Fréttir

Tökumst á við efnahagsvandann

4.4.2008

Ástandið í efnahagsmálum er alvarlegt en ekki óyfirstíganlegt. Það kallar hins vegar á snarræði og öruggar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar – að hún axli ábyrgð á ástandinu eins og það er orðið og beiti þeim tækjum sem hún ræður yfir. Fyrir nokkru var ljóst að stefndi í mikinn vanda sem kæmi fyrst og fremst niður á heimilunum í landinu. Í baráttunni við að verja lífskjör almennings lögðu Vinstri græn fram tillögur á þingi fyrir þremur vikum síðan um víðtækar ráðstafanir í efnahagsmálum. Til að kynna tillögurnar og fá umræður um þær höfum við útbúið myndskeið og hleypum af stokkunum fundaröð um allt land undir yfirskriftinni Tökum á efnahagsvandanum: Tillögur Vinstri grænna. Fundurinir verða á eftirtöldum stöðum

  • 5. apríl, Hótel KEA á Akureyri klukkan 15, frummælendur eru Svandís Svavarsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon

  • 6. apríl, Egilsbúð í Neskaupstað klukkan 13, frummælendur eru Ögmundur Jónasson og Þuríður Backman

  • 6. apríl, Kaffi Grindavík klukkan 20, frummælendur eru Steingrímur J. Sigfússon og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

 

  • 7. apríl, Halldórskaffi í Vík í Mýrdal klukkan 20, frummælendur eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Svandís Svavarsdóttir

 

  • 7. apríl, Kaffihúsið í Skrúðgarðinum á Akranesi klukkan 20, frummælendur eru Katrín Jakobsdóttir og Ögmundur Jónasson

 

  • 8. apríl, Ljósheimum á Sauðárkróki klukkan 20, frummælendur eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir

 

  • 8. apríl, Jötunheimum í Garðabæ klukkan 20, frummælendur eru Svandís Svavarsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir

 

  • 10. apríl, Vesturgötu 7 í Reykjavík klukkan 20, frummælendur eru Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir

 

  • 10. apríl, Hótel Ísafirði klukkan 20:30, frummælendur eru Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

 

Sjá nánar:

Tillögur Vinstri grænna

Myndband um tillögur Vinstri grænna

Frumvarp með tillögum vinstri grænna

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica