig með því að senda póst á netfangið katrinja@althingi.is Lesa meira
Síðasta mánuðinn hafa tæplega hundrað manns skráð sig í Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Yfirleitt eru nýskráningar mestar í kringum forvöl og kosningar og því er þetta mjög óvenjulegt en að sjálfsögðu í takt við þá sveiflu sem nú er í samfélaginu og kröfu um nýjar áherslur á jafnrétti og jöfnuð. Félagaskráin er að sjálfsögðu trúnaðarmál en margir eru ekkert að fela afstöðu sína og koma stoltir út úr skápnum: http://www.this.is/drgunni/gerast.html
Lesa meira
Mikið fjölmenni var á opnum stjórnmálafundi Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Árborg á Hótel Selfossi fimmtudagskvöldið 30.0któber, með Steingrími J. Sigfússyni alþingismanni og formanni VG og Jóni Hjartarsyni bæjarfulltrúa VG í Árborg.
Lesa meiraVinstrihreyfingin – grænt framboð óskar landsliðinu hjartanlega til hamingju með stórkostlegan árangur. Krafturinn og samheldnin í liðinu er frábær fyrirmynd og gaman að fylgjast með þegar settu marki náð. Við hvetjum ykkur áfram og óskum ykkur góðs gengis á Evrópumeistaramótinu næsta sumar.
Áfram Ísland!
Lesa meiraHúsnæði Vinstri grænna að Suðurgötu 3 í Reykjavík verður opnað að nýju eftir miklar endurbætur á morgun, laugardag. Þá verður opið hús frá klukkan 15:30 til 18 og tilvalið að koma í kaffi eftir mótmælin á Austurvelli. Á döfinni er að skipuleggja reglulega opnunartíma til að fólk hafi færi á að kíkja í kaffi og ræða málin við félaga.
Lesa meiraVinstrihreyfingin – grænt framboð mælist nú með meira fylgi en nokkurn tíman áður eða 27% samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. Þar með eru Vinstri græn komin með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn sem mælist með 26% fylgi. Niðurstöðurnar hlýtur að mega túlka sem svo að stór hluti þjóðarinnar vill að Vinstri græn komi að stjórn landsins með sínar áherslur í varfærinni efnahagsstefnu og jöfnuði. Hægri stefnan sem hefur verið svo áberandi síðustu ár hefur vonandi runnið sitt skeið með hruni hinnar takmarkalausu trúar á frjálsa markaðinn. Vinstri græn þakka stuðninginn.
Lesa meiraVefnum bárust svohljóðandi gátur frá Huginn Frey Þorsteinssyni
Gáta 1:
Hver ákvað að hækka stýrivexti?
Össur segir að það hafi verið Seðlabankinn http://www.althingi.is/altext/raeda/136/rad20081028T133713.html
Ingibjörg segir að það hafi verið ríkisstjórnin http://www.visir.is/article/20081029/FRETTIR01/408109672/-1
Davíð og Árni Matt segja að það hafi verið Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item233719/
Gáta 2:
Er leynd yfir skilmálum IMF?
ISG segir já (hún sagði að blaðamannafundinum að það væri krafa stjórnar IMF)
IMF segir nei http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item234036/
Lesa meiraÞingmenn og aðrir kjörnir fulltrúar fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð eru á ferð og flugi þessa dagana. Síðastliðinn mánuð hafa verið haldnir 20 opnir fundir um allt land auk þess sem þingmenn og fleiri eru iðnir við að heimsækja fyrirtæki, hagsmunasamtök og vinnustaði til að heyra í fólki, fá hugmyndir og ræða málin í því ástandi sem nú ríkir. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Jón Bjarnason og Katrín Jakobsdóttir heimsóttu Hagþjónustu landbúnaðarins á Hvanneyri í síðustu viku, með þeim á myndinni er Ríkharð Brynjólfsson prófessor við Landbúnaðarháskólann og stjórnarmaður í Hagþjónustu landbúnaðarins.
Lesa meiraNú hefur verið ákveðið að hækka stýrivexti um 6 prósentustig og má að öllum líkindum rekja það beint til ráðgjafar eða jafnvel skilyrða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Af því tilefni birtist hér grein eftir Huginn Frey Þorsteinsson, formann Vinstri grænna á Akureyri um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, en greinin birtist einnig í Morgunblaðinu í morgun:
Nánast hvar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) hefur stigið niður fæti síðastliðin þrjátíu ár hefur hann skilið eftir sig sviðna jörð. Í upphafi tíunda áratugarins tókst sjóðnum með ráðgjöf sinni og íhlutun að koma hlutum í Rússlandi í enn verra horf en viðskilnaður kommúnismans hafði gert. Í félags- og efnahagslegum skilningi stóð þetta volduga ríki á brauðfótum eftir að einkaðilum, svokölluðum ólígörkum, voru afhentar auðlindir landsins. Úthýsing velferðarkerfisins til einkaaðila endaði með því að lífslíkur fólks í Rússlandi drógust saman sem og jók enn á gríðarlega misskiptingu lífsgæða. Þessi misskipting lífsgæða virðist vera afleiðing sem fylgir sjóðnum hvert sem hann fer.
Lesa meiraSmári Karlsson í Osló var svo vænn að senda síðunni fréttir af fundi laugardagsins í Osló:
Steingrímur J. Sigfússon hélt fund með Íslendingum búsettum í Osló og nágrenni laugardaginn var. Efni fundarins voru efnahagsmálin á Íslandi og atburðir síðustu vikna. Um 40 manns sóttu fundinn. Í framsögu Steingríms fór hann yfir atburðarásina frá allt frá því að Glitnir var þjóðnýttur og ekki síður atburðarás síðustu ára sem skilar þjóðarbúinu í þessu ástandi. Fjörugar umræður sköpuðust á fundinum og svaraði Steingrímur spurningum fundarmanna. Fundarmenn voru Steingrími þakklátir fyrir að gera stuttan stans í Osló á leið sinni á Norðurlandaráðsþing í Helsinki til að geta rætt málin við kjósendur.
Lesa meira
Á aðalfundi Kjördæmisfélags Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi var svohljóðandi ályktun samþykkt:
Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Egilsstöðum í október 2008, skorar á Alþingi og stjórnvöld að beita öllum ráðum og valdi sínu til að styrkja og efla íslenskan landbúnað til þess að Íslendingar geti orðið sjálfum sér nægir um öll þau matvæli sem unnt er að framleiða hérlendis með góðu móti. Þá áréttar fundurinn þá afstöðu flokksins að hafna alfarið frumvarpi landbúnaðarráðherra um að leyfa innflutning á hráu kjöti.
Lesa meiraÁ leið sinni á Norðurlandaráðsþing í Helsinki hélt Steingrímur J. Sigfússon stóran fund með Íslendingum búsettum í Osló þar sem rætt var um stöðu efnahagsmála á Íslandi. Fundur verður svo í kvöld kl. 20 í Jónshúsi í Kaupmannahöfn með Íslendingum á Kaupmannahafnarsvæðinu.
Í dag, sunnudag hélt Steingrímur fund með formanni SV og fjármálaráðherra Noregs Kristinu Halvorsen og nánum ráðgjafa hennar. Á fundinum kom fram skilningur frænda okkar og vilji þeirra til að aðstoða Íslendinga fjárhagslega og rædd var sú hugmynd að Norðurlöndin taki virkan þátt í fjárhagsaðstoð með Alþjóðagjaldeyrissjóðum.
Á þriðjudag mun Steingrímur taka þátt í umræðum forystumanna í Norrænum stjórnmálum á Norðurlandaráðsþinginu í Helsinki. Lesa meira
Ögmundur Jónasson hefur fyrir hönd þingflokks Vinstri grænna óskað eftir opnum fundi í efnahags- og skattanefnd Alþingis í kvöld eða á morgun til að fjalla um þá skilmála Alþjóða gjaldeyrissjóðsins:
Bréfið er svohljóðandi:
Pétur H. Blöndal,
formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis.
Í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið að leita formlega til Alþjóðagjaldeyris-sjóðsins og með hliðsón af því að hann hefur skýrt ríkisstjórninni frá sínum skilmálum er hér með óskað eftir að efnahags- og skattnefnd Alþingis komi saman til fundar í kvöld eða á morgun þar sem upplýst verði um umrædda skilmála, þeir skýrðir og um þá fjallað. Fundurinn verði opinn fjölmiðlum og almenningi. Fráleitt er að leita til IMF án þess að Alþingi fjalli áður um samningsforsendur Íslendinga.
Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks VG
Lesa meira
Þingflokkur Vinstri grænna mun legga fram svohljóðandi þingsályktunartillögu á Alþingi við fyrsta tækifæri:
Alþingi ályktar að fela utanríkisráðherra að tilkynna breskum stjórnvöldum og yfirstjórn NATO að fyrirhugað loftrýmiseftirlit Breta við Ísland í desember nk. falli niður. Jafnframt verði utanríkismálanefnd falið að endurskoða áætlun Atlantshafsbandalagsins um loftrýmisgæslu yfir Íslandi sem samþykkt var í júlí 2007, með það að markmiði að hætta öllu slíkum æfingum.
Lesa meira
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs samþykkti í morgun að leggja til að viðskiptanefnd Alþingis kanni þegar í stað lagalegar forsendur þess að hægt verði að kyrrsetja tímabundið allar eignir innlendra fjármálafyrirtækja sem komist hafa í þrot, eigenda þeirra og tengdra aðila hér á landi og setja bann við kvers kyns ráðstöfun, sölu, veðsetningu o.s.frv. Einnig að leggja hald á og eftir atvikum heimta til landsins eignir sömu aðila erlendis, allt í því skyni að gæta hagsmuna þjóðarbúsins. Slíkar tímabundnar frystingarheimildir er nærtækast að taka sem viðbótarákvæði inn í neyðarlögin frá mánudeginum 6. október og stefna að lögfestingu þeirra í næstu viku. Við lagasetninguna yrði sérstaklega höfð hliðsjón af þeirri opinberu rannsókn sem nú er að fara af stað á vegum sérskipaðs ríkissaksóknara. Leiki minnsti grunur á að eignum hafi með beinum hætti verið skotið undan á undangengum mánuðum og misserum ber að sjálfsögðu að meðhöndla slík mál tafarlaust sem sakamál.
Lesa meira
Fréttir af frestun jafnréttisþings félagsmálaráðuneytisins drepur niður flestar væntingar um að ríkisstjórnin ætli að sinna kynjajafnrétti. Mikil orð hafa verið uppi um að nú eigi aldeilis að taka á málunum og átti jafnréttisþingið í nóvember að vera vettvangur stórkostlegra afreka ríkisstjórnarinnar á þessu sviði, enda er þingið lögbundið stefnumótunarvald. Ljóst er að með ákvörðun um að fresta jafnréttiþinginu fram í janúar eru jafnréttismálin lögð til hliðar í því ástandi sem nú ríkir. Fögur orð um kynjaða hagstjórn, samþættingu kynjasjónarmiða inn í alla ákvarðanatöku og stórátak í að leiðrétta kynbundinn launamun eru farin fyrir lítið hjá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
Lesa meiraÞingmenn og aðrir kjörnir fulltrúar Vinstri grænna hafa haldið fundi um allt land undanfarið. Í gærkveldi var fundur á Akureyri og kvöldið þar áður fundur í Kópavogi. Báðir voru fundirnir vel sóttir og ljóst að margt brennur á fólki um þessar mundir. Efnahagsmálin og afleiðingar þeirra eru vitaskuld í brennidepli og miklar væntingar gerðar til Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs að halda uppi merkjum félagshyggju, umhverfisverndar og kvenfrelsis í þeirri vinnu sem framundan er. Þá er fólki tíðrætt um ójfönuðinn í samfélaginu, hvernig hann hefur vaxið undanfarin ár og hvaða afleiðingar það hefur haft í för með sér. Það er sívaxandi krafa um að hverfa aftur til samfélags þar sem jöfnuður var sú forsenda sem unnið var út frá og græðgi þótti löstur fremur en kostur. Það er aldrei mikilvægara að vernda velferðarkerfið gegn þeirri vá sem nú steðjar að og halda grunneiningum samfélagsins virkum. Þar skipa sveitafélögin mikilvægt hlutverk en því miður eru þau skuldsett og þarfnast aðstoðar frá ríkinu.
Fundunum verður fram haldið næstu daga og vikur eftir því sem þörf er á og andinn blæs okkur í brjóst. Næstu tvo daga er dagskráin svona:
22. 10 - Aðalfundur UVG á Akureyri haldinn í aðstöðu Vinstri grænna á eftir hæð JMJ hússins klukkan 20
23.10 - Kaffi og spjall á Selfossi haldinn í Selinu klukkan 20, Atli Gíslason, Jón Hjartarson og Katrín Jakobsdóttir
23.10 - Smiðja UVG á Kaffi Hljómalind í Reykjavík klukkan 20
23.10. - Fundur á Hótel Ísafirði klukkan 20, Jón Bjarnason, Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Lesa meiraOpinn fundur um efnahagsmál með Steingrími J. Sigfússyni, fomanni Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, í kvöld, þriðjudag kl. 20 á Hótel Kea. Hver er staðan í efnahagsmálum? Hvaða leiðir eru færar við þessar aðstæður? Allir sem hafa áhuga á stöðunni í efnahagslífi þjóðarinnar eru hvattir til að koma.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
Lesa meiraVinstri græn í Reykjavík efna til umræðufundar um efnahagsmál í kvöld kl. 20 í Hamraborg 1-3 (Kragakaffi).
Þrjú stutt innlegg verða flutt í upphafi fundar og síðan verði orðið gefið laust. Erindin flytja alþingismaðurinn Katrín Jakobsdóttir, borgarfulltrúinn Svandís Svavarsdóttir og stjórnmálafræðingurinn Silja Bára Ómarsdóttir.
Öll velkomin.
Á nýlokinni ráðstefnu um vændi á Norðurlöndum hélt dómsmálaráðherra Svíþjóðar Beatrice Ask erindi. Ráðstefnan var lokahnykkur samnorræns rannsóknarverkefnis og var haldin í Stokkhólmi dagana 16. og 17. október síðastliðinn. Í erindi sínu varð Beatrice tíðrætt um áhrif sænsku vændislaganna en fyrir tæpum tíu árum síðan gerðu Svíar kaup á vændi refsiverð. Ýmsar vísbendingar eru um jákvæð áhrif þessara laga. Manseljendur virðast sneiða hjá Svíþjóð og eftirspurn hefur minnkað. Þá hafa rannsóknir sýnt viðhorfsbreytingu hjá ungu fólki varðandi vændi, að það tekur skýrari afstöðu gegn því en eldra fólk. Uppeldisáhrif laganna virðast því ekki síðri en praktísk áhrif laganna.
Lesa meiraKjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldið á Egilsstöðum 18. okt. 2008
Nýfrjálshyggju og einkavæðingarstefna ríkisstjórna Sjálfstæðisflokksins í rúm 17 ár, með Alþýðuflokknum, Framsóknarflokknum og Samfylkingunni, er nú hrunin með geigvænlegum afleiðingum fyrir samfélagið. Íslenska þjóðin stendur frammi fyrir því risavaxna verkefni að vinna sig út úr þrengingunum sem þessi stefna hefur leitt yfir hana og hefja endurmótun og uppbyggingu samfélagsins á nýjan leik. Nú þurfum við að læra af mistökunum og heita því að endurtaka þau aldrei aftur. Við þurfum að byggja nýtt Ísland á nýjum gildum þar sem hófsemi, jöfnuður, samhjálp og virðing fyrir fólki og náttúru eru í öndvegi. Við þessar aðstæður leggur kjördæmisþing VG í Norðausturkjördæmi sérstaka áherslu á eftirfarandi: Lesa meira
Vændi á Norðurlöndum var efni ráðstefnu sem er nýlokið í Stokkhólmi. Norræna rannsóknarmiðstöðin í kvenna- og kynjafræðum stóð fyrir henni og var hún lokahnykkurinn á samnorrænu rannsóknarverkefni sem leitaðist við að greina umfang vændis á Norðurlöndum, skoða lagaramma og úrræði auk þess að greina viðhorf almennings til vændis. Gestir ráðstefnunnar voru af ýmsum toga, stjórnmálamenn, fræðimenn og fólk sem hefur unnið með og fyrir fólk í vændi.
Í Finnsku rannsókninni er greint frá því að í efnahagskreppunni sem reið yfir Finnland í byrjun tíunda áratugarins hafi vændi aukist markvert. Þetta þurfum við að sjálfsögðu að hafa í huga nú þegar svipaðar aðstæður eru uppi í íslensku efnahagslífi og styrkja þekkingu okkar, úrræði og almenna umræðu um það kynbundna ofbeldi sem vændi er. Lesa meira
Vinstri græn funduðu um efnahagsmálin í Grindavík í gærkvöldi og komu um 20 manns.Agnar Sigurbjörnsson, fomaður VG á Suðurnesjum stjórnaði fundinum en framsögu höfðu Atli Gíslason og Steingrímur J. Sigfússon. Á eftir voru fjörugar og málefnalegar umræður og tókst með herkjum að slíta fundi eftir tæpar 3 klst.
Mönnum var tíðrætt um skipbrot frjálshyggjunnar og gríðarlegan sofandahátt ríkisstjórnarinnar - og reyndar meðvirkni og sofandahátt þjóðfélagsins alls og skort á gagnrýni, þannig að hægt var að skuldsetja þjóðarbúið svo gríðarlega á svo skömmum tíma. Ástandið væri grafalvarlegt og nú gildi það að standa saman og lágmarka skaðann. Skýrði Steingrímur m.a.hugmynd sína um þjóðstjórn í því samhengi. Þeirri hugmynd hefur verið tekið með tómlæti og ekki víst hve lengi VG bíður með útrétta sáttarhönd.
Vinstri græn í Reykjavík efna til umræðufundar um efnahagsmál næstkomandi mánudag, 20. október, kl. 20 í Hamraborg 1-3 (Kragakaffi).
Þrjú stutt innlegg verða flutt í upphafi fundar og síðan verði orðið gefið laust. Erindin flytja alþingismaðurinn Katrín Jakobsdóttir, borgarfulltrúinn Svandís Svavarsdóttir og stjórnmálafræðingurinn Silja Bára Ómarsdóttir.
Þessi grein eftir Steingrím J. Sigfússon birtist í Morgunblaðinu 14. október 2008
Við lifum örlagatíma íslenskrar efnahags- og stjórnmálasögu. Ríkisstjórnum, efnahags- og eftirlitsstofnunum og ýmsum forustumönnum fjármála- og atvinnulífs hafa orðið á stórfelld og dýrkeypt mistök. Rótin er sambland af röngum ákvörðunum og vítaverðu andvara- og aðgerðaleysi undanfarin ár, undanfarna mánuði og jafnvel undanfarna daga. Skaðinn er að verða miklu meiri en hann hefði nokkurn tímann þurft að verða og sannast nú hið fornkveðna nær dag hvern að lengi getur vont versnað.
Lesa meira
Á lítilli eyju við heimskautshjara
býr heimakær, vansvefta, auðtrúa þjóð.
Hún leit upp til ráðsmanna loðinna svara
sem loforðum öfugt í kok hennar tróð.
Þeir níddust á trausti og trúgirni okkar
-táldrógu sannlega helvítis til.
Og allt sem þeir gerðu, þeir gordrullusokkar
gerðu þeir flottræflum sínum í vil.
En frelsið er háðara boðum og bönnum
en bláeygðir frjálshugar ímynda sér.
Þjóð mín var notuð af nýríkum mönnum
og nauðgað af útrásarvíkingaher.
Lesa meira
Sverrir Jakobsson sagnfræðingur veitti vg.is góðfúslegt leyfi til að birta bloggfærslu sína um Alþjóða Gjaldeyrissjóðinn:
Maður heyrir það á mörgum sem vilja gefa Alþjóðagjaldeyrissjóðnum tækifæri að hugmyndir hans til að taka á vanda Íslands muni verða nánast óskrifað blað. Það er þó ekki alveg rétt því að sjóðurinn er nýbúinn að gefa ítarlega skýrslu um ástand efnahagsmála á Íslandi og þar koma tillögur hans skýrt fram:
1. Vaxtastigi verði áfram haldið háu.
„Given prevailing inflationary pressures and external risks, the central bank should continue to pursue its tight policy stance to return inflation to target and shore up confidence in the króna.“
2. Íbúðalánasjóður verði einkavæddur að hluta til - sem er lykilatriði að mati sjóðsins.
„Promptly acting on the pledge to reform the publicly-owned HFF is crucial to increase the effectiveness of monetary policy.“
3. Niðurskurður ríkisútgjalda.
„To achieve a more balanced macroeconomic policy mix, the central and local governments will need to slow the planned sharp acceleration in public investment and resist pressures to boost spending, including on the wage bill and social benefits. Any further fiscal relaxation would only undermine the government’s stated commitment to fiscal prudence and the effectiveness of monetary policy, risking higher inflation and further króna depreciation.“ Lesa meira
Svohljóðandi bréf var í dag sent skilanefndum þjóðbankanna:
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð gerir kröfu til þess að skilanefndir Glitnis, Landsbanka íslands og Kaupþings beiti sér tafarlaust fyrir því að fram fari ítarleg rannsókn á öllum viðskiptum stærstu eigenda nefndra banka, bankaráðsmanna, bankastjóra og æðstu stjórnenda síðastliðna 12 mánuði, þar með töldum viðskiptum með hlutabréf. Sérstaklega verði skoðaðar hugsanlegar millifærslur til erlendra banka og annarra fjármálafyrirtækja. Einnig verði rannsökuð gjaldeyriskaup bankanna síðastliðna 12 mánuði, hvernig að þeim var staðið og þau fjármögnuð. Loks fari fram sérstök athugun á því hvernig bankarnir hafa staðið að eignastýringu, ráðgjöf og flutningi peninga almennra viðskiptavina af bankareikningum yfir í sjóði, hlutabréfasöfn, peningamarkaðsreikninga og aðra ótryggari fjárvörslu og ávöxtun á umræddu tímabili.
F.h. þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Ögmundur Jónasson, formaður.
Lesa meira
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur farið þess á leit við forseta Alþingis og forsætisnefnd að því erindi verði tafarlaust beint til Ríkisendurskoðunar að hafa frumkvæði að því að kanna með hvaða hætti stofnunin skuli nú koma sem endurskoðunar- og eftirlitsaðili að ráðstöfun þeirra miklu fjármuna sem nú eru komnir í ríkisins hendur með yfirtöku bankanna. Það er mat þingflokks VG að óumflýjanlegt sé að Ríkisendurskoðun komi þegar að þeim þáttum sem á hennar verksviði eru og verða í framhaldinu. Lýtur það bæði að endurskoðun þeirra banka sem stofnaðir hafa verið í eigu ríkisins sem og að endurskoðun þeirra móðurfélaga sem ríkið hefur yfirtekið og eru nú í höndum opinberra skilanefnda. Mikilvægt er að Alþingi búi þegar í stað þannig um hnúta að Ríkisendurskoðun geti sinnt þessu gríðarlega verkefni með fullnægjandi hætti og hafi eftir atvikum svigrúm til að ráða sér til aðstoðar virt alþjóðleg endurskoðunarfyrirtæki eða fá aðstoð annarra sérfræðinga á þessu sviði. Gríðarlegir almannahagsmunir eru í húfi og útilokað annað en að opinbert eftirlit og opinber endurskoðun komi til, þar með taldar eignayfirfærslur, milliuppgjör og fjárhagsleg skil við aðilaskiptin.
Lesa meira
Vinir okkar í Færeyjum hugsa greinilega til okkar og í dag barst þessi kveðja frá systurflokknum:
Kæri Steingrímur!
Vil senda kveðju frá Tjóðveldi í Færeyjum og ynskja ykkur í Vinstrigrænum og íslendsku tjóðini stuðning í erfiðu støðu landsins.
Við vonum að þið eru að komast undan ringastu ódnum og að flokkurin verður að vinna áfram með hugmynd og politikki í teimum loysnum og breytingum, sem nú verða á Íslandi.
Við reynum að fylgjast með í fréttum á hvørju degi og hugsanir okkara eru með ykkur.
Bestu kvøður,
Høgni Hoydal
Lesa meira
VG í Skagafirði leggur áherslu á að við þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í íslensku samfélagi verði staðinn vörður um grunnþjónustu við íbúa héraðsins. Vegna áhrifa efnahagsþrenginga á fjárhag heimilanna verði gjaldskrár fyrir almenna grunnþjónustu og Skagafjarðarveitur ekki hækkaðar við núverandi aðstæður. Sjaldan hefur verið mikilvægara að sveitarfélög sýni ráðdeildarsemi og gæti aðhalds í rekstri, en samhliða sé gætt að því að mæta ekki hugsanlegum samdrætti með uppsögnum og fækkun starfsfólks. VG í Skagafirði leggur áherslu á að sveitarfélögin í héraðinu setji sér nú þegar aðgerðaáætlun um eflingu velferðarþjónustu og hvernig brugðist verði að öðru leiti við þeim efnahagsþrengingum sem framundan eru með velferð Skagfirðinga að leiðarljósi.
Ályktun fundar VG í Skagafirði 12. október á Sauðárkróki Lesa meira
Í gær, föstudag, var haldinn sameiginlegur fundur stjórnar, þingflokks og flokksráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Þar fór fram mikil hugmyndafræðileg umræða og vangaveltur um næstu skref í því ástandi sem hefur skapast eftir óhefta markaðsvæðingu síðustu ára. Ein ályktun var samþykkt á fundinum og er hún svohljóðandi:
Lesa meira
Boðað er til sameiginlegs fundar stjórnar, þingflokks og flokksráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á morgun 10. október í húsnæði flokksins í Kópavogi að Hamraborg 1-3 klukkan 16:30. Rætt verður mál málanna út frá vinstristefnu, kvenfrelsi, umhverfisvernd og sjálfstæði landsins. Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að móta framtíð í félagshyggju.
Lesa meira
Vinstri græn bjóða til umræðna um ástandið í efnahagsmálum í dag á Akranesi, í Reykjavík og á Akureyri:
Opið hús verður í Suðurgötunni á dag, 9. október milli kl. 15 og 17 með kjörnum fulltrúum.
Ögmundur, Rún og Jón verða með kvöldkaffi í Skrúðgarðinum á Akranesi í kvöld, 9. október klukkan átta.
Aðalfundur Akureyrarfélagsins verður haldinn á hóteli Kea klukkan 19 í kvöld, 9. október.
Umræða um efnahagsmál með Steingrími J. Sigfússyni verður haldinn í beinu framhaldi af aðalfundinum á hóteli Kea í kvöld.
Lesa meiraVinstri græn í Reykjavík halda úti opnu húsi á miðvikudag og fimmtudag í þessari viku og næstu milli klukkan 15 og 17. Hellt verður upp á könnuna í húsnæði flokksins að Suðurgötu 3 í Reykjavík og kjörnir fulltrúar, bæði þingmenn og borgarfulltrúar verða á staðnum. Fjölmennum í kaffi og spjall!
Lesa meiraÖgmundur Jónasson þingmaður Suðvesturkjördæmis verður í opnu kaffi í húsnæði Vinstri grænna í Hamraborg 1-3, svokölluðu Kragakaffi klukkan fjögur í dag. Allir velkomnir!
Lesa meira
Landsfundur Ungra vinstri grænna fór fram á Akureyri um helgina.
Fundinn sátu ungliðar frá öllum landshornum sem tóku þátt líflegum og frjóum umræðum sem skiluðu sér í fjölda ályktanna, endurbættri stefnuyfirlýsingu og hugmyndum fyrir komandi starfsár.
Á fundinum var Steinunn Rögnvaldsdóttir kjörinn formaður nýrrar stjórnar í stað Auðar Lilju Erlingsdóttur sem gengt hefur því embætti undanfarin tvö starfsár en gaf ekki kost á sér áfram.
Fundurinn fór fram í skugga þeirrar óvissu og umbrota sem ríkja í efnahagsmálum þjóðarinnar og einkenndust umræður á fundinum mjög af þeirri staðreynd, sem og ályktanir fundarins. Meðal annars var ályktað um hrun heimskapítalismans og stöðuna í efnahagsmálum. Einnig samþykkti fundurinn að leggja fram sparnaðaráætlun sem felur í sér fyrir nokkurra tugmiljarða sparnað í óþörfum verkefnum ríkissjóðs. Áætlunin verður kynnt á næstu dögum.
Lesa meira
Ung vinstri græn halda landsfund sinn um helgina á Akureyri. Fráfarandi formaður Auður Lilja Erlingsdóttir flutti setningarræðu fundarins:
Velkomin á landsfund Ungra vinstri grænna árið 2007
Mig langar að nýta tækifærið meðan ég hef orðið að ræða um nýtilkomna þjóðnýtingarstefnu íhaldsins.
Á mánudaginn veltu fréttamenn fyrir sér hvort Íslendingar myndu þyrpast í Glitni, skelfingu lostnir og taka út allt sitt reiðufé (sem er reyndar ekki mikið þessa dagana). Á meðan lagði ég á ráðinn um að flytja viðskipti mín til Glitnis enda hvergi öruggara að vera með sitt fé í ljósi sérlega virkrar og öruggrar efnhagsstefnu íslenskra stjórnvalda.
Ingibjörg Sólrún staðhæfði fyrir nokkrum vikum að hér ríkti engin kreppa. Ég veit ekki hvort hún sé búin að skipta um skoðun í dag en ég fullyrði að ef þingmenn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hefðu beitt virkri hlustun undanfarin ár í stað þess að agnúast út í reiðu kommana hefði þessi þróun og þær aðstæður sem við búum við í dag ekki átt að koma á óvart.
Lesa meiraEldri vinstri græn eru að hefja fjórða starfsárið – Undirbúningshópurinn hefur margt á prjónunum varðandi atriði á fundunum í vetur. Og sem fyrr er enginn skortur á fólki sem vill líta í kaffi og spjalla um sitthvað til fróðleiks og skemmtunar.
Lesa meira
Ræða Steingríms J. Sigfússonar eftir stefnuræðu forsætisráðherra:
Góðir landsmenn.
Vofa gengur nú ljósum logum um hinn kapítalíska heim. Það er ekki vofa kommúnismans sem skrifað var um á nítjándu öldinni, nei, það er vofa kapítalismans sjálfs.
Í flestum vestrænum löndum standa nú yfir neyðaraðgerðir, þar sem gripið er til gríðarlegra fjármuna úr almannasjóðum til að afstýra algjöru hruni nýfrjálshyggju-kapítalismanns. Hugmyndafræðin sem vildi færa nánast öll verkefni samfélagsins með einkavæðingu yfir til markaðarins, hataðist við alla reglusetningu frá hinu opinbera, vildi í raun ekkert af ríkisvaldinu hefur nú étið sjálfa sig upp innanfrá og skríður undir pilsfald hins opinbera. Nýfrjálshyggjubyltingin er að éta börnin sín, enda hefur Hannes Hólmsteinn ekki skrifað blaðagrein í margar vikur.
Lesa meiraLandsfundur Ungra vinstri grænna verður haldin á Akureyri næstkomandi helgi. Landsfundur er kjörið tækifæri til að kynnast starfi hreyfingarinnar, taka þátt og hafa áhrif. Enginn róttæklingur ætti að láta sig vanta.
Lesa meira
Á aðalfundi Vinstri grænna í Reykjavík, höldnum 30. september 2008, var Sjöfn Ingólfsdóttir kjörin formaður félagsins. Með henni í stjórn sitja Elín Sigurðardóttir, Heimir Björn Janusarson, Hermann Valsson, Sigríður Kristinsdóttir, Guðlaug Teitsdóttir og Valgeir Jónasson. Í varastjórn sitja Friðrik Dagur Arnarson og Sigvarður Ari Huldarsson.
Lesa meiraMinnt er á opinn fund um efnahagsástandið í kvöld að Vesturgötu 7. Framsögu hefur Steingrímur J. Sigfússon en fundurinn hefst klukkan 21, eða strax að loknum aðalfundi Reykjavíkurfélags Vinstri grænna sem hefst klukkan 20 á sama stað.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Lesa meiraÁ aðalfundi Ungra vinstri grænna í Reykjavík var ákveðið að breyta nafni félagsins í Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu og sameina félög í nágrannasveitafélögum reykjavíkurdeild Ungra vinstri grænna. Nú eiga allir félagar í Vinstri grænum sem eru 30 ára og yngri og búa í Reykjavíkurkjördæmunum auk Suðvesturkjördæmis aðild að félaginu en áður áttu aðeins félagar í Reykjavík aðild. Stjórnarmeðlimum var einnig fjölgað úr fimm í sjö en varamenn verða tveir talsins eins og áður. Kosin í stjórn voru: Brynja Björg Halldórsdóttir formaður, Ísleifur Egill Hjaltason, Sunneva Ása Weisshappel, Olga Jenný Gunnarsdóttir, Þrúður Helgadóttir, Claudia Overesch, Ólafur Arason, Snærós Sindradóttir og Helgi Hrafn Ólafsson.
Á fundinum voru samþykktar ályktanir um nektardansstaði, heimgreiðslur, umhverfisvænan ferðamáta, meðhöndlun sorps og úrræði fyrir heimilislaust fólk. Ályktanirnar eru svo:
Lesa meiraVegna ástands þjóðarbúsins verður reynt að stytta aðalfund Reykjavíkurfélagsins annað kvöld eins og kostur er og hefja í beinu framhaldi opinn fund um efnahagsmálin.
Aðalfundurinn verður sem sagt haldinn á Vesturgötu 7 klukkan 20-21. Í framhaldinu verður haldinn umræðufundur um efnahagsmálin á sama stað. Allir velkomnir eftir klukkan 21!
Vinstrihreyfingin – grænt framboð Lesa meira
Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík fordæmir gjaldskrárhækkun OR sem virðist tilkomin vegna glórulausrar lántöku erlendis , sem efnt er til svo fyrirtækið geti fjármagnað innrás á óspjölluð hverasvæði og virkjað fyrir erlendar stóriðjur. Almenningi er síðan ætlað að borga brúsann og niðurgreiða þannig umdeilda virkjana- og stóriðjustefnu fyrirtækisins.
Stórfelldar hækkanir á gjaldskrá OR eru hnefahögg í andlit almennings, sem þegar hefur tekið á sig mikla kjaraskerðingu og hefur enga leið til að verjast slíkum lífskjaraárásum .
Lesa meiraMánudaginn 22. september stóðu Vinstri græn fyrir norrænu málþingi um loftslagsmál í Norræna húsinu. Þetta var gert í samstarfi við vinstrisósíalíska græna hópinn innan Norðurlandaráðs en í dag hefjast einmitt nefndardagar ráðsins hér í Reykjavík. Fyrir málþingið höfðu fulltrúar systurflokka Vinstri grænna í Norðurlandaráði heimsótt Hitaveitu Suðurnesja og Hellisheiðavirkjun. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, stjórnaði málþinginu. Hér á eftir fara örstuttir útdrættir af erindunum á málþinginu.
Lesa meira
Áhugahópur um friðlýsingu Skjálfandafljóts hefur opnað heimasíðuna www.skjalfandafljot.is. Markmið hópsins er að vinna að friðlýsingu alls vatnasviðs Skjálfandafljóts, stuðla að friðun og varðveislu landslags þess, náttúrufars og menningarminja ásamt því að það verði notað til útivistar, ferðaþjónustu og hefðbundinna nytja. Á heimasíðunni segir að það sé ekki vitað hvort áform séu uppi um að virkja Skjálfandafljót en „það eitt vitum við fyrir víst, að við höfum ekki hugmynd um hverjar afleiðingar orkufrekja nútímans muni hafa í framtíðinni og þess vegna er nauðsynlegt að sporna við t.d. með því að vinna að verndun og friðlýsingu Skjálfandafljóts.“ Á heimasíðunni er safnað undirskriftum til stuðnings baráttunni.
Lesa meira
European womens lobby stendur nú fyrir undirskriftasöfnun til að rétta hlut kvenna í stjórnkerfi Evrópu. Þær benda á að árið 2008 er hlutur karla á þjóðþingum 82% og að meðaltali er hlutfallið 77% innan Evrópusambandsins. Á næsta ári verður kosið til Evrópuþingsins og skipað á ný í framkvæmdastjórnina. Af þessu tilefni er 50/50 herferðinni hleypt af stokkunum. Allir eru hvattir til að undirrita áskorunina hér: http://www.womenlobby.org/site/form_3.asp
Lesa meiraMánudaginn 22. september höldum við norrænt málþing um loftslagsmál í Norræna húsinu. Þetta er gert í samstarfi við vinstrisósíalíska græna hópinn innan Norðurlandaráðs en á þriðjudag hefjast einmitt nefndardagar ráðsins hér í Reykjavík. Til hagræðingar er fólk beðið um að skrá sig til þátttöku í málþinginu á vg@vg.is. Dagksráin er svo:
Lesa meiraAðalfundur Ungra Vinstri grænna í Reykjavík verður laugardaginn 27.september næstkomandi. Fundur hefst kl. 16.00 og verður í húsnæði flokksins í Kragakaffi við Hamraborg.
Dagskrá fundarins verður þessi:
Lesa meira
Tillaga Vinstri grænna um óháða úttekt á kynbundnum launamuni var samþykkt samhljóða í borgarstjórn Reykjavíkur í gær. Ljóst er að jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér og nauðsynlegt að borgin sýni fordæmi í að leiðrétta muninn. Nýleg launakönnun SFR sýndi bakslag í baráttunni fyrir sömu launum og að kynbundinn launamunur hjá hinu opinbera sé að aukast þrátt fyrir fögur loforð síðustu ára. Því er nauðsynlegt að borgaryfirvöld afli þeirra upplýsinga sem þarf til að hægt sé að vinna að útrýmingu kynbundins launamunar. Svandís Svavarsdóttir mælti fyrir tillögunni sem var vel tekið af fulltrúum allra flokka.
Lesa meiraUng vinstri græn halda sinn landsfund á Akureyri helgina 4.-5. október. Allir ungliðar eru velkomnir en til þeirra teljast félagar í Vinstri grænum sem eru þrjátíu ára og yngri.
Þar sem farið er í rútu til Akureyrar er nauðsynlegt að skrá þátttöku með því að senda póst á uvg@vinstri.is eða hringja í síma 8667247 (Finnur). Lagt verður af stað frá Suðurgötu 3 (aðstöðu flokksins í Reykjavík) klukkan 17 föstudaginn 3. október. Boðið er upp á svefnpokapláss í félagsheimili Þórs en fundurinn sjálfur er haldinn í Lóni í Hrísalundi á Akureyri. Fundurinn hefst klukkan 10 á laugardeginum og lýkur klukkan 15 á sunnudeginum. Klukkustund síðar leggur rútan af stað til Reykjavíkur aftur. Landsfundagjaldið er 2.500 krónur en þau sem nýta sér ekki rútuferðina fá afslátt. Nánari dagskrá má sjá hér:
Systurflokkur Vinstri grænna í Færeyjum, Tjodveldisflokkurinn, vann stórsigur í þingkosningum í janúar, varð stærsti flokkur eyjanna og myndaði stjórn með Jafnaðarflokknum. Nú hefur sá flokkur slitið stjórnarsamstarfinu og það má helst heyra af íslenskum fjölmiðlum að það hafi verið vegna deilna um skrifstofur. Annað er að heyra frá félögum okkar sem telja að Jafnaðarflokkurinn hafi ekki verið tilbúinn til að efna stjórnarsáttmálann en í honum er kveðið á um að draga eigi úr framlögum frá Danmörku. Þetta var aðgerð í átt að sjálfstæði en þýddi að sjálfsögðu að fjárlögin þyrftu að taka mið af lægri tekjum. Í það var Jafnaðarflokkurinn ekki tilbúinn. Fleiri mál hafa verið deiluefni í ríkisstjórninni svo sem sjávarútvegsmál, jarðgangnamál og fleira. Það er til marks um pólitískan gunguhátt að nota skrifstofumál sem tylliástæðu þess að slíta stjórnarsamstarfi, eða eins og segir á heimasíðu systurflokks okkar: Politiski ryggurin hjá løgmanni hoknaði.
Lesa meiraÞriðjudag og miðvikudag í næstu viku verða haldnir nefndardagar Norðurlandaráðs hér á landi og í tilefni af því koma félagar í systurflokkum Vinstri grænna til landsins á sunnudag til að kynna sér orkumál. Farið verður með hópinn um Svartsengi og Hellisheiði auk þess sem haldið verður opið málþing um loftslagsbreytingar í Norræna húsinu mánudaginn 22. september klukkan tvö. Fyrirlesarar á málþinginu verða María Hildur Maack frá Íslenskri nýorku, Brynhildur Davíðsdóttir frá HÍ, Halldór Ármannsson frá HÍ og Árni Finnsson frá Náttúruverndarsamtökum Íslands. Málþinginu lýkur klukkan fimm og eru allir velkomnir. Til hagræðis eru félagar beðnir um að skrá sig til leiks á vg@vg.is.
Lesa meiraVið vefinn hefur nú verið bætt upplýsingum um tekjur og eignir borgarfulltrúa Vinstri grænna í Reykjavík og Árborg. Fleiri uppfærslur eru væntanlegar fljótlega. Vinstri græn leggja áherslu á gagnsæi tekna og hagsmunatengsla og lengi hefur verið hægt að nálgast upplýsingar um kjörna þingmenn hér. Upplýsingar um Svandísi Svavarsdóttur, Þorleif Gunnlaugsson og Jón Hjartarson má nálgast á upplýsingasíðu um kjörna sveitastjórnarfulltrúa.
Lesa meira
Ung Vinstri græn hafa sent frá sér svohljóðandi tilkynningu:
Í ljósi nýjustu frétta af afstöðu þingmanna Samfylkingarinnar til frumvarps um Sjúkratryggingarstofnun og einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu hvetja Ung vinstri græn til þess að stofnuð verði jafnaðarmannahreyfing innan Samfylkingarinnar sem starfi á sama grundvelli og Kvennahreyfing Samfylkingarinnar og Umhverfishreyfing Samfylkingarinnar, Græna netið.
Augljóst er að líkt og í umhverfis- og kvenfrelsismálum þarf að stofna sérstaka deild fyrir þann minnihlutahóp innan Samfylkingarinnar sem trúir á jöfnuð í samfélaginu og þrífst enn í flokknum.
Ung vinstri græn hafa fullan skilning á því að erfitt getur verið að halda fram sjónarmiðum jafnaðar í flokki þar sem þau eru augljóslega lítils metin. Eins og svo oft skiptir samtakamátturinn mestu máli og sameinaðir geta jafnaðarmenn í Samfylkingunni, ef einhverjir eru, vonandi sveigt flokkinn af núverandi leið sinni. Takist það ekki hvetja Ung vinstri græn til þess að hreyfingin gangi til liðs við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, líkt og aðrir þeir sem berjast fyrir félagslegu réttlæti.
Lesa meiraÞirðjudaginn 9. september samþykkti velferðaráð Reykjavíkurborgar stefnu í málefnum utangarðsfólks. Fulltrúi Vinstri grænna í ráðinu, Þorleifur Gunnlaugsson, hefur gagnrýnt stefnuna og finnst ekki nóg að gert. Á fundinum þar sem stefnan var samþykkt lagði Þorleifur fram eftirfarandi bókun sem lýsir vel þeim aðgerðum sem Vinstri græn vilja grípa til nú þegar:
Lesa meiraÞað hefur ekki farið fram hjá mörgum að til umræðu á Alþingi er frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar. Vinstri græn hafa gagnrýnt harðlega skort á upplýsingum, umræðu og rannsóknum á afleiðingum markaðsvæðingar heilbrigðiskerfisins, en frumvarpið er einmitt skref í þá átt. Vinstri græn hafa tekið saman ítarlegt minnihlutaálit með frumvarpinu til að kynna afstöðu sína og leggja sitt fram til að ítarleg umræða megi eiga sér stað.
Lesa meira
Vinstri græn vekja athygli á því að umræður um sjúkratryggingafrumvarp heilbrigðisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, verður tekið til 3. og síðustu umræðu á Alþingi í dag kl. 13.30. Í raun má segja að þetta sé „fyrsta“ formlega umræðan um málið því að svo var því hraðað í gegnum þingið í vor að engin umræða átti sér stað.
Þingflokkur VG varar eindregið við þeim einkavæðingaráformum sem frumvarpið ber með sér, en frumvarpinu hefur af viðurkenndum fræðimönnum verið líkt við frumvarp sem Margaret Thatcher leiddi yfir bresku þjóðina fyrir 18 árum síðan. Innviðir bresku heilbrigðisþjónustunnar hafa síðan þá verið molaðir niður og ólíðandi er að Íslendingar ætli að feta í sömu fótspor, með viðkomu í Svíþjóð þar sem svipuð þróun á sér nú stað. Lesa meira
Ung vinstri græn krefjast þess að Árni Mathiesen segi af sér sem fjármálaráðherra og mæla með því að manneskja með betri skilning á þörfum þjóðarinnar taki við. Fjármálaráðherra segist ekki hafa svigrúm til að hækka laun ljósmæðra þrátt fyrir loforð ríkisstjórnarinnar um að leiðrétta laun kvennastétta. Á sama tíma ver ríkisstjórnin 200 milljónum króna á ári í loftrýmiseftirlit. Ung vinstri græn benda einnig á að hér blasir við frábært tækifæri til að fjölga konum í ráðherraliðinu.
Ung vinstri græn skora ennfremur á ríkisstjórnina að efna gefin loforð um að leiðrétt kjör umönnunarstétta og byrja á ljósmæðrum. Bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar hafa síðustu daga viðurkennt í pontu á Alþingi að laun ljósmæðra séu óásættanleg miðað við ábyrgð og menntun. Þjóðin stendur með ljósmæðrum og vill að ríkisstjórnin standi við orð sín. Allt hefur komið fyrir ekki og nú bitna verkföll ljósmæðra á barnshafandi konum, nýbökuðum mæðrum og börnum þeirra á mikilvægustu augnablikum lífs þeirra. Slíkt ástand er ólíðandi í þjóðfélagi sem stærir sig af einu besta heilbrigðiskerfi heims og það er aum ríkisstjórn sem ekki getur staðið í lappirnar, staðið við eigin loforð og tryggt öryggi mæðra og barna.
Lesa meira
Verkfall ljósmæðra er skollið á. Ríkisstjórnin axlar ekki ábyrgð og gerir þar með yfirlýsingar og fyrirheit að engu. Stjórnarsáttmálinn er marklaust plagg. Þarfir barnshafandi kvenna skipta ekki máli og störf ljósmæðra eru lítils virði.
Þó málið varði fyrst og fremst barnshafandi konur og hið nýja líf sem þær bera í skauti sér, þá snúast störf ljósmæðra um framtíð þessa lands í heild sinni. Ekkert er mikilvægara en endurnýjun þjóðarinnar. Til að hún geti orðið með eðlilegum hætti verður að tryggja þjónustu ljósmæðra nú og um aldir alda.
Ljóst er að þjóðin stendur með ljósmæðrum. Kennarar, hjúkrunarfræðingar, læknar og flugfreyjur hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingar, auk fjölda félaga- og hagsmunasamtaka. Fram til þessa hafa konur á barneignaraldri verið í framvarðarsveit stuðningsfólks sem er eðlilegt. Nú er þó svo komið að þjóðin öll verður að láta í sér heyra. Öll höfum við fæðst. Mætum á Austurvöll kl. 12.15 og styðjum kjarabaráttu ljósmæðra.
Samstaðan er studd af eftirfarandi samtökum: Femínistafélagi Íslands, Kvenréttindafélagi Íslands, Flugfreyjufélagi Íslands, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, BHM, Læknafélagi Íslands, Kennarasambandi Íslands, Landssambandi Framsóknarkvenna, Vinstrihreyfingunni grænu framboði og Ljósmæðrafélagi Íslands. Lesa meira
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur gefið út bækling með erindi Allyson M. Pollock sem hún hélt hér á landi 29. maí síðastliðinn. Allyson M. Pollock er prófessor við Edinborgarháskóla og veitir þar forstöðu rannsóknarstofnun á sviði heilbrigðismála (Centre for International Public Health Policy). Pollock er læknir að mennt. Hún stundaði starfsnám sitt í Skotlandi og vann á sjúkrahúsum í Edinborg og Leeds áður en hún flutti til Lundúna árið 1986 þar sem hún gerðist ráðgefandi sérfræðingur í lýðheilsufræðum. Í rannsóknum sínum hefur hún m.a. fengist við fjármögnun heilbrigðisþjónustu, kostun og uppbyggingu heilsugæslu, einkafjármögnun og áhrif hnattvæðingar á heilbrigðisþjónustu. Allyson Pollock hefur oftsinnis verið kölluð til að gefa sérfræðiálit sitt fyrir heilbrigðisnefnd, samgöngunefnd og fjárlaganefnd neðri deildar breska þingsins og fyrir fjárhagsnefnd skoska þingsins. Hún er höfundur og meðhöfundur fjölda greina um áhrif Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) og hins almenna samnings um þjónustuviðskipti (GATS) á heilbrigðisþjónustu og aðra félagslega þjónustu. Bæklinginn má nálgast rafrænt á heimasíðu BSRB.
Lesa meira
Jón Bjarnason skrifar í Fréttablaðið 4. september 2008
Ljósmæður heyja nú hetjulega baráttu fyrir sanngjörnum kjarabótum og að menntun þeirra og ábyrgð sé metin að verðleikum. Ég styð baráttu ljósmæðra eindregið. Það gerir Vinstrihreyfingin – grænt framboð.
Ljósmæðramenntun er ein sú elsta sérmenntun hér á landi og skipti sköpum í stórbættu heilbrigði þjóðarinnar seint á 19. öldinni. Skipun ljósmæðra dreift á héruð landsins átti mikinn þátt í að stórlega dró úr dauða ungbarna og mæðra af barnsförum. Þær eru ljósberar hverrar fjölskyldu sem og hjá þjóðinni allri eins og hið hlýja starfsheiti „ljósmóðir“ ber með sér . Lesa meira
Þingflokkur VG hvetur til þess að sú breiða samstaða sem liggur nú fyrir um breytingar á lögum um nálgunarbann annars vegar, og bann við nektardansstöðum hins vegar, verði nýtt til að samþykkja frumvörp Kolbrúnar Halldórsdóttur þess efnis. Fyrir liggur þverpólitísk áskorun frá Borgarráði um bann við nektardansstöðum og því ekkert því til fyrirstöðu að mynda þverpólitíska sátt um málið innan Alþingis. Þá hafi í yfirlýsingum mismunandi þingmanna allra flokka myndast sátt um þörf breytinga á lögum um nálgunarbann fyrr í sumar og því lag að taka frumvarp Kolbrúnar upp og samþykkja frá Alþingi án frekari tafa.
Lesa meira
Í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi í dag beindi Katrín Jakobsdóttir fyrirspurn til fjármálaráðherra um hvað liði framtíðarlausn á kjaradeilu ljósmæðra. Fátt var um svör hjá ráðherra annað en að mikilvægt væri að semja. Verkfall ljósmæðra blasir við á morgun ef ekkert verður að gert. Í ræðu sinni dró Katrín fram nokkrar staðreyndir um kjör ljósmæðra:
Lesa meira
Katrín Jakobsdóttir gagnrýndi vinnulag Alþingis á fréttamannafundi sem VG hélt í gær og vakti athygli á því hve mörg frumvörp og þingmál – jafnvel mál sem breið samstaða væri um – döguðu uppi í þinginu. Katrín sagði áríðandi að standa vörð um sjálfstæði Alþingis og snúa yrði af þeirri braut að vera stimpilstofnun ríkisstjórnarinnar. Forseti Alþingis hefði látið þann vilja í ljósi á síðasta þingi en greinilega væri talsvert verk óunnið.
Katrín sagði tölulegar staðreyndir tala sínu máli í þessum efnum, og benti á að frá ríkisstjórninni hefðu komið 145 mál á síðasta þingi og hafi 40% þeirra verið kynnt á síðasta framlagningardegi. 120 mál af þessum 145 málum ríkisstjórnarinnar hafi verið samþykkt. Hins vegar voru einungis 10 þingmál þingmanna samþykkt af 152 sem lágu fyrir þinginu. Lesa meira
„Þingflokkur VG hefur í mörg ár framfylgt eigin siðareglum um að þingmenn gefi og birti opinberlega öll laun, eignir og önnur hugsanleg hagsmunatengsl í samfélaginu. Ég skora á aðra flokka sem írekað tala fyrir gagnsæi í orði kveðnu að fylgja fordæmi VG í verki og opinbera hagsmunatengsl þingflokka sinna með sama hætti.“ Þetta segir Þuríður Backman sem á fréttamannafundi VG í gær kynnti áherslur VG hvað varðar siðareglur þingmanna.
Þingflokkur VG telur það eiga að vera lögbundna skyldu allra þingmanna og ráðherra að upplýsa bæði um fjárhagsleg tengsl og önnur hagsmunatengsl sín, s.s. stjórnarsetu, ábyrgðarhlutverk og önnur tengsl við fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Þá ættu þingmenn og ráðherrar einnig lögum samkvæmt að skrá allar gjafir, fjárframlög, boðsferðir og boð sem kunna að lúta að hugsanlegum hagsmunatengslum. Lesa meira
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs varar eindregið við því að frumvarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um sjúkratrygginga- og innkaupastofnun verði samþykkt á septemberþingi Alþingis sem hefst í dag. Fyrirheit voru gefin um það sl. vor að farið yrði rækilega í saumana á frumvarpinu og líklegum afleiðingum þess til lengri tíma litið, en í þá vinnu hefur ekki verið ráðist af hálfu stjórnarmeirihlutans. Þingflokkur VG lagði til að þing yrði kallað saman strax að lokinni verslunarmannahelgi vegna stöðunnar í efnahagsmálum, sem einnig hefði gefið tilefni til frekari vinnu í öðrum málum. Þeirri beiðni var ekki sinnt.
„Reynsla Breta af sambærilegum kerfisbreytingum á heilbrigðisþjónustunni er í einu orði sagt hörmuleg. Ég trúi því ekki að stjórnarmeirihlutinn ætli að samþykkja þessar breytingar með bundið fyrir augun. Það er með ólíkindum af hvílíkri vanþekkingu þessi mál eru yfirleitt rædd, og hversu lítið er reynt að afla sér frekari þekkingar. Ég staðhæfi að hér sé um stórfelldar breytingar í átt til einkavæðingar að ræða, og að slíkt gangi þvert gegn vilja þorra þjóðarinnar. Það er lágmarkskrafa að um þessi mál fari fram opin og lýðræðisleg umræða sem einkennist af þekkingu en ekki blindri hugmyndafræði frjálshyggjunnar. Sporin hræða.“ segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG.
Gott samfélag byggist á traustu og öflugu velferðarkerfi, góðum samgöngum og fjarskiptum, öflugum skólum og heilbrigðisstofnunum, nýsköpun, rannsóknum og menntun. Þessi grunnþjónusta samfélagsins sem fyrst og fremst er verkefni hins opinbera, er forsenda framfara og velmegunar. Nú þegar verr horfir í efnahagsmálum er því brýnna en nokkru sinni að taka þessi mál föstum tökum. Ríki og sveitarfélög verða að forgangsraða í þágu velferðarkerfisins.
Aðgerðir verða að taka mið af stöðu kynjanna í samfélaginu, þar sem ábyrgð á uppeldi og umönnun hvílir fyrst og fremst á herðum kvenna, jafnt inni á heimilum sem þjónustustofnunum. Því er nauðsynlegt að tryggja börnum daggæslu og skólavist, góða umönnun fyrir aldraða, efla þjónustu við fatlaða og svo framvegis. Til að svo megi vera, verður að stórbæta kjör kvennastétta í velferðarþjónustu. Lesa meira
Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs varar eindregið við markaðsvæðingu velferðarþjónustunnar sem nú er unnið leynt og ljóst að.
Frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratrygginga- og innkaupastofnun í heilbrigðiskerfinu er liður í þessum áformum og verður að skoðast í því ljósi. Fráleitt er að samþykkja grundvallarbreytingar á velferðarkerfi landsmanna án þess að afleiðingarnar fái áður lýðræðislega umræðu. Þess vegna átelur flokksráðsfundurinn ríkisstjórnina fyrir að reyna að þröngva þessum lagabreytingum í gegnum þingið með offorsi. Lesa meira
Flokksráð Vinstri grænna mótmælir harðlega hótunum ríkisstjórnar um að þrengja að Íbúðalánasjóði og banna honum að veita ríkisábyrgð á almenn íbúðalán.
Slíkt hefði í för með sér lakari lánskjör fyrir húsnæðiskaupendur og er því tilræði við kjör almennings í landinu.
Fyrirhugaðar breytingar ganga þvert á fyrirheit Samfylkingarinnar sem margoft hefur lofað því að hvergi verði þrengt að Íbúðalánasjóði. Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggur áherslu á að staðinn verði vörður um samfélagslegan Íbúðalánasjóð sem þjóni öllum landsmönnum óháð búsetu.
Lesa meiraFlokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn í Reykholti dagana 29.-30. ágúst 2008 krefst þess að rekin sé póstþjónusta með almannahagsmuni í huga og án þess að íbúum á einstökum landssvæðum sé mismunað. Fundurinn mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði og skorar á samgönguráðherra og ríkisstjórnina alla að hverfa frá markaðs- og einkavæðingu póstsins.
Lesa meiraFlokksráðsfundur Vinstri grænna vill að nú þegar verði ráðist í lagabreytingar til að treysta lagaumhverfi fjármálastofnana, bæta siðferði í íslensku viðskiptalífi og tryggja réttindi almennings í landinu gagnvart yfirgangi fámenns hóps stóreignamanna. Þá þarf að skerpa á og fara ofan í vinnubrögð og aðgerðaleysi þeirra stofnana sem sinna eiga eftirlitshlutverki á fjármálamarkaði. Hagsmunir almennings eiga ávallt að vera í forgrunni.
Lesa meiraFlokksráð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ályktar að hafna skuli frumvarpi um óheftan innflutning á hráu kjöti, sem nú liggur fyrir Alþingi, og að samningaviðræður við Evrópusambandið verði teknar upp að nýju.
Lesa meiraFlokksráðsfundur Vinstri grænna haldinn í Reykholti dagana 29. – 30. ágúst 2008 ítrekar kröfu stjórnar flokksins um að ríkisstjórnin gangi strax til samninga við ljósmæður.
Neyðarástand skapast á fæðingadeildum landsins innan fárra daga þar sem fjöldi ljósmæðra hefur sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Það er ótrúlegt að enn þurfa kvennastéttir að beita hörku til að fá störf sín metin til launa. Orð stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um að jafna kjör kynjanna eru innantóm þegar stétt sem telur einungis konur mætir fálátum viðbrögðum við kröfum um að fá svipuð laun og karlastéttir með sambærilega menntun. Lesa meira
Flokksráðsfundurinn lýsir yfir stuðningi við ítarlegar tillögur Vinstrihreyfingarinnar–græns framboðs sem lagðar voru fram, bæði í frumvarpi sl. vor og nú síðast tillögur sem samþykktar voru nýlega á þingflokksfundi. Þær endurspegla þá kröfu okkar að þjóðarsátt verður aldrei hægt að byggja á viðvarandi kynjamisrétti, á því að þeir lægst launuðu borgi brúsann eða að náttúrunni verði fórnað. Þjóðarsátt verður að snúast um að snúa af leið misskiptingar, auka launajöfnuð, efla velferðarkerfið, deila skattbyrðinni á réttlátari hátt þannig að hátekjufólk og fjármagnseigendur taki þátt í samneyslunni, efla fjölbreytt atvinnulíf og byggjast á því að við sitjum öll við sama borð.
Lesa meiraFlokksráð Vinstri grænna, fagnar þverpólitískri ályktun borgarráðs Reykjavíkur, þar sem Alþingi Íslendinga er hvatt til að breyta lögum þannig að sem fyrst fáist skýrar lagaheimildir til að koma í veg fyrir rekstur nektardansstaða.
Lesa meiraFlokksráð Vinstri grænna ítrekar nauðsyn þess að Alþingi veiti lögreglunni heimild til að leggja á heimsóknar- og nálgunarbann og fjarlægja ofbeldismenn af heimilum. Það er tími til kominn að öryggi og hagsmunir fórnarlamba ofbeldis séu teknir fram yfir rétt ofbeldismanna til að halda áfram að áreita og ofsækja. Þannig vinnum við á kynbundnu ofbeldi og tryggjum sjálfsögð mannréttindi fórnarlamba ofbeldis sem eru fólgin í því að fá að dvelja óáreitt og örugg á heimum sínum.
Lesa meiraÁ tímum efnahagsþrenginga er sérstaklega mikilvægt að létta byrðar barnafjölskyldna. Menntun barna og þátttaka þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi má ekki vera háð efnahag foreldra eða tímabundnum þrengingum í samfélaginu. Flokksráð Vinstri grænna hvetur því sveitarfélögin í landinu til að forgangsraða í þágu barnafjölskyldna.
Lesa meiraFlokksráð Vinstri grænna hafnar hugmyndum um lögbindingu lágmarksstærðar sveitarfélaga. Íbúar eiga að hafa svigrúm og sjálfræði til að meta kosti og galla sameiningar við önnur sveitarfélög og ákveða með hvaða hætti samstarfi þeirra á milli skuli háttað. Flokksráðið telur brýnt að úttekt verði framkvæmd á efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum þeirra sameininga sem hafa átt sér stað á undanförnum árum.
Lesa meiraFlokksráð Vinstri grænna beinir því til sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu að gæta jafnræðis og veita öllum námsmönnum frítt í strætó óháð lögheimili.
Lesa meiraAlmenningssamgöngur eru ekki einkamál sveitarfélaga. Þau varða umhverfi og efnahag allra landsmanna. Ríkið verður að axla ábyrgð og taka þátt í kostnaði vegna þeirra. Lagasetning í þá veru á að vera forgangsmál á komandi vetri.
Lesa meiraSveitarfélög eru misvel í stakk búin til að veita sjálfsagða og nauðsynlega grunnþjónustu. Á næstu tveimur árum er meðal annars nauðsynlegt að auka framlag ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna um 5 milljarða árlega. Á sama tíma verður gagnger endurskoðun að eiga sér stað á tekjuskiptingu vegna núverandi verkefna og tekjustofnum sveitarfélaga í heild sinni. Sveitarfélögin í landinu þola enga bið.
Lesa meira
Þau eru stundum snögg veðrabrigðin á Íslandi eins og t.d. göngumenn á Laugaveginum hinum eystri fengu að reyna á dögunum þegar þeir lentu allt í einu í hálfgerðri stórhríð við Hrafntinnusker. En veðrabrigðin geta líka verið snögg í efnahagslífinu og í þjóðmálaumræðunni. Á innan við ári, svona 6-9 mánuðum, hafa orðin „efnahagserfiðleikar“, jafnvel „kreppa“, tekið við af orðinu „ðæri“ og rutt því svo rækilega úr vegi að það heyrist nú aldrei nefnt nema þá í þátíð. Það undarlega eru ekki þessi efnahagslegu veðrabrigði – þau voru löngu fyrirsjáanleg hér á Íslandi. Hitt sætir hins vegar furðu, að helstu ráðamenn þjóðarinnar í bæði núverandi og úr fráfarandi ríkisstjórn, skuli vera því sem næst klæðalausir á berangri þegar bylurinn skellur á.
Lesa meira
Klukkan 17 í dag verður flokksráðsfundur Vinstri grænna settur í Snorrastofu í Reykholti. Á dagskrá eru fjölmörg mál en áherslan verður í upphafi lögð á efnahagsmálin og sveitastjórnarmálin. Tæplega eitt hundrað fulltrúar alls staðar af landinu eru skráðir til leiks, kjörnir fulltrúar í sveitastjórnum og á Alþingi, formenn svæðisfélaga, fulltrúar í flokksráði sem eru kjörnir á landsfundi og fulltrúar ungliða. Fundurinn stendur fram á morgundag. Dagskráin er svohljóðandi:
Lesa meiraBorgarráð sendi í dag frá sér ályktun þar sem skorað er á Alþingi að breyta lögum þannig að sem fyrst fáist skýrar lagaheimildir til að koma í veg fyrir starfsemi nektardansstaða. Um þetta náðist þverpólitísk samstaða og liggur beinast við að samþykkja frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur sem liggur fyrir Alþingi að felldar verði úr gildi undanþáguheimildir um bann við nektardansi. Frumvarpið má nálgast hér.
Lesa meiraÍ dag var til umfjöllunar í borgarráði umsögn um nektardansstaði í Reykjavík en forsenda rekstrarleyfis er meðal annars jákvæð umsögn borgaryfirvalda. Vinstri græn og Samfylking lögðu til að borgin legðist gegn starfsemi nektardansstaða í sínum umsögnum á forsendum mannréttindastefnu borgarinnar. Því var því miður hafnað. Tillaga Vinstri grænna og Samfylkingarinnar að umsögn var svohljóðandi:
Lesa meiraÞorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi ritar:
Jórunn Ósk Frímannsdóttir skrifar grein í 24stundir á fimmtudag en þar talar hún fyrir útboði á sorphirðunni í Reykjavík. Jórunn er greinilega mikil áhugamanneskja um einkavæðingu og réttindi bisnessmanna en hún hefur aftur á móti greinilega ekki staðgóða þekkingu á málefnum sorphirðunnar. Þannig má sjá í grein hennar fullyrðingar eins og þessa "Græna tunnan kom nýverið til sögunnar, en þar var borgin að elta einkaaðila". Þarna er Jórunn að fara með rangt mál vegna þess að græna tunnan sem borgin hefur boðið upp á síðan 2004 er fyrir þá sem flokka sjálfir hluta úrgangsins og fara með á endurvinnslustöðvarnar. Þetta fólk kemst af með lægra sorphirðugjald þar sem tæmingin fer fram sjaldnar. Með "grænu tunnunni" sem einkaaðilar bjóða er boðið upp á aðra þjónusta og hún kom á markað síðar en "græna tunna" borgarinnar.
Lesa meiraFélag vinstri grænna í Skagafirði mótmælir harðlega þeim áformum meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur að flugvöllurinn skuli úr Vatnsmýrinni. Félagið krefst þess að sjónarmið og þarfir landsmanna allra séu hafðar að leiðarljósi þegar framtíðarstaður flugvallarins verður ákveðinn.
Í ályktuninni segir að nýr meirihluti í borginni gangi nú þvert á vilja landsbyggðarinnar með því að gera það að sínu fyrsta verki að sparka flugvellinum úr borginni.
Lesa meira
Föstudaginn 29. ágúst hefst flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykholti, en slíkir fundir eru haldnir að jafnaði tvisvar á ári. Það stefnir í góða mætingu bæði flokksráðsfulltrúa og almennra félaga en flokksráðið telur ríflega 100 manns. Það skipa kjörnir fulltrúa flokksins í sveitarstjórnum og á Alþingi, varaþingmenn, formenn svæðisfélaga og kjördæmisráða, formenn ungliða auk landsfundakjörinna fulltrúa í flokksráði
Lesa meira
Laugardaginn 23. ágúst var mikið um að vera hjá Vinstri grænum. Opnuð var félagsmiðstöð á Egilsstöðum þar sem er aðstaða fyrir aðstoðarmann Þuríðar Backman þingkonu, Huginn Frey Þorsteinsson. Miðstöðin er í gömlu slátursölunni í Kaupvangi 5 og mætti fjöldi manns við opnunina og gæddu sér á kaffi og kökum og nutu góðs félagsskapar og pólitískra samræðna. Í Reykjavík lögðu Vinstri græn sitt af mörkum til menningarnætur og buðu upp á vöfflur og kaffi í aðstöðu flokksins að Suðurgötu 3. Menningarnótt var frekar blaut að þessu sinni og þurfti regnhlíf til að skýla skilaboðunum eins og sést á myndinni. Vinstri græn létu það þó ekki á sig fá og stóð félagslífið í blóma.
Lesa meira
Neyðarástand skapast á fæðingadeildum landsins innan fárra vikna þar sem fjöldi ljósmæðra hefur sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Það er ótrúlegt að enn þurfa kvennastéttir að beita hörku til að fá störf sín metin til launa. Orð stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um að jafna kjör kynjanna eru innantóm þegar stétt sem telur einungis konur mætir fálátum viðbrögðum við kröfum um að fá svipuð laun og karlastéttir með sambærilega menntun.
Lesa meira
Sveitastjórnarfulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði telja ekki annað koma til greina en að leggja nýja háspennulínu yfir héraðið í jörð og setja spurningamerki við umfang framkvæmdanna. Páll Dagbjartsson Sjálfstæðisflokki og Bjarni Jónsson Vinstri grænum kynntu afstöðu sína gagnvart áformum Landsnets um lagningu háspennulínu frá Blöndustöð til Akureyrar á byggðaráðsfundi sveitafélagsins Skagafjarðar:
Lesa meira
Í dag tók enn nýr meirihluti við stjórn Reykjavíkurborgar og heitt var í kolunum á borgarstjórnarfundi. Ræða Svandísar Svavarsdóttur borgarfulltrúa Vinstri grænna við það tækifæri var svo:
Forseti – borgarfulltrúar – enn erum við saman komin hér í sölum borgarstjórnar Reykjavíkur til að skipta um meirihluta í borgarstjórn.
Almenningur vill skynsemi og yfirvegun. Kjósendur vilja stöðugleika og sanngirni. Sama hvaða flokk þeir kjósa. En hvað hafa þeir fengið á þessu kjörtímabili?
Lesa meira
Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur virðist ætla að halda uppteknum hætti Óskars Bergssonar, þar sem konur eru varaskeifur en karlar aðal. Kosning í borgarráð, sem fer með æðstu stjórn borgarinnar milli borgarstjórnarfunda fór þannig að Óskar Bergsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvarsson eru aðalmenn en til vara eru Jórunn Frímannsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Sif Sigfúsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk og Guðlaugur Sverrisson fyrir Framsóknarflokk.
Kosningin er til marks um gamaldags viðhorf í jafnréttismálum og vanmat á mikilvægi þess að rödd beggja kynja heyrist í lýðræðissamfélagi. Meirihluti gamaldags karlamenningar er ekki líklegur til að vinna að framgangi jafnréttis kynjanna hjá borginni, þó brýna nauðsyn beri til.
Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi Vinstri grænna var að kveðja Ólafa F. Magússon í morgun og segir að „þrátt fyrir allt og þá óstjórn sem var í borginni þá hafi Ólafur staðið á bremsunni gagnvart Sjálfstæðisflokknum í málum náttúruverndar, húsafriðunar og einstaka velferðarmálum. Sá meirihluti sem nú tekur við fer óheft gegn hagsmunum borgarbúa í þessum málum. Starf okkar fram að næstu kosningum mun snúast um það að forða borgarbúum eins og hægt er frá virkjana- og steinsteypuhugsun nýs meirihluta. Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum, borgarsjóður stendur frekar illa, Orkuveita Reykjavíkur er stórskuldug og nýr meirihluti hefur boðað niðurskurð og óvinsælar aðgerðir. Okkar áherslur munu sem fyrr vera í velferðar-, mennta- og mannréttindamálum. Við höfum nú þegar lagt fram tillögur um að ekki verði farið í stokkagerð við Geirsgötu sem kosta munu á annan tug milljarða. Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að efla velferðarkerfið og menntakerfið sérstaklega með jafnrétti í huga. Fyrrverandi meirihluti stöðvaði útboð á sorphirðu í Reykjavík en nú er búið að ýta hindrunum markaðsvæðingar úr vegi og ljóst að Framsóknarflokkurinn mun ekki standa í lappirnar hvað það varðar. “
Lesa meira
Jón Bjarnason ritar á bloggið sitt:
Sparisjóður Strandamanna gekk bærilega á fyrstu 6 mánuðum ársins 2008 miðað við þær aðstæður sem ríkja á fjármálamörkuðum og í hagkerfinu um þessar mundir. Staða Sparisjóðs Strandamanna er því áfram mjög sterk. Svokallað CAD- hlutfall sem oft er miðað við til að meta stöðu fjármálastofnana er 34,7% hjá Sparisjóði Strandamanna en má lægst vera 8%. Þetta er haft eftir Guðmundi B. Magnússyni sparisjóðsstjóra á strandir.is.
Þessi frétt staðfestir að þar sem sparisjóðirnir hafa starfað samkvæmd grunnhugsjónum sínum ganga þeir vel þótt tímabundið gefi á . Þeir sparisjóðir sem hinsvegar urðu „græðginni“ að bráð leggja nú upp laupana hver á fætur öðrum sem félagsleg stofnun í eigu heimamanna , nú síðast Sparisjóður Mýrasýslu.
Lesa meiraAlmennir stofnfjárhafar í Sparisjóði Skagafjarðar fóru margítrekað fram á það við Fjármálaeftirlitið að það hlutaðist til um að farið yrði að lögum í aðdraganda yfirtöku Sparisjóðs Mýrasýslu og tengdra aðila á Sparisjóði Skagafjarðar. Þá var margsinnis óskað eftir því að FME færi ofan í gjörninga manna er að yfirtökunni stóðu í ljósi alvarlegra og rökstuddra athugasemda um meint ólögmæti þeirra. Jafnframt var óskað eftir því við viðskiptaráðherra að hann beitti sér fyrir því að FME rannsakaði málið og svaraði erindum og fyrirspurnum sem til þess hafði verið beint. Fyrstu viðbrögð bárust hinsvegar ekki fyrr en 7 mánuðum eftir yfirtökuna í formi staðfestingar á samruna sparisjóðanna.
Lesa meira
Flokksráðsfundur Vinstri grænna verður haldinn dagana 29.-30. ágúst næstkomandi í Reykholti. Í flokksráði eiga sæti 30 landsfundakjörnir fulltrúar, allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaþingmenn, formaður UVG, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmaráða auk þess sem formenn svæðisfélaga ungliða eru sérstaklega boðnir. Fundurinn er að öðru leyti opinn öllum félögum í Vinstri grænum. Áherslan að þessu sinni verður lögð á efnahagsmál, sveitastjórnarmál og velferðarmál eins og dagskráin gefur til kynna:
Lesa meiraÁlyktun frá þingflokki VG, 12. ágúst 2008.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur brýnt, og raunar óhjákvæmilegt, að stórefla almenningssamgöngur í þéttbýli. Sveitarfélög hafa um langt árabil sinnt almenningssamgöngum af veikum mætti og án þess að um lögbundið verkefni sveitarfélaga sé að ræða. Þau hafa einnig ítrekað óskað eftir aðkomu ríkisvaldsins að þessum þætti samgangna eins og öðrum. Þingmenn VG hafa lagt fram þingmál í þeim tilgangi að styrkja almenningssamgöngur en þau hafa ekki enn fengist afgreidd.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á almenningssamgöngur en því miður virðast það einungis vera orð á blaði, án innihalds. Viðbrögð samgönguráðherra við kröfu sveitarfélaganna um aðkomu ríkisins að almenningssamgöngum valda vonbrigðum og lýsa skilningsleysi hans á vaxandi mikilvægi góðra og öflugra almenningssamgangna í nútíma þjóðfélagi.
Lesa meira
Í síðustu viku dæmdi hæstiréttur framhald nálgunarbanns óþarft í máli þar sem fyrrum sambýlismaður beitti konu sína mjög grófu andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Dómur í málinu sjálfu er ekki fallinn en það þykir svo alvarlegt að gefin var út opinber ákæra og brotamaðurinn sætti gæsluvarðhaldi í tvær vikur. Dómurinn hefur enn á ný vakið umræðu um hvernig samfélagið geti verndað konur gegn ofbeldi og hvaða lagarammi þurfi að vera til staðar. Í þessu samhengi er litið til frumkvæðis Austurríkismanna en árið 2001 fólu þeir lögreglunni það vald að setja nálgunarbann tafarlaust á ofbeldismenn, Lögreglan fékk jafnframt heimild til að fjarlægja menn af heimilinu. Austurríkismenn stóðu vel að lagasetningunni og henni fylgdu ýmis félagsleg úrræði svo sem stuðningur við fórnarlambið og ráðgjöf til handa ofbeldismanni og fórnarlambi.
Lesa meiraFélagsfundur Vinstri grænna í Borgarbyggð sem haldinn var í Englendingavík þann 6. ágúst 2008, lýsir hryggð sinni og furðu yfir því hvernig komið virðist fyrir Sparisjóði Mýrasýslu. Sjóðurinn hefur verið ómetanlegur bakhjarl allri starfsemi í héraðinu og verðmætasta eign sveitarfélagsins. Sparisjóðurinn hefur á undanförnum árum skilað verulegum rekstrarafgangi, og aldrei sem síðustu tvö ár, en virðist nú skyndilega standa á brauðfótum, - hvernig má slíkt gerast?
Lesa meira
Borgarstjórnarflokkur Vinstri grænna lýsir yfir vonbrigðum með nýútgefna umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um rekstur á nektardansstaðnum Goldfinger.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur haft mikið að segja í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi allt frá því hann hóf störf, og þar með sýnt rannsóknum og reynslu af þessum málum skilning og tekið á þeim mark. Í fyrri umsögn sinni um Goldfinger lagðist hann gegn leyfisveitingu, en nú virðist sem hann hafi verið þvingaður til að breyta afstöðu sinni til málsins.
Lesa meiraUm mánaðarmótin rennur út frestur til að gera athugasemd við auglýst aðalskipulag Flóahrepps 2006-2018 í fyrrum Villingaholtshreppi, en skipulagið gerir ráð fyrir Urriðafossvirkjun. Það er því mikilvægt fyrir okkur sem viljum vernda Þjórsá að láta hressilega í okkur heyra. Meðfylgjandi er bréf sem unnendur Þjórsár hafa skrifað og tíundar helstu athugasemdir. Að sjálfsögðu má styðjast við bréfið en mikilvægt er að senda það undirritað og í venjulegum pósti og stíla það á Flóahrepp, Þingborg, 801 Selfoss.
Lesa meiraSamarendra Das er indverskur aktívisti, rithöfundur, og kvikmyndagerðamaður. Hann er afar fróður um áliðnaðinn og getur fjallað um hann frá fjölmörgum sjónarhornum; t.d. tengsl hans við menningarleg þjóðarmorð í þriðja heiminum í tengslum við báxítgröft, tengsl hans við hergagnaiðnaðinn og stríðsrekstur, og almennt um hnattrænar afleiðingar hans.
Þessa dagana stendur Samarendra aðallega í baráttu fyrir réttindum innfæddra í Orissa-héraðinu á Indlandi, þar sem fyrirhugaður báxít-gröftur námufyrirtækisins Vedanta mun leiða af sér menningarlegt þjóðarmorð, ef af honum verður.
Hinn 22. júlí síðast liðinn var hann í Friðarhúsi og fjallaði sérstaklega um tengsl áliðnaðarins við framleiðslu hergagna og stríðs. Í gær, 23. júlí, var hann ásamt Andra Snæ Magnasyni í Reykjavíkurakademíunni, Hringbraut 121 og stýrði umræðum sem brjóta á bak aftur goðsögnina um svokallaða "hreina" og "græna" álframleiðslu hér á landi.
Í kvöld verður Samarendra Das í Reykjanesbæ og talar á Hafnargötu 22, efri hæð, (Suðsuðvestur), klukkan 19.30. Eflaust verður málefni svæðisins í brennidepli, og rætt um hugsanlegar framkvæmdir í Helguvík.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs kom saman til fundar í dag, mánudaginn 21. júlí, og ræddi horfur í efnahags- og atvinnumálum. Í lok fundar var eftirfarandi ályktun afgreidd og sömuleiðis samþykkt að senda meðfylgjandi bréf:
Þær alvarlegu horfur sem nú eru í efnahags- og atvinnumálum Íslendinga voru fyrirsjáanlegar og við þeim var varað af Vinstrihreyfingunni – grænu framboði allt frá árunum 2004-2005. Hinar ofvöxnu stóriðjufjárfestingar, skattalækkanir á þenslutímum, skuldsett útrás og gáleysisleg framganga nýeinkavæddra banka leiddi ásamt fleiru af sér þenslu, verðbólguþrýsting og geigvænlegan viðskiptahalla sem að lokum hlaut að verða til stórfelldra vandræða í efnahags- og atvinnulífinu. Hagvöxtur reyndist í allt of miklum mæli byggður á erlendri lántöku og aukinni skuldsetningu þjóðarbúsins og var um of neyslu- og eyðsludrifinn. Lesa meira
Á sumrin nýta þingmenn tímann til að heimsækja staði og hitta fólk. Á dögunum var Steingrímur J. Sigfússon á ferð um Norðausturkjördæmi. Þann 10. júlí var Norðurþing heimsótt og endaði ferðin upp á Þeystareykjum og inn í Gjástykki. Ferðin var farin með fulltrúa Vg í sveitastjórn Norðurþings, Aðalsteini Erni Snæþórssyni, en hann gjörþekkir bæði þessi svæði. Veðrið var sérstaklega gott og því reyndist ferðin vera einstakt tækifæri til að skoða þessar náttúruperlur sem mikið hafur verið rættu um þessi svæði að undaförnu.
Lesa meiraFélagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði eru hvattir til að mæta fyrir utan dómsmálaráðuneytið í Skuggasundi í hádeginu í dag og láta í sér heyra vegna hins dæmalausa máls Pauls Ramses. Þá minnum við á undirskriftalista á netinu sem felur í sér áskorun til dómsmálaráðherra og forstjóra útlendingastofnunar að bæta fyrir mannréttindabrotin gegn Paul og fjölskyldu hans. Undirskriftalistann má nálgast hér: http://www.thepetitionsite.com/1/PaulRamses
Lesa meira
Þingflokkur Vinstrihreyfinginnar – græns framboðs skorar á ríkisstjórnina að segja þjóðinni satt og hætta þeim leiða ávana að svíkja kerfisbundið þau loforð sem þjóðinni eru gefin. Þingflokkurinn skorar einnig á ríkisstjórnina að hætta að breiða yfir blekkingarnar með spuna og innantómum yfirlýsingum sem engin innistæða er fyrir.
Lesa meira
VG hvetur alla til að fjölmenna á Náttúru - tónleika Bjarkar og Sigur Rósar ásamt Ólöfu Arnalds til stuðnings náttúruvernd á Íslandi. Tónleikarnir verða haldnir laugardaginn 28. júní í brekkunni fyrir ofan þvottalaugarnar í Laugardal í Reykjavík. Byrjað verður að hleypa einn á svæðið klukkan 17. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og gefa þeir aðilar sem að tónleikunum standa alla sína vinnu.
Lesa meira
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð skorar á Samfylkinguna að beita völdum sínum og áhrifum innan ríkisstjórnarinnar til að bjarga Þjórsá. VG heitir fullum stuðningi við að hjálpa Samfylkingunni að standa í lappirnar og efna kosningaloforðin um stóriðjuhlé, enda ríður á að láta verkin tala í þágu náttúruverndar og skynsemi. VG gagnrýnir framferði Landsvirkjunar harðlega og minnir á að fyrirtækið er alfarið í eigu ríkisins. Fyrirtækið vinnur því í umboði ríkisstjórnarinnar að virkjunum í Þjórsá og ríkisstjórnin hefur í hendi sér að snúa þróun mála við og hverfa af braut frekari stóriðjuáforma og eyðileggingar.
Þingflokkur VG minnir á að ríkið á vatnsréttindin við Þjórsá og Alþingi hefur ekki gefið neina heimild til framsals eða sölu á þessum réttindum til Landsvirkjunar. Það er ósvífið af hálfu Landsvirkjunar, og vanvirðing við Alþingi, að veifa þessum vatnsréttindum sem einkaeign fyrirtækisins og knýja þannig á um samninga og virkjanir. Sömuleiðis er það ósvífið af ríkisstjórninni að sitja hjá á meðan þessu fer fram og halda þannig til streitu ólýðræðislegum vinnubrögðum. Björgvin G. Sigurðsson ráðherra, sem lofaði því þráfaldlega fyrir kosningar að bjarga Þjórsá, tekur nú glaðbeittur skóflustungu að álveri í Helguvík og ríkisstjórnin leyfir Landsvirkjun áfram að haga sér eins og ábyrgðarlaust ríki í ríkinu. VG skorar á Björgvin að standa við fyrri loforð og hvetur um leið Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðhera til að beita sér í málinu af öllu afli og gefast ekki upp fyrr en sigur er unninn.
Lesa meira
Á borgarráðsfundi nú í morgun var einróma samþykkt að hafna beiðni Strawberries um undanþágu til að reka nektardansstað. Að því tilefni bókaði minnihluti borgarráðs þannig:
Borgarráðsfulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokks fagna því að borgarráð skuli leggjast einróma gegn veitingu nektardansleyfis í dag þegar 93 ár eru liðin frá því konur fengu kosningarétt og kjörgengi. Synjunin er til marks um mikinn árangur í jafnréttismálum, enda er baráttan gegn klámvæðingunni eitt helsta verkefni nútímans. Reykjavíkurborg hefur á umliðnum árum verið í fararbroddi í þeirri vinnu og afar brýnt að svo verði áfram.
Að sama tilefni lagði minnihlutinn fram svofellda tillögu sem var einróma vísað til mannréttindaráðs:
Borgarráð samþykkir að láta vinna aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn kynbundnu ofbeldi, sem byggð verður á Mannréttindastefnu borgarinnar. Aðgerðaráætlunin taki á hlutverki borgarinnar sem veitanda þjónustu, sem atvinnurekanda, sem stjórnvalds og sem samstarfsaðila, en vinnan við hana verði með sambærilegum hætti og aðgerðaráætlun gegn mansali sem verið er að vinna á vegum Félagsmálaráðuneytisins. Þannig verði skipaður starfshópur kjörinna fulltrúa og sérfræðinga hjá borginni, en jafnframt verði óskað eftir tilnefningum frá Stígamótum, Samtökum um kvennaathvarf og Neyðarmóttöku vegna nauðgunar.
Mannréttindastjóra verði falið að skipa hópinn sem skili niðurstöðum eigi siðar en 8. mars 2009.
Lesa meira
Nú er ljóst að Írar hafa hafnað Lissabon-sáttmálanum svokallaða. Írska þjóðin var eina aðildarþjóð ESB sem kaus um sáttmálann í þjóðaratkvæðagreiðslu og þrátt fyrir að kannanir hafi bent til þess að sáttmálinn yrði samþykktur virðist sem málflutningur þeirra sem efuðust um sáttmálann hafi unnið á og haft betur að lokum. Embættismannakerfið í Brussell ákvað að breyta nafnið á stjórnarskránni í sáttmála og þar með komast framhjá þjóðaratkvæðagreiðslum um málið enda felldu Frakkar og Hollendingar stjórnarskránna í slíkri atkvæðagreiðslu árið 2005. ESB þorði því ekki að halda áfram með málið enda voru þessar þjóðir látnar kjósa fyrst enda var talið öruggt að þær myndu samþykkja stjórnarskránna en báðar þjóðir taldar einna hliðhollastar sambandinu. Írland er eina landið þar sem greitt er atkvæði í almennum kosningum um sáttmálann og því eru úrslitin reiðarslag fyrir Evrópusambandssinna. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar á Írlandi þýðir að sáttmálinn verður ekki tekinn upp því krafist var samþykkis allra aðildarríkja. Í hinum 26 ríkjunum samþykktu þjóðþingin sáttmálann.
Lesa meiraÁ veturna gefst síður tækifæri fyrir þingmenn að fara um landið og ræða málin við félaga. Þegar þingi lauk fóru þingmenn, varaþingmenn og starfsmenn Norðausturkjördæmis í ferð um kjördæmið og má sjá hópinn gæða sér á kræklingum við það tækifæri. Á myndinni eru Þuríður Backman þingkona, Steingrímur J. Sigfússon þingmaður, Björn Valur Gíslason varaþingmaður, Víðir Björnsson framkvæmdastjóri Norðurskeljar og Bjarkey Gunnarsdóttir varaþingkona.
Lesa meiraAtli Gíslason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og nefndarmaður í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, hefur sent Arnbjörgu Sveinsdóttur, formanni nefndarinnar, Einari K. Guðfinnsyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra, bréf þar sem að krafist er allra gagna er varða samningaviðræður Íslands við ESB vegna svokallaðs matvælafrumvarps þar sem opnað er fyrir innflutning á hráu kjöti.
Lesa meiraInnri endurskoðun Reykjavíkurborgar hefur nú lokið skoðun á afgreiðslu Velferðarráðs þar sem ákveðið var að semja við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun um búsetuúrræði fyrir tuttugu einstaklinga sem eiga við fíkniefna- og áfengisvanda að stríða. Innri endurskoðun hóf skoðun sína eftir að undirritaður hafði samband við Innri endurskoðanda og bar undir hann rök sviðsstjóra Velferðarráðs fyrir því, “að samið verði við Heilsuverndarstöðina / Alhjúkrun þrátt fyrir að þeir séu ekki með lægsta tilboð” eins og segir í greinargerð sviðsstjóra Velferðarsviðs um málið.
Innri endurskoðun rannsakar ekki mál nema ástæða þyki til en hún taldi rök Velferðarsviðs ófullnægjandi og fór fram á frekari rökstuðning. Nú, tæpum þremur vikum síðar birtist rökstuðningur Velferðarsviðs á fundi Velferðarráðs í gær. Í stuttu máli er ekki hrakið að tilboð SÁÁ hafi verið lægst en því haldið fram að Heilsuverndarstöðin/Alhjúkrun sé betur í stakk búið til að sinna úrræðinu á faglegan hátt og að “Velferðarsvið styðji við þróun og samkeppni á markaði í félags- og heilbrigðisþjónustu”
Lesa meira
Vinstrihreyfingin – grænt framboð lýsir furðu sinni á þeim rýru og efnislitlu svörum sem ríkisstjórn Íslands hefur sent Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna.
Ríkisstjórnin hefur haft 6 mánuði til að taka álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna alvarlega og bregðast við með ítarlegum hætti. Svarbréfið sem nú loks liggur fyrir er að uppistöðu til langdregin endurtekning á þeim vörnum sem íslenska ríkið hélt uppi í málinu þegar það var tekið fyrir á sínum tíma. Í niðurlagi svarbréfsins er svo loks rýr og efnislítil klausa um að hugað verði að lengri tíma áætlun um endurskoðun á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu, eða aðlögun í átt að áliti mannréttindanefndarinnar.
Engar tímasetningar koma fram, ekkert efnisinnihald, engin aðferðafræði, ekkert boðað samráð og engin sérstök markmið. Í engu er tiltekið hvernig yfirvöld hafi nú þegar reynt að bregðast við álitinu á því hálfa ári sem liðið er.
Lesa meira
Á vef Lyfjavers má lesa áhugaverða frétt um afleiðingar breytinga á lyfjalögum sem samþykktar voru á yfirstandandi þingi. Í nýju lögunum eru afslættir af smásölu lyfja bannaðir og getur þetta haft í för með sér hækkun lyfja til þeirra sem á þurfa að halda. Í minnihlutaáliti fulltrúa Vinstri grænna í heilbrigðisnefnd kemur meðal annars fram: „Íslenskur lyfjamarkaður einkennist af fákeppni sem bitnar harkalega á þeim sem síst skyldi, þ.e. sjúklingum sem hafa lítið val um hvaða lyf þeir kaupa eða hvort þeir yfirhöfuð verða að kaupa lyf. Minni hlutinn telur miður að stjórnvöld skuli ekki telja aðra leið færari til að lækka lyfjaverð á þessu stigi en að banna alla afslætti sem sjúklingar fá nú yfir borðið í apótekum. Einkum er þetta bagalegt fyrir örorku- og ellilífeyrisþega og þá hópa sjúklinga sem eru háðir tilteknum lyfjum ævilangt og hafa jafnvel fyrir atbeina hagsmunasamtaka sinna náð fram afsláttum í lyfjabúðum á tilteknum lyfjum. Eins hafa apótekin fram til þessa veitt slíkum sjúklingum einhvers konar magnafslátt. Minni hlutinn telur víst að mörgum muni bregða við þegar lyfjaverð hækkar 1. október nk. við gildistöku laganna og hefði talið rétt að vísa þessu ákvæði frumvarpsins til frekari vinnslu í nefnd þeirri sem nú hefur lyfjakostnað landsmanna til skoðunar og kennd er við Pétur H. Blöndal alþingismann. Minni hlutinn getur ekki stutt þessa breytingu.“ Á síðu Lyfjavers eru gefin dæmi um hækkun lyfjanna og er fólk hvatt til að kynna sér hana.
Lesa meiraVG-í Reykjavík efnir til opinnar ferðar á slóðir “Bitruvirkjunar” miðvikudaginn 11. júní. Fararstjóri verður Björn Pálsson, héraðsskjalavörður í Hveragerði. Björn gjörþekkir náttúru þessa svæðis, sögu þess og virkjunaráform á þessum slóðum með þeim umbreytingum sem slíku myndi fylgja. Farið verður á einkabílum og er ætlunin að reyna að sameinast í bíla. Því er æskilegt að menn tilkynni þátttöku fyrirfram til Drífu Snædal í síma 552 8872.
Áformað er að leggja af stað frá Olísstöðinni við Rauðavatn kl. 17:00 og hitta Björn við merkta veginn upp að Ölkelduhálsi, austarlega á Hellisheiði um kl. 17:30. Reiknað er með að ferðin taki um 3 klst. Ef einhverjir sem hug hafa á þátttöku komast ekki kl. 17 er ekkert því til fyrirstöðu að koma inn í hópinn síðar, með því að keyra inn eftir Ölkelduhálsvegi og hitta á hópinn þar. Skynsamlegt er að hafa með sér létt nesti og góða skó.
Baráttunni um það hvað verður um þetta svæði er langt í frá lokið enda margvíslegir hagsmunir í húfi. Það er því mikilvægt að sem flestir kynni sér þetta svæði með eigin augum og fjölmenni í skemmtilega og fróðlega ferð.
Allir velkomnir.
Á síðasta þingi sínu lagði Hjörleifur Guttormsson til að stofnaður yrði Vatnajökulsþjóðgarður sem samanstæði af fjórum þjóðgörðum á miðhálendi Íslands og myndu þeir hafa innan sinna marka helstu jökla og aðliggjandi landsvæði. Þessi tillaga var samþykkt og umhverfisráðherra, skipulagsyfirvöldum og hugsanlegum rétthöfum falið að undirbúa stofnunina með það að markmiði að þjóðgarðurinn yrði að veruleika árið 2000. Um helgina varð þjóðgarðurinn loks að veruleika, 10 árum eftir að Hjörleifur flutti tillöguna á Alþingi. Vinstri græna óska Hjörleifi hjartanlega til hamingju með árangurinn, það er ljóst að án hans baráttu fyrir náttúruvernd og þjóðgörðum á hálendinu hefði garðurinn ekki orðið að veruleika.
Lesa meira
Sumarið er tíminn og hann ætlum við að nýta til að hittast, grilla, syngja og greiða lokka við Galtará. Veislan er að frumkvæði félaga í Norðvesturkjördæmi og verður haldin 21. júní við Fjallaskála að Galtará á Eyvindastaðheiði, keyrt er að sunnan gegnum Blönduós og fylgt merkingum að Blöndulóni. Skálinn er nálægt Blöndulóni (vegur F734) og er fólksbílafært. Nokkur svefnpokapláss eru í boði í skálanum og kostar nóttin 1.700 kr. Tjalda má að kostnaðarlausu við skálann. Vinstri græn bjóða upp á grill og skemmtun, mætið snemma dags og njótið fallegs umhverfis í góðum félagsskap. Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina fyrir 13. júní á netfanginu vg@vg.is eða í síma 552 8872. Við sameinumst í fólksbíla – látið vita hvaðan þið komið, hvort þið hafið laus pláss í bílunum eða vantar far.
Málefnahópur Vinstri-grænna um Evrópumál er nú tekinn til starfa og heldur annan fund sinn á morgun, þriðjudaginn 3. júní, kl. 20.00 í Suðurgötu 3. Áhugasamir sem vilja taka þátt í hópnum og vera á póstlista hans eru beðnir um að senda Katrínu Jakobsdóttur skeyti á katrinja@althingi.is.
Lesa meira
Samkomulag náðist um nýtt meirihlutasamstarf í Dalabyggð í dag milli V-lista Vinstri grænna og H-lista. Unnið verður að málefnasamningi næstu daga og stefnt er að því að auglýsa sveitastjóraembættið laust til umsóknar á allra næstu dögum. Sveitastjórnarfulltrúar Vinstri grænna þau Þorgrímur E. Guðbjartsson og Halla S. Steinólfsdóttir líta björtum augum á meirihlutasamstarfið og telja alla möguleika á góðum málefnasamningi.
Lesa meira
Nú er Alþingi lokið í bili eftir stíf fundahöld síðustu daga. Áhersla Vinstri grænna var að stöðva nokkur stjórnarfrumvörp og fá frekari umræðu um þau. Þetta tókst með ágætum enda var matvælafrumvarpinu undeilda frestað svo og lögum um sjúkratryggingastofnun svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru bæði stórmál sem þurfa mun meiri umfjöllun. Það eru ekki mörg þingmannamál sem hljóta afgreiðslu hverju sinni en annað þeirra sem var samþykkt var þingsályktunartillaga Katrínar Jakobsdóttur um að Alþingi fordæmi ólöglega og ómannúðlega meðferð á föngum í búðum Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu. Ríkisstjórninni er falið að koma þessari ályktun á framfæri á alþjóðavettvangi. Þetta er sérstaklega viðeigandi þar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir situr nú fundi með utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezu Rice og hefur því prýðilegt tækifæri til að koma fordæmingu Alþingis á framfæri.
Lesa meira
Dr. Allyson Pollock prófessor við háskólann í Edinborg í Skotlandi heldur morgun-verðarerindi hjá BSRB fimmtudaginn 29. maí kl. 8.15 - 10. Félagar í Vinstri grænum er sérstaklega hvattir til að hlusta á Dr. Pollock en hún hefur fylgst gaumgæfilega með afleiðingum markaðsvæðingar heilbrigðiskerfisins í Bretlandi og verið ötul við að koma þekkingu sinni á framfæri. Dr. Pollock heldur því fram að við séum að verða vitni að geysilega umfangsmiklum þjóðfélagsbreytingum - miklu meiri en fólk almennt geri sér grein fyrir - sem felast í því að markaðsvæða allt innra stoðkerfi samfélagsins. Þessu geri fólk sér hins vegar ekki almennt grein fyrir enda sé þetta gert smám saman og í alls kyns dulargervi. Sumir sem taka þátt í ákvarðanaferlinu vita ekki hvað þeir eru að gera á meðan aðrir séu með markmiðin skýr. Þegar breska heilbrigðiskerfið var gert að þjóðareign árið 1948 var það gert með einni lagasetningu. Þá vissu allir hvað var að gerast. Svo er ekki nú. Undir aðskiljanlegum heitum, „einkaframkvæmd", „einkarekstur", „samstarf ríkis og einkageira" er verið að ýta heilbrigðiskerfinu út á markaðstorgið.
Lesa meiraÞingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fagnar því að frumvarpi til laga þar sem opnað er fyrir innflutning á hráu kjöti hafi verið frestað fram á haust, eins og fram kemur í viðtali við landbúnaðarráðherra í Bændablaðinu í dag. Enginn vafi er á því að samstaða og samtakamáttur Bændasamtakanna, íslenskra matvælafram-leiðenda og neytenda, sérfræðinga í matvælaheilbrigði og fjölmargra sveitarfélaga á landsbyggðinni skipti sköpum um undanhald ráðherra. Frestunin er í samræmi við tillögur Vinstri grænna sem kynntar voru í fundaröð flokksins 13.-14. maí sl., en Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur mjög látið til sín taka í málinu.
Þingflokkur VG treystir því að sjávarútvegs- og landabúnaðarnefnd alþingis nýti sumarið til að skoða ofan í kjölinn afleiðingar frumvarpsins fyrir íslenskt samfélag og leitað verði allra leiða til að halda núverandi fyrirkomulagi. Taka ber að taka mið af rökstuddri gagnrýni frá aðilum í greininni sem telja að frumvarpið grafi undan innlendri framleiðslu og þýði að störfum muni fækka, og ekki síður varnarorðum Margrétar Guðnadóttur veirufræðings og fleiri sérfræðinga sem telja að innflutningur á hráu kjöti skapi hættu á auknum sýkingum og búfjársjúkdómum.
Lesa meiraFjöldi mála bíður nú afgreiðslu á Alþingi síðustu dagana fyrir þingfrestun. Eitt þeirra mála er breyting á almennum hegningarlögum sem ætlað er að taka á hryðjuverkum, peningaþvætti og mansali. Frumvarpið er nú til umfjöllunar í allsherjarnefnd en fulltrúi Vinstri grænna þar, Atli Gíslason, hefur ýmislegt við frumvarpið að athuga. Í fyrsta lagi þá eru ekki gerðar nauðsynlegar lagabreytingar til að Ísland geti fullgilt alþjóðasáttmála gegn mansali, sem við höfum þó skuldbundið okkur til að gera. Í öðru lagi eru of rúmar lagaheimildir gegn hryðjuverkum lagðar til í frumvarpinu og óljóst hvort að það samræmist alþjóðlegum mannréttindasáttmálum. Í þriðja lagi eru veittar mjög rúmar heimildir til eignaupptöku ef grunur leikur á að viðkomandi eða maki hans sé hryðjuverkamaður. Í fjórða lagi má svo nefna allar þær tillögur sem Vinstri græn hafa til breytinga á hegningarlögunum sem ekki hafa náð í gegn síðustu ár, en nauðsynlegt er að halda þeim til haga við breytingar á lagabálkinum.
Lesa meira
Það hefur varla farið fram hjá lesendum þessarar síðu að Vinstri græn hafa haldið uppi mikilli baráttu gegn matvælafrumvarpinu svokallaða sem leyfir innflutning á hráu kjöti. Haldnir voru fjöldi funda, komið á framfæri varnaroðrum sérfræðinga og hagsmunaaðila auk þess sem birtar hafa verið á síðunni ályktanir fjölda sveitastjórna sem hvetja til þess að frumvarpið verði fellt. Ljóst er að miklir hagsmunir eru í húfi fyrir íslenskan landbúnað og heilbrigði matvæla. Í morgun lýsti Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Einar K. Guðfinnsson, því yfir á síðum bændablaðsins að frumvarpinu yrði frestað fram á haust. Það er því fullt tilefni til að lýsa yfir áfangasigri í málinu, en baráttan heldur áfram í sumar og haust.
Lesa meira
Starfshópur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um sjávarútvegsmál hefur í samráði við stjórn og þingflokk unnið tillögur að æskilegu svari til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Tillögurnar eru af hálfu VG einnig hugsaðar sem almennt innlegg til málsins, til málefnalegra skoðanaskipta og upplýstrar umræðu. Þær eru okkar framlag í því skyni að takast megi góð þverpólitísk samvinna um endanlega úrlausn málsins. Tillögur VG að svari eru eftirfarandi:
Lesa meira
Eftir 17 daga rennur út frestur íslenskra stjórnvalda til að bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, þar sem íslenska fiskveiðistjórnarkerfið er gagnrýnt fyrir að brjóta gegn jafnræðis- og sanngirniskröfum alþjóðasamningsins um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.
Enn hafa nær engar upplýsingar fengist um hugsanleg svör íslenskra stjórnvalda við álitinu. Vinstrihreyfingin – grænt framboð tekur álitið mjög alvarlega og vill ráðast strax í úrbætur. Vegna alvarleika málsins er flokkurinn tilbúinn að skoða nýjar leiðir til að breyta fiskveiðistjórnarkerfinu í samræmi við niðurstöðu mannréttindanefndarinnar og ná sátt um sjávarútveginn í landinu.
Með það að markmiði hefur mikið málefnastarf verið unnið innan Vinstri-grænna síðastliðna mánuði. Forysta flokksins mun kynna niðurstöður þeirrar vinnu kl. 13:30 í dag, niðurstöðurnar verða kynntar á vefnum um leið.
Lesa meiraStjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri lýsir yfir miklum vonbrigðum með að tillaga bæjarfulltrúa Vinstri –grænna um að skora ætti á ríkisstjórn Íslands að fresta svokölluðu matvælafrumvarpi fékkst hvorki afgreidd á bæjarstjórnarfundi né í bæjarráði nú í vikunni. Ákveðið var að fresta málinu til næsta bæjarráðsfundar. Slík frestun lýsir stórkostlegum vandræðagangi meirihlutans í þessu máli og ber vott um pólitískt kjarkleysi.
Tillagan kvað á um að það væri „algjört lágmark að fresta málinu um sinn til að gefa hagsmunaaðilum í greininni og ríkisstjórninni meiri tími til að gera ráðstafanir svo að hægt sé að standa vörð um íslenska matvælaframleiðslu og landbúnað.” Henni fylgdi líka ítarleg greinargerð. Lesa meira
Umsögn Margrétar Guðnadóttur, veirufræðings um frumvarp sem leyfir innflutning á hráu kjöti hefur vakið mikla umræðu og haft áhrif á viðhorf til frumvarpsins. Umsögn Margrétar hefur hvergi birst opinberlega en hér má lesa hana í heild sinni:
Til sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis.
Með bréfi dagsettu 14/4 2008, óskaði sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis eftir umsögn undirritaðrar um frumvarp til laga um endurskoðun á undanþágum frá 1. Kafla, 1. Viðauka við EES-samninginn, 524. Mál, EES reglur, breyting ýmissa laga. Skal nú reynt að verða við þeirri ósk. Lesa meira
Finnbogi Rögnvaldsson, sveitastjórnarfulltrúi Vinstri grænna í Borgarbyggð lagði fram svohljóðandi ályktun á sveitarstjórnarfundi sem var samþykkt samhljóða: Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir áhyggjum vegna yfirlýsinga einstakra ráðherra um innflutning landbúnaðarafurða. Ljóst er að hvers konar tilslakanir koma verst niður á atvinnulífi á landsbyggðinni, bæði hjá bændum og í úrvinnslugreinum. Sökum þess hversu íslenskur markaður er lítill og landið einangrað er mikilvægt að allar stærri ákvarðanir á þessu sviði séu teknar á grundvelli langtímastefnumörkunar þar sem tekið er tillit til atvinnulífs, matvælaöryggis, byggðaþróunar og stöðu alþjóðlegra matvælamarkaða. Jafnframt minnir sveitarstjórn á að innflutningur á hráu kjöti skapar hættu á búfjársjúkdómum sem valdið hafa evrópskum landbúnaði miklum búsifjum á undanförnum árum.
Lesa meira
Sveitarstjórnarmenn allra flokka hafa þungar áhyggjur af atvinnu þeirra sem vinna í matvælaframleiðslu ef fyrirliggjandi frumvarp um innflutning á hráu kjöti verður samþykkt. Störf í matvælaframleiðsla skipta þúsundum á landsbyggðinni bæði í frumframleiðslu og afleiddum störfum. Fjöldi sveitastjórna hafa ályktað gegn frumvarpinu, þeirra á meðal eru Húnaþing Vestra, Norðurþing, Blönduósbæ, Skagafjörður og Vopnafjarðarhreppur. Ályktanir þeirra eru svohljóðandi:
Lesa meira
Álfheiður Ingadóttir, þingkona Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir það fagnaðarefni að Skipulagsstofnun hafi gefið út álit þess efnis að bygging Bitruvirkjunar væri ekki viðunandi vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu. „Ég held að flestir íbúar á Suðvesturhorninu séu sammála þessu áliti og ég vona að Orkuveita Reykjavíkur og borgarstjórn Reykjavíkur falli frá fyrirætlunum um Bitruvirkjun. Það verður að hafa í huga að þó Bitruvirkjun verði ekki að veruleika er engu að síður nauðsynlegt að setja reglur sem skylda orkufyrirtækin að hreinsa brennisteinsvetni úr útblæstrinum,“ segir Álfheiður og minnir á þingsályktunartillögu Vinstri grænna í þá veru. „Þessi virkjanaáform hafa hreyft við mörgum enda sýnir fjöldi athugasemda frá almenningi hversu margir hafa gengið fram fyrir skjöldu, þetta er sigur svo margra. Það má alls ekki fórna þessari náttúruparadís fyrir iðnaðarsvæði.“
Lesa meira
Bæjarfulltrúar Vinstri grænna á Akureyri hafa lagt fram svohljóðandi tillögu:
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar skorar á ríkisstjórn Íslands að fresta afgreiðslu frumvarps laga um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I.kafla I. viðauka við EES samninginn og innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins. Á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu er eitt öflugusta landbúnaða og matvælasvæði landsins. Frumvarp ríkisstjórnarinnar felur í sér róttækar breytingar á rekstrarumhverfi íslensk landbúnaðar og matvælaframleiðslu en með því er opnað fyrir óheftan innflutning á hráu kjöti og ýmsu hrámeti til landsins. Það er því algjört lágmark að fresta málinu um sinn til að gefa hagsmunaaðilum í greininni og ríkisstjórninni meiri tími til að gera ráðstafanir svo að hægt sé að standa vörð um íslenska matvælaframleiðslu og landbúnað.
Kristín Sigfúsdóttir og Baldvin H. Sigurðsson
Lesa meira
Margrét Guðnadóttir veirufræðingur hefur kynnt sér frumvarp til laga þar sem lagt er til að leyfður verði innflutningur á hráu kjöti. Frumvarpið er til umfjöllunar þessa dagana en það hefur mætt harðri andstöðu fólks í landbúnaðinum og þeirra sem sinna sóttvörnum og eftirliti. „Ég er hrædd um að ef frumvarpið verður samþykkt höfum við ekki lengur sóttvarnaráhrif. Við höfum þegar gengið eins langt og hægt er að ganga og nú er lífsnauðsynlegt að við höldum þeim undanþágum sem við höfum fengið. Við verðum að viðurkenna sérstöðu landbúnaðarins rétt eins og sjávarútvegsins. Hér á landi er mjög lítið af sjúkdómum en landbúnaðurinn er viðkvæm atvinnugrein sem þolir lítil áföll.“
Margrét var beðin um álit á frumvarpinu sem hún veitti sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis góðfúslega. Í álitinu segir meðal annars: Lesa meira
Húsfyllir var á fundi Vinstri grænna um matvælaöryggi og framtíð íslensks landbúnaðar í Bændahöllinni í gær. Fjöldi fólks tók þátt í umræðum um fyrirhugaðar breytingar á lögum þar sem leyft verður að flytja inn hrátt kjöt til landsins og var talsverður hiti í fundarmönnum.
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, fagnaði að VG efni nú til umræðu um fyrirhugaðar breytingar og gagnrýndi það sem hann kallaði kæruleysislega afstöðu og ummæli ráðherra og stjórnmálamanna sem virtust umgangast þetta umfangsmikla og alvarlega mál af vanþekkingu. Hann lýsti yfir mikilli óánægju með að nánast ekkert samráð hafi verið við Bændasamtökin um efni frumvarpsins og að það sé nú keyrt í gegnum þingið án þess að samtökin fái tækifæri til að skoða frumvarpið ofan í kjölinn. Haraldur sagði það algjört frumskilyrði að fresta málinu fram á haust svo meiri tími gæfist til að bregðast við þeim stórfelldu breytingum sem boðaðar eru á einu bretti. Haraldur sagði ljóst hverjum frumvarpið kæmi til góða þar eð yfirburðastaða smásölukeðja á markaði yrði enn sterkari en fyrr, en um 80% smásölunnar er í höndum tveggja aðila. Haraldur minnti á að samtök bænda um allan heim hvetja nú til ábyrgrar og upplýstrar umræðu um fæðuöryggi þjóða, enda matvælabúskap heimsins ógnað, og það væri átakanlegt að heyra þá léttúð sem þessi mál fengju í opinberri umræðu hérlendis. Lesa meira
Þingflokkur Vinstri grænna fer um landið í dag og á morgun í heimsóknir til fyrirtækja og hagsmunaaðila í matvælaframleiðslu til að ræða breytingar þær sem fyrirhugaðar eru í innflutningi á matvælum. Ferðin er farin undir yfirskriftinni „Matvælaöryggi og framtíð íslensks landbúnaðar“. Dagurinn hófst með heimsókn til Bændasamtakanna en auk þess verða Keldur sóttar heim, Mjólkursamsalan og Síld og fiskur svo eitthvað sé nefnt. Í kvöld verður haldinn fundur á Hótel Sögu klukkan 20. Frummælendur á þeim fundi verða Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, Hildur Traustadóttir, framkvæmdastjóri Félags kjúklingabænda og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Fundinum stýrir Álfheiður Ingadóttir, þingkona. Á morgun verður farið um landið og fundir haldnir á Blönduósi, á Húsavík og á Hvolsvelli. Nánari dagskrá þeirra er sem hér segir:
Lesa meiraVinstrihreyfingin – grænt framboð stendur fyrir upplýsingafundum um land allt um matvælaöryggi og framtíð íslensks landbúnaðar dagana 13.-14. maí. Markmið fundanna er að leiða saman forystufólk og sérfræðinga á sviði matvælaframleiðslu, landbúnaðar og verkalýðsmálum til að gefa sem gleggsta mynd af þeim áskorunum sem íslenskur landbúnaður stendur frammi fyrir. Fyrir fundina heimsækja þingmenn Vinstri grænna matvælaframleiðendur á hverju svæði. Sérstaklega verður rætt um nýtt frumvarp ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um að leyfa óheftan innflutningu á hráu kjöti.
Fundarröðin er sem hér segir: Lesa meira
Atli Gíslason, þingmaður vinstri grænna, spurði umhverfisráðherra á Alþingi í dag hvort Landsvirkjun hefði umboð ríkisstjórnarinnar til eignarnáms á landi við fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í Flóahreppi. Tilefnið voru orð Friðriks Sóphussonar, forstjóra Landsvirkjunar, sem hann lét falla í Fréttablaðinu fyrir skömmu að Landsvirkjun hafi umboð til að fara með það mál og gaf í skyn að eignarnámi yrði beitt væri það nauðsynlegt.
Þórunn Sveinbjarnardóttir er ekki samþykk því að Landsvirkjun fái umboð til eignarnáms og segir ekkert sem kalli á að það verði veitt. Ljóst er að baráttan um Þjórsá heldur áfram og upplýsingar liggja ekki á lausu um framvindu mála. Stór hætta er á því að lýðræðið verði fótum troðið við slíkar kringumstæður. Lesa meira
Vegna umræðu síðustu daga um strandsiglingar ber að taka fram að Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur ítrekað lagt fram þingsályktunartillögu um að hafnar verði strandsiglingar á ný. Þjóðhagslegt gildi þeirra er ótvírætt með hliðsjón af umhverfis- og byggðaáhrifum, umferðaröryggi og fleiru. Ítarleg gögn fylgja í greinagerð með tillögunni en hana má nálgast hér:
Hlynur Hallsson, fulltrúi Vinstri grænna í skólanefnd Akureyrar lét bóka 5. maí af gefnu tilefni:
Nú stefnir í að leikskólinn Hólmasól verði Akureyrarbæ enn kostnaðarsamari en fyrirséð var. Samningur bæjaryfirvalda við "Hjallastefnuna ehf" er vísitölubundinn meðan aðrir leikskólar á Akureyri fá fasta upphæð árið 2008, þrátt fyrir um 12% verðbólgu. Hvert pláss á Hólmasól er nú þegar dýrara fyrir Akureyrarbæ og foreldra en pláss á öðrum leikskólum og ef fram heldur sem horfir mun Akureyrarbær greiða hlutfallslega mun hærri upphæð fyrir Hólmasól en aðra leikskóla í bænum. Það er því ljóst að einkarekstarstefna Sjálfstæðisflokks hefur enn og afturbeðið skipsbrot og nú bitnar það á foreldrum barna á Akureyri og Akureyrarbæ. Þessa mismunun þarf að leiðrétta.
Lesa meira
Í lok apríl hélt þingmannarnefnd Evrópuráðsins ráðstefnu í Vínarborg vegna herferðar sem staðið hefur í rúm tvö ár gegn ofbeldi gagnvart konum, þar með talið heimilisofbeldi. Steingrímur J. Sigfússon er formaður jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins, nefndar um jöfn tækifæri kvenna og stýrði hann ráðstefnunni af miklum myndugleika. Ráðstefnunni lauk með samþykkt yfirlýsingar um að þjóðþing bregðist þegar við kynbundnu ofbeldi gagnvart konum.
„Friður og hagvöxtur er forsenda þess að unnt sé að vinna bug á hinni hnattrænu fátækt.“ Þetta sagði Erik Solheim, umhverfis- og þróunarmálaráðherra Noregs á ráðstefnu SV, systurflokks Vinstri grænna í Noregi nú um helgina. Solheim gerði grein fyrir stefnu norsku ríkisstjórnarinnar í málefnum þróunarsamvinnu og í baráttunni gegn hnattrænni fátækt.
Það er markmið að vinna bug á fátækt með markvissri þróunaraðstoð með áherslu á hraðan hagvöxt og atvinnu fyrir sem flesta. Engum blöðum er um það að fletta að eigi þróunarlöndin að geta unnið sig út úr sárri fátækt alls almennings verða þau að búa við öryggi og almennan stöðugan hagvöxt og tryggja að afraksturinn verði eftir í viðkomandi landi til uppbyggingar innviða samfélagsins. Um leið þarf að leggja áherslu á að tengja saman umhverfismálin við efnahags- og atvinnumálin. Það má ekki gleyma því að Afríka ber nánast enga ábyrgð á þeirri losun gróðurhúsalofttegunda sem er að valda hinum miklum loftslagsbreytingum sem við mætum, en samtímis er Afríka sá heimshluti sem verður fyrir hvað mestum áhrifum af loftslagsbreytingum. Þess vegna verða þróuð ríki að taka á sig kostnaðinn sem þessu fylgir.
Lesa meira
Í dag hittu Vinstri græn og fulltrúar fleiri vinstrigrænna flokka á Norðurlöndunum John McDonnell, þingmann breska Verkamannaflokksins og mótframbjóðanda Gordons Brown í formannskosningunum á síðasta ári. McDonnell fer fyrir vinstrisinnuðum hópi þingmanna Verkamannaflokksins og leiðir auk þess starf róttækra verkalýðshreyfinga í Bretlandi.
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Bretlandi, og mesta ósigur Verkamannaflokksins þar í 40 ár, voru að vonum til umræðu og hafði McDonnell margt athyglisvert um þær að segja. McDonnell benti á að á nokkrum árum hafi flokksmeðlimum í Verkamannaflokknum fækkað úr um 500.000 í 150.000, sem þýðir líka að fáir voru eftir í flokknum til að vinna í kosningabaráttunni.
Lesa meira
Eins og Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur systurflokkurinn í Noregi SV, skilgreint sig sem feminískan flokk. Þetta þýðir að kvenfrelsisáherslur skulu hafðar til hliðsjónar í öllu starfi og stefnumótun. Á ráðstefnunni Verden til venstre var fjallað sérstaklega um hvernig þetta gengi og hvaða áherslur kvenfrelsisflokkar þurfa að hafa. Útgangspunkturinn er að kyn er áhrifaríkasta breyta lífsins, hvers kyns fólk er, er það síðasta sem við gleymum. Út frá kyni ræðst staða okkar í samfélaginu og líkt og annars staðar er kynbundið valdamisvægi inngróið í norska samfélagið. Hugtakið jafnrétti er orðið þvælt og of almennt til að það nái yfir þá baráttu að jafna kynjuð valdahlutföll, við getum varla talað um nokkurn hlut sem er óháður kyni.
Lesa meira
Árna Þór Sigurðssyni var boðið að ávarpa ráðstefnu SV í Noregi, Verden til venstre. Hér fylgir ræða Árna:
Kæru félagar og vinir.
Ég vil byrja á því að óska ykkur öllum til hamingju með þessa metnaðarfullu og tímabæru ráðstefnu um grundvallargildi í stjórnmálum samtímans og framtíðarsýn. Sömuleiðis þakka ég fyrir boðið um að ávarpa ráðstefnuna, sem fulltrúi hins íslenska systurflokks SV, Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.
Það er sérhverri stjórnmálahreyfingu nauðsynlegt að endurnæra hinn pólitíska anda og hina pólitísku baráttu stöðugt nýjum hugmyndum og lausnum. Launum sem taka mið af þróun samfélagsins og þeim áskorunum og ögrunum sem við stöndum frammi fyrir frá einum tíma til annars. Með þeim hætti styrkjum við stoðir þeirra pólitísku lífsgilda sem allt okkar stjórnmálastarf byggir á. Frumkvæði SV með þessari ráðstefnu og þeirri umfangsmiklu undirbúningsvinnu og umræðu sem farið hefur fram í aðdraganda hennar er til marks um lifandi og frjótt stjórnmálastarf.
Lesa meira
Systurflokkur Vinstri grænna í Noregi, SV, stendur fyrir metnaðarfullri ráðstefnu um helgina sem ber heitið “Verden til venstre”. Á ráðstefnunni eru fjölda málstofa um þau viðfangsefni sem hæst bera í stjórnmálum í dag og lausnir á þeim út frá félagshyggjusjónarmiðum. Vinstri græn eiga þrjá fulltrúa á ráðstefnunni; Árna Þór Sigurðsson, Drífu Snædal og Finn Dellsén. Formaður SV Kristin Halvorsen opnaði ráðstefnuna með þrumandi ræðu um verkefni vinstriflokka og árangur þeirra síðustu áratugi. SV hefur setið í ríkisstjórn Noregs síðustu tvö ár og heldur betur náð að setja mark sitt á stjórnmálin. Kristin rifjaði upp baráttuna fyrir tuttugu árum síðan þegar SV var brautryðjandi í réttindabaráttu samkynhneigðra en í sumar ganga í gildi lög í Noregi sem gerir hjónaband jafn gilt óháð kynhneigð. Hún fjallaði um réttindabaráttu kvenna og hvernig vinstriflokkarnir tóku kröfur rauðsokkanna á dagskrá, meðal annars baráttuna fyrir leikskólaplássum, en síðustu ár hefur þeim stórfjölgað í Noregi.
Lesa meiraMikill fjöldi fólks kom við í kaffiboðum Vinstri grænna 1. maí. Áætlað er að um fjögur hundruð manns hafi lagt leið sína í Vesturgötu 7, þar sem kaffi og kökur runnu ljúflega niður undir innblásnum erindum, ljóðaupplestri, söng og gítarspili. Í Kragakaffi var stemningin ekki síðri, þar var húsfyllir meðan Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hélt hvatningarræðu og var gerður góður rómur að þeim atriðum sem á eftir fylgdu. Þar var boðið upp á tónlistarflutning og ljóðalestur, sem í bland við góðan félagsskap, gerði kaffið ljúffengara og kræsingarnar óviðjafnanlegar. Baráttudagur verkafólks lukkaðist sem sagt eins og best verður á kosið, fjölmenni og gott veður á opinberum samkomum, og baráttuhugur ríkjandi meðal þeirra sem heimsótti okkur Vinstri-græn.
Lesa meira
Vinstri græn óska landsmönnum öllum til hamingju með daginn og hvetja til öflugrar baráttu. Þann 1. maí fögnum við áföngum í stéttarbaráttunni en sigrar síðustu alda hafa svo sannarlega verið sætir enda byggir velferðakerfi okkar í dag á þeim. Lífeyrissjóðirnir, almannatryggingakerfið, veikindadagar og önnur réttindi launafólks fengust með ötulli baráttu hinna vinnandi stétta. Þessi réttindi voru ekki skömmtuð úr hnefa heldur árangur samstöðu og harðrar baráttu félagshyggjufólks fyrir velferð og jöfnuði.
Lesa meira
Samtökin Ung vinstri græn hafa sent Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla íslands, opið bréf þar sem gagnrýnt er að á málþingi HÍ um mikilvægi Afganistan fyrir NATO hafi tveir menn, báðir úr innsta ranni NATO, flutt erindi en enginn fulltrúi gagnstæðra sjónarmiða. Bréf Ungra vinstri grænna er svohljóðandi:
Lesa meira
Í tilefni alþjóðlegs baráttudags launafólks 1. maí bjóða Vinstri græn í Reykjavík og í Kópavogi upp á kaffi eftir göngu.
Í Reykjavík verður kaffið að Vesturgötu 7 en í Kópavogi verður hellt á könnuna í húsnæði flokksins að Hamraborg 1-3.
Lesa meiraVegna umfjöllunar fjölmiðla um Fríkirkjuveg 11 í vil ég koma á eftirfarandi á framfæri
Í kvöldfréttum 26. apríl sagði borgarstjóri að fyrirætlanir Tjarnarkvartettsins um að efla mannréttindaskrifstofu borgarinnar hafi verið tilraun til að þenja út stjórnkerfið. Hann sagði jafnframt að starfsemi skrifstofunnar hafi verið óljós og illa skilgreind. Verkefni skrifstofunnar séu ekki jafn brýn og að tryggja velferð og góða þjónustu við borgarbúa.
Þessi ummæli borgarstjórans eru til skammar, enda byggð á vanþekkingu á málaflokknum, fordómum og virðingarleysi gagnvart minnihlutahópum og borgarbúum öllum.
Lesa meiraÍ borgarráði í morgun var sala á Fríkirkjuvegi 11 samþykkt af meirhlutanum. Fulltrúi VG greiddi atkvæði gegn sölunn með eftirfarandi bókun og fer málið því fyrir borgarsjórnarfund 6. maí næstkomandi. Vert er að minna á undirskriftasöfnun til verndunar Hallargarðinum:
http://www.petitiononline.com/f11rv101/petition.html
Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði telur fráleitt að undirrita samning þar sem Reykjavíkurborg afsalar sér í raun forræði yfir Hallargarðinum öllum og afhendir þar að auki einkaaðilum lóð sem börn og ungmenni hafa nýtt sér til leikja um áratugi. Garðurinn og gerðið á bak við húsið er í eigu almennings og borgaryfirvöld eiga að hafa fullan og óskoraðan rétt til að sinna honum eins og öðrum opnum svæðum borgarinnar án íhlutunar einkaaðila.
Lesa meira
Jón Bjarnason, Björn Valur Gíslason og Drífa Snædal fóru um Snæfellsnes í gær, heimsóttu fyrirtæki og félagasamtök og héldu opinn fund í lok dags. Morgunkaffið var drukkið með eldri borgurum í Verkalýðshúsinu í Stykkishólmi og landsins gagn og nauðsynjar kryfjaðar. Litið var inn í Grunnskólann og rætt við kennara og nemendur sem höfðu allir ýmislegt til málanna að leggja í pólitíkinni. Þá var komið við hjá Sæferðum, en reglulegar vetrarferðir Breiðafjarðarferjunnar Baldurs eru í hættu þar sem ekki hafa náðst áframhaldandi samningar við Samgönguráðuneytið. Hin stórkostlega skútusmíð í Skipavík var skoðuð, en skútan sem sækir fyrirmynd sína til víkingaskipa verður sjósett í sumar og kynnt á markaði með áframhaldandi smíðar í huga.
Lesa meira
Á vef Ögmundar Jónassonar, www.ogmundur.is má lesa frásögn af samskiptum hans við Mahmoud Abbas á Bessastöðum í gær. Á vefnum segir meðal annars:
Fyrir heimsóknina fór Íslandsdeild Amnesty International þess á leit við íslensk stjórnvöld , svo og alla þá sem kæmu til með að ræða við Abbas og fylgdarlið hans, að taka til umræðu mál hins 23 ára gamla Tha'er Mahmoud Husni Rmailats, sem dæmdur hefur verið til dauða í Palestínu og þess óskað að Mahmoud Abbas skrifi ekki undir aftökuskipun hans. Þá fór Amnesty International fram á afnám dauðadóms og hvetur Palestínumenn, hvort sem er úr Fatah hreyfingunni eða Hamas að virða mannréttindi í hvívetna.
Ég varð við ákalli Amnesty International og tók upp mál hins dauðdæmda manns við Mahmoud Abbas í viðræðum við hann á Bessastöðum. Fram hefur komið í fréttum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráherra, hafi gert slíkt hið sama á fundi með Abbas síðar um daginn. Er það vel. Hins vegar er ósköp dapurlegt að fylgjast með því hvernig Íslendingar lötra þá slóð sem Washington vísar þeim í málefnum Palestínu sem öðrum alþjóðamálum. Lesa meira
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins er fylgi Vinstri grænna nú 20,9% og er það umtalsverð hækkun frá síðustu könnun, eða 6-7%. Fylgi Samfylkingarinnar dregst hins vegar talsvert saman og er nú 26,8%. Aðrir flokkar standa nokkurn veginn í stað frá síðustu könnun blaðsins.
Stuðningurinn kemur ekki á óvart enda hafa Vinstri-græn verið sérstaklega áberandi síðustu vikur. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og frumkvæði VG í þeim efnum hefur eflaust haft mikil áhrif, en líka afdráttarlaus afstaða flokksins gegn álversframkvæmdum og nýjum áherslum stjórnvalda í utanríkismálum sem einkennast af vígvæðingu og aukinni þátttöku í NATO. Lesa meira
Félög Vinstri grænna í Skagafirði og Húnavatnssýslum skora á Alþingi að stöðva frumvarp ríkisstjórnarinnar sem galopnar á innflutning á fersku kjöti og kjötvörum til landsins. Með frumvarpinu er ekki einungis vegið að einstökum atvinnugreinum heldur afkomu heilu landshlutanna ásamt því að sjúkdómavörnum og öryggi neytenda er teflt í tvísýnu.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sem jafnframt fór með ráðuneyti landbúnaðarmála gaf vilyrði fyrir óheftum innflutningi á hráu kjöti og kjötvörum. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar hyggst nú fullkomna það verk með lagasetningu. Sem fyrr er um algert sinnuleysi að ræða gagnvart séríslenskum hagsmunum og möguleikum okkar að fá tillit til þeirra tekið í samningum og við lagasetningu.
Enginn landshluti á eins mikið undir landbúnaði og kjötvinnslu eins og Skagafjörður og Húnavatnssýslur. Með frumvarpinu er ráðist gegn afkomu heils landshluta. Því er skorað á ríkisstjórnina að draga frumvarpið til baka og taka þessi málefni til vandaðri meðferðar.
Lesa meiraStjórn Vinstri grænna í Reykjavík mótmælir þeirri ákvörðun borgarstjórnar að selja Fríkirkjuveg 11 til einkaaðila. Að auki stendur til að afhenda yfirráð yfir Hallargarðinum í hendur einkaaðila og breyta honum með ýmsum hætti til þess að þjóna hagsmunum þeirra.
Garðurinn er í eigu borgarbúa og eiga borgaryfirvöld að hafa full yfirráð yfir honum eins og öðrum opnum svæðum í borginni án afskipta einkaaðila. Kjörnum fulltrúum í Reykjavík ber að gæta hagsmuna Reykvíkinga en ekki sérhagsmuna auðmanna eins og raun ber vitni í þessu máli.
Loks lýsir stjórn Vinstri grænna í Reykjavík yfir furðu sinni á því að borgaryfirvöld skuli liggja flöt fyrir auðmönnum með þessum hætti og hundsa réttindi borgarbúa til óskerts aðgengis að Hallargarðinum. Auðmenn eiga ekki rétt á sérmeðferð af hendi borgarinnar!
Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík
Lesa meira
Núverandi ríkisstjórn mun leggja á skólagjöld í opinberum háskólum nema Samfylkingin standi gegn því. Þess vegna er mikilvægt að gera sér grein fyrir stefnu flokksins varðandi skólagjöld en einstaka þingmenn virðast tala þvert gegn samþykktri stefnu – þar með talið formaðurinn.
Í Viðskiptablaðinu 15. október 2004 segir Ingibjörg Sólrún, formaður Samfylkingarinnar: ,,Mér finnst skólagjöld á háskólastigi alveg geta komið til álita. Það skiptir auðvitað verulegu máli hvernig þau eru lögð á, t.d. hvort það yrði á allt háskólastigið eða einvörðungu framhaldsnám. Það er líka verulegur munur á aðstæðum eftir háskólagreinum, en ég sé engin sanngirnisrök fyrir því að fólk borgi verulegar fjárhæðir fyrir fullorðinsfræðslu og fyrir börn á leikskólum en ekkert fyrir aðgang að háskólum.“
Lesa meiraBjörn Valur Gíslason, varaþingmaður Vinstri grænna hóf umræðu á Alþingi áðan um skólagjöld og afstöðu Samfylkingarinnar til þeirra. Tilefni umræðunnar voru ummæli formanns menntamálanefndar, Sigurðar Kára Kristjánssonar að sífellt fleiri Samfylkingarmenn væru sammála Sjálfstæðismönnum um að leyfa beri skólagjöld í opinberum skólum. Reyndar gekk Sigurður Kári svo langt í umræðunum á Alþingi að telja alla flokka vilja leyfa skólagjöld í opinberum skólum nema Vinstri græn og að skólagjöld væru forsenda þess að hægt væri að reka góða skóla. Katrín Júlíusdóttir þingkona Samfylkingarinnar var ósátt við ummæli Sigurðar Kára og greindi frá stefnu flokks síns sem er skýr – skólagjöld skulu ekki leyfð í opinberum skólum. Á máli hennar var að heyra að þessi stefna sé ekki umsemjanleg eins og svo margt annað í stefnu Samfylkingarinnar. Einar Már Sigurðsson varaformaður Samfylkingarinnar skýrði frá þeirri skoðun sinni að „nálgast bæri umræðuna um skólagjöld fordómalaust“. Erfitt er að sjá hvernig nálgast eigi umræðuna fordómalaust án þess að til greina komi að leggja á skólagjöld.
Lesa meiraStofnfundur Ungra vinstri grænna á Reykjanesi var haldinn 11. apríl síðastliðinn. Þormóður Logi Björnsson var kjörinn formaður stjórnar en með honum í stjórn sitja nú Hallvarður Jóhannes Guðmundsson og Daði Hreinsson Pagan. Einar Gunnarsson og Hlynur Freyr Sigurhansson voru kjörnir varamenn.
Fundurinn var mjög líflegur og samþykkti þessar þrjár ályktanir: Lesa meira
Nokkuð hressileg umræða var um Fríkirkjuveg 11 og Hallargarðinn í borgarstjórn í gær en Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna hóf þá umræðu. Borgarstjórinn skipti um skoðun frá því sem áður var að því er varðaði mikilvægi þess að húsið væri í eigu almennings. Jafnframt sýndi meirihlutinn ekkert viðnám gagnvart ítrústu kröfum hæstbjóðanda að því er varðar breytingar á Hallargarðinum. Í umræðunum lögðu Vinstri græn fram svohljóðandi bókun:
Lesa meira
Í tilefni af útgáfu norrænu söngbókarinnar Ska nya röster sjunga (Eiga nýjar raddir að syngja) verður í vikunni kynnt söngvadagskrá með þessari yfirskrift á þremur stöðum á landinu: í Keflavík, á Akureyri og í Reykjavík. Dagskrárnar eru samstarfsverkefni Norræna hússins, Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri og hóps áhugafólks um söngva af þessu tagi.
Norrænir gestir sem hingað koma af þessu tilefni eru þeir Bengt Hall frá Svíþjóð, ritstjóri söngbókarinnar og harmonikkuleikari og Per Warming frá Danmörku, rithöfundur, söngvaskáld og söngvari. Þeir félagar munu flytja úrval norræna söngva úr bókinni og segja stuttlega frá tilurð þeirra.
Heimafólk á hverjum stað mun flytja íslenska söngva og þýðingar sem er að finna í bókinni og gerðar hafa verið við norræna og ’alþjóðlega’ söngva. Áheyrendur verða hvattir til að taka undir í þeim söngvum sem þeir kunna eða ná að læra.
Lesa meiraUng Vinstri-græn stóðu fyrir stjórnmálaskóla fyrir ungt fólk um helgina. Stemmningin var mjög góð og voru líflegar umræður um allt sem tengist vinstri-grænni pólitík. Sérstakir fyrirlesarar „skólans“ voru Ögmundur Jónasson og Katrín Jakobsdóttir og fóru þau yfir sögu og stefnu flokksins. Mikið var rætt um hugmyndafræðilega strauma á fundinum, en þess á milli gæddu „nemendurnir“ sér á pítsum og öðru lostæti.
Ung Vinstri-græn eru nú búin að halda þrjá stjórnmálaskóla á þessu vori, fyrst var farið á Egilsstaði, svo var skólinn haldinn á Akureyri og nú síðast í Kópavogi. Hefur þetta vakið mikla lukku og verður eflaust endurtekið að ári liðnu.
Lesa meiraUng vinstri græn á Akureyri samþykktu eftirfarandi ályktun um frumvarp til laga um framhaldsskóla á fundi UVGA á Kaffi Karólínu þriðjudaginn 8. apríl 2008:
„Ung vinstri græn á Akureyri harma vinnubrögð menntamálaráðherra við gerð framvarps til laga um framhaldsskóla. Það er mat Ungra vinstri-grænna á Akureyri að menntamálaráðuneytinu beri að kynna slíkt frumvarp nemendum framhaldsskóla og hafa samráð við þá um innihald þess. Ung vinstri græn á Akureyri krefjast þess að frumvarpið verði kynnt og útskýrt fyrir framhaldsskólanemum áður en það fær frekari meðhöndlun á Alþingi.
Auk þess telja Ung vinstri græn á Akureyri ýmis atriði frumvarpsins óljós og jafnvel þversagnakennd. Til að mynda segir í athugasemd við 32. grein frumvarpsins að það sé „í reynd tryggð fræðsluskylda fyrir ólögráða nemendur“, en ekkert í frumvarpinu segir að nám til stúdentsprófs þurfi að vera lengra en eitt skólaár.“ Lesa meira
Síðasti fundur Vinstri grænna í fundaröð um efnahagsmál fór fram í gærkveldi í Reykjavík. Því miður þurfti að aflýsa fundinum á Ísafirði þar sem ekki var flogið þangað í gær. Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir voru frummælendur í Reykjavík og fóru yfir ástandið sem breyttist nokkuð í gær á vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans. Helstu tíðindin voru þau að ríkisstjórnin fylgir enn stefnu sinni um meðvitað aðgerðaleysi og varpar þannig skellnum á efnahagsástandinu yfir á heimilin í landinu. Stýrivaxtahækkunin í gær leiðir Ísland í hásæti stýrivaxta í heiminum en er máttlaus aðgerð þegar ríkisstjórnin gerir ekkert annað. Við horfum fram á tveggja stafa verðbólgutölu í fyrsta sinn í áraraðir sem afleiðingu af þeirri fölsku mynd sem haldið hefur verið á lofti í áraraðir að allt sé í himnalagi þegar viðskiptahalli mælist 26% árið 2006 og erlendar skuldir vaxa gríðarlega.
Lesa meiraVel heppnaðri fundaröð Vinstri grænna undir yfirskriftinni „tökumst á við efnahagsvandann – tillögur Vinstri grænna“ lýkur í kvöld með fundum í Reykjavík og á Ísafirði.
Annar fundurinn er á Hótel Ísafirði og hefst klukkan 20:30. Frummælendur eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson.
Hinn fundurinn er að Vesturgötu 7 í Reykjavík og hefst klukkan 20. Frummælendur þar eru Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon.
Að vanda eru allir velkomnir og heitt á könnunni. Lesa meira
Komið var að Skagafirði og Garðabæ í gærkvöld í fundaröð Vinstri grænna um efnahagsmál. Í Skagafirði var fjölmennur fundur og höfðu Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir framsögður. Var góður rómur gerður af máli þeirra og spunnust upp fjörlegar umræður um stöðu efnahagsmála og tillögur VG um hvernig endurheimta megi stöðugleika, verja stöðu heimilanna í landinu og kjör launafólks. Var það almenn skoðun fundarfólks að ríkisstjórnin væri gagnslítil og verklaus í þeim efnum. Þá þótti mörgum raunalegt að horfa upp á Samfylkinguna svíkja gefin fyrirheit í umhverfismálum og standa fyrir hervæðingu landsins. Einkavæðingu heilbrigðiskerfisins bar talsvert á góma en þar tekur Samfylkingin jafnvel Framsókn fram í fylgispekt við íhaldið. Fundurinn markaðist í heild sinni af góðri og snarpri þjóðmálaumræðu.
Sömu sögu var að segja af Garðabæ, fundamönnum lá margt á hjarta auk efnahagsmálanna og var farið yfir allt milli himins og jarðar. Framsögu fluttu Svandís Svavarsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir. Lokahnykkur fundaraðarinnar um efnahagsmál verða svo fundirnir í Reykjavík og á Ísafirði annað kvöld, 10. apríl. Sjá nánar hér.
Lesa meiraÍ gær voru haldnir tveir fundir í fundaröð Vinstri grænna um efnahagsmál. Góð mæting var á fundinn sem haldinn var á Kaffihúsinu í Skrúðgarðinum á Akranesi. Þau Ögmundur Jónasson og Katrín Jakobsdóttir fluttu framsögur. Mikið var fjallað um siðferði og skynsemi í efnahagsmálum, útrás undanfarinna ára og afleiðingarnar sem við glímum við í dag. Að sjálfsögðu voru samgöngumál ofarlega á dagskrá og rætt var brýnt hagsmunamál Akurnesinga að afnema gjaldtöku í Hvalfjarðargöngin til að jafna aðstöðu og aðgengi fólks milli staða. Umhverfismál og verndun hafsins voru líka ofarlega í hugum fólks.
Í Vík í Mýrdal fluttu þær Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Svandís Svavarsdóttir framsögur og var fólki þar efst í huga versnandi kjör á landsbyggðinni og erfiða samkeppnisstöðu minni fyrirtækja. Fólk var uggandi yfir áhrifum efnahagsástandsins á atvinnulíf og kjör í dreifðari byggðum. Þá var rætt mikið almennt um misskiptinguna í samfélaginu og hvernig megi auka jöfnuð.
Í kvöld verða fundir í Garðabæ og á Sauðárkróki, sjá skipulag funda hér.
Lesa meiraFirnagóð mæting var á fund Vinstri grænna í Kaffi Grindavík í gærkvöldi. Steingrímur og Guðfríður Lilja héldu framsögu og í kjölfarið spunnust miklar umræður um sjávarútveg, auðlindanýtingu, umhverfisvernd og efnahagsmál. Að sjálfsögðu var fólki hugleikið álverið í Helguvík, hvaða áhrif það hefði á efnahaginn og atvinnu á svæðinu. Þá var reynsla Austfirðinga sérstaklega til umræðu og réttilega bent á að bíða þyrfti og sjá hvaða raunverulegu áhrif álverið hefði haft þar en það virðist ekki hafa haft áhrif á fólksfækkun nema tímabundið. Rætt var um mikilvægi hafrannsókna og umhverfisverndar í víðum skilningi.
Næstu fundir í fundaröðinni „Tökum á efnahagsvandanum – tillögur Vinstri grænna“ eru í kvöld í Halldórskaffi í Vík í Mýrdal klukkan 20 og á Kaffihúsinu í Skrúðgarðinum á Akranesi klukkan 20. Frummælendur í Vík eru Svandís og Guðfríður Lilja en Ögmundur og Katrín mæta á Akranes. Fundirnir eru opnir öllum.
Lesa meira
Húsfyllir var á fundi Vinstri-grænna á Hótel KEA á Akureyri í dag. Steingrímur J. Sigfússon kynnti tillögur flokksins sem miða að því að ná tökum á efnahagsástandinu. Tillögur flokksins snúa m.a. að því að styrkja Seðlabankann og hvetja til sparnaðar í samfélaginu til að ná tökum á verðbólgunni.
Svandís Svavarsdóttir fjallaði svo betur um þær tillögur sem snúa að innra jafnvægi í hagkerfinu, jafnvægi milli sveitarfélaga og á milli höfuðborgarinnar annars vegar og landsbyggðarinnar hins vegar. Hún tók undir með Steingrími að það ástand sem nú er uppi í hagkerfinu er að hluta til vegna ójafnvægis milli landshluta.
Fundarmönnum var heitt í hamsi og vöktu margir hverjir athygli á því að efnahagsástandið nú væri afleiðing af stóriðjustefnu síðastliðinna ára. Margir þeirra vöruðu einnig við áformum um álver við Helguvík og á Bakka og sögðu slíkar skyndilausnir ekki til þess fallnar að leysa efnahagsvandann sem við stöndum nú frammi fyrir.
Stjórn Vinstri grænna hittist á Hótel KEA á Akureyri laugardaginn 5. apríl. Margt var rætt á fundinum en hæst bar tillögur VG í efnahagsmálum og byggðamál. Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktun:
Stóriðjustefnan er á fullri siglingu, drifin áfram meðal annars af ráðherrum Samfylkingarinnar. Frávísun umhverfisráðherra á kæru Landverndar undirstrikar kjarkleysi ráðherrans, sem hafði næg rök og lagaheimildir til að láta náttúruna njóta vafans og efna þannig loforð sín við kjósendur. Stjórnmál eiga að snúast um stefnumótun en ekki hagsmunagæslu kerfisins. Þar hafði umhverfisráðherra tækifæri til að standa við stóru orðin, setja náttúruvernd í forgang. Með álveri í Helguvík er ekki aðeins verið að stefna umhverfinu í voða, heldur líka efnahag þjóðarinnar sem nú berst við verðbólgu og himinháa vexti, afleiðingar þenslu af völdum stóriðjuframkvæmda undanfarinna ára.
Lesa meira
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs harmar þá ákvörðun umhverfisráðherra Þórunnar Sveinbjarnadóttur að greiða götu álversframkvæmda í Helguvík. Með því að staðfesta fyrri ákvörðun Skipulagsstofnunar um umhverfismat fyrir álver í Helguvík hunsar ráðherra náttúruvernd í landinu og svíkur öll fyrri loforð um stóriðjuhlé.
Það er æðsta hlutverk umhverfisráðherra að standa vörð um náttúru landsins og framfylgja ábyrgri umhverfisstefnu. Það er óforsvaranlegt að ráðherrann úrskurði gegn umhverfi og náttúruvernd og hafni þeirri eðlilegu kröfu Landverndar að fram fari heildarumhverfismat fyrir álver, virkjanir og flutningslínur. Þá vekur furðu að ráðherra treysti sér ekki einu sinni til að taka efnislega afstöðu til málsins í heild heldur vísi öðrum megin þætti þess frá, þrátt fyrir að málið sé búið að velkjast í ráðuneytinu og embættismannakerfinu í marga mánuði. Lesa meira
Á morgun verður fundaröð Vinstri grænna um efnahagsmál hleypt af stokkunum á Akureyri. Yfirskrift fundaraðarinnar er „Tökumst á við efnahagsvandann – tillögur Vinstri grænna“ og er tilgangurinn að kynna og ræða þær tillögur sem Vinstri græn hafa lagt til á þingi til að taka á aðkallandi vanda í efnahagsmálum. Meginmarkmið tillagnanna er að endurheimta efnahagslegan stöðugleika, verja stöðu heimilanna og kaupmátt launa.
Lesa meiraÁ fundi utanríkismálanefndar sl. mánudag óskað fulltrúi Vinstri grænna Steingrímur J. Sigfússon eftir því að utanríkisráðherra kæmi til fundar við nefndina áður en hún og forsætisráðherra færu á NATO-fundinn í Búkarest þannig að nefndinni gæfist kostur á að ræða og koma sjónarmiðum á framfæri varðandi þá afstöðu sem þar yrði tekin fyrir Íslands hönd. Á dagskrá fundarins verða mörg stórpólitísk og umdeild mál eins og möguleg NATO aðild Úkraínu og Georgíu, eldflaugavarnakerfi Bandaríkjamanna í Mið- og Austur Evrópu, málefni Afganistan o.fl. Minna má á lögbundna samráðsskyldu ríkisstjórnar við utanríkismálanefnd Alþingis í þessu sambandi.
Ekki gat orðið af slíkum samráðsfundi og þegar til reglubundins fundar utanríkismálanefndar kom í morgun, voru forsætis- og utanríkisráðherra þegar á leið úr landi með flugvél. Nefndarmenn fengu í hendur minnisblað um viðfangsefni fundarins sem trúnaðarmál.
Af þessu tilefni lagði fulltrúi VG fram meðfylgjandi bókun.
Á fundi utanríkismálanefndar voru málefni Tíbet einnig á dagskrá að ósk þingflokks Vinstri grænna og lagði fulltrúi flokksins fram tillögu að ályktun nefndarinnar sem verður þar til frekari umfjöllunar á næsta fundi. Lesa meira
Ástandið í efnahagsmálum er alvarlegt en ekki óyfirstíganlegt. Það kallar hins vegar á snarræði og öruggar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar – að hún axli ábyrgð á ástandinu eins og það er orðið og beiti þeim tækjum sem hún ræður yfir. Fyrir nokkru var ljóst að stefndi í mikinn vanda sem kæmi fyrst og fremst niður á heimilunum í landinu. Í baráttunni við að verja lífskjör almennings lögðu Vinstri græn fram tillögur á þingi fyrir þremur vikum síðan um víðtækar ráðstafanir í efnahagsmálum. Til að kynna tillögurnar og fá umræður um þær höfum við útbúið myndskeið og hleypum af stokkunum fundaröð um allt land undir yfirskriftinni Tökum á efnahagsvandanum: Tillögur Vinstri grænna.
Lesa meira
Ragnheiður Eiríksdóttir og Huginn Freyr Þorsteinsson hafa verið ráðin til aðstoðar þingmönnunum Atla Gíslasyni og Þuríði Backman. Huginn er aðstoðarmaður Þuríðar með aðsetur á Akureyri en Ragnheiður er aðstoðarkona Atla og verður með aðsetur í Reykjanesbæ.
Finnur Dellsén hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri-grænna.
Finnur er 23 ára og heimspekingur að mennt, útskrifaðist með BA-próf í heimspeki frá Háskóla Íslands í fyrra eftir að hafa lokið stúdentsprófi af eðlisfræðibraut Menntaskólans á Akureyri árið 2004. Hann vann áður við fræðslu hjá Orkuveitu Reykjavíkur, og er nú að ljúka störfum sem kennari við Menntaskólann í Reykjavík.
Finnur hefur tekið þátt í pólitísku starfi um árabil, í ungliðahreyfingu Vinstri-grænna ekki síður en í almennu flokksstarfi, og auk þess starfað mikið með Röskvu, samtökum félagshyggjufólks við Háskóla Íslands. Þá hefur hann skrifað fjölmargar greinar í blöð og á vefrit, sér í lagi á vefritið Múrinn. Fyrir síðustu þingkosningar var Finnur einn af þremur kosningastjórum Vinstri-grænna á höfuðborgarsvæðinu og hefur starfað fyrir þingflokk VG frá áramótum.
Í starfi sínu mun Finnur huga sérstaklega að upplýsingamálum, samskiptum við almenning og að styrkja tengslin við ungliðahreyfingu flokksins. Að öðru leyti starfar hann samkvæmt stöðluðum ráðningarsamningi aðstoðarmanna formanna stjórnarandstöðuflokkanna.
Finnur er búsettur í Reykjavík en ólst upp á Akureyri og í Svíþjóð. Lesa meira
Kjörnir fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hafa varað við harðri lendingu í efnahagslífinu allar götur síðan stóriðjustefnan skaut fyrst upp kollinum. Við höfum ítrekað lagt fram tillögur á Alþingi til að stemma stigu við aðsteðjandi ógn í efnahagsmálum en því miður hafa þær tillögur ekki fengið verðskuldaðan hljómgrunn. Þó að sá efnahagsvandi sem við stöndum frammi fyrir nú sé að einhverju leyti alþjóðlegur vandi þá er hann einnig heimatilbúinn og rökrétt afleiðing þess að þenja út efnahagslífið með stóriðjuframkvæmdum jafnframt því að lækka skatta og kynda þar með áfram undir neyslu og viðskiptahalla. Mesta áhyggjuefnið og stærsta verkefni stjórnvalda í dag er að sjá til þess að heimilin í landinu þurfi ekki að taka stóra skelli og að kjararýrnun verði sem minnst.
Þær aðgerðir í efnahagsmálum sem ríkisstjórnin boðaði í morgun er í áttina að því sem Vinstri græn kynntu í upphafi mánaðarins með yfirlýsingu og í kjölfarið frumvarpi, að gefa út ríkisskuldabréf og styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Við minnum á tillögurnar og frumvarpið.
Lesa meira
Þingflokkur VG lýsir þungum áhyggjum af ástandinu í heilbrigðiskerfinu og því upplausnarástandi sem þar er að skapast vegna framgöngu heilbrigðisráðherra í skjóli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Mikilvægustu heilbrigðisstofnunum landsmanna er haldið í fjárhagslegri spennitreyju, vinnuálag fer vaxandi á þegar undirmönnuðum deildum, vöktum er breytt í óþökk starfsfólks og nú er hafin handahófskennd einkavæðing einstakra þátta heilbrigðisstarfseminnar eða heilla deilda. Afleiðingar alls þessa birtast nú m.a. í hópuppsögnum sem að óbreyttu munu lama ómissandi kjarnastarfsemi í heilbrigðisþjónustunni. Að lokum gefast stjórnendur upp fullsaddir af skeytingarleysi heilbrigðisráðherra og hrokafullri framkomu. Alvarlegra er þegar þeir eru beinlínis hraktir úr starfi eins og nú hefur gerst með æðstu stjórnendur Landspítalans. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs mun ganga eftir því að upplýst verði um það mál.
Lesa meiraEftir Steingrím J. Sigfússon og Katrínu Jakobsdóttur, greinin birtist í Morgublaðinu 14. mars 2008:
Áhyggjur af stöðu efnahagsmála aukast hratt meðal almennings þessa dagana, af skiljanlegum ástæðum. Þó að eyðsla og umsvif séu enn mikil hefur hægst um á fasteigna- og hlutabréfamarkaði og almennt eru blikur á lofti í efnahagsmálunum. Boðaðar eru hækkanir á nauðsynjavörum og lán landsmanna lækka ekki þó að fólk borgi og borgi. Ekki má gleyma því að nýgerðir kjarasamningar milli aðila á almennum vinnumarkaði eru bundnir því að verðbólga náist þannig niður á næstu mánuðum að kaupmáttur launafólks haldist. Annars eru samningarnir lausir að ári. Nú er undir stjórnvöldum komið að stýra skútunni þannig að áföllin verði sem minnst en um leið verður að ná jafnvægi í íslensku efnhagslífi og tryggja stöðugleika. Það mun að sjálfsögðu takast og við Íslendingar munum vinna okkur í gegnum erfiðleikana nú eins og endranær. Það getur þó tekið á enda misskilningur að til sé einhver einföld, sársaukalaus töfralausn á okkar vanda.
Lesa meira
Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði haldinn í Héðinsminni 10. mars 2008, skorar á stjórnvöld að standa vörð um Hólaskóla, Háskólann á Hólum sem sjálfstætt menntasetur í þjóðareigu eins og hann hefur verið um aldir. Skólinn hefur lengi gengt þýðingarmiklu hlutverki og hefur verið stöðugur uppgangur í starfi hans í hartnær þrjá áratugi. Með þeim stuðningi sem honum ber mun skólinn halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum.
Fundurinn mótmælir harðlega hugmyndum um einkavæðingu skólans og að hann verði látinn í hendur einstakra fyrirtækja eins og stjórnendur fyrirtækjasamsteypu Kaupfélags Skagfirðinga sækja á um. Með slíku væri vegið að framtíð Hólaskóla og Hólastaðar. Mikilvægt er að óvissu um rekstur skólans verði eytt hið fyrsta og stjórnvöld einhendi sér í að standa með myndarlegum hætti að áframhaldandi uppbyggingu Hólaskóla, Háskólans á Hólum. Lesa meira
Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Skagafirði samþykkti tvær ályktanir á aðalfundi sínum. Önnur ályktunin er samþykkt til að lýsa yfir stuðningi við framkomna þingsályktunartillögu um friðlýsingu Austari- og Vestari Jökulsár í Skagafirði, en í hinni ályktuninni er lýst yfir stuðningi við landeigendur við neðri hluta Þjórsár í baráttu þeirra gegn virkjunum á ánni. Ályktanirnar eru svohljóðandi:
Lesa meira
Ung vinstri græn í Reykjavík harma ákvörðun meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur um að hefja heimgreiðslur til foreldra barna á biðlista eftir leikskólaplássi. Biðin eftir leikskólaplássi stafar af manneklu á leikskólum vegna bágra launa. Borgarvöld leysa engan vanda með heimagreiðslum sem eru svo lágar að þær vega engan veginn upp á móti því vinnutapi sem hlýst.
Lesa meiraVinstri græn í Reykjavík halda áfram fundaröðinni undir yfirskriftinni VG um alla borg. Í kvöld, 11. mars, er komið að Breiðholtinu en fundurinn er haldinn í Gerðubergi klukkan 20. Heiti fundarins er Bær í borg – skiptir hverfalýðræði máli? Ögmundur Jónasson og Svandís Svavarsdóttir hafa framsögur en allir eru hjartanlega velkomnir.
Lesa meiraFundaferðin VG um alla borg heldur áfram og í kvöld er komið að Lopapeysukommum og húsafriðunarfólki að ræða saman á Vesturgötu 4 klukkan 20. Katrín Jakobsdóttir alþingiskona og Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi flytja framsögur. Fundurinn er öllum opinn.
Lesa meira
Vinstri græn fagna alþjóðlegum baráttudegi kvenna og hvetja konur og menn til að taka þátt í viðburðum dagsins. Þessi merkisdagur hefur verið notaður til að efla andann í kvennabaráttunni og gleðjast yfir árangri um víða veröld. Á vef Kvennasögusafnsins segir um uppruna 8. mars:
Lesa meira
Tillögur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í efnahagsmálum lúta að styrkingu Seðlabankans, auknum sparnaði, stuðningi við nýsköpun og jöfnunaraðgerðum. Fljótlega verður frumvarpi í þessum anda dreift á Alþingi en helstu tillögurnar eru:
Ræða Ögmundar Jónassonar á mótmælafundi vegna Gaza á hádeginu 5. mars 2008:
Forsætisráðherra Íslands, sagði á Alþingi í vikunni að við yrðum að gera okkur ljóst að Íslendingar væru þess ekki umkomnir að stöðva ófriðinn í Palestínu. Hann sagði að þótt framferði Ísraela á Gaza svæðinu væri óafsakanlegt þá yrðum við að gæta að því að Ísraelar væru að svara eldflaugaárásum á eigið land. Það væri skýringin, þeirra skýring og þar með réttlæting á þessum aðgerðum.
Það má vel vera að við, ein og sér, smáþjóð á norðurhjara, séum þess ekki umkomin að stöðva hernaðarofbeldið í Palestínu. Okkur ber hins vegar að gera það sem í okkar valdi stendur til að stöðva yfirgang og ofbeldi hvar sem við fáum því komið við; okkur ber að leggjast á sveif með öllum þeim sem um víða veröld koma nú saman til að mótmæla ofbeldinu á Gaza. Og hvort sem við erum fá eða mörg þá er verkefnið hið sama; að vekja heimin til vitundar um það sem nú er þar að gerast.
Lesa meiraSíðustu ár hefur verið unnið að gerð norrænnar söngvabókar og er hún loksins komin út. Bókin heitir: „?ska nya röster sjunga -Nordisk rödgrön sångbok, en í henni er að finna fjölda baráttusöngva ættuðum frá öllum norðurlöndunum. Það er Nordisk Socialistisk Folkeoplysningsforbund sem gefur bókina út en það er samstarfsvettvangur fræðslusambanda og starfshópa á vegum vinstri – grænu flokkanna á Norðurlöndum. Fulltrúi Íslands í þessum hópi er Vinstrihreyfingin – grænt framboð en af okkar hálfu er það Gunnar Guttormsson sem hefur lagt ómælda krafta af mörkum til að gera söngvabókina að veruleika.
Lesa meira
Efnt verður til útifundar á Lækjartorgi í hádeginu á morgun, miðvikudaginn 5. mars klukkan 12:15, til að mótmæla blóðbaðinu á Gazaströnd. Kröfur dagsins eru: Stöðvum fjöldamorðin og rjúfum umsátrið um Gaza. Ræðumenn verða Katrín Fjeldsted læknir og Ögmundur Jónasson alþingismaður. Fundarstjóri er Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína.
Lesa meira
Á bæjarstjórnarfundi þann 19. febrúar s.l. gerði Margrét Kristín Helgadóttir, formaður samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar, grein fyrir starfsáætlun ráðsins fyrir hönd meirihluta Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Samkvæmt þeirri áætlun er ráðgert að gera róttækar breytingar á ýmissi félagslegri starfsemi sem starfrækt hefur verið hér á Akureyri. Má í því sambandi nefna Menntsmiðju unga fólksins og Menntasmiðju kvenna.
Lesa meiraÍ tengslum við flokksráðsfundinn síðustu helgi var haldin sveitastjórnarráðstefna þar sem fjallað var um kjaramál. Á ráðstefnuna komu fulltrúar þeirra sem eiga eftir að setjast að samningaborðinu; Eiríkur Jónsson frá Kennarasambandinu og Gunnar Rafn Sigurbjörnsson formaður Launanefndar sveitarfélaga. Við fengum vinsamlegt leyfi til að birta fyrirlestrana þeirra hér:
Á laugardaginn halda Ung Vinstri Græn stjórnmálaskóla fyrir ungt fólk á Akureyri og nágrenni. Sérstakt erindi heldur Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Allir velkomnir.
Tími: 11 – 15, laugardaginn 1. mars. Staður: Fundasalur Hótels KEA
Lesa meiraFlokksráðsfundi Vinstri grænna lauk með samþykktum nokkurra ályktana, um heilbriðgismál, kjaramál, sjávarútvegsmál, stóriðjumál, utanríkismál og efnahags- og atvinnumál. Ályktanirnar fylgja hér:
Lesa meira
Vinstrihreyfingin – grænt framboð glímir nú við það verkefni að gera sig gildandi sem leiðandi afl í stjórnarandstöðu eftir kosningar og ríkisstjórnarmyndun síðasta vor þar sem tveir stærstu og voldugustu flokkar landsins sameinuðust í ríkisstjórn með mannmargan meirihluta. Þessi ríkisstjórn hefur fengið ósköp notalega hveitibrauðsdaga – notið mikillar velvildar í leiðurum blaða, vinsælda í könnunum og fengið tóm til að undirbúa sín mál. Samfylkingin talaði fyrstu mánuðina um að hún þyrfti tíma til að setja mark sitt á stjórnarsamstarfið – svo mikinn tíma reyndar að talsmenn hennar afsökuðu síðustu fjárlög með því að flokkurinn þyrfti meiri tíma til að ná áhrifum í stjórnarsamstarfinu.
Lesa meira
Turid Leirvoll, framkvæmdastýra Socialistisk Folkeparti í Danmörku mætir á flokksráðsfund Vinstri grænna um helgina og segir frá kosningabaráttu dönsku félaga okkar. Danir gengu að kjörborði 13. nóvember síðastliðinn en þá tvöfaldaði SF fylgi sitt og var ótvíræður sigurvegari kosninganna. Flokkinum tókst einkar vel að ná til ungs fólks og kom áherslum sínum vel til skila í snarpri kosningabaráttu en boðað var til kosninga með þriggja vikna fyrirvara.
Flokksráðsfundur Vinstri grænna er haldinn á Loftleiðum dagana 22. – 23. febrúar og mun Turid halda fyrirlestur sinn og svara fyrirspurnum klukkan 10:30 á laugardeginum. Turid tók við framkvæmdastjórn flokksins árið 2002 en áður var hún framkvæmdastýra Socialistisk Vensterparti í Noregi í átta ár. Það er því óhætt að segja að Turid hafi yfirgripsmikla reynslu í stjórnmálastarfi systurflokkanna á Norðurlöndum. Allir félagar í Vinstri grænum eru hjartanlega velkomnir. Lesa meira
„Í lögum um nauðgun er allt of mikil áhersla á verknaðarlýsinguna, hvernig nauðgun er framin, í stað þess að líta á glæpinn í heild sinni og refsa fyrir hann.“ Segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna sem í um þessar mundir leggur fram frumvarp til breytinga á lögum um nauðgun. Tillaga Atla er einföld;
„Hver sem gerist sekur um nauðgun skal sæta fangelsi ekki skemur en 2 ár og allt að 16 árum.“
Lesa meiraÍ tengslum við flokksráðsfundinn um helgina heldur sveitastjórnarhópur Vinstri grænna ráðstefnu þar sem lögð verður sérstök áhersla á kjaramál, ráðstefnan er haldin á sama stað og flokksráðsfundurinn, á Hótel Loftleiðum. Dagskrá flokksrásfundarins má nálgast hér, en dagskrá sveitastjórnarrástefnunnar er sem hér segir:
Flokksráðsfundur Vinstri grænna verður haldinn um helgina á Hótel Loftleiðum. Fundurinn verður settur kl. 17 á föstudaginn og stendur fram eftir kvöldi. Á laugardeginum heldur fundurinn áfram klukkan níu og stendur til hádegis en eftir hádegi heldur sveitastjórnarráð Vinstri grænna ráðstefnu um kjaramál. Félagar í flokksráði Vinstri grænna eru allir þingmenn, varaþingmenn, sveitastjórnarfulltrúar, formenn svæðisfélaga og kjördæmaráða, formaður UVG auk félaga sem eru sérstaklega kjörnir á landsfundi. Þessir fulltrúar mynda flokksráð en að sjálfsögðu eru allir félagar í Vinstri grænum velkomnir. Dagskrá flokksráðsfundarins er svohljóðandi:
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs telur að sú hugmyndafræði sem lögð er til grundvallar nýgerðum kjarasamningum sé góð og nálgunin sé rétt svo langt sem hún nær, þ.e. að reyna að hækka lægstu laun og umsamda kauptaxta sérstaklega og ná þeim upp í áttina að því sem almennt er greitt á vinnumarkaði.
„Þessi niðurstaða samninganna breytir hins vegar ekki hinu, að áfram er verið að semja um í landinu laun sem eru langt undir framfærslukostnaði og þar með eiginlegum fátæktarmörkum. Ég minni á það sem þingflokkur VG hefur ítrekað lagt til, að gerð sé vönduð könnun á framfærslukostnaði og að umsamin laun taki mið af því. Enn á eftir að semja við fjölmennustu hópana sem tilheyra umönnunar- og uppeldisstéttum og ljóst að þar þarf að gera mun betur eigi að takast að stöðva flóttann úr þeim greinum.“ Lesa meira
Þingmennirnir Þuríður Backman og Steingrímur J. Sigfússon voru á kröftugum fundi á Bláu könnunni fimmtudaginn 14. febrúar. Steingrímur hafði reyndar verið þar með annan fund nokkrum vikum áður ásamt bæjarfulltrúum Vinstrihreyfingarinnar græns-framboðs á Akureyri þeim Balvini H. Sigurðssyni og Kristínu Sigfúsdóttur. Báðir fundirnir voru vel sóttir og gaman að sjá nýtt og áhugasamt fólk. Að vísu vantaði tilfinnanlega yngra fólkið í hreyfingunni. Um þriðjungur félaga í VG eru jú yngri en 30 ára.
Lesa meiraVinstri græn áttu stefnumót við framhaldsskólanema í Hinu húsinu þriðjudaginn 12. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var sagt frá því að stjórnmálaflokkar hefðu ekki sýnt svona samskiptum áhuga hingað til og fögnuðu félagar í Sambandi íslenskra framhaldsskólanema tækifærinu til að ræða málin við kjörna fulltrúa Vinstri grænna. Nýlega var Félag framhaldsskólanema sameinað Iðnnemasambandi Íslands undir heitinu Samband íslenskra framhaldsskólanema og spannar verksvið hins nýja félags bæði hagsmunabaráttu innan framhaldsskólanna og réttindabaráttu iðnnema á vinnumarkaðnum. Eðli málsins samkvæmt var því farið yfir stórt svið í samræðunum.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík sagði eftir blaðamannafund Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar í Valhöll borgarbúa eigi betra skilið. „Það er mikið áhyggjuefni þegar borginni er ekki stjórnað vegna glundroðans í Sjálfstæðisflokknum, risminni blaðamannafund höfum við ekki séð: Forystan er ósýnileg, aðrir borgarfulltrúar hafa sniglast út og Vilhjálmur situr einn eftir. Fyrir liggur að Sjálfstæðisflokkurinn gerir Vilhjálm ekki að borgarstjóra en í flokki glundroðans liggur ekki fyrir hver getur tekið við. Á meðan rekur borgin á reiðanum en við erum reiðubúin að taka við“ segir Svandís.
Lesa meiraAðalfundur kjördæmisráðs Vinstri grænna í Suðurkjördæmi sunnudaginn 10. febrúar samþykkti tvær ályktanir. Sú fyrri snýr að úrbótum á mismunandi stöðu fólks eftir kjörum og búsetu. Fundurinn ályktaði einnig að taka beri fiskveiðistjórnunarkerfið til endurskoðunar þar sem það hefur ekki uppfyllt þau markmið sem upphaflega voru sett. Í því sambandi er sérstaklega bent á tillögur Vinstri grænna á Alþingi til breytinga. Ályktanirnar fylgja hér í heild sinni.
Lesa meiraAðalfundur kjördæmisráðs Suðurkjördæmis var haldinn 10. febrúar 2008 í Tryggvaskála á Selfossi. Alma Lísa Jóhannesdóttir lét þá af störfum sem formaður og í hennar stað var Ólafía Jakobsdóttir kjörinn til formennsku næsta árið. Lögum kjördæmisráðsins var breytt á fundinum og það er nú skipað einum fulltrúa frá hverju svæðisfélagi í kjördæminu.
Lesa meira
Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík haldinn 7. febrúar 2008 fagnar nýútkominni skýrslu stýrihóps borgarráðs um málefni REI og Orkuveitu Reykjavíkur og þakkar formanni hópsins Svandísi Svavarsdóttur fyrir vel unnin störf. Niðurstöður og störf hópsins eru til marks um breytt og bætt vinnubrögð í stjórnmálum þar sem þverpólitískt samvinna er höfð að leiðarljósi til að ná fram niðurstöðu í alvarlegu og afar mikilvægu máli.
Brýnt er að tryggja tillögum hópsins farveg og að lærdómur verði dreginn af ferlinu öllu lýðræðinu og almenningi til góða. Lesa meira
Já, ótrúlegt en satt við eigum níu ára afmæli í dag. Við miðum við að á þessum degi, laugardaginn 6. febrúar 1999 réttum þremur mánuðum fyrir kosningar, hafi flokkurinn verið stofnaður. Stofnfundurinn stóð alla helgina, 5-7. febrúar, en þennan laugardag voru lög flokksins afgreidd og helstu stefnumál frágengin og flokkurinn því þannig séð lögformlega stofnaður. Og hingað erum við sem sagt komin, einu ári frá tíu ára afmælinu, sem við munum að sjálfsögðu halda upp á með pomp og prakt. Við erum fleiri, í flokknum, í sveitarstjórnum og á Þingi en nokkru sinni fyrr. Við erum betur skipulögð og kraftmeiri og höfum viðameira hlutverki að gegna sem þriðji stærsti flokkur landsins, bæði á sveitarstjórnarstigi og á landsvísu og stærsti flokkur stjórnarandstöðunnar á Alþingi.
En; við erum samt rétt að byrja. Það stendur ekki til að slaka á og aðeins njóta þess sem komið er. Við þurfum öll að vinna áfram, hér eftir sem hingað til, af sama krafti og frumbýlingsanda við að safna nýjum liðsmönnum og byggja okkur upp. Þeir sem skrá sig í flokkinn í dag eiga von á óvæntum glaðningi í tilefni dagsins.
Aftur til hamingju og baráttukveðjur
Steingrímur J. Sigfússon
Lesa meira
Í tilefni nýrrar ríkisstjórnar í Færeyjum sendi Steingrímur J. Sigfússon formanni Þjóðveldisflokksins, Högna Höydal eftirfarandi skeyti:
Fyrir hönd okkar í systurflokknum Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á Íslandi sendi ég þér og öllu Þjóðveldisfólki innilegar hamingjuóskir í tilefni af nýju stjórninni. Það gleður okkur að sjá að nú fá baráttumál Þjóðveldisflokksins brautargengi og Færeyjar undirbúa skref til enn aukins sjálfstæðis. Aukinn hlutur kvenna í stjórninni og færeyskum stjórnmálum almennt er ykkur til mikils sóma.
Með baráttukveðjum frá Íslandi þar sem þú ert alltaf auðfúsugestur.
Lesa meiraÍ stærstu sveitarfélögunum eru haldnir reglulegir bæjarmálafundir á vegum Vinstri grænna. Fundirnir eru opnir öllum og tilgangurinn er að kjörnir fulltrúar í sveitastjórnum séu í stöðugu sambandi og samstarfi við félaga. Í Kópavogi eru fundirnir haldnir klukkan 20 alla mánudaga í Kragakaffi, Hamraborg 1-3. Hafnfirðingar halda líka bæjarmálaráðsfundi á mánudögum klukkan 19:30 í Strandgötu 21. Á Akureyri eru fundirnir á sama tíma, ávallt á mánudögum klukkan 20 í aðstöðu Vinstri grænna við Gránufélagsgötu (fyrir ofan Joes). Tengslum kjörinna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur við félaga er með öðru sniði, en í Reykjavíkurfélaginu eru haldnir laugardags-fundir þar sem ákveðin mál eru tekin fyrir og auglýst sérstaklega. Félagar í Vinstri grænum eru hvattir til að mæta á bæjarmálaráðsfundi og taka þátt í pólitíkinni í nærumhverfinu.
Lesa meiraUng vinstri græn stóðu fyrir fyrsta stjórnmálaskóla sínum á Egilsstöðum um helgina. Hátt í tuttugu ungliðar komu til að læra og ræða saman um pólitíkina og hvernig henni verður best komið á framfæri.
Leiðbeinendurnir voru nær allir úr röðum Ungra vinstri grænna. Steinunn Rögnvaldsdóttir fór yfir sögu Vinstri grænna og UVG, Þórunn Ólafsdóttir sagði frá fyrstu reynslu sinni af stjórnmálaþátttöku og hvernig hún varð formaður UVG á Austurlandi, Finnur Dellsén fór yfir stefnu VG og stjórnaði umræðum um hana. Þingmaðurinn Þuríður Backman fræddi svo “nemendur” skólans um starfið á þingi og Kristján Ketill Stefánsson gerði grein fyrir meginatriðum fundarskapa áður en Auður Lilja Erlingsdóttir lauk skólanum með hugleiðingu um hlutverk ungliða í stjórnmálum yfirleitt.
Strax eftir stjórnmálaskólann var svo haldinn aðalfundur UVG á Austurlandi og ný stjórn kjörin. Í henni sitja þau Friðbergur Hreggviðsson, Júlíana Garðarsdóttir, Lára Lárusdóttir og Þórunn Ólafsdóttir. Samkvæmt nýsamþykktum lögum skiptir stjórnin skiptir svo með sér verkum.
Um kvöldið hittust ungliðarnir síðan á veitingahúsinu Kaffi Nielsen og skemmtu sér saman fram eftir kvöldi, sumir enn lengur.
Lesa meira
Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík, haldinn að Vesturgötu 7, 26. janúar 2008, þakkar vasklega framgöngu kjörinna fulltrúa sinna í Reykjavíkurborg í því upplausnarástandi sem ríkt hefur síðustu daga. Það er sérstakt fagnaðarefni að Tjarnarkvartettinn skuli sýna órofa samtöðu gagnvart þeim sundurlausa hópi sem nú hefur tekið við stjórnartaumum í Reykjavíkurborg. Vinstri græn munu hér eftir sem hingað til vinna öllum stundum í anda félagshyggju og velferðar í borginn og axla ábyrgð gagnvart borgarbúum.
Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík haldinn laugardaginn 26. janúar 2008 fagnar því að búið er að tryggja varðveislu húsanna við Laugaveg 4 og 6 og að götumynd þess hluta Laugavegar verður varðveitt. Málefni þessarra bygginga var í ákveðnum farvegi, sem án vafa hefði leitt til varðveislu þeirra og þá með hagkvæmari hætti en flaustur nýs meirihluta hefur leitt til. Jafnframt er minnt á nauðsyn þess að endurskoða skipulag Laugavegar upp að Barónsstíg til að tryggja varðveislu friðaðra húsa á þessu svæði, sömuleiðis að ganga með mikilli varfærni um önnur hverfi í gamla miðbænum í Reykjavík svo götumynd að byggðamunstur verði ekki fótum troðið.
Lesa meiraAðalfundur VG Grundarfirði var ahldinn 20. janúar síðastliðinn. Ný stjórn var kjörin en hana skipa Ragnar Elbergsson formaður, Helena María Jónsdóttir gjaldkeri, Þorbjörg Guðmundsdóttir ritari, Emil Sigurðsson og Gunnar Njálsson meðstjórnendur. Endurskoðendur voru kosnir Matthildur Guðmundsdóttir og Smári Björgvinsson.
Lesa meira
Á aðalfundi Kópavogsfélagsins í gærkveldi var Mireya Samper endurkjörin formaður. Aðrir í stjórn eru Guðbjörg Sveinsdóttir, Helgi Jóhannesson, Andri Erlingsson og Ásdís Jóhannesdóttir. Varastjórnina skipa Ólafur Þór Gunnarsson og Þóra Elfa Björnsson.
Lesa meiraStöðvum ruglið í Reykjavík: Yfirlýsing frá ungliðahreyfingum Tjarnarkvartettsins:
"Ungliðahreyfingar Samfylkingar, Vinstri grænna, Framsóknar og ungir stuðningsmenn Margrétar Sverrisdóttur ítreka mikilvægi samstöðu félagshyggjuaflanna í borginni og hvetja þau til þess að sameinast gegn upplausn í borgarstjórn Reykjavíkur út kjörtímabilið. Þessi samstaða er lykilatriði í því að úthýsa ruglinu úr ráðhúsinu.
Komið hefur í ljós að þessi skyndilegu og ástæðulausu umskipti byggja ekki á málefnaágreiningi heldur eru til komin vegna þess að sjálfstæðismenn í borgarstjórn eru tilbúnir að gera allt sem þarf til að ná aftur völdum eftir að hafa hrökklast frá vegna hneykslismála.
Nýr meirihluti verður auk þess óstarfhæfur vegna ósamstöðu meðal Sjálfstæðismanna og manneklu innan klofins F-lista sem eykur enn á óstöðugleikann í stjórnkerfi Reykjavíkur.
Reykvíkingar eiga betra skilið en að borgarstjórn þeirra leysist upp í baktjaldamakk og valdatafl. Nýr meirihluti var augljóslega myndaður á röngum forsendum og enn er hægt að hætta. Ungliðahreyfingarnar hvetja alla sem mögulega geta til þess að mæta á mótmæli Reykvíkinga fyrir framan ráðhúsið, klukkan 11.45 á morgun fimmtudag, og koma skoðun sinni á þessu athæfi á framfæri áður en fundur borgarstjórnar hefst."
Auk þess má benda á söfnun undirskrifta á netinu, en þær verða afhentar á morgun klukkan 11.30:
http://www.petitiononline.com/nogbodid/petition.html
Lesa meiraUng vinstri græn í Reykjavík lýsa yfir vantrausti á nýjasta meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur.Við teljum það þvert á vilja borgarbúa og raunar gengisfelling lýðræðisins að oddviti lista sem hlaut innan við 10% atkvæða borgarbúa í síðustu borgarstjórnarkosningum, njóti nú aðeins 3% stuðning samkvæmt nýlegri skoðanakönnun og ekki einu sinni stuðnings innan eigin varamanna sé orðinn borgarstjóri. Slíkt bendir augjóslega til þess að fýsn í völd sé tekin fram yfir hagsmuni Reykvíkinga.
Tíð meirihluta- og borgarstjóraskipti undanfarinna mánaða hafa rúið borgarstjórnina í heild sinni öllu trausti og það er miður. Á meðan borgarfulltrúar eru uppteknir í pólitísku plotti og meirihlutaskiptum þá er enginn að stjórna borginni en það er merki um ótrúlegt ábyrgðarleysi. Réttast væri að breyta lögum um sveitastjórnarkosningar og boða til nýrra kosninga svo hún fái endurnýjað umboð frá kjósendum og byggi upp það traust sem hún hefur tapað.
Stjórn UVGR
Við hvetjum Reykvíkinga til að láta í sér heyra meðal annars með því að undirrita mótmælaskjal á vefnum: http://www.petitiononline.com/nogbodid/petition.html Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon hefur verið kjörinn formaður jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins. Innan þingsins eru starfandi 10 málefnanefndir, þar á meðal jafnréttisnefndin eða Committee on Equal Opportunities for Women and Men, sem var stofnuð árið 1998. Verkefni nefndarinnar er að fjalla um lagalegt og félagslegt kynjamisrétti í aðildarlöndum Evrópu og innan Evrópurráðsins. Sérstök áhersla er lögð á baráttuna gegn mansali og öðru kynbundnu ofbeldi en nefndin er í samstarfi við fjölmörg alþjóðleg samtök sem starfa á þessu sviði, meðal annars United Nations Development Fund for Women (Unifem), United Nations Economic Commission for Europe (Unece), Commission on the Status of Women (CSW), Convention on the Elimination of All Forms of Discrimination against Women (Cedaw) og OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (Odihr). Í nefndinni eiga 84 fulltrúar sæti og undir hatti hennar starfa þrjár undirnefndir: Nefnd um ofbeldi gegn konum, nefnd um jafnrétti til valda og nefnd um mansal.
Lesa meira
Systurflokkur Vinstri grænna í Færeyjum, Þjóðveldisflokkurinn, er nú aftur orðinn stærsti flokkur eyjanna eftir glæsilegan kosningasigur til Lögþingsins. Þjóðveldisflokkurinn bætti við sig 1,6% og náði 23.3% atkvæða í kosningunum sem skilar flokknum 8 fulltrúum á lögþinginu sem telur alls 33 fulltrúa. Allir stjórnarflokkarnir töpuðu fylgi; Fólkaflokkurinn, Sambandsflokkurinn og Javnaðarflokkurinn, sem hljóta að teljast skýr skilaboð þó stjórnin hafi eftir sem áður sterkan meirihluta. Auk Þjóðveldisflokksins sitja tveir aðrir flokkar í stjórnarandstöðu; Sjálvstýrisflokkurinn og Miðflokkurinn, en þeir bættu báðir við sig fylgi í kosningunum.
Vináttutengsl eru á milli Vinstri grænna og Þjóðveldisflokksins og Högni Hoydal formaður flokksins hefur verið tíður gestur á landsfundum okkar auk þess sem ungliðahreyfingarnar hafa skipst á heimsóknum. Vinstrihreyfingin – grænt framboð óskar félögum sínum í Færeyjum hjartanlega til hamingju með sigurinn og brýnir þá til dáða í baráttunni fyrir bættum kjörum og sjálfstæði eyjanna. Lesa meira
Dýrleif Skjóldal sundþjálfari Sundfélagsins Óðins og sitjandi þingkona í fjarveru Steingríms J. Sigfússonar, hefur nú tekið að sér að kenna þingmönnum og þingstarfsmönnum skriðsund. Kennslan fer fram í hinni gömlu og góðu Sundhöll þeirra Reykvíkinga kl. 7.00 á morgnanna virka daga í þessari viku og þeirri næstu. Markmið námskeiðsins er að þingmenn og konur (sérstaklega úr hópi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs) haldi áfram á því fljúgandi skriði sem þeir hafa verið á og bæti í ef eitthvað er. Eins og von er á af hendi Dillu þá er ekki við öðru að búast en að þátttakendur standi undir þeim væntingum þegar að loknum 1. tíma. Áhugasamir um skriðsundsnámið geta mætt í sundhöllina kl. 7.00 næsta virkan dag og verið með. Þátttökugjaldið er hóflegt. Miðast það við áhuga og gott skap og verð ofan í laug í hvert skipti sem mætt er.
Lesa meira
Í byrjun vikunnar komu formenn og framkvæmdastýrur Vinstri grænu flokkanna á Norðurlöndum saman í Stokkhólmi. Flokkarnir hafa með sér reglulegt samstarf undir hatti Nordic Green Left Alliance og á fundinum var ákveðið að Vinstri græn á Íslandi tæki að sér formennsku í samstarfinu næsta árið. Í því felst að tryggja samráð og upplýsingaflæði milli flokkanna, halda málþing og hýsa fundi fyrir formenn flokkanna og framkvæmdastýrur. Norðurlandasamstarfið er mikilvægt enda glíma flestir flokkar við sömu viðfangsefni óháð löndum. Næsta árið verður fjallað sérstaklega um stöðu launafólks og hvernig flokkarnir geti samnýtt þekkingu sína til að verja áunnin réttindi þrátt fyrir að hart sé sótt að launafólki úr ýmsum áttum. Í apríl munu vinstri græn í samvinnu við systurflokkana halda málþing hér á landi til að fjalla sérstaklega um þessi mál.
Lesa meira
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að þær grunnforsendur sem íslenska kvótakerfið byggir á standist ekki. Þetta er enn ein staðfestingin á því að endurskoða þurfi íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið frá grunni.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um að markmið núverandi laga um stjórn fiskveiða hafa ekki náðst og reyndar hafa lögin aldrei verið fjær markmiðum sínum en einmitt í dag. Lesa meira
Þann 8. janúar síðastliðinn varð Þuríður Backman sextug. Af því tilefni býður hún til málþings sunnudaginn 13. janúar klukkan 14 á Hótel Héraði. Dagskráin er svohljóðandi:
“Að búa til framtíð”
Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur
“Að þekkja matinn frá moðinu”
Salvör Jónsdóttir skipulagsfræðingur MSc.
“Fossaraðirnar í Fljótsdal”
Helgi Hallgrímsson náttúrufræðingur
Lesa meiraJón Bjarnason þingmaður og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir framkvæmdastýra heimsækja Ísafjörð og nágranna-byggðir í dag og ætla auk þess að heimsækja vinnustaði að vera með létt kaffispjall á Hótel Ísafirði í kvöld klukkan 20 til 22. Þau fá til sín þrjá gesti sem verða með stutt erindi um ólík efni.
Martha Lilja Marthensdóttir Olsen, þjónustu- og kennslustjóri Háskólaseturs Vestfjarða verður með kynningu á Háskólasetrinu og stöðu og framtíðarhorfum í framhalds- og háskólamenntun á Vestfjörðum, Harpa Grímsdóttir forstöðumaður Snjóflóðaseturs Veðurstofunnar verður með umfjöllun um verkefni og starfsemi Snjóflóða-setursins og Sigríður Gísladóttir, dýralæknanemi flytur hugleiðingu um kosti og möguleika í landbúnaði á svæðinu. Á eftir verður umræðu- og fyrirspurnatími og vonast þau Jón og Guðfríður Lilja eftir að sjá sem flesta. Lesa meira
Fundur Vinstri - grænna, haldinn á Bláu Könnunni mánudaginn 7.janúar sl., skorar á ríkisstjórnina að koma myndarlega til móts við kröfur verkalýðshreyfingarinnar um aðgerðir til að bæta kjör tekjulægri hópa samfélagsins með hækkun skattleysismarka, hækkun barnabóta og auknum stuðningi við fólk vegna stóraukins húsnæðiskostnaðar. Fundurinn minnir á það vandræðaástand sem lág laun og mikið vinnuálag hefur skapað mönnum í uppeldis- og umönnunargreinum og á fleiri sviðum þar sem launakjör eru óviðunandi.
Lesa meira
Meirihlutinn í Árborg, sem skipaður er fulltrúum Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokksins hefur undirritað samning við Þingvallaleið um strætóferðir innan Árborgar. Strætó er gjaldfrjáls öllum farþegum og verður þessi tilraun endurmetin eftir eitt ár þegar sérleyfi Þingvallaleiðar rennur út. Markmiðið er að þá taki bærinn við rekstrinum og komi sér upp eigin strætókerfi. Farnar verða 9 ferðir á dag alla virka daga og gefin út leiðabók með tímasetningum og henni dreift á öll heimili. Sett verða upp strætisvagnaskýli á öllum stoppistöðvum.
Lesa meira
Þingmenn og fleira forystufólk Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi verða á ferð um norðurhluta kjördæmisins dagana 3-12 janúar í þinghléi. Haldnir verða fundir, vinnustaðir og stofnanir í kjördæminu heimsóttar. Nánar auglýst og boðað á hverjum stað.
Lesa meira
Jón Bjarnason alþingismaður og varaþingmennirnir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir eru á ferð um Vesturland í dag. Þau munu meðal annars halda fund með fulltrúum sveitastjórnar Hvalfjarðar-sveitar klukkan eitt og síðdegis hitta fulltrúa sveitastjórnar Borgarbyggðar. Fleiri ferðir og heimsóknir í kjördæminu eru í bígerð á næstunni. Með þessu vilja þingmenn og varaþingmennVinstri grænna nýta tímann áður en þinghald hefst til að kynna sér það sem helst er á döfinni og skiptast á skoðunum um þau málefni sem heitast brenna á fólki í upphafi nýs árs.
Lesa meira