Á döfinni

Fundahöld framundan - 25.1.2012

Á næstu dögum munu þingmennfundir_2x97_END_ny Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs efna til opinna stjórnmálafunda með víðsvegar um landið. Fundahöld þingflokks með félagsmönnum og almenningi hófust í síðustu viku janúarmánaðar með fundahöldum í Borgarnesi, Grundarfirði, Grindavík og Reykjanesbæ. Framundan eru fundir á höfuðborgarsvæðinu, Húsavík, Ísafirði, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum og Hornafirði frá laugardegi til miðvikudags. Í tengslum við fundina er jafnan efnt til félagsfunda með viðkomandi svæðisfélögum. Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

Hver verður framtíð Ingólfstorgs? - 26.1.2012

Vinstri græn í Reykjavík efna til laugardagsfundar þ. 4. febrúar kl. 11 um málefni Ingólfstorgs. Á fundinn koma Torfi Hjartarson fulltrúi VG í skipulagsráði Reykjavíkur og Helgi Þorláksson, forsvarsmaður samtakanna Björgum Ingólfstorgi og Nasa.

Við lofum fróðlegum og skemmtilegum umræðum á Suðurgötunni.

Fjölmennum!

Stjórnin. 

Lesa meira
 

Félagsfundur með þingmönnum - VG Kópavogi - 26.1.2012

Boðað er til félagsfundar í kragakaffi Hamraborg laugardaginn 4. febrúar.

Fundurinn er tvískiptur.

11:00 - Lokaður fundur með þingmönnum fyrir félagsmenn.

12:30 - Gert er hlé og boðið upp á súpu og brauð (lágmarksgjald þegið eða 500 kr.)

13:00 - Opinn fundur  stendur til 15:00.

Gestir fundarinns verða Ögmundur Jónasson, Davíð Stefánsson og Þuríður Backmann.

Félagar hvattir til þess að fjölmenna.

Stjórnin.

Lesa meira
 

Félagsfundur í Svæðisfélagi VG á Héraði, Borgarfirði og Seyðisfirði - 27.1.2012

Almennur félagsfundur verður haldinn í húsnæði svæðisfélagsins að Kaupvangi 5 á Egilsstöðum mánudaginn 6. febrúar og hefst fundurinn kl. 17:00.

Á fundinn mæta Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Þuríður Backman alþingismaður.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og nýta þetta tækifæri til að ræða milliliðalaust við kjörna fulltrúa flokksins.

Lesa meira
 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica