Stellan Hermansson, framkvæmdastjóri Nordic-Green Left hópsins á Evrópuþinginu, var sérstakur gestur á landsfundi Vinstri grænna. Stellan er frá Svíþjóð og hefur lengi tekið þátt í stjórnmálum á vinstri væng sænskra stjórnmála og hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Vänsterpartiet í Svíþjóð. Frá árinu 1999 hefur hann síðan verið einn af forsvarsmönnum vinstri-grænna afla á Evrópuþinginu og er nú framkvæmdastjóri Nordic-Green Left (NGL) sem eru öflug samtök vinstri- og umhverfisverndarsinnaðra þingmanna á Evrópuþinginu. Hann flutti erindi á landsfundi Vinstri grænna laugardaginn 8. nóvember og fer það hér á eftir í íslenskri þýðingu.
Lesa meira