Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars héldu vinstriflokkarnir í Evrópu ráðstefnu um kvenfrelsi í Kaupmannahöfn um helgina. Framkvæmdastýra Vinstri grænna, Drífa Snædal, hélt þar erindi um konur og kreppu og fylgir erindið hér í heild sinni á ensku.
Lesa meira
Vinstri græn óska öllu baráttufólki fyrir kvenfrelsi til hamingju með 8. mars, alþjóðlegan barátttudag kvenna. Eitt hundrað ár eru liðin síðan Clara Zetkin, þýsk baráttukona fyrir kvenfrelsi og sósíalisma, fékk samþykkt á alþjóðlegri ráðstefnu að 8. mars skyldi helgaður baráttu kvenna. Nánari upplýsingar um tilurð dagsins, sögu hans og viðburði má nálgast á vef Kvennasögusafnsins.
Lesa meiraSmugan.is hefur hafið göngu sína á ný en vefritið er umræðu og fréttavettvangur fyrir vinstra fólk og umhverfis og jafnréttissinna. Nýr ritstjóri Smugunnar er Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Ásgeir H. Ingólfsson sér um menningarumfjöllun og Ingólfur V. Júlíusson um ljósmyndir. Fjöldi landsþekktra pistlahöfunda leggur vefritinu lið. Þráinn Bertelsson og Lilja Mósesdóttir eru pistlahöfundar dagsins, Þráinn fer yfir vikuna í dagbókarstíl eins og honum er einum lagið, Lilja vekur athygli á grunsemdum um að auðmenn noti fé úr eignarhaldsfélögum sem skiptastjórar hafa ekki enn sett í þrot til að fjármagna yfirtökur skuldsettra félaga. Þá er hin baneitraða steinsmuga á sínum stað.
Lesa meiraÞegar öll atkvæði í forvali Vinstri grænna í Kópavogi hafa verið talin eru úrslitin þau að Ólafur Þór Gunnarsson er í fyrsta sæti, Guðný Dóra Gestsdóttir er í öðru sæti, Karólína Einarsdóttir í því þriðja, Guðbjörg Sveinsdóttir í fjórða sæti, Arnþór Sigurðsson í því fimmta og að lokum hlaut Hreggviður Norðdahl það sjötta. Kjörsókn var góð eða 42,36%. Ólafur var mjög afgerandi í fyrsta sæti.
Lesa meiraÞegar um þriðjungur atkv. hefur verið talinn er Ólafur Þór með ótvíræða forystu í fyrsta sæti en Karólína Einarsdóttir næst. Guðný Dóra Gestsdóttir hefur forystu í 2. sæti en Karólína Einarsdóttir fylgir fast á eftir. Guðbjörg Sveinsdóttir hefur forystu í 3. sæti en Karólína er skammt á eftir. Í 4. sæti Arnþór Sigurðsson efstur en Karólína er enn rétt fyrir neðan. Í 5. sæti er Karólína efst og á hæla hennar er Hreggviður Norðdahl sem er svo með flest atkvæðií 6. sæti.
Úrslit verða tilkynnt á kosningavöku sem hefst kl. 19.30 í húsnæði Vinstri grænna í Hamraborg 1
Félagsfundur á Akranesi ákvað að nota póstkosningu við uppröðun á lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar og rennur framboðsfrestur út 26. febrúar. Allir félagar í VG sem skráðir eru til heimilis á Akranesi 26. febrúar næstkomandi fá sendan kjörseðil í pósti sem þeir svo senda aftur til kjörstjórnar skv. leiðbeiningum. Atkvæði þurfa að hafa borist fyrir 8. mars. Nánari upplýsingar um framkvæmd forvalsins og frambjóðendur má nálgast hér.
Lesa meira
Hlutaskrár bæði hlutafélaga og einkahlutafélaga verða öllum opnar og aðgengilegar, nái frumvarp sem þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram á Alþingi. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, sem gerir ráð fyrir því að Fjármálaeftirlitinu verði skylt að birta skrá yfir hluthafa í bönkum og öðrum fyrirtækjum, sem varðveita eignarhluti sína á safnreikningum fyrirtækja í verðbréfaþjónustu.
Lesa meiraTilkynning frá félögum í VG á Fljótsdalshéraði sem taka þátt í vinnu Héraðslistans við að undirbúa komandi sveitarstjórnarkosningar
Héraðslistinn er samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði og mun bjóða fram við sveitastjórnarkosningarnar í maímánuði næstkomandi.
Lesa meira
Framboðslisti Vinstri grænna í Borgarbyggð var samþykktur á félagsfundi svæðisfélagsins 22. febrúar 2010. Hann er svo skipaður:
1. Ragnar Frank Kristjánsson lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri
2. Ingibjörg Daníelsdóttir kennari og bóndi í Hvítársíðu
Lesa meira
Stjórn svæðisfélags VG á Akureyri og nágrenni lýsir furðu sinni á hugmyndum tveggja athafnamanna með liðsinni Icelandair um að á Íslandi verði starfrækt spilavíti. Ísland hefur þurft að þola ýmsar skuggahliðar mannlegra athafna síðustu misserin og ekki er á þær bætandi. Spilavíti gera út á mannlega veikleika og hversu mikið sem fagurgalinn og hugtakaruglingurinn fær athygli fjölmiðla þá stendur eftir sú staðreynd að enginn akkur er í slíku fólginn; einungis aukið álag á hinu félagslega stoðkerfi og nóg er nú þegar. Ekki þarf að fjölyrða um hina siðferðislegu uppgjöf sem fælist í því að lögleiða spilavíti.
Lesa meira
Kjörstjórn vegna forvals fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Kópavogi 2010 hefur borist eftirfarandi tilkynning frá frambjóðandanum Gunnari Sigurðssyni: "Skjótt skipast veður í lofti en nú er svo komið að ég neyðist til að draga framboð mitt til baka. Ástæður þess liggja í því að fjölskyldan flytur búferlum úr landi næstu mánuði og því ljóst að ég geti í engan stað komið að bæjarmálum VG í Kópavogi, nema þá á rafrænan hátt. Mér þykir þetta afar miður og biðst innilegrar afsökunar á þessum óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér, en fjölskyldan hefur komist að því að ekki er unnt að sleppa þessu tækifæri sem búferlaflutningurinn kann að bjóða uppá. "
Lesa meiraAðalfundur VG í Vestmannaeyjum var haldinn mánudaginn 22. feb. Auk venjulegra aðalfundastarfa var rætt um starfið framundan og þá einkanlega um væntanlegar bæjarstjórnarkosningar í maí n.k.
Lesa meiraVG á Akureyri og nágrenni boðar auka-aðalfund sem haldin verður í Brekkukoti (Brekkugötu 7a), miðvikudaginn 10. mars kl. 20.00.
Tillaga uppstillingarnefndar um skipan framboðslista Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akureyri var samþykktur einróma á félagsfundi flokksins í gærkvöldi. Efstu 6 frambjóðendur voru valdir í forvali félagsmanna. Baldvin H. Sigurðsson þáði ekki þriðja sæti listans í samræmi við úrslit forvals og gerði uppstillingarnefnd tillögu um Jón Erlendsson í fjórða sæti. Listann leiðir Andrea Hjálmsdóttir gullsmiður og félagsfræðingur og Edward H. Huijbens forstöðumaður er í öðru sæti. Vinstri-græn fengju tvo fulltrúa kjörna í síðustu bæjarstjórnarkosningum.
Lesa meira
Vinstri græn taka að venju þátt í starfi Í-listans á Ísafirði en valið verður á listann þann 27. febrúar næstkomandi. Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa allir þeir sem kosningarrétt eiga til sveitarstjórnar í Ísafjarðarbæ í vor og eru ekki flokksbundnir í aðra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í bæjarfélaginu í vor. Í prófkjörinu verða kjörstaðir á Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og Ísafirði. Hægt er að nálgast upplýsingar um frambjóðendur og framkvæmd forvalsins á heimasíðu þess.
Lesa meira
Laugardaginn 20. febrúar verður prófkjör Bæjarmálafélags Seltjarnarness vegna vals frambjóðenda á Neslistann í sveitarstjórnarkosningunum að vori. Prófkjörið fer fram í Valhúsaskóla kl. 10 – 16 á laugardaginnog er opið öllum Nesbúum sem hafa öðlast kosningarétt 29. maí 2010.
Átta frambjóðendur keppa um sæti á Neslistanum. Meðal frambjóðenda eru tveir félagar í VG, þau Brynjúlfur Halldórsson og Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir. Brynjúlfur býður sig fram í 2.- 4. sæti og Hafdís Ósk stefnir á 4.–5. sæti.
Lesa meira
Félagsfundur á Akranesi ákvað að nota póstkosningu við uppröðun á lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar og rennur framboðsfrestur út 26. febrúar. Allir félagar í VG sem skráðir eru til heimilis á Akranesi 26. febrúar næstkomandi fá sendan kjörseðil í pósti sem þeir svo senda aftur til kjörstjórnar skv. leiðbeiningum. Atkvæði þurfa að hafa borist fyrir 8. mars.
Lesa meira
Að lokinni endurtalningu þeirra atkvæða sem greidd voru bréflega í forvali VGR þann 6. febrúar síðastliðinn, er ljóst að niðurstöður talningar eru þær sömu og á kjördag.
Lesa meira
Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs Akranesi og nágrenni var haldinn sl. laugardag. Þar urðu formannsskipti...
Lesa meira
Niðurstaða hefur náðst um þann ágreining sem ríkt hefur um framkvæmd forvals Vinstri grænna í Reykjavík milli stjórnar og efstu frambjóðenda.
Fram hefur komið að frambjóðendur fengu misvísandi upplýsingar um túlkun forvalsreglnanna frá kjörstjórn. Því er ljóst að enginn frambjóðenda braut reglur enda störfuðu þeir í góðri trú. Kjörstjórn hefur í framhaldinu ákveðið að víkja og segja af sér embætti. Við tekur ný uppstillingarnefnd enda ljóst að milli uppstillingarnefndar og þeirra sem skipa efstu sæti listans þarf að ríkja fullur trúnaður.
Lesa meira