Fréttir

Svandis

Til hamingju Svandís! - 31.12.2007

Svandís Svavarsdóttir var kjörin maður ársins á Rás 2 síðasta dag ársins. Þetta er verðskulduð viðurkenning enda vefst varla fyrir nokkrum þáttur Svandísar í því að tókst að mynda félagshyggjustjórn í Reykjavíkurborg borgarbúum til heilla. Við óskum félaga okkar í Vinstri grænum hjartanlega til hamingju með útnefninguna og hlökkum til frekara samstarfs í baráttunni fyrir jafnrétti, umhverfisvernd og félagslegu réttlæti. Vinstri græn óska sömuleiðis landsmönnum öllum árs og friðar og þakka fyrir samfylgd og stuðning á árinu 2007.

Lesa meira
 
jola-vg-logo

GLEÐILEG JÓL! - 23.12.2007

Vinstri græn óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla, friðar og gleði á nýju ári. Við þökkum stuðninginn á árinu sem er að líða.

Lesa meira
 
evropulogo

Evrópudómstóllinn vegur að launafólki - 20.12.2007

Í vikunni féll dómur Evrópudómstólsins í Vaxholm-málinu svokallaða en dómurinn kveður á um að heimilt sé að greiða laun samkvæmt kjarasamningum sem gilda í heimalandi verkamanna jafnvel þó verkefnið sé unnið í öðru landi. Forsaga málsins er sú að Lettneskt fyrirtæki tók að sér verkefni í bænum Vaxholm í Svíþjóð og greiddi starfsmönnum sínum samkvæmt lettneskum kjarasamningum. Þessu vildu verkalýðsfélög í Svíþjóð ekki una og börðust af krafti fyrir því að greiða bæri samkvæmt sænskum kjarasamningum. Því miður tók Evrópudómstóllinn ekki undir með Alþýðusambandi Svíþjóðar og vegur þar með að verkalýðshreyfingunni og þeim samningum sem í gildi eru á sænskum vinnumarkaði.

Lesa meira
 
gudrun_agusta_gudmundsdottir

Vel tekið í tillögur Guðrúnar Ágústu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar - 20.12.2007

Grunnskóli án gjaldtöku, gjaldfrjáls leikskóli 5 ára barna, aðgengismál, kaup á loftgæðastöð, umhverfisátak, skautahöll, launajafnrétti, upplýsingar til nýrra bæjarbúa, bygging sjálfbærs hverfis, rannsókn á námserfiðleikum stúlkna og kynning á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta eru allt tillögur bæjarfulltrúa Vinstri grænna sem hlutu góðar undirtektir á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði í gær og voru samþykktar til frekari umfjöllunar og úrvinnslu í ráð, nefndir og til starfsmanna. Tillögurnar í heild sinni fylgja hér:

Lesa meira
 

Stjórn VG á Akureyri fagnar aukningu til Háskólans á Akureyri - 18.12.2007

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri fagnar auknum fjárveitingum upp á 275 milljónir króna til Háskólans á Akureyri næstu þrjú árin. Þar með er óvissu eytt sem einkennt hefur rekstur Háskólans á Akureyri síðastliðinn ár, einkum hvað varðar möguleika skólans á sviði rannsókna og áframhaldandi uppbyggingar, og til að efla háskólanám á framhaldsstigi. Stórnendur, starfsfólk og nemendur Háskólans á Akureyri geta nú betur einbeitt sér að því gríðarmikla uppbyggingastarfi sem unnið er bæði innan og utan veggja skólans. Um málefni Háskólans á Akureyri hefur ríkt víðtæk pólitísk samstaða frá upphafi og er mikilvægt að svo verði áfram.

Lesa meira
 

Uppskipting Landsvirkjunar: Fyrsta skref til einkavæðingar? - 17.12.2007

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs telur alvarlegar spurningar vakna við þær fréttir að nú eigi að kljúfa Landsvirkjun í tvö fyrirtæki, annars vegar Landsvirkjun og hins vegar Landsvirkjun Power ehf. Með þessu sé verið að búa til tvo forstjórastóla í stað eins og færa hluta af umsvifum fyrirtækisins, ákvarðanir og verkefni, fjær eigendum, þ.e.a.s. almenningi. Aðhald og eftirlit kjörinna fulltrúa virðist með þessu verða takmarkað enn frekar en áður jafnvel þótt í hlut eigi einokunarrisi íslensks orkumarkaðar í 100% eigu almennings. Er þó svo illa komið nú þegar að fjármálaráðherra skipar einn stjórn Landsvirkjunar í stað þess að hún sé þingkjörin og komi frá sveitafélögum eins og áður var. Við þessar breytingar mun upplýsingagjöf „ehf.“-hluta fyrirtækisins væntanlega skerðast og viðbúið er að reynt verði að undanþiggja þann hluta starfseminnar ákvæðum upplýsingalaga og stjórnsýslulaga. Einnig hefur þetta áhrif á réttarstöðu starfsmanna. Lesa meira
 

Eldri borgarar fá liðveislu í Kópavogi að tillögu Vinstri grænna - 12.12.2007

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Kópavogs fyrir árið 2008, voru tvær af breytingartillögum VG samþykktar. Fyrri tillagan er um liðveislu fyrir aldraða, með svipuðu sniði og hefur verið í boði fyrir fatlaða. Þessi þjónusta hefur ekki verið áður í boði fyrir eldri borgara, og er mikilvægt framfaraskref sem mun gera eldra fólki auðveldara að búa að sínu. Kópavogur verður með þessu fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu til að taka upp slíka þjónustu. Seinni tillagan fjallar um fjármagn til vettvangsferða grunnskóla, en með henni er létt af foreldrum kostnaði vegna ferða grunnskólabarna á skólatíma. Samþykkt tillögunnar er mikilvægt skref í þá átt að jafna stöðu grunnskólabarna, og gera  grunnskólann gjaldfrjálsann, en jafnframt halda áfram þessum mikilvæga lið í skólastarfinu.  Samþykkt tillagnanna sýnir  að kröftugur málefnalegur málflutningur VG í bæjarstjórn skilar árangri, bæjarbúum til hagsbóta.

Lesa meira
 

Heilsugæslan í uppnámi - 9.12.2007

Stjórnarliðar felldu tillögur minnihlutans á þingi um aukin fjárframlög til heilsugæslunnar í fjáraukalögum sl. föstudag. Nú á þriðjudag fer fram atkvæðagreiðsla um fjárframlög til heilsugæslunnar á næsta ári. Þá verður spennandi að sjá hvað úr verður.

Jón Bjarnason þingmaður VG og fulltrúi í fjárlaganefnd hefur flutt tillögur um stóraukin framlög til heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og krafist þess að á málefnum hennar sé tekið. Jón bendir á að málið sé alvarlegt ekki bara fyrir heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu heldur víða um land og segir brýnt að ná þverpólitískri sátt um eflingu heilsugæslu landsmanna. Góð heilsugæsla sé einn mikilvægasti þátturinn í almennri heilsuvernd og forvörnum og það sé því gróf afturför í heilbrigðismálum ef heilsugæslan á nú að draga saman þjónustu sína.

Lesa meira
 
thjorsa

Neðri Þjórsá: Ríkisendurskoðun staðfestir gagnrýni vinstri grænna - 7.12.2007

Hinn 9. maí síðastliðinn samþykktu ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar fyrir hönd ríkisins samkomulag um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum ríkisins í neðri hluta Þjórsár á nokkurs fyrirvara í þágu fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs andmælti þessu á þeirri forsendu að þetta væri gert án heimildar í lögum og fór fram á að Ríkisendurskoðun kannaði hvort þetta stæðist lög.

Í gær birti Ríkisendurskoðun niðurstöður sínar þar sem fram kemur að gagnrýni VG var á rökum reist og að umræðtt samkomulag sé ekki bindandi fyrir ríkið enda skorti nauðsynlegar lagaheimildir.

Lesa meira
 
Ný þingflokkur VG

Yfirlýsing þingflokks Vinstri grænna í tilefni nýrra þingskaparlaga - 3.12.2007

Með framsetningu frumvarps til laga um breytingar á þingsköðum hefur forseti Alþingis því miður verið í forystu fyrir að rjúfa hefð um samstöðu um breytingar á þingsköpum og lagt fram frumvarp án samkomulags við stærsta þingflokk stjórnarandstöðunnar. Þingflokkur VG harmar þessi vinnubrögð í jafn mikilvægu máli þar sem rík skylda hvílir á öllum málsaðilum að leita samstöðu.

Afstaða þingflokks VG helgast af því að gæta réttar og vígstöðu stjórnarandstöðunnar í samskiptum við meirihlutann og þar með Alþingis sem slíks í samskiptum við framkvæmdarvaldið.

Þingflokkur VG hefur bæði á þessu hausti og á umliðnum árum lagt fram ýmsar hugmyndir um hvernig betrumbæta megi starfshætti Alþingis og vanda betur til vinnubragða við lagasetningu. VG hefði viljað sjá víðtækar breytingar á starfsháttum og vinnutilhögun á þingi með það að markmiði að gera lagasetninguna vandaðri og betri og starfsumhverfið allt fjölskylduvænna og markvissara. Umboðsmaður Alþingis hefur m.a. bent á hvernig Alþingi þurfi að vanda betur til verka og VG vill tryggja að það sé gert. Lesa meira

 
rokkad_gegn_stressi_1_des_07_1

Vinstri græn rokka í Keflavík - 3.12.2007

Það var fín stemming á Paddy's í Keflavík þegar Heiða, Elvar, Þormóður o.fl. VG-félagar gegnust þar fyrir 1.des samkomu undir yfirskriftinni: "Berjumst gegn jólastressi með rokki og róli". Meðfylgjandi myndir tók Óskar Pétur þegar fyrsta hljómsveitin, Malmeiropremia spilaði ásamt Vali Gunnarssyni rithöfundi sem las upp úr bók sinni Konungur Norðursins og Malmeiropremia spilar undir og söng einnig lög í stíl Leonard Cohen. Mjög sérstök tónlist og sérstök stemming.

Stefnt er að því að halda stofnfund Ungra vinstri grænna á Suðurnesjum strax í byrjun janúar. Þeir sem vilja taka þátt er bent á að hafa samband við Þormóð Loga logi@akurskoli.is s.822 5465. Lesa meira

 

Berjumst gegn jólastressi með rokki og róli - 30.11.2007

Það verður mikið um að vera á Paddy's á Hafnargötunni í Keflavík næsta laugardagskvöld, 1. desember. Þar verða hljómsveitir og rithöfundar í boði Vinstri Grænna, og yfirskrift tónleikanna er ,,Berjumst gegn jólastressi með rokki og róli". Þær hljómsveitir sem spila eru:

Palli-Stína, sem spilar einhvers konar pönk

Klaus, sem spilar tilraunakennda rokktónlist

Malmeiropremia ásamt Vali Gunnarssyni rithöfundi. Valur les upp úr bók sinni Konungur Norðursins og Malmeiropremia spilar undir, en einnig taka þeir nokkur klassísk lög með höfundum á borð við Leonard Cohen og Nick Cave.

Hellvar, sem spilar rafrokk.

Ætla listamennirnir að stuðla að stemmningu sem leysir upp jólastress, og áhyggjur munu hverfa eins og dögg fyrir sólu með því að hlusta á tal og tóna.

Kvöldið hefst klukkan átta og fyrstu tónarnir hljóma upp úr hálf-níu. Að sjálfsögðu kostar ekkert inn, og allir eru hvattir til að mæta, og þó sérstaklega þeir sem hafa áhuga á starfi Ungra Vinstri-Grænna, en til stendur að stofna sérstaka Suðurnesjadeild.

Lesa meira
 
saedis_osk_hardardottir

Frá aðalfundi Árborgarfélagsins - 29.11.2007

Svæðisfélag Vinstri grænna í Árborg hélt aðalfund sinn í gærkvöldi. Sædís Ósk Harðardóttir var endurkjörin formaður en auk hennar sitja Jón Hjartarson, Margrét Magnúsdóttir, Sigurður Ingi Andrésson og Valgeir Bjarnason í stjórn félagsins. Nokkrar ályktanir voru samþykktar; um eignarhald á Hitaveitu Selfoss, almenningssamgöngur, lækkun á leikskólagjöldum, umhverfissérfræðing og bitruvirkjun. Ályktanirnar í heild sinni fylgja hér:

Lesa meira
 
skagafjordur

Árið gert upp á félagsfundi í Skagafirði - 28.11.2007

Svæðisfélag Vinstri grænna í Skagafirði hélt opinn félagsfund í gærkveldi á Hótel Varmahlíð. Félagar mættu vel og gestur fundarins var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varaþingkona Vinstri grænna. Bjarni Jónsson, fulltrúi okkar í sveitarstjórn Skagafjarðar fór yfir þau mál sem eru þar efst á baugi og þingmaður kjördæmisins, Jón Bjarnason sagði frá þingstörfunum.

Guðfríður Lilja þakkaði Skagfirðingum fyrir baráttuna fyrir Jökulsánum og spunnust nokkrar umræður um náttúruverndarbaráttuna sem meðal annars Vinstri græn heyja nú um allt land. Mikill áhugi er meðal Skagfirðinga á baráttunni við Þjórsá enda þarf að reisa fána náttúruverndar um allt land gegn gegndarlausri ásælni virkjanasinna og mikilvægt að hvert landsvæði einangrist ekki í baráttu sinni.

Fundinum lauk með upplestri Bjargar Baldursdóttur úr nýútgefinni bók sinni, Kistunni hennar Grýlu og kom Vinstri grænum í Skagafirði þar með í jólaskap. Lesa meira

 

Aðalfundi Hafnarfjarðarfélagsins frestað - 27.11.2007

Aðalfundi svæðisfélags Hafnarfjarðar hefur verið frestað til 12. desember næstkomandi. Hann verður haldinn á skrifstofu félagsins, Strandgötu 11 klukkan 20. Lesa meira
 
holar_i_hjaltadal

Áform stjórnvalda um að leysa upp stoðkerfi landbúnaðarins gagnrýnd - 20.11.2007

Vinstri græn í Skagafirði vara við þeim áformum sem koma fram í frumvarpi að breytingum á Stjórnarráði Íslands, að sundra verkefnum í landgræðslu og skógrækt og flytja stofnanir þeirra frá landbúnaðarráðuneytinu. Skógrækt og landgræsla er óaðskiljanlegur hluti landbúnaðar og hefur verið ein af grunnstoðum landbúnaðrráðuneytisins. Nú á að kljúfa þær upp. Landbúnaðarskólarnir hafa heyrt undir atvinnuvegaráðuneytið frá upphafi og hefur reynst þeim vel. Sem hluti af heildarstoðkerfi landbúnaðarins og annars atvinnulífs hinna dreifðu byggða hafa þessir skólar náð að vaxa og dafna og þróað með sér mjög náið samstarf við atvinnulífið. Engin málefnaleg rök hafa verið færð fyrir að flytja skólana frá ráðuneytinu.

 

Vakin er athygli á að Hólar í Hjaltadal er biskupssetur Norðlendinga og  fjölþætt menningar og sögusetur ekki aðeins á héraðs heldur einnig á landsvísu. Staða og framtíð Hóla skiptir Skagfirðinga gríðarmiklu máli. Undir forsjá landbúnaðarráðuneytisins hefur þróast gott samstarf  milli allra aðila sem staðnum tengjast.  Í frumvarpinu er nánast engin grein gerð fyrir framtíðaráformum varðandi Hóla og Hólaskóla en aftur ítarlega fjallað um Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Lögð er þung áhersla á framtíð Hólaskóla  sem sjálfstæðs menntaseturs og engar forsendur  hafa skýrt  nauðsyn þess að flytja hann undir annað ráðuneyti. Lesa meira

 

Ályktanir aðalfundar Kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi 2007 - 19.11.2007

Á aðalfundi Kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi á laugardaginn síðasta voru samþykktar nokkrar ályktanir, meðal annars um flutning opinberra starfa út á land, utanríkis- og öryggismál, umhverfismál, samgöngumál og kjaramál. Ályktanirnar fylgja hér:

Lesa meira
 
SPNOR_logo

Sparisjóðsmál til umræðu í bæjarstjórn Akureyrar - 14.11.2007

Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar þann 13. nóvember síðastliðinn var tekin til umræðu fyrirhugaður samruni Sparisjóðs Norðlendinga (SPNOR) við BYR en eins og fram hefur komið í fréttum samþykktu stofnfjáreigendur SPNOR nýverið samrunann. Næsta skref í þessu ferli er að samrunnin hljóti samþykki Fjármálaeftirlitsins. Eins og gefur að skilja felst í sameingunni talsverð áhætta fyrir Akureyri enda verður SPNOR ekki lengur sjálfstæð fjámálastofnun heldur útibú frá BYR. Á það hafa bæjarfulltrúar VG, Baldvin H. Sigurðsson og Kristín Sigfúsdóttir, bent í umræðum um málið en þau lögðu fram eftirfarandi tillögu um bókun frá Akureyrarbæ:

Lesa meira
 
villy

Stórsigur SF - 14.11.2007

Sigurvegarar kosninganna í Danmörku í gær voru án efa systurflokkur Vinstri grænna, SF. Undir forystu Villy Sövndal tvöfaldaði flokkurinn fylgi sitt frá síðustu kosningum. Því miður styrkti hægriblokkin sig líka og er ljóst að ríkisstjórnin situr áfram. Vinstrihreyfingin – grænt framboð óskar Villy og öðrum félögum í SF hjartanlega til hamingju með árangurinn.

Lesa meira
 
SF_logo

Det ku´ være så godt: Steingrímur fylgist með kosningunum í Danmörku - 13.11.2007

Í morgun flaug Steingrímur J. Sigfússon til Danmerkur til að vera viðstaddur kosningarnar til danska þingsins. Ef marka má skoðanakannanir mun systurflokkur Vinstri grænna í Danmörku, SF, undir forystu Villi Sövndal, tvöfalda fylgi sitt frá síðustu kosningum og standa uppi sem sigurvegarar í kvöld. Flokkurinn hefur lagt áherslu á velferðarmál í kosningabaráttunni undir slagorðinu: Det ku´ være så godt. Í aðdraganda kosninganna hefur SF lagt áherslu á betri aðbúnað aldraðra, meðal annars með launahækkunum til handa starfsfólks sem hugsar um eldri kynslóðina. Þá leggja frambjóðendur SF áherslu á að fækka nemendum í hverjum bekk í grunnskólum og fjölga kennurum. Umhverfissjónarmið eru sömuleiðis áberandi þar sem hvetja á fólk til að nýta almenningssamgöngur, vindmyllum er gert hátt undir höfði sem virkjanakosti og fólk á að fá umbun fyrir umhverfisvænni lífsstíl.

Ung Vinstri græn boða til kosningavöku á Grand rokk í kvöld. Húsið opnar klukkan átta.

Lesa meira
 
ingolfsfjall

Ung vinstri græn á Suðurlandi álykta: - 13.11.2007

Hættum við Bitruvirkjun

Ung Vinstri græn á Suðurlandi, skora á Orkuveitu Reykjavíkur og borgarstjórn Reykjavíkur að hætta við áform um Bitruvirkjun á Ölkelduhálsi.

Þetta svæði er mikil náttúruperla og verðmætt útivistarsvæði. Má um margt líkja því að náttúrufegurð við Landmannalaugar, sem engum heilvita manni dettur í hug að virkja.

Við minnum á að ekki er síst mikilvægt að vernda náttúru í nágrenni þéttbýlis. Það er hluti af lífsgæðum að geta notið ósnortinnar náttúru og gæta þess sem næst okkur er.

Nóg er af jarðvarmaorku sem hægt er að sækja án mikilla náttúrspjalla og nær að snú sér þangað fyrst.

Sjá einnig heimasíðuna: http://www.hengill.nu/

Vörumst vítin við Ingólfsfjall

Ung Vinstri græn á Suðurlandi skora á bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfus, að læra af mistökum sínum við afgreiðslu á efnistöku úr Ingólfsfjalli, en festast ekki í forherðingu, eins og óttast má af orðum bæjarstjóra þeirra, Ólafs Áka Ragnarssonar, á forsíðu Fréttablaðsins 9. nóvember: "Svo hefur sveitarfélagið úrslitavald að lokum og getur tekið aðra ákvörðun en Skipulagsstofnun, eins og við gerðum með námuna í Ingólfsfjalli," segir Ólafur.

Lesa meira
 

VG fagnar framhaldsskóla við Eyjafjörð og hvetur til samgöngubóta - 12.11.2007

Aðalfundur svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Fjallabyggð, haldinn á Ólafsfirði 11. nóvember 2007, fagnar ákvörðun um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð og hvetur um leið samgönguráðherra til að ráðast í nauðsynlegar samgöngubætur, sérstaklega á snjóflóðasvæðum, þannig að öryggi vegfarenda verði tryggt á leiðinni milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar.

Brýnt er að áðurnefndum samgöngubótum verði lokið haustið 2009 þegar nýr framhaldsskóli tekur til starfa.

Á aðalfundinum var kosin ný stjórn svæðisfélagsins. Þormóður Sigurðsson var endurkosinn, formaður, Ríkey Sigurbjörnsdóttir var kjörinn ritari, Bjarkey Gunnarsdóttir sinnir starfi gjaldkera og Sigurður Hlöðversson ásamt Bergþóri Morthens eru meðstjórnandi.

Lesa meira
 
VG-S-1-Atli_Gislason_055

Vinstri græn í Vestmannaeyjum álykta - 9.11.2007

Á líflegum opnum fundi Vinstri grænna í Vestmannaeyjum í gærkvöldi var samþykkt ályktun um brýn samfélagsmál. Ályktunin fer hér á eftir

Tvær þjóðir í landinu

Opinn fundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Vestmannaeyjum haldinn 8. nóv. 2007 ályktar eftirfarandi:

Á undanförnum árum hefur hvers konar misrétti í íslensku samfélagi aukist. Launamunur eykst,  jafnrétti á ýmsum sviðum er orðin tóm, félagslegt öryggi hefur minnkað og þannig mætti áfram telja. Á sama tíma á landbyggðin mjög undir högg að sækja og staða hennar versnar stöðugt. Því er svo komið að sannarlega búa tvær þjóðir í landinu, þeir sem búa við alsnægtir og þeir sem búa við þröngan kost, öryggisleysi og mismunun. Íbúar landsbyggðarinnar sitja ekki við sama borð og íbúar höfuðborgarsvæðisins um menntun, samgöngur, fjarskipti, heilsugæslu, löggæslu og þannig mætti lengi telja. Þessu mótmælir fundurinn og krefst þess að horfið verði frá þeirri stefnu sem skapað hefur og viðhaldið slíku þjóðfélagi. Lesa meira

 
control-arms-banner

Óvelkomnir vopnasalar - 6.11.2007

Vegna frétta undanfarinna daga um fund æðstu yfirmanna vopnaframleiðslufyrirtækisins BAE Systems vill borgarstjórnarflokkur Vinstri grænna koma því á framfæri að hann harmar að Reykjavík sé með þessum hætti gert að vettvangi fundarhalda stjórnenda í þessum ógeðfellda iðnaði. Minnt er á að BAE Systems er stærsti vopnaframleiðandi Evrópu og einn sá stærsti í heimi. Fyrirtækið er þekkt fyrir að selja vopn til ríkja þar sem takmörkuð virðing er borin fyrir lýðræði og mannréttindum og má þar einna helst nefna Sádi-Arabíu og Indónesíu. Fyrirtækið hefur sömuleiðis setið undir ásökunum um stórfelldar mútugreiðslur til stjórnmálamanna og einræðisherra víða um lönd í tengslum við vopnasölusamninga.
Borgaryfirvöld hafa á síðustu misserum viljað kynna Reykjavík sem miðstöð friðar og má í því sambandi nefna Friðarsúlu Yoko Ono sem sett var upp í Viðey á dögunum. Fundir og kaupstefnur vopnaframleiðenda geta ekki samrýmst því markmiði og sömu sögu má raunar segja um ráðstefnur á borð við þá sem hernaðarbandalagið NATO hélt hér nýverið.
Borgarstjórnarflokkur VG minnir sömuleiðis á andstöðu Vinstri grænna við heræfingar í borgarlandinu og "kurteisisheimsóknir" herskipa í hafnir Reykjavíkur.

Lesa meira
 

Ógildingu samruna fagnað - 2.11.2007

Stjórn vinstri-grænna í Reykjavík fagnar þeirri ákvörðun borgarráðs að ógilda samruna REI og Geysir Green Energy og uppsögn þjónustusamnings á milli REI og Orkuveitu Reykjavíkur.

Sá árangur að náðst hafi þverpólitísk samstaða í borgarráði um málið sýnir og undirstrikar þá framsýni og réttlætiskennd sem einkennir forystufólk í borgarstjórnarflokki vinstri-grænna.

Auðlindir landsins skulu vera sameign þjóðarinnar!

Lesa meira
 

Húsnæði VG í Kópavogi til leigu - 30.10.2007

Bendum félögum í VG á að mögulegt er að leigja húsnæði Vinstri grænna í Hamraborg 1-3 í Kópavogi til lengri eða skemmri tíma.

Salurinn er hentugur fyrir fundi, litlar ráðstefnur, ýmiskonar námskeið og mannfagnaði. Þráðlaust internet er á staðnum og prentari. Salurinn hentar vel fyrir kokka sem að koma með allan mat á staðinn. Lítið eldhús með uppþvottavél, kaffivélum og eldhúsáhöldum.

Salurinn rúmar um 60 manns í sæti og er leigður gegn vægu verði.

Félagsmenn VG alls staðar af landinu fá 5000 kr. afslátt af salarleigu.

Hafið samband við Hrafnhildi Gunnlaugsdóttur í síma 861-0552 / 552-7538

Lesa meira
 

Kynhneigð kemur ríkinu ekki við - 26.10.2007

Á fundi sínum 26. október 2007 samþykkti stjórn Ungra Vinstri grænna svohljóðandi ályktun:

Ung vinstri græn telja það ólíðandi að íslensk lög skipti fólki í hópa eftir kynhneigð, enda er kynhneigð einkamál hvers og eins. Því er fáránlegt að tvö hjúskaparlög séu í gildi á Íslandi, önnur fyrir „gagnkynhneigða“ og hin fyrir „samkynheigða“.

Ung vinstri græn lýsa yfir stuðningi sínum við frumvarp um breytingingu á hjúskaparlögum sem Kolbrún Halldórsdóttir og fleiri hafa lagt fram á Alþingi. Samkvæmt frumvarpinu gilda ein hjúskaparlög fyrir okkur öll, óháð því með hverjum við viljum eyða ævinni.

Lesa meira
 
lydheilsa_og_samfelag_malthing_27okt07

Lýðheilsa og samfélag - 25.10.2007

Málþing Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um heilbrigði og heilbrigðisþjónustu, haldið í Ásnum, fundasal Landspítala - Háskólasjúkrahúss, laugardaginn 27. október 9-16, salurinn er fyrir innan mötuneyti Landspítalans við Hringbraut. Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.

Dagskrá:

Lesa meira
 
Huginn

Ný stjórn í VG á Akureyri - 25.10.2007

Aðalfundur svæðisfélags Akureyrar fór fram í Deiglunni þann 24. október. Fundurinn sendi baráttukveðjur í tilefni kvennafrídagsins. Á fundinum var einnig kjörin ný stjórn en Jón Erlendsson lét af embætti formanns og í hans stað var kjörin Huginn Freyr Þorsteinsson. Aðrir í stjórn voru kosnir:

Lesa meira
 

Aðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík skorar á borgarstjórn að afnema kynbundinn launamun - 24.10.2007

Svohljóðandi ályktun var samþykkt á aðalfundi Vinstri grænna í Reykjavík: Aðalfundur VGR, haldinn 24. október 2007, á þrítugasta og öðrum afmælisdegi kvennafrídagsins hvetur til öflugrar umræðu um stöðu kvenna á vinnumarkaði og skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að afnema kynbundinn launamun í komandi kjarasamningum.

Lesa meira
 
15_heimir_janusarson

Ný stjórn Vinstri grænna í Reykjavík - 24.10.2007

Á aðalfundi Vinstri grænna í Reykjavík 24. október 2007 var kjörin ný stjórn. Heimir Janusarson var kjörinn formaður en aðrir í stjórninni eru Guðlaug Teitsdóttir, Elías Halldór Ágústsson, Elín Sigurðardóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Toshiki Toma og Valgeir Jónasson. Sjöfn Ingólfsdóttir og Gérard Lemarquis voru kjörin varamenn. Skoðunarmenn reikninga eru Bergljót Stefánsdóttir og Svanhildur Kaaber.

Lesa meira
 

Lýðheilsa og samfélag - málþing á laugardaginn - 24.10.2007

Boðað er til málþings um heilbrigði og heilbrigðismál komandi laugardag, 27. október. Metnaðarfull dagskrá verður frá klukkan 9-16 með fjölda fyrirlesara og rými fyrir góðar umræður. Málþingið er haldið í sal inn af matsal Landspítalans við Hringbraut og er öllum opið meðan húsrúm leyfir.

Lesa meira
 
kvennamerkid

Í tilefni dagsins - 24.10.2007

Vinstrihreyfingin – grænt framboð byggir stefnu sína á umhverfisvernd, félagslegu réttlæti og kvenfrelsi. Síðustu ár hafa þingmenn Vinstri grænna lagt fram ótal tillögur um leiðir til að vinna á kynbundnu misrétti í samfélaginu. Vinstri græn hafa langt til að kaupendur vændis veri látnir sæta ábyrgð, að lögregla fái í hendur úrræði til að fjarlægja ofbeldismenn af heimilum og banna heimsóknir þeirra þangað tímabundið, að fórnarlömb mansals sem gefa sig fram hér á landi njóti verndar íslenskra yfirvalda, að jafnréttisstofa verði stórefld og fái í hendur tæki til að takast af alvöru á við kynbundinn launamun, að mikilvægi kvennahreyfingarinnar verði viðurkennt með markvissum hætti og fleira mætti telja

Lesa meira
 
Hjördís Garðarsdóttir

Aðalfundur VG á Akranesi kýs nýja stjórn og ályktar um fjölbraut - 23.10.2007

Á aðalfundi VG á Akranesi 22. Október var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs Akranesi og nágrenni, haldinn 22. október 2007, leggur áherslu á að ríkið geri FVA kleift að sinna skyldum sínum gagnvart nemendum á starfsvæði skólans. Nú er staðan sú að skólinn fær ekki fjárframlög með öllum þeim nemendum sem hann sækja samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2008.

Því ber að fagna að nemendum hefur fjölgað við skólann. Mikilvægt er að áfram verið hægt að bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu með því að tryggja nægt fjármagn til skólans. Lesa meira

 

Málþing um heilbrigðismál á laugardaginn - 22.10.2007

Komandi laugardag, 27. október, boðar Vinstrihreyfingin – grænt framboð til málþings um heilbrigðismál. Metnaðarfull dagskrá verður frá klukkan 9-16 með fjölda fyrirlesara og rými fyrir góðar umræður. Málþingið er haldið í sal inn af matsal Landspítalans við Hringbraut og eru félagar hvattir til að mæta og fá áhugafólk um heilbrigðismál með sér.

Lesa meira
 
or_logo

Nýjir fulltrúar í stjórn OR - 16.10.2007

Fyrsta verk nýs meirihluta í Reykjavík verður að setja af stað heildarstefnumörkun í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur. Á fundi borgarráðs á fimmtudaginn nk. verður skipaður þverpólitískur stýrihópur undir forystu Svandísar Svavarsdóttur sem tekst þetta verkefni á hendur. Til verkefnisins verða kallaðir óháðir sérfræðingar til að leggja mat á mismunandi leiðir í núverandi stöðu og draga lærdóm af umræðu og gögnum málsins. Hópurinn mun einnig leggja grunn að ákvörðunum um næstu skref í málefnum Orkuveitunnar, hlut hennar í útrás á orkusviði og stefnu til framtíðar. Í erindisbréfi hópsins er gert ráð fyrir að samráð og samvinna verði haft við aðra eigendur í Orkuveitunni.

Lesa meira
 
borgarstjornarflokkur 2006

Nýr meirihluti tekur við - 16.10.2007

Nýr meirihluti tekur við Reykjavíkurborg í dag, meirihluti Vinstri grænna, Samfylkingar, Framsóknar og F-lista. Þessi nýji meirihluti er myndaður til að starfa í anda félagshyggju og lýðræðislegra vinnubragða og ekki síst til að standa vörð um almannaeigur gagnvart botnalausri peningahyggju. Við óskum Reykjavíkingum til hamingju með nýjan meirihluta og óskum fulltrúum Vinstri grænna og fulltrúum samstarfsflokka okkar velfarnaðar í erfiðum en skemmtilegum verkefnum framundan.

Lesa meira
 
svandis_a_fundi

Vinstri græn í Reykjavík fagna nýjum meirihluta - 12.10.2007

Svohljóðandi ályktun var samþykkt einróma á fundi Vinstri grænna í Reykjavík:

Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík, haldinn 12. október 2007 fagnar nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg sem myndaður er til að starfa í anda félagshyggju, öflugrar almannaþjónustu og lýðræðislegra vinnubragða. Fundurinn lýsir sérstakri ánægju með vasklega framgöngu Svandísar Svavarsdóttur, oddvita VG, sem hefur staðið vörð um hagsmuni borgarbúa trú stefnu Vinstri grænna um umhverfisvernd, auðlindastefnu og jafnrétti. Félagsfundurinn lýsir fullum stuðningi við störf borgarstjórnarflokks VG við myndun hins nýja meirihluta og óskar Reykjavíkingum til hamingju með nýja félagshyggjustjórn.

Lesa meira
 

Nýjum meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur fagnað - 12.10.2007

Stjórnir Ungra vinstri-grænna og Ungra vinstri-grænna í Reykjavík fagna komandi meirihlutasamstarfi í Reykjavík. Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki verið við völd nema í eitt og hálft ár var löngu tímabært að koma hinum spilltu peningaöflum frá völdum í borgarstjórn Reykjavíkur.

Ein af forsendum þess að hið nýja samstarf gangi upp er að Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi, geri hreint fyrir sínum dyrum í orkumálum Reykjavíkur sem allra fyrst.  Einnig þarf Dagur B. Eggertsson að útskýra hvers vegna hann studdi það að völdum starfsmönnum  Orkuveitu Reykjavíkur yrði boðnir kaupréttarsamningar í  REI. Ung vinstri-græn telja Svandísi Svavarsdóttur hafa með framgöngu sinni að undanförnu sýnt að hún er og verður hinn eini sanni leiðtogi borgarstjórnar Reykjavíkur. Lesa meira

 
Svandis

Nýr meirihluti í Reykjavíkurborg - 11.10.2007

Nýr meirihluti F-listans, Vinstri grænna, Framsóknar og Samfylkingar var myndaður í Reykjavíkurborg í dag. Boðað er til félagsfundar í Reykjavíkurfélagi Vinstri grænna á morgun, föstudag 12. október af þessu tilefni. Fundurinn er haldinn klukkan 18 að Vesturgötu 7.

Lesa meira
 
akranesveita_logo

VG í Borgarbyggð skorar á Alþingi að afturkalla heimild til að selja Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar - 11.10.2007

Fundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Borgarbyggð, haldinn í Borgarnesi 10. október 2007, skorar á Alþingi að fella nú þegar úr gildi heimild í fjárlögum til að selja hlut ríkisins í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Atburðarás undanfarinna daga hefur leitt í ljós að sala ríkisins á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja voru mistök.

Það er Borgfirðingum afar mikilvægt að ráða þeim náttúruauðlindum sem gera Borgarfjörð jafn fýsilegan búsetukost og raun ber vitni en Deildartunguhver og önnur hitaréttindi HAB í Borgarfirði verði ekki leiksoppar markaðsaflanna líkt og gerst hefur á Suðurnesjum. Lesa meira

 
or_logo

VG í Borgarbyggð mótmælir hlutafélagavæðingu OR - 11.10.2007

Svohljóðandi ályktun var afgreidd á félagsfundi Vinstri grænna í Borgarbyggð 10. október:

Af gefnu tilefni mótmælir Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Borgarbyggð hugmyndum um að breyta Orkuveitu Reykjavíkur í hlutafélag. Enn fremur er tilefni til að minna kjörna fulltrúa og aðra fulltrúa almennings í stjórnum, nefndum og ráðum að þeim ber skylda til að gæta hagsmuna almennings og engra annarra hagsmuna í störfum sínum. Við alla ákvarðanatöku er mikilvægt að allar forsendur liggi fyrir og boðið sé upp á lýðræðislega umræðu áður en ákvörðun er tekin enda byggir lýðræðislegt stjórnarfar á þeirri vissu að betur sjái augu en auga. Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Borgarbyggð þakkar Svandísi Svavarsdóttur borgarfulltrúa skelegga framgöngu við að verja hagsmuni eigenda Orkuveitu Reykjavíkur í atburðarás þar sem allar meginreglur lýðræðis og jafnræðis virðast hafa gleymst.

Lesa meira
 
akranes_baejarmerki

Bókun fulltrúa VG í bæjarstjórn Akraness - 11.10.2007

Fulltrúi Vinstri grænna í bæjarstjórn Akraness lagði fram svohljóðandi bókun á fundi bæjarstjórnar 10. október:

Við horfum í dag fram á það að Hitaveita Suðurnesja verði á næstu dögum einkavædd, það er, að hluti Orkuveitu Reykjavíkur verði seldur inn í REI. Nú er Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, sem á 79,3% í HAB á móti 20,7% hluta ríkisins. Í tillögu að fjárlögum næsta árs er að auki gert ráð fyrir að ríkið selji sinn hlut.

Það sem hóf þetta ferli allt, sem við nú stöndum frammi fyrir, er sala ríkisins á 15% hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja. Það hlýtur því að vera hagur Akurnesinga að ekki verði af hlutafélagavæðingu Orkuveitunnar og komið verði í veg fyrir að Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar fari sömu leið og Hitaveita Suðurnesja. Ég skora á bæjarstjórn og fulltrúa Akraneskaupstaðar í stjórn Orkuveitunnar að leggjast gegn markaðsvæðingu OR og standa þar með vörð um hagsmuni bæjarbúa.

Lesa meira
 

Mætum öll á pallana klukkan fjögur - 9.10.2007

Haldinn verður aukafundur í Borgarstjórn Reykjavíkur miðvikudaginn 10. október klukkan fjögur um málefni Orkuveitunnar og samruna Geysis Green Energy við Reykjavik Energy Invest. Mætum á pallana, sýnum hug okkar og gerum kröfu um heiðarleg og lýðræðisleg vinnubrögð.

Lesa meira
 
UVG_logo

Stefnuyfirlýsing Ungra vinstri grænna samþykkt um helgina - 9.10.2007

Á nýafstöðnum landsfundi Ungra vinstri grænna var samþykkt stefnuyfirlýsing samtakanna. Hún er svohljóðandi:

Völdin til fólksins

Lýðræði grundvallast á að allir hafi jöfn tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanatöku og álit allra hafi jafn mikið vægi. Lýðræði snýst ekki eingöngu um að framkvæma vilja meirihlutans heldur líka að koma í veg fyrir að minnhlutinn sé kúgaður.

Ung vinstri-græn telja það ekki nægjanlegt að virkja lýðræði á fjögurra ára fresti. Við viljum auka aðgengi almennings að stefnumótun og ákvarðanatöku. Til að svo megi vera þurfa vinnubrögð stjórnvalda að vera fagleg og gagnsæ. Ung vinstri-græn vilja að almenningur hafi rétt til að kalla til þjóðaratkvæðagreiðslu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sömuleiðis ákveðið hlutfall þingmanna.  

Tjáningarfrelsið er einn af hornsteinum lýðræðisins og felur í sér að fólk hefur rétt á því að láta í ljós skoðanir sínar, hverjar sem þær eru, á þann hátt sem það kýs.

Lesa meira
 
Auður Lilja Erlendsdóttir

Auður Lilja endurkjörin formaður Ungra vinstri grænna - 9.10.2007

Landsfundur Ungra vinstri-grænna var haldinn í Reykjavík dagana 6.-7. október 2007. Fundurinn tókst í alla staði vel og var mæting ungliða með ágætum. Á landsfundi var Auður Lilja Erlingsdóttir endurkjörin formaður, en Auður Lilja hefur gegnt embættinu í eitt ár og er ennfremur fyrsti varamaður Vinstri grænna í Reykjarvíkurkjördæmi Suður. Nýkjörna stjórn Ungra Vinstri-grænna skipa eftirtalin:

Lesa meira
 
UVG_logo

Ályktanir landsfundar Ungra vinstri grænna - 9.10.2007

Landsfundur Ungra vinstri grænna var haldinn helgina 6.-7. og voru þar samþykktar eftirfarandi ályktanir:

Frjáls Palestína
Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október 2007, lýsir stuðningi sínum við sjálfstætt og lýðræðislegt ríki í Palestínu. Ísland á ekki að viðurkenna rétt Ísraelsríkis til hertekinna landsvæða í Palestínu. Þingið fordæmir stöðuga hersetu Ísraelsríkis í Palestínu og árásir þess á nágranna sína.

Lesa meira
 
or_logo

Vinstri græn á Akranesi álykta um Orkuveitu Reykjavíkur - 9.10.2007

Á opnum bæjarmálafundi Vinstri grænna á Akranesi 8. október síðastliðinn var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Vinstrihreyfingin – grænt framboð á Akranesi mótmælir harðlega þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum sem viðgengist hafa innan Orkuveitu Reykjavíkur og almenningur hefur orðið vitni að síðustu daga og vikur. Það er greinilegt að Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki liggur svo mikið á að framselja eignir almennings í hendur örfárra auðmanna að það er ekki ráðrúm til að stunda lýðræðisleg vinnubrögð. Allt stefnir þetta í þá átt að markaðsvæða orkugeirann eins og samþykktir Sjálfstæðisflokksins kveða á um, en ferlið virðist ekki þola dagsljós hvað þá heilbrigð skoðanaskipti. Þess í stað virðist græðgi ráða för þar sem einstaklingar maka krókinn í ferlinu. Mýmörgum spurningum er enn ósvarað, en eigendur Orkuveitunnar, sem eru íbúar Reykjavíkur, Akraness og Borgarbyggðar, eiga skýlausa kröfu um upplýsta umræðu og aðgengileg svör. Vinstrihreyfingin – grænt framboð á Akranesi skorar á bæjarstjórn að gæta hagsmuna bæjarbúa og almennings alls og standa vörð um grunnþjónustuna og samfélagslegar eignir gegn óheftri græðgisvæðingu.

Lesa meira
 
Svandis

Svandís Svavarsdóttir spyr: Sátt um hvað? - 8.10.2007

Ljóst er að sáttaniðurstaða Sjálfstæðismanna er sátt um áframhaldandi völd í Ráðhúsinu í Reykjavík. Hún er ekki sátt um vinnubrögð, ekki sátt um heiðarleika, ekki sátt um skilning á lýðræði og ekki sátt um samráð. Hún er sátt um að selja fyrirtækið hið fyrsta án þess að lykilspurningum hafi verið svarað. Jafnframt er hún sátt um að viðhalda völdum Framsóknarflokksins í borginni.

Hvað er Reykjavík Energy Invest? Hvað á þetta fyrirtæki? Enn hefur ekki verið lagður fram listi yfir eignir þess. Á að einkavæða hlut fyrirtækisins í Hitaveitu Suðurnesja? Á að einkavæða sérþekkingu Orkuveitu Reykjavíkur? Á að einkavæða fyrirtækið á grundvelli verðmats Hannesar og Bjarna? Hverjir munu kaupa aðrir en þeir sem þegar hafa eignast umtalsverðan hlut í fyrirtækinu? Var samruni fyrirtækjanna löglegur yfir höfuð? Þessum spurningum hefur ekki verið svarað.

Lesa meira
 

Ragnar H. Hall tekur að sér mál Svandísar Svavarsdóttur - 8.10.2007

Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður hefur tekið að sér mál Svandísar Svavarsdóttur, fulltrúa Vinstri - grænna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vegna eigendafundar Orkuveitunnar í síðustu viku þar sem tekin var ákvörðun um samruna Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy.

Svandís hefur í fjölmiðlum bent á að fundurinn hafi verið boðaður með innan við sólarhringsfyrirvara en boða ætti til slíkra fundi með minnst viku fyrirvara samkvæmt sameignarsamningi Orkuveitunnar. Hún lagði fram bókun þess efnis á fundinum og áskildi sér rétt til að láta á það reyna fyrir dómstólum.

Lesa meira
 

Eldri vinstri-græn halda fræðslu- og skemmtifund 10. október kl. 20.00 - 8.10.2007

Eldri vinstri græn halda fyrsta fræðslu- og skemmtifund haustsins miðvikudaginn 10. október nk. kl. 20:00 í Stangarhyl 4, húsi eldri borgara í Reykjavík. Dagskráin verður í aðalatriðum þessi:

1. Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöfluna – Auður Hildur Hákonardóttir grasnytjungur og myndlistarkona

2. Nostralgísk gamanmál – Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur

3. Norrænir söngvar fyrir flaututríó – Nemendur úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar leika undir stjórn Maríu Cederborg tónlistarkennara

4. „Allt í lagi í Reykjavík“ – Katrín Jakobsdóttir þingkona spjallar um pólitík í gamalli glæpasögu Ólafs Friðrikssonar.

Þetta er þriðja starfsár hópsins. Félagar í VG eru sérstaklega hvattir til að taka með sér vini og kunningja því fundirnir eru opnir öllum óháð aldri og stjórnmálaskoðunum. Í kaffihléi gefst gott tóm til að ræða nýjustu viðburði í pólitíkinni.

Lesa meira
 

Opinn fundur VGR um málefni OR - 5.10.2007

Í ljósi nýliðinna atburða standa Vinstri-græn í Reykjavík fyrir opnum laugardagsfundi um málefni Orkuveitu Reykjavíkur. Fundurinn fer fram á morgun, laugardaginn 6. október kl. 11.00, í húsnæði VG að Suðurgötu 3. Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi og fulltrúi VG í stjórn Orkuveitunnar mun ræða um stöðu mála.

Allir velkomnir.

 
or_logo

Ályktun stjórnar VG í Reykjavík um OR - 5.10.2007

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík tekur heils hugar undir gagnrýni Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa hreyfingarinnar, á samruna orkufyrirtækjanna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy. Samruninn og þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið orka mjög tvímælis og eru Reykjarvíkurborg ekki til sóma. Jafnframt lýsir stjórnin yfir fullum stuðningi við þá afstöðu borgarfulltrúans að láta reyna á lögmæti nýliðins eigendafundar OR fyrir dómstólum.
 
Svandis

Svandís mótmælir kröftuglega í OR - 5.10.2007

Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri - grænna í stjórn Orkuveitunnar, fundaði með lögmönnum í gærkvöldi um lögmæti eigendafundar Orkuveitunnar í fyrradag. Hún ætlar að leita leiða til að fara með málið fyrir dóm og fá niðurstöðu fundarins hnekkt.

Boðað var til eigendafundar í Orkuveitu Reykjavíkur í fyrradag með innan við sólarhrings fyrirvara, en skv. eigendasamningi Orkuveitunnar þarf að boða skriflega til slíkra funda með viku fyrirvara.

Svandís hefur harðlega gagnrýnt þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy.

"Stjórn OR fékk 3 klukkutíma með engum fyrirvara til að fara yfir sameininguna" segir Svandís. "Það er verið að krefjast þess af okkur að henda 2.600 milljónum í áhættufjárfestingar, sem er nákvæmlega sama upphæð og fer í rekstur allra leikskóla borgarinnar á fyrstu 6 mánuðum ársins. Hér er verið að að hleypa hagnaði almennings og almannafé í vasa einstaklinga og málið allt lyktar af spillingu. Við vinstri-græn munum ekki horfa upp á þessar aðfarir aðgerðalaus" segir Svandís. 

Lesa meira
 
graentflurlogo

Bæjarmálaráð VG í Kópavogi heldur opinn fund - 5.10.2007

Bæjarmálaráð VG í Kópavogi stendur fyrir reglulegum opnum fundum í vetur þar sem skipst verður á skoðunum um gang mála og fjallað um brýnustu verkefnin framundan. Fyrsti fundurinn verður haldinn á morgun laugardag 5. október kl. 10 í Kragakaffi, Hamraborg 1-3. Allir velkomnir! Lesa meira
 
uvg

Ályktanir frá Ungum vinstri grænum í Reykjavík - 2.10.2007

Ung vinstri græn í Reykjavík héldu aðalfund sinn laugardaginn 29. september síðastliðinn. Á fundinum voru samþykktar ályktanir um nektardansstaði, hjólreiðar, launamál borgarinnar, miðbæinn og opnunartíma skemmtistaða. Ályktanirnar fylgja hér í heild sinni:

Lesa meira
 
brynja_bjorg

Ný stjórn UVGR - 2.10.2007

Aðalfundur Ungra vinstri grænna í Reykjavík var haldinn á laugardaginn síðasta. Elín Sigurðardóttir lét þá af embætti formanns og í hennar stað var kjörin Brynja Björg Halldórsdóttir. Aðrir í stjórn eru Ástríður Pétursdóttir, Claudia Overesch, Egill Ísleifur Hjaltason, Sigurður Kári Árnason og til vara Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir og Sigrún Vala Þorgrímsdóttir.

Lesa meira
 
Ný þingflokkur VG

Áherslur í upphafi þings - 1.10.2007

Í upphafi þings mun þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs beita sér fyrir umræðu um mikilvægi þess að endurheimta jafnvægi og stöðugleika í efnahagsmálum og þau brýnu úrlausnarefni á sviði hagstjórnar sem við blasa. Ríkisstjórnin neitar að horfast í augu við þá staðreynd að kvótakerfið hefur brugðist og óumflýjanlegt er að taka fiskveiðistjórnunarkerfið til heildarendurskoðunar. Svokallaðar mótvægisaðgerðir stjórnarinnar eru fálmkenndar og koma þeim að litlu sem engu gagni sem fyrir mestu áfalli verða vegna niðurskuðrar á fiskveiðiheimildum. Þingflokkur VG mun sjá til þess að Alþingi taki á þessum málum á fyrstu starfsdögum sínum.

Lesa meira
 
turidur_malar

Þuríður málar til styrktar sónartæki - 28.9.2007

Þann 13. október næstkomandi verður haldið listmunauppboð á Hótel Héraði á Egilsstöðum til styrktar kaupum á Sónartæki fyrir HSA. Það er kvenfélagið Bláklukka sem stendur að uppboðinu en uppboðshaldari er Helgi Seljan fréttamaður. Í tilefni uppboðsins málaði Þuríður Backman mynd sem verður boðin upp ásamt verkum eftir þekkta íslenska listamenn. Sýning á verkunum opnar í kjallara Hótels Héraðs mánudaginn 8. október klukkan 17, en uppboðið sjálft fer fram eins og áður segir 13. október klukkan 13.

Lesa meira
 
Jón Bjarnason

Tillaga og álit minnihluta fjárlaganefndar vegna Grímseyjarferjumálsins - 20.9.2007

Á fundi fjárlaganefndar í dag var greinargerð Ríkisendurskoðunar um Grímseyjarferju-málið á dagskrá. Fulltrúar Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Frjálslynda flokksins í fjárlaganefnd báru fram eftirfarandi tillögu um að leitað yrði frekari upplýsinga um málið:

Lesa meira

 
arni thor a hjoli

Tillaga Árna Þórs um hljólreiðaáætlun samþykkt í borgarstjórn - 18.9.2007

Tillaga Árna Þórs Sigurðssonar, fráfarandi borgarfulltrúa Vinstri grænna, um hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavíkurborg var samþykkt í borgarstjórn fyrir stundu. Tillagan er svohljóðandi:

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að unnin verði sérstök hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík. Markmið áætlunarinnar verði að gera hjólreiðar að viðurkenndum og fullgildum kosti í samgöngumálum Reykvíkinga. Áætlunin taki annars vegar til stefnumótunar um aukið og bætt aðgengi hjólreiðafólks í borginni og hins vegar verði um að ræða framkvæmdaáætlun til nokkurra ára sem geri grein fyrir einstökum verkefnum og fjármögnun. Yfirstjórn verkefnisins verði í höndum umhverfis- og samgönguráðs og skal að því stefnt að áætlunin verði lögð fyrir borgarstjórn eigi síðar en um mitt ár 2008.

Lesa meira
 
turidur_og_farandsveinarnir

Þuríður og farandsveinarnir - 17.9.2007

Þuríður Backman þingkona var á ferð um kjördæmi sitt í síðustu viku og leit inn til bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs, Eiríks Björns Björgvinssonar. Á skrifstofu hans komu þýskir Zimmermännen til að fá stimpil bæjarstjóra til staðfestingar á því að þeir hefðu verið í vinnu í sveitarfélaginu. Gömul hefð er fyrir því í Þýskaldandi að trésmíðanemar yfirgefi heimabæ sinn og megi ekki nálgast hann í 15 kílómetra radíus í þrjú ár og einn dag. Hver og einn er með ferilbók, fremst í henni eru upplýsingar um iðnnemann, svo er kort af þeim radíus sem viðkomandi má ekki fara inn á. Hugmyndin er að þeir læri handverk og handbrögð annarra þjóða, því ber þeim að fara út um heiminn kauplaust og vinna fyrir mat um öðru uppihaldi. Í lok tímans fá þeir stimpil bæjarstjóra í viðkomandi bæ til að staðfesta að þar hafi þeir lifað og unnið. Þessir nemar hafa meðal annars komið við í Ástralíu og eru á leið til Kanada.

Lesa meira
 

Sveitarstjórnarráð Vinstri grænna ályktar í tilefni af umræðum um fjárfestingar einkaaðila í orkugeiranum - 13.9.2007

Eignarhald og nýting náttúruauðlinda hefur um langt skeið verið þrætuepli í íslensku samfélagi og hefur í raun klofið þjóðina í tvennt. Undanfarna áratugi hafa hatrammar deilur staðið um sjávarauðlindina, nýtingu hennar, framsal veiðiheimilda og eignarhald. Nú bendir ýmislegt til að í uppsiglingu kunni að vera  sambærileg átök um eignarhald og nýtingu orkuauðlindanna og vatnsins. Slík átök  verða ekki síður alvarleg fyrir íslenskt samfélag.  Þessi átök snúast um grundvallarhugsjónir, hvort tryggja eigi samfélagslegt eignarhald og nýtingu á orkuauðlindum eins og annarri grunnþjónustu eða hvort fórna eigi enn einni sameigninni í þágu peningaaflanna.
Lesa meira
 
bjornslundur

Fyrsti laugardagsfundur VGR haldinn í Björnslundi - 12.9.2007

Þá hefjast Laugardagsfundir Vinstri grænna í Reykjavík að nýju 15. september næstkomandi. Sá fyrsti verður á léttu nótunum og ætlar Hermann Valsson, formaður Vinstri grænna í Reykajvík, að bjóða okkur í Björnslund og kynna nýjar hugmyndir í útikennslu í grunskólum. Fundurinn hefst kl. 11:00. Björnslundur er syðst í Norðlingaholti. Ekið er inn í Norðlingaholt frá Breiðholtsbraut síðan farin Elliðabraut og Bugða til suðurs, innan 50 metra er komið að hvítu hliði á hægri hönd og er það inngangurinn í Björnslund.

Heitt kakó og pönnukökur, allir velkomnir!

Lesa meira
 

Leikskólavandi verður ekki leystur með einkavæðingu - 11.9.2007

Í ljósi ummæla formanns leikskólaráðs, bæði í borgarstjórn og í fjölmiðlum, um mögulegar breytingar á rekstrarformi leikskóla borgarinnar hefur fulltrúi Vinstri grænna í leikskólaráði, Helga Björg Ragnarsdóttir, óskað eftir að boðað verði til fundar í ráðinu hið fyrsta. Þau vandamál sem Leikskólar Reykjavíkur standa frammi fyrir verða ekki leyst með breytingum á rekstrarformi, eins og formaður leikskólaráðs virðist trúa, heldur fyrst og fremst með því að bæta kjör þeirra stétta sem þar starfa. Brýnt er að umræða um málið fari fram á vettvangi leikskólaráðs hið fyrsta.

Lesa meira
 
or_logo

Rekstrarformsbreytingin í almenna atkvæðagreiðslu - 6.9.2007

Á fundi borgarráðs var lögð fram tillaga borgarstjóra um starfshóp um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur. Við það tækifæri lagði borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna fram viðaukatillögu Vinstri grænna í borgarráði svohljóðandi:

Starfshópurinn sjái jafnframt til þess að öflug umræða eigi sér stað innan samfélagsins um svo afdrifaríkt mál sem hér er á ferð með íbúafundum og kynningum. Afar mikilvægt er að lýðræðisleg umfjöllun fái tíma og að almenningur fái ráðrúm til að kynna sér rök í málinu.

Starfshópurinn undirbúi einnig að hugsanleg rekstrarformsbreyting verði að lokum borin undir borgarbúa í almennri kosningu til að tryggja að vilji almennings í svo stóru máli komi fram.

Viðaukatillögunni var vísað í starfshópinn.

Lesa meira
 
VG við Þjórsá

Myndir úr sumarferð Vinstri grænna 2007 - 4.9.2007

Að loknum góðum flokksráðsfundi á Flúðum var haldið í gönguferð meðfram Þjórsá undir leiðsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur. Veðurguðirnir voru okkur hliðhollir og óhætt að segja að við mættum höfðinglegum móttökum heimafólks sem slóst í för með okkur og sögðu frá baráttunni fyrir verndun Þjórsár. Göngufólk upplifði sterkt mikilvægi þess að vernda þessa náttúruperlu gegn ásælni raforkufyrirtækja sem fara með offorsi gegn landeigendum og umhverfisverndarsinnum og Vinstrihreyfingin – grænt framboð mun ekki liggja á liði sínu í þeirri baráttu. Að göngu lokinni var slegið upp grillveislu í bústað Bergnýjar Marvinsdóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Hér má sjá myndir úr göngunni og grillinu.

Lesa meira
 

Fjölmennum á palla Ráhússins í dag klukkan tvö - 4.9.2007

Kæri félagi,

Málefni Laugavegar 4 til 6 verður fyrsta mál á dagskrá Borgarstjórnarfundar í dag. Fundurinn hefst klukkan tvö í Ráðhúsi Reykjavíkur og er um að gera að fjölmenna á áhorfendapallana. Enn er hægt að snúa við ákvörðuninni um niðurrif en það krefst mikils þrýstings og að borgarbúar taki þátt í umræðunni. Sjáumst í Ráðhúsinu klukkan tvö í dag.

Svandís Svavarsdóttir

Lesa meira
 

Gjástykki þolir enga bið - 3.9.2007

Á baksíðu Morgunblaðsins í dag er því slegið upp að Helgi Hjörvar, formaður umhverfisnefndar Alþingis, boði til fundar í nefndinni í næstu viku þar sem hann hyggist taka fyrir erindi frá Landvernd og SUNN, Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi. Samtökin hafa óskað eftir opinberri rannsókn á útgáfu rannsóknarleyfis til Landsvirkjunar vegna jarðhita í Gjástykki. Formleg umsókn um leyfið barst 8. maí sl. og var það afgreitt á tveimur dögum og og útgefið 10. maí sl., tveimur dögum fyrir alþingiskosningar.

Í baksíðuviðtali Morgunblaðsins lætur formaður umhverfisnefndar það ósagt að það voru þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem fimmtudaginn 30. ágúst sl. óskuðu eftir sérstökum fundi í bæði umhverfis- og iðnaðarnefnd vegna erindis samtakanna. Engin formleg viðbrögð hafa borist frá formönnum nefndanna fyrr en nú að lesa má í fjölmiðlum að Helgi Hjörvar „geri ráð fyrir“ að málið verði tekið upp á fundi í næstu viku. Enn er beðið svars frá formanni iðnaðarnefndar, Katrínu Júlíusdóttur. Lesa meira

 
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir ráðin framkvæmdarstýra þingflokks Vinstri Grænna - 3.9.2007

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tekur til starfa sem framkvæmdarstýra þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í september. Guðfríður Lilja er með BA-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og mastersgráðu í hugmyndasögu og heimspeki frá Cambridge-háskóla í Bretlandi. Hún hefur starfað sem alþjóðaritari á alþjóðasviði Alþingis frá árinu 2001. Hún starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri þingmannanefndar um norðurskautsmál þar sem hún vann að ýmsum verkefnum er lúta að náttúruvernd á norðurslóðum. Í síðustu kosningum skipaði Guðfríður Lilja annað sætið í Suðvesturkjördæmi og er varaþingkona Vinstri grænna. Hún er fyrsta konan sem gegnt hefur embætti forseta Skáksambands Íslands og Skáksambands Norðurlanda. Guðfríður Lilja býr með Steinunni H. Blöndal, hjúkrunarfræðingi og ljósmóður.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tekur við starfinu af Drífu Snædal sem áfram mun gegna starfi framkvæmdarstýru Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Lesa meira
 
Svandis

Fréttatilkynning frá fulltrúa VG í stjórn Orkuveitunnar - 3.9.2007

Á fundi Orkuveitu Reykjavíkur í morgun var samþykkt tillaga um að beina því til eigenda Orkuveitunnar að hefja undirbúning að hlutafélagavæðingu fyrirtækisins.

Fulltrúi Vinstri grænna lagði fram frávísunartillögu á fundinum svohljóðandi:

Það er mat fulltrúa Vinstri grænna að ekki sé eðlilegt að bera fram tillögu um breytt rekstrarform Orkuveitu Reykjavíkur á vettvangi stjórnarinnar. Það er hlutverk eigenda að leggja fram slíka tillögu sé til þess pólitískur vilji. Því er lagt til að tillögunni verði vísað frá.

Lesa meira
 

Ályktanir flokksráðs Vinstri grænna - 2.9.2007

Á nýafstöðnum flokksráðsfundi Vinstri grænna á Flúðum voru samþykktar fjórar ályktanir um: almannaþjónustu, friðar- og utanríkismál, um Orkuveitur Reykjavíkur og um lýðræði og umhverfi. Auk þess að ganga frá ályktunum voru fjörugar umræður um nýafstaðnar kosningar, áhrif markaðs- og einkavæðingar á samfélagþjónustu auk fjölda annarra mála. Að loknum flokksráðsfundinum var haldið í göngu meðfram Þjórsá undir leiðsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur. Ályktanirnar fylgja hér: Lesa meira
 

Sumarferð Vinstri grænna - 27.8.2007

Sumarferð Vinstri grænna verður að þessu sinni dagsferð um hluta Þjórsár undir leiðsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur þann 1. september næstkomandi. Ferðin er skipulögð sem fjölskylduferð en hraðskreiðir fjallagarpar fá einnig eitthvað fyrir sinn snúð. Við leggjum af stað frá Hótel Flúðum klukkan tólf á hádegi. Eftir um 6 klukkustunda þægilega göngu munum við svo grilla saman á vel völdum stað, en gangan verður að einhverju leiti sniðin að fjölda þátttakenda og því er nauðsynlegt að skrá sig og sína til leiks á vg@vg.is eða í síma 552 8872.

Lesa meira
 
thjorsa

Þingflokkurinn fer fram á úttekt Ríkisendurskoðunar v. samnings um vatnsréttindi í Þjórsá - 22.8.2007

Þann 9. maí 2007 gerði íslenska ríkið samkomulag um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum í neðri hluta Þjórsár. Samkomulagið er gert milli þriggja ráðherra og forstjóra Landsvirkjunar; fjármálaráðherra, fv. iðnaðarráðherra og fv. landbúnaðarráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins og undirritað án fyrirvara. Samkomulagið var undirritað þrem dögum fyrir kosningar, án minnstu vitundar Alþingis, landeigenda, sveitastjórna á svæðinu eða almennings og hefur verið haldið leyndu fram að þessu. Lesa meira
 

Greidd viðbótarlaun á leikskólum í Reykjavík að tillögu VG - 15.8.2007

Samþykkt var samhljóða í leikskólaráði Reykjavíkurborgar í dag tillaga Vinstri grænna um að grípa til aðgerða vegna manneklu á leikskólum borgarinnar. Nýtt verður heimild til greiðslu viðbótarlauna. Helga Björg Ragnarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í leikskólaráði lagði til að gripið verði til aðgerða og brugðist við því ástandi sem skapast hefur í leikskólum Reykjavíkurborgar vegna manneklu. Leita þarf leiða til að fá leikskólakennara til starfa og tryggja þar með faglegt starf leikskólanna. Því er lagt til að nýtt verði heimild til tímabundinna viðbótarlauna. Sú tillaga var sem áður segir samþykkt.

Lesa meira
 

Fjárlaganefnd verður að gera grein fyrir fjárskuldbindingum til hermála - 11.8.2007

Jón Bjarnason fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í fjárlaganefnd Alþingis hefur óskaði eftir fundi í fjárlaganefnd í dag með svohljóðandi  bréfi:

Hér með er óskað eftir fundi í fjárlaganefnd Alþingis. Tilefni fundarins eru fréttir um útgjöld og fjárskuldbindingar ríkissjóðs vegna yfirtöku ríkisins á rekstri Ratsjárstofnunar hér á landi.

Enn fremur er óskað eftir upplýsingum um fjárskuldbindingar til skemmri og lengri tíma vegna þátttöku í hernaðarumsvifum hér á landi á vegum Nató, þar með talið boðuðum heræfingum þess hér á landi.

Óskað er eftir að upplýst verði hvaða fjárheimildir af hálfu alþingis standa að baki þessum útgjöldum.

Minnt er á  ákvæði  laga um fjárreiður ríkisins nr. 98 frá 1997 sem kveða á um að ráðherra sé óheimilt að samþykkja greiðslur eða gera skuldbindandi samninga án fyrirfram samþykkis Alþingis. Aðeins má inna af hendi slíkar greiðslur í sérstökum neyðatilvikum . „Fjármálaráðherra er skylt að gera fjárlaganefnd grein fyrir slíkum ófyrirséðum greiðslum strax og ákvörðun hefur verið tekin um þær og leita heimilda til þeirra með frumvarpi til fjáraukalaga.“

Ekki verður séð að hér sé um að ræða slík neyðartilvik.

Það er grundvallaratriði að íslensk stjórnvöld fari að lögum og þess vegna er óskað eftir fundi í fjárlaganefnd svo fljótt sem verða má  þannig  að nefndin fái nákvæmar upplýsingar um áform ríkisstjórnarinnar um tilgreind aukin útgjöld og fjárskuldbindingar og lögmæti þeirra. Lesa meira

 
Steingrímur J. Sigfússon

Yfirlýsing frá Steingrími J. Sigfússyni fulltrúa Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í utanríkismálanefnd Alþingis - 9.8.2007

Undirritaður gagnrýnir harðlega hvernig bæði fyrrverandi og núverandi ríkisstjórn heldur á málum hvað varðar breytta stöðu utanríkis- og öryggismála í kjölfar brottfarar Bandaríkjahers af Íslandi.

  • -Án nokkurrar undangenginnar umræðu og stefnumótunar á sjálfstæðum íslenskum forsendum.
  • -án nokkurrar greiningar á þörfum Íslands og hagsmununm,
  • -án eiginlegs samráðs við utanríkismálanefnd
  • -án þess að hinn nýi samráðsvettvangur stjórnmálaflokkanna, sem boðaður var þegar hinn 26. september 2006, hafi litið dagsins ljós;

er Íslandi nú þvælt inn í heræfingar, samningar gerðir við önnur ríki og bandalög, mál sett í farveg og stofnað til mikils kostnaðar í nútíð og framtíð án nokkurra fyrirliggjandi fjárheimilda í lögum.

Það sem í vændum virðist vera og koma til með að fela í sér útgjöld er m.a.:

  1. Árlegar heræfingar Bandaríkjamanna og einhverra fleiri á grundvelli samninga Íslands og Bandaríkjanna frá sl. hausti með tilheyrandi gistiríkiskostnaði Íslands.
  2. Áframhaldandi rekstur ratsjárstöðvakerfis í hernaðarskyni og úrvinnsla á merkjum á kostnað Íslands frá og með 15. ágúst nk.
  3. Koma orustuflugvéla frá Natóríkjum 4 sinnum á ári í loftvarnarskyni og til æfinga með tilheyrandi gistiríkiskostnaði Íslands.
  4. Tvíhliða samningar við Norðmenn, Dani og mögulega fleiri og gistiríkiskostnaður sem á Ísland fellur vegna heimsókna og eftir atvikum umsvifa þeirra hér.
  5. Kostnaður innlendra aðila svo sem Landhelgisgæslu og lögreglu vegna þátttöku í æfingum o.fl.

Ennfremur vísar undirritaður til bókunar í utanríkismálanefnd hinn 24. apríl sl.

Alþingi, 9. ágúst 2007

Steingrímur J. Sigfússon

Lesa meira
 
VG-S-1-Atli_Gislason_055

Atli Gíslason sextugur - 2.8.2007

Í tilefni af 60 ára afmæli mínu 12. ágúst nk. tek ég á móti vinum, vandamönnum og öðrum sem vilja samgleðjast mér á þessum tímamótum í veitingaskálanum Þrastarlundi, Grímsnesi, laugardaginn 11. ágúst nk. og hefst afmælisveislan kl. 20.00. Mér þætti afar vænt um að jafnt afmælisgestir og þeir sem ekki eiga heimangengt 11. ágúst og vilja gleðja mig með gjöfum eða öðrum hætti láti Stígamót njóta gjafmildinnar. Kennitala samtakanna er 620190-1449 og bankareikningur 101-26-36549.  Fyrir þá sem ekki þekkja til vek ég athygli á að Þrastarlundur er með fegurstu stöðum á Suðurlandi.  Þar eru merktar gönguslóðir við allra hæfi og mjög stórt tjaldstæði.  Hlakka til að sjá ykkur. 

Kær kveðja,

Atli Gíslason

Lesa meira
 

Húrra fyrir lögreglustjóra - 2.8.2007

Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Kópavogi fagnar ákvörðun Lögreglustjóra að heimila ekki nektarsýningar á Goldfinger. Vinstri græn hafa lengi barist gegn þeirri niðurlægingu sem viðgengst á nektardansstöðum og bent á það kynbundna ofbeldi sem felst í kaupum og sölu á líkama kvenna. Ákvörðun Lögreglustjóra markar tímamót í kvenfrelsisbaráttunni þar sem hið opinbera setur skorður við hlutgervingu líkama kvenna. Vinstri græn binda vonir við að áfram verði haldið á þessari braut í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.

Lesa meira
 

Sumarferð - gengið með Þjórsá - 26.7.2007

Sumarferð Vinstri grænna verður að þessu sinni dagsferð um hluta Þjórsár undir leiðsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur þann 1. september næstkomandi. Ferðin er skipulögð sem fjölskylduferð en hraðskreiðir fjallagarpar fá einnig eitthvað fyrir sinn snúð. Ætlunin er að hittast á Hótel Flúðum klukkan ellefu um morguninn. Eftir um 6 klukkustunda þægilega göngu munum við svo grilla saman á vel völdum stað, en gangan verður að einhverju leiti sniðin að fjölda þátttakenda og því er nauðsynlegt að skrá sig og sína til leiks fyrir 7. ágúst á vg@vg.is. Gönguferðin og kvöldmaturinn er í boði Vinstri grænna en göngugarpar eru hvattir til að hafa staðgott nesti með sér í ferðina.

Lesa meira
 
Lilja Rafney

Vil ekki eyða orku og peningum í olíuhreinsistöð - 23.7.2007

Eftirfarandi viðtal við Lilju Rafney Magnúsdóttur birtist í héraðsfréttablaðinu BB á Ísafirði. Lilja er þekkt fyrir störf sín að verkalýðsmálum og stjórnmálum en hún hefur verið félagi í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði frá upphafi, var varaþingkona flokksins í tvö kjörtímabil og hefur setið í stjórn hans frá árinu 2001.

Lesa meira
 
tyrkneski_faninn

Vinstri græn á Norðurlöndum hvetja Tyrknesk stjórnvöld til að tryggja lýðræðislegar kosningar á sunnudag. - 20.7.2007

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur, ásamt systurflokkum í Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku, sent frá sér hvatningu til Tyrkneskra stjórnvalda að tryggja lýðræðislegar kosningar til tyrkneska þingsins á sunnudaginn. Sérstaklega er lýst yfir áhyggjum af stöðu Kúrda og ítrekuðum afskiptum hersins í aðdraganda undangenginna kosninga. Yfirlýsinguna í heild má nálgast hér.

Lesa meira
 

Um stóriðju, náttúruvernd og vistvæna orkustefnu - 20.7.2007

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lýsir miklum áhyggjum vegna þeirrar stefnu ríkisstjórnarinnar að heimila að áfram sé haldið undirbúningi álverksmiðja í Helguvík, í Straumsvík, á Húsavík og víðar í skjóli útgefinna rannsóknaleyfa til orkuöflunar. Yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar breytir að mati talsmanna orkufyrirtækjanna engu um þessi framkvæmdaáform, þótt annað hafi verið gefið í skyn af iðnaðarráðherra.

Lesa meira
 

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur beiti sér í þágu almennings og leggist gegn einkavæðingu orkugeirans - 16.7.2007

Yfirlýsing frá Svandísi Svavarsdóttur stjórnarmanni Vinstri grænna í Orkuveitu Reykjavíkur:

Það er afdráttarlaus afstaða Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að grunnþjónusta samfélagsins skuli vera á hendi ríkis og sveitarfélaga. Með nýjum samningi um kaup á hlutum í Hitaveitu Suðurnesja yrði brotið blað í orkumálum Íslendinga. Þetta krefst víðtækrar umræðu í þjóðfélaginu og lýðræðislegrar afgreiðslu á Alþingi og hjá sveitarfélögum.

Áform fyrri ríkisstjórnar um að einkavæða 15,2 % i Hitaveitu Suðurnesja hafa engu viðnámi mætt hjá stjórnvöldum þrátt fyrir breytta samsetningu ríkisstjórnar og nú stefnir í að gengið verði enn lengra og að 32% veitunnar verði í eigu einkaaðila. Ef fram fer sem horfir er lýðræðislegu aðhaldi innan Hitaveitu Suðurnesja stefnt í uppnám og almannahagsmunir fyrir borð bornir.

Með þessari yfirlýsingu er vakin athygli á stórvarasamri stefnu og hættulegu fordæmi og þess krafist að ekki verði hróflað við grunnþáttum samfélagslegrar þjónustu.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ber að beita sér í þágu almennings og þar með leggjast gegn einkavæðingu orkugeirans. Í því ljósi ætti stjórn OR að hafa frumkvæði að umræðu á milli ríkis og sveitarfélaga um hvernig megi tryggja að orkufyrirtæki haldist í almannaeigu en gangi ekki kaupum og sölum á hlutabréfamarkaði eins og nú stefnir í varðandi Hitaveitu Suðurnesja.

Lesa meira
 

Engin stefnubreyting með nýrri ríkisstjórn - 2.7.2007

Fréttir af áformum stóriðjufyrirtækja um stóraukna uppbyggingu áliðnaðar á Íslandi voru tilefni þess að fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs óskuðu eftir fundi í umhverfis- og iðnaðarnefndum Alþingis. Sameiginlegur fundur nefndanna var haldinn í morgun og til hans boðaðir fulltrúar iðnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, Samorku og verkefnisstjórnar rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.

Lesa meira
 

Þingflokkur VG krefst þess að ríkið falli frá sölu á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja - 29.6.2007

HS_logoÝmis sveitarfélög sem átt hafa eignaraðild að Hitaveitu Suðurnesja eða eru á þjónustusvæði hennar eru uggandi vegna sölu fyrirtækisins og aðkomu einkaaðila að rekstrinum. Þegar ríkið bauð hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til kaups skömmu fyrir nýafstaðnar kosningar til Alþingis kom í ljós að fjárfestar mátu fyrirtækið á margfalt hærra verði en opinberir aðilar höfðu gert. Þetta endurspeglar trú fjárfesta á möguleikum til að hafa arð út úr orkugeiranum eftir að hann hefur verið markaðsvæddur. Forsenda mikillar arðsemi er að sjálfsögðu hátt raforkuverð sem kemur til með að bitna á neytendum, hinum almenna raforkukaupanda, heimilum og fyrirtækjum. Lesa meira
 

Sól við Urriðafoss og kaffi í Þjórsárdal á sunnudaginn - 29.6.2007

urridafossBaráttufundur til verndar Þjórsá verður við Urriðafoss næstkomandi sunnudag 1. júlí kl. 15:00. Náttúruunnendur og áhugafólk um verndun fossins er hvatt til að mæta. Þannig geta landsmenn sýnt hug sinn og stutt baráttu Flóamanna sem búa nú við þungan þrýsting stórfyrirtækja og stjórnvalda um að fórna náttúru landsins fyrir gsm-samband og malbik. Fólki er bent á að sameinast í bíla eins og kostur er, nota bílastæði fjær fossinum, koma á reiðhjóli eða ríðandi eða gera annað það sem kemur í veg fyrir bílastæðavandamál. Heimamenn sjá um dagskrána. Lesa meira
 

Grímulaus stóriðjustefna nýrrar ríkisstjórnar - 28.6.2007

alver_i_helguvikÍ tilefni þess að borgarráð samþykkti samning um raforkusölu Orkuveitu Reykjavíkur til hugsanlegs álvers Norðuráls í Helguvík bókaði Svandís Svavarsdóttir svo:

Orkuveita Reykjavíkur starfar samkvæmt hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar sem kallar á heildstæða nálgun hvers verkefnis sem ráðist er í. Með því er átt við fyrir liggi með skýrum hætti hversu stórt álver er fyrirhugað að reisa, á hvaða svæði nákvæmlega er fyrirhugað að sækja orkuna, orkuverðið sé kunnugt almenningi og að fyrir liggi heildstæð áætlun um verkið og áhrif þess á umhverfi, samfélag og efnahag. Í ljósi þessa er fyrirliggjandi tillaga um afgreiðslu orkusölusamnings til hluta álvers í Helguvík óásættanleg.

Lesa meira
 

Ályktun frá Sólunum þremur - 26.6.2007

Sólirnar þrjár í Straumi, á Suðurlandi og á Suðurnesjum sendu frá sér eftirfarandi ályktun í tilefni kynningarfundar í Þjórsárveri þar sem kynntar voru tvær tillögur að aðalskipulagi Flóahrepps.:

Sól á Suðurlandi, Sól í Straumi og Sól á Suðurnesjum fagna samþykkt hreppsnefndar Flóahrepps frá þrettánda júní 2007, um að hafa Urriðafossvirkjun ekki inni á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Samþykktin er mikil hvatning til þeirra sem vilja verja náttúruna við Þjórsá og hindra að orka þaðan verði seld til stóriðju.

Lesa meira
 

Stýrihópur VG um sjávarútvegsmál - 23.6.2007

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur stofnað stýrihóp um sjávarútvegsmál sem mun fylgjast grannt með þróun sjávarútvegsmála á næstunni. Nýleg tíðindi um stöðu þorskstofnsins og fregnir af alvarlegu atvinnuástandi í sjávarbyggðum gefa fulla ástæðu til að taka út ástandið í greininni og endurmeta stöðuna. Sjávarútvegur er einn af undirstöðuatvinnuvegum íslensku þjóðarinnar og miklu skiptir að taka ákvarðanir sem byggjast á skýrum vistfræðilegum, félagslegum og efnahagslegum forsendum og hafa þar hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi. Atli Gíslason, fulltrúi Vinstri–grænna í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis, leiðir hópinn en aðrir fulltrúar eru Álfheiður Ingadóttir, Björn Valur Gíslason, Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, Bjarni Jónsson, Ásbjörn Björgvinsson og Hjörleifur Guttormsson. Lesa meira
 

Málflutningur Samfylkingarinnar í öngstræti - Bókanastríð í Hafnarfirði - 22.6.2007

Bæjarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í Hafnarfirði lagði fram fyrirspurn á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í morgun þar sem óskað er eftir greinargerð um samskipti bæjarstjóra, kjörinna fulltrúa Hafnarfjarðar og starfsmanna Hafnarfjarðar við Alcan í Straumsvík. Einnig lagði fulltrúi VG fram bókun vegna ummæla bæjarstjóra í fjölmiðlum undanfarnar vikur þess efnis að niðurstaða íbúakosningarinnar hafi aðeins verið bindandi hvað þessa ákveðnu deiliskipulagstillögu varðar og að fyrirtækið geti komið með nýja deiliskipulagstillögu sem þá verði send til afgreiðslu bæjarbúa. Lesa meira
 

VG í Hafnarfirði: Samfylkingin í pólitísku öngstræti - 21.6.2007

Það er greinilegt að enn á ný á að velta af stað stóriðjuboltanum, í sömu
stefnu, í sömu átt og fyrri ríkisstjórn. Með yfirlýsingum sínum í fjölmiðlum
í gær sýndi bæjarstjórinn í Hafnarfirði hvaða vægi atkvæðagreiðsla meðal
íbúanna hefur í raun í huga meirihlutans í bæjarstjórn. Á bæjarráðsfundi í
dag fékkst þessi afstaða staðfest af bæjarráðsmönnum Samfylkingarinnar. Lesa meira
 

Vinstri græn á Norðulöndum skora á ríkisstjórnir að viðurkenna sjálfstæði Vestur - Sahara - 15.6.2007

Vinstri græn á Norðurlöndum sendu í dag frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem skorað er á ríkisstjórnir Norðurlanda að viðurkenna sjálfstæði Vestur-Sahara (Saharawi Arab Democratic Republic). Meira er 35 ár eru liðin síðan Spánn yfirgaf þessa fyrrum nýlendu sína en allar götur síðan hefur Marokkó hersetið landið og íbúar þess lifað undir oki þeirra. Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað ályktað að Vestur-Sahara skuli fara með sjálfsstjórn, en án árangurs. Nú síðast bókaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að reyna skyldi til þrautar að ná pólitískri niðurstöðu með það að markmiði að Vestur-Sahara fari með stjórn eigin mála. Lesa meira
 

Ályktun Þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um stöðu þorskstofnsins, vanda sjávarbyggða og heildarendurskoðun sjávarútvegsstefnunnar - 12.6.2007

Þingflokkur VG telur skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar um ástand þorskstofnsins fela í sér mjög alvarlegar upplýsingar og álítur annað ábyrgðarlaust en hlíta ráðgjöfinni, fara að tillögum um samdrátt í veiðum og innleiða hina nýju aflareglu. Pólitískum ákvörðunum um veiði úr þorskstofninum langt umfram ráðgjöf eins og viðgengist hefur um árabil verður að linna og beita verður varúðarnálgun um veiðiálag þannig að takast megi að snúa núverandi þróun við og byggja hrygningarstofninn upp stig af stigi.

Lesa meira
 

Kosningahappdrættið - útdráttur - 7.6.2007

Þann 7. júní var dregið í Kosningahappdrættinu - upplýsingar um hvernig nálgast má vinninga er að fá á skrifstofu Vinstri grænna, s: 552 8872, netfang vg@vg.is. Útdrátturinn fór sem hér segir: Lesa meira
 

Uppskeruhátíð - 5.6.2007

Blásið er til uppskeruhátíðar eftir kosningarnar í Kragakaffi (Hamraborg 1-3) í dag milli klukkan 17 og 19. Eftir frækilega baráttu er tilefni til að hittast aftur og fagna góðum árangri og vel unnum störfum. Sérstaklega eru allir þeir fjölmörgu sjálfboðaliðar sem lögðu hönd á plóg í baráttunni á höfuðborgarsvæðinu boðnir velkomnir.

Lesa meira
 

Verkskipting þingflokks Vinstri grænna - 29.5.2007

Ögmundur JónassonÞingflokkur Vinstri grænna skipti með sér verkum fyrir stundu. Formaður þingflokks er Ögmundur Jónasson, varaformaður er Katrín Jakobsdóttir og ritari er Kolbrún Halldórsdóttir.

Lesa meira
 

Vinstri græn vilja tafarlausar aðgerðir stjórnvalda - 22.5.2007

Vinstri græn í Ísafjarðarbæ vilja að gripið verði til tafarlausra aðgerða af hálfu stjórnvalda og Ísafjarðarbæjar til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búsetuflótta frá Flateyri. Þetta kemur fram í ályktun sem félag Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Ísafjarðarbæ hefur sent frá sér. Í ályktuninni segir jafnframt að mikilvægt sé að íbúar sjávarbyggða vítt og breitt um landið fái um það skýr skilaboð frá stjórnvöldum hvernig bregðast eigi við aðstæðum sem nú eru uppi á Flateyri vegna fyrirhugaðra sölu veiðiheimilda og lokunar fiskvinnslufyrirtækisins Kambs. Þessar aðstæður gætu blasað við öðrum sjávarbyggðum hvenær sem er við núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi sem er alfarið á ábyrgð stjórnvalda. Vinstri græn segja kröfu íbúa sjávarbyggðanna hljóta að vera þá að grunnréttur þeirra til auðlinda fiskimiðanna sé tryggður til frambúðar og þar með atvinnu- og búsetuöryggi. Lesa meira
 

Áhugahópur um verndun Jökulsánna í Skagafirði hvetur verðandi ríkisstjórn - 22.5.2007

Áhugahópur um verndun Jökulsánna í Skagafirði hvetur verðandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar til að beita sér fyrir verndun ánna. Það er ljóst að þær hugmyndir sem uppi hafa verið um virkjun þeirra, samræmast ekki yfirlýstri umhverfisstefnu annars stjórnarflokksins, sem m.a. hefur friðun skagfirsku jökulsánna á stefnuskrá sinni. Nú er lag að fylgja þeirri stefnu eftir. Lesa meira
 

Alvarleg staða á Flateyri, bréf til Sturlu Böðvarssonar - 20.5.2007

Hér með er óskað eftir að kallað verði til fundar þingmanna kjördæmisins til að fara yfir þá alvarlegu stöðu sem komin er upp á Flateyri með sölu á veiðiheimildum og lokun Kambs, aðal fyrirtækisins á staðnum og eins stærsta vinnustaðar á Vestfjöðrum. 120 manns í 300 íbúa byggðarlagi missa atvinnuna. Lesa meira
 

Stórsigur Vinstri grænna - 14.5.2007

Nýir þingmenn VG - Atli, Álfheiður, Árni Þór og KatrínNú er ljóst að Vinstri græn eru sigurvegarar alþingiskosninganna, juku fylgi sitt um tæp 6 prósentustig og nærri tvöfölduðu þingflokkinn. Nýr þingflokkur kom saman í dag til fyrsta fundar. Við þökkum allan góðan stuðning og þann skýra vilja kjósenda að Vinstri græn verði breytiafl í samfélaginu í átt til umhverfisvænna samfélagi, aukins jafnréttis og velferðar. Þá ber að þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg í baráttunni og sáu til þess að málefni okkar bárust til kjósenda.
Lesa meira
 

Viðburðir og opnanir á kosningamiðstöðvum VG um land allt á kjördag - 12.5.2007

kosningamidstodUpplýsingar um opnunartíma, akstur og kosningakaffi á kjördag víðsvegar um landið Lesa meira
 

Suss! Mamma er að tala um fullorðins mál - hópur menntaskólanema láta í sér heyra. - 11.5.2007

fossÞað undrar eflaust fáa hve vinsælt yrkisefni náttúran er mörgum mönnum. Þessi stórbrotna smíði reynist flestum bæði augnayndi og órjúfanlegur hluti uppruna þeirra og daglegs lífs. Maðurinn má ekki álíta hana sjálfsagða eign sína. Mistök í umgengni við hana geta reynst honum dýrkeypt og oft er betra að huga að framtíðinni við ákvarðanatökur en að gleyma sér í stundargræðginni. Það sem virðist gott getur snúist upp í andhverfu sína þegar til lengri tíma er litið. Lesa meira
 

Fjörið var með Vinstri grænum og Svavari Knúti á Akranesi - 11.5.2007

SV300049Svavar Knútur spilaði og söng fagra tóna með Vinstri grænum í Skrúðgarðinum Akranesi síðastliðið föstudagskvöld. Mikil stemmning var hjá unga fólkinu á staðnum enda ekki von á öðru þegar Svavar, þessi frábæri tónlistarmaður mætir á svæðið. Ekki var þetta í fyrsta sinn sem Svavar Knútur gleðst með Visntri grænum í Norðvesturkjördæmi, en hann er einnig búinn að skemmta ungu fólki á Sauðárkróki og Blönduósi. Að öðru leyti var það gleði, gaman og gott snakk sem einkenndi kvöldið!

Lesa meira
 

1. maí í Skagafirði - 11.5.2007

P1000478-lÞann 1. maí buðu Vinstri græn í Skagafirði til baráttusamkomu í tilefni dags verkalýðsins auk þess sem haldið var upp á að 5 ár voru liðin frá stofnun Félags Vinstri grænna í Skagafirði. Fjölmenni mætti í kosningamiðstöðina á Sauðárkróki þar sem samkoman fór fram og var mikið spjallað. Aðalræðumaður dagsins var síðan Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur og þær Brynhildur og Þóra Kristín Þórarinsdætur sáu um að skemmta gestum með söng og upplestri.

Lesa meira

 

Allt annað líf á sex tungumálum - 10.5.2007

Búið er að þýða kosningaáherslur VG á sex tungumál

Polski Русский Espanol THAI English tiếng Việt

Pólsku, Rússnesku, Spænsku, Tælensku, Ensku og Víetnamísku 

Lesa meira

 

Fréttatilkynnig frá Vinstrihreyfingunni grænu framboði - 10.5.2007

Hvers vegna getur utanríkisráðuneytið ekki svarað erindi þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um stuðning ríkisstjórnar Íslands við innrásina í Írak?
Fram hefur komið að í mars 2003, skömmu fyrir innrásina í Írak höfðu þáverandi formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem gegndu embættum forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands veitt samþykki fyrir því að Ísland yrði sett á lista "viljugra" eða "staðfastra " stuðningsríkja innrásarinnar í Írak.

Lesa meira

 

Fréttir og myndasyrpa frá baráttuhátíð VG í gærkvöld - 10.5.2007

ÁhorfendurFrábær mæting var á baráttuhátíð Vinstri grænna í gærkvöldi. Húsfyllir var í kosningamiðstöðinni að Grensásvegi 16a og hugur í fólki. Dagskráin hófst með hinni stórkostlegu hljómsveit Bardukha sem hleypti fjöri í mannskapinn, þá hélt Kolbrún Halldórsdóttir þrumandi ræðu við mikinn fögnuð. Lesa meira
 

Myndir úr kosningabaráttunni í Skagafirði - 10.5.2007

P1000461Mikið líf og fjör hefur verið í Skagafirði í aðdraganda kosninganna. Ófáar skemmtanir og fundir hafa verið hjá Vinstri grænum í Skagafirði og eru þær fréttir að hafa þaðan að baráttuandinn ríkir yfir firðinum. Lesa meira
 

Snúum við blaðinu - Á laugardag eru 4 ástæður til að kjósa: skipta um ríkisstjórn: - 9.5.2007

1vg-bladamannafundur1Vinstrihreyfingin – grænt framboð kynnti í dag á blaðamannafundi hvernig nauðsynlegt er að snúa við blaðinu í íslenskum stjórnmálum næsta laugardag. Hið stóra viðfangsefni er að innleiða nýja og betri sýn í lýðræðis- og samfélagsmálum, tryggja verður græna framtíð og kvenfrelsi. Lesa meira
 

Undirbúningur að stækkun álversins í Straumsvík þrátt fyrir vilja Hafnfirðinga - 9.5.2007

Á forsíðu Morgunblaðsins í gær, 8. maí, er haft eftir Jóni Sigurðssyni iðnaðarráðherra og formanni Framsóknarflokksins af tilefni yfirtökutilboðs Alcoa í Alcan:Hann kveðst ekki telja að samruni muni hafa áhrif á áform Alcoa á Húsavík eða áform Alcan um stækkun í Straumsvík.” Þann 25. apríl síðastliðinn gengu forráðamenn álbræðslu Alcans í Straumsvík á fund iðnaðarráðherra og ræddu við hann stöðuna eftir að Hafnfirðingar felldu stækkun verksmiðjunnar í almennri atkvæðagreiðslu.Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur ítrekað, síðast í Morgunblaðinu í dag, beint þeirri spurningu til formanns Framsóknarflokksins hvort á þessum fundi hans með talsmönnum Alcans hafi verið handsalað samkomulag um stækkun álversins þvert á niðurstöðu íbúakosningarinnar í Hafnarfirði. Engin viðbrögð hafa enn komið fram af hálfu ráðherrans við þessari fyrirspurn.

Lesa meira

 

Fréttir frá NV-kjördæmi - Opnun kosningaskrifstofu á Patreksfirði - 8.5.2007

kosningaskrifstofuopnun001Opnunin tókst með afbrigðum vel, fullt var af fólki og reyndar komu svo margir að við urðum að sækja meira af húsgögnum svo allir hefðu sæti. Jón og Inga héldu stutt ávörp við góðar undirtektir og greinilega var mikill hugur í mönnum og konum að koma Ingibjörgu Ingu á þing. Ungur maður frá Tálknafirði var með stutt en verulega skemmtilegt uppistand. Frábærar kaffiveitingar gerðu góðan dag enn betri og má segja að stanslaus ,,traffík" hafi verið frá opnun allt fram að lokun skrifstofunnar. Lesa meira
 

VG fagnar ályktunum Landverndar - 8.5.2007

VG_GranframtidVinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar ályktunum aðalfundar Landverndar, sem haldinn var á Sólheimum í Grímsnesi 5. maí sl. Sú áhersla sem fram kemur í ályktununum á sjálfbæra þróun er í góðum samhljómi við stefnu Vinstri grænna í umhverfismálum, sem lýst er ítarlega í nýútkomnu riti flokksins Græn framtíð. Landvernd hefur, eins og mörg önnur félagasamtök, gegn t veigamiklu hlutverki í stefnumótun og fræðslu í málefnum er varða landnotkun, auðlindir, náttúru og umhverfi. Lesa meira
 

Steingrímur J. Sigfússon í nærmynd á Stöð 2 - 8.5.2007

Steingrímur J. SigfússonÍ gærkvöldi var Steingrímur J. í nærmynd á Stöð 2, í þáttaröð um forustumenn flokkanna - ákaflega fræðandi og skemmtilegur þáttur. Smellið hér til að kíkja á þáttinn. Lesa meira
 

Fréttir úr SU-kjördæmi - Tónleikar með Heiðu í Brennu á Hellu. - 8.5.2007

heidaFrambjóðandinn Heiða og hennar maður Elvar, sungu og léku á gítar fyrir gesti kosningamiðstöðvarinnar laugardagskvöldið 5. maí. Það er góður andi í Brennu, stemmningin var frábær og mæting á tónleikana með eindæmum góð. Lesa meira
 

Ísland kallar - Um Þjórsá og Þjórsárver eftir Kristínu Guðmundsdóttur - 8.5.2007

bolur-frontDaginn sem bruninn varð í Lækjargötu í Reykjavík um daginn sagði Vilhjálmur borgarstjóri í sjónvarpinu að miklu máli skipti að endurskapa hin gömlu hús sem brunnu í götunni. Hin gamla götumynd húsa þarna við Lækjargötu væri mjög dýrmæt, eins og hús Bernhöftstorfunnar. Hér á eftir er kafli úr grein Halldórs Laxness frá árinu 1971, "Brauð Reykjavíkur". Hún birtist í greinasafni Halldórs, Yfirskygðir staðir. Hún er athyglisverð lesning bæði þá og nú. Hana má finna í bókinni Ísland í aldanna rás 1951–1975 eftir Illuga Jökulsson. Halldór auglýsir eftir eiganda húsanna á Bernhöftstorfu og ábyrgð hans gagnvart verðmætum. Lesa meira
 

Kynningamyndband Vinstri grænna - 7.5.2007

forsiduboxEins og í undangengnum kosningum fá flokkarnir hver um sig 15 mínútur til að kynna sig og stefnu sína í Ríkissjónvarpinu. Hér má nálgast hið frábæra kynningarmyndband Vinstri grænna sem leikið var í kvöld.

Lesa meira
 

Myndasyrpa frá síðasta sjálfbæra markaði VG fyrir kosningar - 7.5.2007

Árni Þór og vestið fínaFrábær stemmning var á síðasta sjálfbæra markaði VG sem haldinn var á Suðurgötu um helgina. Á markaðnum gerðu margir góð kaup, fengu sér nýgrillaðar pylsur, hlustuðu á banjóleik Paul Nikolov, hittu frambjóðendur til skrafs og gátu jafnvel keypt fatnað á uppboði sem tilheyrði Kolbrúnu Halldórsdóttur og Árna Þór. En myndir segja meira en mörg orð og látum við myndasyrpu um að lýsa stemmningunni í kosningamiðstöð VG um helgina. Lesa meira
 

Nýtt lag eftir Jóhann G. Jóhannsson í þágu náttúruverndar - 7.5.2007

johanngLandvernd stóð, ásamt Náttúruverndarsamtökum Íslands, Náttúruverndar- samtökum Suðurlands, Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi, Náttúruvaktinni, Garðyrkjufélagi Íslands og Framtíðarlandinu, fyrir vinnslu á lagi og texta Jóhanns G. Jóhannssonar, „Hálendi Íslands“. Útsetningar og upptökustjórn annaðist Pétur Hjaltested. Lesa meira
 

Frambjóðendur í Suðurgötu 3 - 7.5.2007

Næstu daga milli 16 og 17 verða frambjóðendur í Suðurgötu 3 til að hitta kjósendur:

Lesa meira
 

Góð baráttustemmning við opnunargleði á Blönduósi - 5.5.2007

opnun_a_blo_040Opnuð var kosningaskrifstofu á Blönduósi 1. maí á baráttudegi verkalýðsins. Úti var sól og sumarylur og mikil og góð stemmning í bænum á þessum hátíðardegi. Ungt og efnilegt tónlistarfólk, Hjörtur Þór Magnússon, Harpa Birgisdóttir og Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir opnuðu hátíðina með fögrum tónum. Frambjóðendurnir Jón Bjarnason, Ingibjörg Inga og Björg Gunnarsdóttir glöddust með viðstöddum og kynntu stefnu Vinstri grænna. Gestir og frambjóðendur gæddu sér síðan á sætabrauði og bleksterku baráttukaffi við undirspil harmonikkuleikaranna góðkunnu Jóns og Þóris.

Lesa meira
 

Utankjörfundur í fullum gangi - 3.5.2007

atkvaediKosning utankjörfundar fer fram hjá sýslumönnum, hjá hreppstjórum erlendis, skipum, sjúkrahúsum, fangelsum, dvalar- og vistheimilum og í heimahúsi. Kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðilinn bókstaf þess lista sem hann vill kjósa. Listabókstafur Vinstri grænna um land allt er V. Á það skal bent, að nauðsynlegt er að hafa með sér skilríki þegar kosið er. Lesa meira
 

Frábær stemming í 1. maí kaffi VG í Árborg - 3.5.2007

arborg1maiÞað var frábær stemming þann 1. maí hjá VG í Árborg. Söngsveit VG mætti og flutti baráttusöngva við mikinn fögnuð viðstaddra. Atli Gíslason hélt barátturæðu dagsins. Það var mikil bjartsýni og baráttuhugur í lofti fyrir komandi kosningar þar sem vonandi málefni verkafólks verða aftur sett á oddinn. Lesa meira
 

Verkalýðspönk 1. maí í kosningamiðstöðinni í Keflavík - 3.5.2007

Gordon RiotsHljómsveitirnar Sky Reports, Eldborgir, Gordon Riots og We made god spiluðu í Kosningamiðstöð V.G. í Keflavík 1. maí. Sannkallað verkalýðsrokk og frábær mæting og stemmning. Meðfylgjandi mynd er af hljómsveitinni Gordon Riots í miklu stuði. Lesa meira
 

Glæsilegt kaffi hjá Vinstri grænum á 1. maí - 3.5.2007

1. maí - VG baráttufundur á NASAÁ baráttudegi verkalýðsins, buðu Vinstri græn í kaffi og meðlæti á Nasa við Austurvöll. Um 600 manns komu og hlýddu á ræður og tónlist. Lesa meira
 

Fréttir frá SU-kjördæmi: Frábært ljóðakvöld í Grófinni 7 - 2.5.2007

stjanimeikLjóðakvöldið í Grófinni 7 var frábært! Stjáni Meik fór með Einræðu Starkarðar eftir Einar Ben sem hann kunni utanbókar, vel á annað hundrað ljóðlínur. Flottur kveðskapur og vel flutt. Anna Hrefnudóttir, myndlistarkona, nýflutt í Garðinn, fór með frumort ljóð, ótrúlega flott! Ég var alveg heillaður og sýndist svo vera um fleiri. Kannski var það hápunkturinn þegar Birgitta Jónsdóttir, skáld úr Reykjavík, flutti nokkur af sínum mögnuðu ljóðum, eitt þeira við undirleik. Birgitta Ásbjörnsdóttir las á eftirminnilegan hátt ljóð eftir Bubba Mortens og Björn Traustason ljóð eftir sjálfan sig.

Lesa meira

 

Það er verk að vinna. 1. maí, baráttudagur launamanna. - 1.5.2007

Það blandast engum hugur um veruleg og ómetanleg áhrif stéttarfélaga á síðustu öld á öllum sviðum þjóðlífsins. Nægir hér að nefna almannatryggingar, atvinnuleysisbætur, uppsagnar- og veikindaréttindi, húsnæðismál, réttindi kvenna, menntamál, orlof og þjóðarsáttina. Því miður hafa áhrif verkalýðshreyfingarinnar dvínað umtalsvert síðustu fjögur kjörtímabil sem hafa verið kjörtímabil atvinnurekenda, hátekju- og stóreignamanna. Félagshyggja og samtakamáttur hafa verið á undanhaldi fyrir hömlu- og ábyrgðarlausu frelsi fjármagnsins. Óásættanleg misskipting, fátækt og búsetumismunun blasir hvarvetna við. Lesa meira
 

1. maí - Baráttudagur verkalýðsins með VG um land allt - 1.5.2007

Upplýsingar um baráttufundi VG um land allt... Lesa meira
 

SU-kjördæmi - Allar kosningamiðstöðvar kjördæmisins hafa opnað sínar gáttir - 30.4.2007

Mynd_2Föstudaginn 27. apríl s.l. var opnuð kosningamiðstöð í Brennu á Hellu, það er Ragnheiður Jónasdóttir sem ræður þar ríkum. (Brenna er innsta hús í götunni þegar komið er að sunnan og ekið er inn fyrstu götu til vinstri). Efstu frambjóðendur kjördæmisins mættu, Atli, Alma, Heiða, Sigþrúður og heimakonan Arndís til að spjalla við kjósendur. Frambjóðendur kynntu hin ýmsu málefni VG og svörðu síðan fyrirspurnum fundarmanna. Málefni sem vörðuðu heimabyggð þeirra og landsmálin. Mikil gleði ríkti og var að sögn Ragnheiðar var almenn ánægja með þennan fund. Þegar hefur verið áætlað að vera með uppákomu þann 5 maí og mun Heiða mæta með gítarinn.
Lesa meira
 

Fjallagrös og sauðskinnsskór Vinstri grænna - 28.4.2007

sprotar_104Vinstri græn stóðu í dag fyrir málþingi og sprotatorgi undir yfirskriftinni Fjallagrös og sauðskinnsskór. Margir möguleikar aðrir en stóriðja eru til atvinnusköpunar, fjöldi fólks býr yfir snjallræðum, hugmyndum og frumkvæði, en skilyrði til að koma hugmyndum í framkvæmd eru ekki alltaf til staðar. Þau skilyrði er nauðsynlegt að efla. Lesa meira
 

Fjallagrös og sauðskinnsskór - 28.4.2007

Vinstri-græn vilja með málþingi og sprotatorgi laugardaginn 28. apríl vekja athygli á nýsköpun og frumkvöðlastarfi í atvinnulífi undir yfirskriftinni Fjallagrös og sauðskinnsskór. Margir möguleikar aðrir en stóriðja eru til atvinnusköpunar, fjöldi fólks býr yfir snjallræðum, hugmyndum og frumkvæði, en skilyrði til að koma hugmyndum í framkvæmd eru ekki alltaf til staðar. Þau skilyrði er nauðsynlegt að efla.

Lesa meira

 

Fréttir frá Suðurkjördæmi - Virkjum aldraða á Íslandi: - 27.4.2007

Frábært myndband sem Ósk Pétursdóttir aðstoðarframleiddi fyrir BBC... Lesa meira
 

Bókun Steingríms J. Sigfússonar á 1229. fundi utanríkismálanefndar, 24. apríl 2007, um öryggismál á Norður-Atlantshafi. - 26.4.2007

Hér má lesa bókun Steingríms J. Sigfússonar á fundi utanríkismálanefndar frá því 24. apríl 2007, í tilefni undirritunar samkomulags við Norðmenn um hernaðarmál. Lesa meira
 

Meirihluti bæjarráðs Árborgar mótmælir samþykkt tillögu um orkuframleiðslu - 26.4.2007

Meirihluti bæjarráðs Árborgar mótmælir samþykkt tillögu um orkuframleiðslu og orkunýtingu á Suðurlandi harðlega þar sem eitt stærsta álitamál samtímans er dregið inn á samstarfsvettvang sveitarfélaga á Suðurlandi. Meirihlutinn tekur heilshugar undir svohljóðandi bókun varaformanns SASS sem er annar fulltrúa Árborgar í stjórn: Lesa meira
 

Fréttir frá Suðurkjördæmi - Opnun kosningamiðstöðvar í Hveragerði - 26.4.2007

kosningamidstodMinnsta en krúttlegasta kosningamiðstöðin VG á Íslandi verður opnuð í Hveragerði 28. apríl n.k. kl. 13.00.
Oddviti listans, Atli Gíslason mætir og klippir á borðann. Einnig verða frambjóðendurnir Heiða og heimakonan Olga á staðnum. Í þessari kosningamiðstöð verður örugglega fullt út úr dyrum í hvert skipti sem hún verður opin.

Lesa meira

 

Fréttir frá Suðurkjördæmi - Frétt af framboðsfundi í Árhúsum, Hellu - 26.4.2007

atliahelluSkemmtilegasti framboðsfundurinn til þessa í baráttunni í Suðurkjördæmi var haldinn á vegum Bændasamtaka Íslands og Búnaðarsambands Suðurlands í Árhúsum á Hellu, 23. apríl s.l. Mér leið eins og í útlöndum, á bökkum Signu, þegar ég kom að Árhúsum. Yndisleg umgjörð í sveit við Rangá. Fullt út úr dyrum eins og sagt er í sveitinni og mikil stemmning. Fyrst hélt heimamaður mjög fróðlega framsögu og síðan tók formaður Bændasamtakanna við og flutti þetta fína erindi og kynnti athyglisverðan bækling þeirra. Lesa meira
 

NA-kjördæmi - Góð stemning á Egilsstöðum. - 24.4.2007

thorunn-form-uvgaustMikil og góð stemning er í kringum Vinstri græn á Egilsstöðum þessa dagana. Fyrir stuttu var opnuð þar kosningamiðstöð á besta stað í bænum sem heimamenn höfðu lagt mikla vinnu í að stand setja. Lesa meira
 

NV - Vinstri græn litu við á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar - 23.4.2007

heilbrisJón Bjarnason þingmaður og Ingibjörg Inga sem skipar 2. sæti framboðslistans í NV kjördæmi brugðu sér í heimsókn á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar í síðustu viku og heilsuðu upp á starfsmenn og sjúklinga. Ekki vantaði upp á áhuga heimamanna á pólitíkinni en ýmis mál voru rædd og krufin til mergjar. Á meðfylgjandi mynd má sjá þau rabba við fólk við æfingar á endurhæfingunni.

Lesa meira

 

Fréttir frá SU-kjördæmi - Heimsókn á Sólheima í Grímsnesi - 23.4.2007

heida-solheimar2Atli Gíslason oddviti listans í Suðurkjördæmi og Ragnheiður Eiríksdóttir sem skipar 3.sæti í sama kjördæmi brugðu sér í heimsókn á Sólheima í Grímsnesi föstudagsmorguninn 20.apríl, á leið sinni um Suðurland. Þar var einstaklega vel tekið á móti þeim. Kynnt var fyrir þeim helsta starfsemi staðarins, eins og til dæmis kertagerð, smíðaverkstæðið, sápugerð, listsköpun og fleira. Lesa meira
 

Aðgerðaáætlun Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í atvinnu-, byggða- og samgöngumálum. - 20.4.2007

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn í Reykjavík 23.–25. febrúar 2007 vísar til aðgerðaætlunar í byggðamálum og ályktana um málefni sjávarútvegs og landbúnaðar, fjármál sveitarfélaga og annað það sem segir í ályktunum fundarins um aðgerðir á sviði atvinnu- og byggðamála en leggur sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði sem brýnustu þættina í aðgerðaáætlun í atvinnumálum komandi mánaða og ára á þessu sviði.

Lesa meira

 

SU-kjördæmi - Arfur hersetunnar - 20.4.2007

Vinstri hreyfingin – grænt framboð á Suðurnesjum, efnir til dagskrár um það sem nú tekur við eftir að Bandaríkjaher hefur að mestu yfirgefið landið. Hvernig við getum nýtt til góðra verka það sem hann skilur eftir og bætt fyrir skaða sem hann hefur unnið. Dagskráin hefst kl. 16 og stendur fram á kvöld, með góðu kvöldmatarhléi.

Lesa meira

 

Bráðfallegir bolir komnir í hús - 19.4.2007

bolirLoksins eru hinir glæsilegu kosningasjóðs bolir komnir úr prentun. Þetta eru gæðabolir sem klæða alla vel. Hvítir, langerma og til fyrir allar tegundir af fólki. Hér er myndin sem er framan á honum... Bolirnir seljast á 3.500 og eru tilvalin gjöf fyrir sig og sína. Hægt er kaupa þá í kosningamiðstöðvum VG á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa meira
 

Fréttir af viðburðum í Norðausturkjördæmi - 19.4.2007

Í dag er sumarfagnaður VG. Hann fer fram í kosningamiðstöðinni á Egilsstöðum, Kaupvangi 5. Á laugardaginn verður Kúbusveifla og margt fleira spennandi er á döfinni. Lesa meira
 

Fréttir af viðburðum á Suðurnesjum - 18.4.2007

Margt er á döfinni í kosningamiðstöð VG í Reykjanesbæ á næstu dögum. Má þar nefna fjölskylduskemmtun á sumardaginn fyrsta, fjáröflunarsúpu, arf herstetunar og upplestur Steingríms J. úr Við öll. Lesa meira
 
Lukku Láki

Fréttir frá Suðurlandi - Oddviti listans bregður á leik í Vestmannaeyjum - 16.4.2007

Kosningabaráttan er ekki tóm alvara eins og oddviti listans í Suðurkjördæmi fékk að upplifa þegar honum var boðinn á skemmtidagskrá Fyrirmyndabílstjórafélagsins í Vestmannaeyjum. Lesa meira
 

Stemmning á flóamarkaði VG á laugardaginn - 16.4.2007

DSCF0698Yfir 200 manns litu inn á flóamarkaðinn á Suðurgötunni í gær. Það var frábær stemmning og gekk markaðurinn mjög vel, því hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn næsta laugardag. Tekið verður við munum á markaðinn á meðan á honum stendur á laugardaginn á milli kl.13:00 og 18:00.

Lesa meira
 

Söngsmiðja VG - 14.4.2007

VG mun halda úti söngsmiðju í kosningabaráttunni. Söngsmiðjan er vettvangur fyrir ýmsar frjálsar og óhefðbundnar uppákomur í söng og tónlist. Þar gefst fólki m.a. kostur á að rifja upp í góðum félagsskap baráttusöngva, alþýðulög og húsganga frá ýmsum tímum. Lesa meira
 

Menntamál eru kosningamál - 14.4.2007

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs fagnar þeirri kröfu Stúdentaráðs Háskóla Íslands að menntamál verði kosningamál enda er öflug menntastefna grundvöllur fyrir samfélagslegum umbótum.

Lesa meira
 

Sjálfbær markaður VG á laugardaginn - 14.4.2007

Til fjáröflunar fyrir flokksstarfið vegna komandi kosninga verður haldinn markaður annan hvern (jafnvel hvern ef vel gengur) laugardag að Suðurgötu 3 milli kl.13:00 og 18:00. 14. apríl opnar markaðurinn með pomp og prakt.

Lesa meira
 

Könnun í Suðurkjördæmi fyrir Stöð 2 - 13.4.2007

Blússandi sigling á fylgi VG hjá okkur í Suðurkjördæmi. Samkvæmt könnun Stöðvar 2 erum við með 17.6% fylgi en í síðustu kosningum var fylgið 4.7%. Þannig að fylgið hefur fjórfaldast. Þegar rýnt er í tölurnar og kosningahegðun er greind eftir kyni, er fylgi á meðal kvenna 22% en karla 14%. Oddviti listans í Suðurkjördæmi Atli Gíslason var beinni útsendingu Stöðvar 2 ásamt oddvitum hinna flokkanna á Hótel Selfossi s.l. miðvikudag 11. apríl. Lesa meira
 

Öllum undirbúningi er tengist stórvirkjunum og uppbyggingu stóriðju verði hætt - 13.4.2007

Eftirfarandi bréf var sent formönnum stjórnarflokkanna og um leið iðnaðarráðherra, þess ráðherra sem fer með eignarhald ríkisins í Landsvirkjun, sem og til forstjóra fyrirtækisins: Lesa meira
 

Stefnubreyting meirihluta Framsóknar og Samfylkingar í skipulagsmálum í Skagafirði - 13.4.2007

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og VG fagna þeirri stefnubreytingu meirihluta Framsóknar og Samfylkingar í skipulagsmálum í Skagafirði sem varð í tilefni af tillöguflutningi sveitarstjónarfulltrúa VG og Sjálfstæðisflokks þess efnis, að flýta samþykkt aðalskipulags fyrir Skagafjörð með því að hverfa frá þeirri ætlan, að setja Villinganesvirkjun inn á tillögu að aðalskipulagi fyrir Skagafjörð og fresta skipulagi á þeim svæðum sem tengjast hugmyndum um Skatastaðavirkjun. Lesa meira
 

Páskafundur VG fyrir ungt fólk í Húnavatnssýslum - 12.4.2007

100_5715Vinstri græn í Norðvesturkjördæmi héldu léttan páskafund fyrir ungt fólk í Húnavatnssýslum

síðastliðinn laugardag. Fundurinn var haldinn á Árbakkanum þar sem boðið var upp á léttar veitingar með kosningarspjalli og tónlist. Ekki vantaði upp á mætinguna en mörg ungmenni mættu á fundinum og var hann hinn skemmtilegasti.

Lesa meira
 

GRÆN FRAMTÍÐ - rit VG um sjálfbæra þróun - 11.4.2007

VG_GranframtidVinstrihreyfingin - grænt framboð hefur gefið út ritið Græn framtíð um sjálfbæra þróun. Sjálfbær þróun snertir samfélagið allt og snýst um siðferðilega afstöðu stjórnvalda og almennings til samfélags og umhverfis. Þegar ákvarðanir eru teknar í samfélagi, sem stefnir í átt til sjálfbærrar þróunar, ber að leggja áherslu á samspil vistfræðilegra, samfélagslegra og efnahagslegra þátta. Græn framtíð hefur að geyma stefnumörkun Vinstri grænna til næstu ára um sjálfbæra samfélagsþróun jafnframt því sem skyggnst er lengra fram á veg.

Lesa meira
 

Bætum kjörin - burt með fátækt - 10.4.2007

Misrétti hefur aukist í íslensku samfélagi á undanförnum árum. Á sama tíma og margir hafa auðgast verulega og enn aðrir búa við góð lífskjör er vaxandi hópur settur hjá. Fátækt á ekki að líða í íslensku samfélagi og leggur Vinstrihreyfingin grænt framboð höfuðáherslu á að bæta og jafna kjörin og útrýma fátækt. Í dag kynntu frambjóðendur aðgerðaáætlun Vinstri grænna til að útrýma fátækt á Íslandi.

Lesa meira
 

Ríkissjónvarpið í Árborg í kvöld - 10.4.2007

Í kvöld kl. 19.30 - 20.30 verður bein útsending ríkissjónvarpsins úr Fjölbrautaskólanum á Selfossi um Landbúnaðarmál og Utanríkismál. Lesa meira
 

Vinstri græn á ferð um Norðausturland - 10.4.2007

Súpufundur í dag klukkan 12 í Vinaminni, Borgarfirði og á Hótel Framtíðin í Djúpavogi Lesa meira
 

Kragakaffi opnar í Hamraborg - 10.4.2007

Fréttamannafundur og opnun kosningamiðstöðvar í Suðvesturkjördæmi klukkan 16:00 í dag Lesa meira
 

VG VILL AÐ ALLIR STJÓRNMÁLAFLOKKAR OPNI BÓKHALD SITT - 10.4.2007

Í tilefni af fréttaumfjöllun um stuðning fyrirtækja við stjórnmálalflokka ítrekar Vinstrihreyfingin grænt framboð þá afstöðu sína að bókhald stjórnmálalflokka eigi að vera öllum opið. VG hefur ávallt lagt á það ríka áherslu að fjármál flokksins séu gegnsæ og aðgengileg þeim sem þau vilja skoða. Lesa meira
 

Hróplegt misrétti til náms: Tekjulitlu fólki á landsbyggðinni illkleift að sækja framhaldsnám - 7.4.2007

  • Kostar rúma milljón að senda ungling í framhaldsskóla fjarri heimabyggð
  • Útilokað að barnmargar fjölskyldur í dreifbýli geti kostað framhaldsmenntun barnanna án óeðlilegra fórna
  • Tekjulítið fólk býr við skerta möguleika til menntunar
  • Framhaldsskólar í dreifbýli búa við skert námsframboð
  • Stuðlar að fólksflótta frá landsbyggðinni
  • VG boðar úrbætur
Lesa meira
 

Videokvöld UVG! - 4.4.2007

Miðvikudaginn 4. apríl, verður vídeokvöld í boði Ungra Vinstri-grænna. Sýnd verður hin umdeilda heimildamynd The Great Global Warming Swindle eftir breska kvikmyndagerðarmanninn Martin Durkin. Myndinni hefur verið hampað talsvert af hægrimönnum síðan hún var frumsýnd enda er því haldið fram í henni að hlýnun jarðar sé í rauninni tóm þvæla, uppspuni móðursjúkra umhverfisverndarsinna. Lesa meira
 

Opnunargleði VG í Borgarnesi síðastliðið föstudagskvöld - 2.4.2007

opnun borgarnes7Fyrsta kosningaskrifstofa VG í Norðvesturkjördæmi var opnuð í Englendingavík í Borgarnesi föstudaginn 30. mars síðastliðinn. Gleði og baráttuhugur ríkti á meðal gesta en rúmlega 30 manns voru mættir til að vera við fyrstu opnunargleði VG í kjördæminu. Lesa meira
 

Mikilvægur áfangi í náttúruverndarbaráttunni - 1.4.2007

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fagnar úrslitum íbúakosningar í Hafnarfirði þar sem stækkun álvers Alcans var hafnað og Hafnfirðingar völdu græna framtíð. Úrslitin eru mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir náttúru- og umhverfisvernd og gegn stóriðjustefnu stjórnvalda. Lesa meira
 

Aðalfundur í Svæðisfélagi VG í Hveragerði - 30.3.2007

Framhaldsaðalfundur VG í Hveragerði var haldinn í gær 29.3 2007 á Hótel Örk, þar var kosin ný stjórn. Lesa meira
 

Kosningamiðstöðin á Grensásvegi opin um helgina - 30.3.2007

Kosningamiðstöðin Grensásvegi 16a opin um helgina frá 15-18. Komið í spjall og kaffisopa.
X-V Allt annað líf!
Lesa meira
 

Kosningamiðstöð opnuð í Borgarnesi - 29.3.2007

Fyrsta kosningamiðstöð VG í Norðvesturkjördæmi verður opnuð í Borgarnesi föstudaginn 30. mars. Kosningamiðstöðin er staðsett í Englendingavík og hefst opnunarhátíðin kl. 20:00. Lesa meira
 

Miðja vegu milli malbiksins og regnbogans - VG opnar nýja kosningamiðstöð í gamla ASÍ húsinu Grensásvegi! - 29.3.2007

Við opnum nýja kosningaskrifstofu á fimmtudagskvöldið nk. með pompi og pragt.
Fundarröðin Vinstri græn um allt land heldur áfram og nú spjalla þau Auður Lilja, Álfheiður og Paul Nikolov við kjósendur.
Lesa meira
 

Framhaldsaðalfund svæðisfélags VG í Hveragerði - 29.3.2007

Framhaldsaðalfund svæðisfélags VG í Hveragerði, verður á Hótel Örk í Setrinu 29. mars, kl. 20.00.

Eftir venjuleg aðalfundarstörf verða umræður og mun Atli Gíslason sem leiðir lista VG í Suðurkjördæmi, spjalla við fundarmenn.

Lesa meira

 

Vinstri græn á ferð um landið - Mosfellsbær í kvöld - 28.3.2007

Gestur Svavarsson, Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir og Álfheiður Ingadóttir spjalla við kjósendur á Draumakaffi, Háholti 14 í Mosfellsbæ í kvöld klukan 20 - allir velkomnir. Lesa meira
 

Sameiginlegi framboðsfundurinn í Suðurkjördæmi - 28.3.2007

Fyrsti sameiginlegi framboðsfundurinn í Suðurkjördæmi verður haldinn á Flúðum kl. 20.00 28. mars n.k. Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta og styðja sinn mann í fyrsta sæti. Lesa meira
 

Stjórnmálaflokkarnir gera samkomulag um takmörkun á auglýsingakostnaði - 27.3.2007

Stjórnmálaflokkarnir sem eiga fulltrúa á Alþingi, Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð hafa gert samkomulag um að takmarka auglýsingakostnað í aðdraganda alþingiskosninganna 12. maí næstkomandi. Samkomulagið er afrakstur viðræðna formanna, framkvæmdastjóra og –stýru flokkanna sem staðið hafa undanfarnar vikur.

Lesa meira
 

Vinstri - græn á ferð um Norðausturkjördæmi - 27.3.2007

VG-NA-1-Steingrimur_J_Sigfusson_056Á næstu dögum og vikum munu frambjóðendur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð í Norðausturkjördæmi vera á ferð um kjördæmið. Áætlað er að hefja yfirreið um kjördæmið á Siglufirði þann 28. mars með því að Steingrímur J. Sigfússon, Björn Valur Gíslason og Ríkey Sigurbjörnsdóttir bjóða til súpufundar á Allanum kl. 12. Lesa meira
 

Happdrætti VG - 26.3.2007

Hið sívinsæla kosningahappdrætti Vinstri grænna er nú til sölu á kosningaskrifstofum og hjá frambjóðendum. Meðal vinninga er kvöldstund við taflborðið með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, golfkylfur mundaðar með Atla Gíslasyni, myndverk eftir Mireyu Samper, sjóstangaveiði með Birni Vali, á vettvangi glæps með Katrínu Jakobsdóttur ofl. ofl. Miðinn kostar 1.000 krónur.
 

Steingrímur, Guðfríður Lilja og Árni Þór á ferð um Norðurlönd - 23.3.2007

Um helgina verða Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Árni Þór Sigurðsson, frambjóðendur, á ferð um Suður Svíþjóð og Danmörk. Fyrsti áfangastaður er Malmö í Svíþjóð Lesa meira
 

Sveitarstjórnarráð Vg stofnað - 23.3.2007

Á Landsfundi Vinstri grænna í síðasta mánuði var ákveðið að stofna formlega sveitarstjórnarráð flokksins. Fyrsti fundur ráðsins var haldinn í gær, 22. mars. Þar var kjörin stjórn sveitarstjórnarráðsins og skipa hana:

Lesa meira

 

Dýr fyrningarfrestur - 20.3.2007

Vinstrihreyfingin – grænt framboð lýsir ánægju með að loks skuli lokið við endurbætur á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna og að frumvarp það sem legið hefur fyrir Alþingi síðan vorið 2006 skuli loks orðið að lögum. Þar með vannst áfangasigur í áralangri baráttu flokksins fyrir bættu lagaumhverfi varðandi þessi alvarlegu brot. Lesa meira
 

Norðanverðir vestfirðir efldir að tillögu Lilju Rafneyjar - 19.3.2007

Það er ekki daglegt brauð að tillögur stjórnarandstöðunnar hljóta brautargengi á Alþingi, hvað þá þegar um tillögur varaþingmanna er að ræða. Það er því sérstakt ánægjuefni að tillaga Lilju Rafneyjar Magnúsdóttir, varaþingmanns Vinstri grænna var samþykkt á lokadegi þingsins á laugardaginn. Lesa meira
 

Þingmenn og frambjóðendur VG á ferð um sunnanverða Vestfirði - 19.3.2007

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna, Jón Bjarnason alþingismaður og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir íþróttafræðingur Tálknafirði verða á ferð um sunnanverða Vestfirði dagana 19.-22. mars nk. Lesa meira
 

Hinir staðföstu stríðsandstæðingar - 19.3.2007

Í kvöld, mánudagskvöldið 19. mars munu "hinir staðföstu stríðsandstæðingar" efna til baráttusamkomu í Austurbæ (gamla Austubæjarbíói) í Reykjavík, þar sem hernáminu verður mótmælt og þess krafist að íslensk stjórnvöld axli ábyrgð vegna hins svívirðilega stuðnings við ólöglegt árásarstríð. Lesa meira
 

Fyrsti fundur nýstofnaðs sveitarstjórnarráðs - 15.3.2007

Sveitarstjórnarfulltrúar eru boðaðir á fund í Sveitarstjórnarráði VG fimmtudaginn 22 mars. (þ.e. kvöldið fyrir þing Sambands Íslenskra Sveitarfélaga) Lesa meira
 

Er Alcan íslenskt fyrirmyndarfyrirtæki? - 13.3.2007

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í dag var lagt fram bréf frá forstjóra Alcan Primary Metal group til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, þar sem lýst var þeirri skoðun að Alcan sæi sig sem íslenskt fyrirmyndarfyrirtæki. Í tilefni af bréfi Alcan lagði bæjarfulltrúi VG fram eftirfarandi bókun: Lesa meira
 

VG opnar kosningamiðstöð á Suðurnesjum - 12.3.2007

Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Suðurkjördæmi opnaði kosningamiðstöð í Grófinni 7 í Keflavík á laugardaginn. Þar fluttu ávörp frambjóðendurnir Atli Gíslason og Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða) og þingmennirnir Kolbrún Halldórsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon. Einnig voru tónlistaratriði. Lesa meira
 

Tímamótafrumvarp í jafnréttismálum - 8.3.2007

Nýtt frumvarp til jafnréttislaga er framsækið og ber þess skýr merki að unnið er úr þeim ábendingum, frumvörpum og tillögum sem komið hafa fram á undanförnum árum til að jafna stöðu kynjanna á Íslandi. Í frumvarpinu er lagt til að farið verði í sértækar aðgerðir á sviði jafnréttismála og er þar stigið stórt skref fram á við og viðurkennt að lagalegt jafnrétti kynjanna sé ekki nóg til að jafna stöðuna. Launaleynd á vinnumarkaðnum er aflétt með lögunum en Vinstri græn hafa lengi bent á að í skjóli launaleyndar þrífist misréttið í launum. Sérstakt fagnaðarefni er að tekið er undir tillögur Vinstri grænna um að Jafnréttisstofa fái víðtækar heimildir til upplýsingaöflunar og sektargreiðslan gagnvart fyrirtækjum til að útrýma launamuni kynjanna. Lesa meira
 

Ákvörðun menntamálaráðherra um viðbyggingu við verknámshús FNV fagnað - 7.3.2007

Ályktun svæðisfélaga Vinstri grænna í Skagafirði og Húnaþingi vegna ákvörðunar um viðbyggingu við verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Lesa meira
 

Kosningamiðstöð opnuð í Keflavík - 7.3.2007

Vinstri hreyfingin grænt framboð á Suðurnesjum opnar kosningamiðstöð í Grófinni 7 í Keflavík laugardaginn 10. mars kl. 15. Kaffiveitingar, uppákomur og spjall við frambjóðendur. Lesa meira
 

Samstaða um að breyta stjórnarskrá - 5.3.2007

Fréttatilkynning frá þingflokkum stjórnarandstöðunnar: Lesa meira
 

Kannað verði hvort rifta eigi samning borgarinnar og Kópavogs - 1.3.2007

Á fundi borgarráðs í morgun voru málefni Heiðmerkur til umræðu að beiðni fulltrúa Vinstri grænna.

Á fundinum lagði undirritaður fram svohljóðandi tillögu:

Lesa meira
 

Vel heppnuðum landsfundi lokið - 25.2.2007

Fimmta reglulega landsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lauk upp úr klukkan fjögur í dag og var mál þeirra sem hann sóttu að mikill einhugur og baráttuandi ríkti alla helgina. Lesa meira
 

Landsfundur 2007: Setning og ræða formanns - 23.2.2007

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hófst með glæsibrag á Grand Hótel í dag. Um 500 félagar sóttu fundinn. Setningarathöfnin var þrungin jákvæðum fyrirheitum um hvert skal stefna í vor og ræða Steingríms J. Sigfússonar, formans VG setti skarpar línur og tóninn fyrir kosningabaráttuna sem framundan er.

Hér er ræðan í heild sinni:

Lesa meira
 

Klámið stöðvað! - 22.2.2007

Radisson SAS hótelið í Reykjavík hefur ákveðið að synja ráðstefnu netklámframleiðenda um gistingu. Bændasamtökin sendu frá sér fréttatilkynningu þessa efnis nú upp úr hádeginu! Í yfirlýsingu frá samtökunum segir: Lesa meira
 

Félagsfundur VG í Hveragerði - 22.2.2007

Á félagsfundi VG í Hveragerði, sem haldinn var 21. febrúar 2007, var kosin ný stjórn fyrir félagið til bráðabirgða. Formaður var kosin Guðrún Olga Clausen, meðstjórnendur Úlfur Björnsson og Guðmundur Arason og í varastjórn Hildur Svava Karlsdóttir. Lesa meira
 

Borgarstjórn harmar ráðstefnu klámframleiðenda - 21.2.2007

Að frumkvæði borgarstjórnarflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var eftirfarandi ályktun samþykkt í borgarstjórn í gær: Lesa meira
 

Ályktun Ungra vinstri-grænna í tilefni af fyrirhugaðri klámráðstefnu í Reykjavík - 19.2.2007

Vegna frétta þess efnis að þing framleiðenda klámefnis fyrir netmiðla verði haldið á Íslandi 7-11. mars næstkomandi vill stjórn Ungra vinstri-grænna koma á framfæri andúð sinni á klámiðnaðinum. Von okkar er sú að almenningur á Íslandi gefi um það skýr skilaboð með öllum tiltækum ráðum að klám skuli ekki liðið enda er klám ólöglegt á Íslandi Lesa meira
 

Framboðslistinn í Norðvesturkjördæmi samþykktur - 18.2.2007

Sunnudagskvöldið 18. febrúar var framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi samþykktur og hljóðar hann svo: Lesa meira
 

Bókun bæjarfulltrúa VG í Hafnarfirði vegna matsáætlunar Landsnets - 16.2.2007

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna í Hafnarfirði lagði fram meðfylgjandi bókun á fundi bæjarstjórnar síðastliðinn þriðjudag vegna matsáætlunar Landsnets fyrir háspennulínur frá Hellisheiði að Straumsvík.

Lesa meira
 

Áskorun til ríkisstjórnarinnar vegna klámráðstefnu - 16.2.2007

Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður hefur sent ríkisstjórninni eftirfarandi áskorun í tilefni af fyrirhugaðri kaupstefnu klámframleiðenda hér á landi:

Lesa meira
 

Ung vinstri græn á Austurlandi - 15.2.2007

Laugardaginn 10. febrúar síðastliðinn var stofnuð stjórn Ungra vinstri-grænna á Austurlandi. Í stjórn voru kjörin:

Lesa meira
 

Framboðslistar á höfuðborgarsvæðinu samþykktir - 14.2.2007

Framboðslistar Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir komandi alþingiskosningar voru samþykktir á félagsfundi 14. febrúar. Listarnir líta svona út:

Lesa meira
 

Listar höfuðborgarsvæðisins kynntir - 12.2.2007

Sameiginlegur félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum og í Suðverstukjördæmi verður haldinn miðvikudaginn 14. febrúar klukkan 20 í sal Menntaskólans í Kópavogi. Lesa meira
 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica