Fréttir

lundi

15.5.2012 : Náttúran njóti vafans

„Um aldir hefur þjóðin haft sitt lifibrauð af náttúrunni og þeim gæðum sem hún hefur upp á að bjóða. Þekking á lögmálum hennar og samspili við manninn er hluti af sögu og menningu sem ber að varðveita og halda til haga. Þegar ráðum er ráðið og ákvarðanir teknar þarf meðal annars að gæta að þessari sögu," segir Svandísar Svavarsdóttir í greininni „Ábyrgar veiðar og vernd" sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar fjallar hún um villidýralögin, vernd veiðistofna og sjálfbæra nýtingu. Hægt er að lesa alla greinina með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

14.5.2012 : Vernd og nýting ekki andstæður

„Áhersla á stundargróða í fiskveiðum á kostnað lífríkisins er bein ógn við efnahag og samfélag Íslendinga til lengri tíma.“ Þetta segir Svandís Svavarsdóttir í greininni „Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands“ sem birtist í Fréttablaðið síðastliðinn laugardag. Hún segir samþættingu umhverfisverndar og sjálfbærrar nýtingar lykilinn að árangri í stefnumótun um auðlindir hafsins og bætir við: „Það er rangt og skaðlegt að líta á vernd og nýtingu sem andstæður.“ Hægt er að lesa grein Svandísar með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

11.5.2012 : Fækkun ráðuneyta samþykkt

Alþingi samþykkti í dag þingsályktunartillögu um breytingar á stjórnarráðinu með 28 atkvæðum gegn 21 en 1 þingmaður sat hjá. Breytingarnar fela í sér að í stað iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis komi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Hægt er að fá nánari fréttir af breytingunum með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

8.5.2012 : Ályktanir sveitarstjórnaráðstefnu

Fundargerð Sveitarstjórnaráðstefnu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sem haldin var í Kópavogi síðastliðna helgi er komin á vefinn. Á ráðstefnunni voru samþykktar ályktanir um notendastýrða persónulega aðstoð við fatlað fólk, nýja námskrá fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla,  ályktun um innanlandsflug, bættar almenningssamgöngur og kynjaða fjárhagsáætlanagerð.

Þá var ákveðið að flokkurinn stæði fyrir málþingi um umhverfis- og skipulagsmál í manngerðu umhverfi með sérstakri áherslu á almenningssamgöngur. 

Lesa meira
 
Sveitarstjórnaráð 5

4.5.2012 : Sveitarstjórnaráðstefna stendur yfir

Sveitarstjórnaráðstefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs var sett í Kópavogi seinni partinn í dag, föstudaginn 4. maí. Félagar víðs vegar af landinu eru þar samankomnir til að ræða um málefni sveitarfélaganna, áherslur og helstu áskoranir framundan. Ólafur Þór Gunnarsson setti ráðstefnuna og bauð gesti velkomna í Kópavog og fór yfir breytta stöðu í stjórnmálum bæjarfélagsins. Að því loknu voru flutt eftirfarandi erindi:

Lesa meira
 
Illgresi2012

3.5.2012 : Fjölbreytt Íllgresi komið út

„Segjum okkur úr Nató, hættum þessu rugli og eyðum 248,3 milljónum í að byggja upp samfélög, þjóðir og lönd svo misskipting auðs minnki og jafnvægi komist á í heiminum.“ Þetta segir í leiðara nýs tölublaðs Íllgresis, málgagns Ungra vinstri grænna sem kom út fyrir skemmstu. Ritstjóri Íllgresis er Snærós Sindradóttir og í ritnefnd sátu þau Björn Reynir Halldórsson, Eva Hrund Hlynsdóttir, Sindri Geir Óskarsson og Una Hildardóttir. Í blaðinu er meðal annars fjallað um Landsdóm, olíuleit á Drekasvæðinu, rússneska femíníska pönk gjörningahópinn og hljómsveitina Pussy riot, viðtal við formann Trans Ísland, grein um arabíska vorið, forsjármál og fleira auk þess sem í blaðinu má sjá veggspjald sem deilt er á staðalmyndir útlitsdýrkunar í fjölmiðlum á Íslandi. Blaðið hefur verið sent á alla félaga UVG auk þess sem hægt er að nálgast blaðið á skrifstofu flokksins á Suðurgötu 3 eða lesa það hér. 

Lesa meira
 

3.5.2012 : Norðurstjarnan komin út

„Þó karlar í dag taki virkari þátt í heimilislífinu en forfeður þeirranordurstjarnan-2012 er árangur Íslands á alþjóðlegum jafnréttisstuðlum fyrst  og fremst fólginn í því hversu ósérhlífnar íslenskar konur eru.“ Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein Andreu Hjálmsdóttur „Jafnrétti í raun?“ í Norðurstjörnunni sem út kom 1. maí síðastliðinn. Í blaðinu er einnig að finna greinar eftir Steingrím J. Sigfússon og Björn Val Gíslason en hægt er að lesa allt blaðið á þessari slóð.

Lesa meira
 

30.4.2012 : Bundinn er sá er barnsins gætir

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Katrín Jakobsdóttir,undirritun mennta- og menningarmálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirrituðu á föstudag samning til þriggja ára um vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. Undirritunin fór fram við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík.

Halla Gunnarsdóttir, formaður verkefnisstjórnar og aðstoðarmaður innanríkisráðherra, kynnti samninginn í upphafi athafnarinnar og síðan sögðu ráðherrarnir nokkur orð. Börn af Ægisborg sungu nokkur lög og í lokin undirrituðu ráðherrarnir samninginn.

Hægt er að lesa nánari fréttir af fundinum og lesa erindi Höllu Gunnarsdóttur með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

27.4.2012 : Heimild til að rifta samningum við Norðurál

,,Það er staðföst trú fulltrúa Vinstri grænna í stjórn Orkuveitu Bitruferd-056Reykjavíkur að nú verði að horfast í augu við staðreyndir og rifta samningnum við Norðurál,” segir Sóley Tómasdóttir sem bókaði harðorð mótmæli á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur á miðvikudag þegar samþykkt var að heimila forstjóra fyrirtækisins að ganga til samninga við lífeyrissjóðina um fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar til að standa við gerða samninga við Norðurál. Þetta kemur fram í frétt á Smugunni á miðvikudag. Hægt er að lesa bókun Sóleyjar með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

27.4.2012 : Öfgalaus umræða á sjávarútvegsfundum

Þingmenn Vinstri grænna eru nú að funda um landið um fundur-a-kea-1sjávarútvegsfrumvörpin tvö sem þingið er með til umfjöllunar. Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra var á báðum fundunum, sem og þingmennirnir Björn Valur Gíslason og Lilja Rafney magnúsdóttir. Í fyrrakvöld var haldin ágætur fundur í Stykkishólmi sem sóttur var af um 60 manns og í gærkvöldi komu hátt í hundrað manns á fund á Hótel KEA á Akureyri til að ræða þessi mál.

Björn Valur segir það hafa vakið athygli á þessum fundum hvað öfgalaus en um leið hreinskiptin umræðan hefur verið um þessi mál í ljósi þeirra stóryrða sem fyllt hafa fjölmiðlana að undanförnu.

„Það breytir ekki því að skiptar skoðanir eru um málin enda um gríðarlegt hagsmunamál að ræða fyrir okkur öll," segir hann.

Lesa meira
 
VG_Vestfjordum

18.4.2012 : Fjörugur fundur VG á Vestfjörðum

Fullt var út úr dyrum á fundi þingmanna og ráðherra Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Hótel Ísafirði á mánudagskvöld. Fundinn sátu Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra og Ögmundur Jónasson samgönguráðherra ásamt þingmönnunum Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, Jóni Bjarnasyni og Lilju Rafney Magnúsdóttur en auk þeirra var á fundinum saman kominn þorri stærstu útgerðarmanna á Vestfjörðum. 

Lesa meira
 

11.4.2012 : Vinsældir og árangur; hugleiðingar bak páskum !

„Stjórnmál eru ekki í tísku“ segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í grein sem birtist á Smugunni nýverið. Í greininni rifjar hann upp þær aðstæður sem ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hefur glímt við síðan 1. febrúar 2009 og fer yfir stöðuna eins og hún er í dag. Hann bendir á að nú er ár til kosninga og veltir því upp hvort verkalaun ríkisstjórnarinnar verði þau að afhenda hrunvöldunum aftur keflið. Steingrímur segir ennfremur „...menn fá það sem þeir kjósa og nú styttist í valið og tími til að fara að hugsa sig um“.

 

Lesa meira
 

4.4.2012 : Ferðaþjónustan á fljúgandi siglingu

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam aukningin í komu erlendra ferðamanna 22% frá fyrra ári. Aukningin í mars einum mældist 26%." Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein sem Steingrímur J. Sigfússon skrifar í Fréttablaðið í dag undir fyrirsögninni Ferðaþjónustan á fjúgandi siglingu. Hann bætir við: „Kynning á Íslandi sem ferðamannalandi á erlendum mörkuðum hefur gengið vel. Þar hefur farið saman gott samstarf fyrirtækja í greininni og stjórnvalda. Þar ber einna hæst markaðsátakið „Inspired by Iceland". Ferðaþjónustuaðilar eru einnig sammála um mikinn árangur nú þegar af sameiginlegu átaki stjórnvalda og greinarinnar í vetrarferðamennskuátakinu „Ísland allt árið."" Hægt er að lesa alla greinina með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

2.4.2012 : Borgin axli ábyrgð á heimilislausum

Yfirgnæfandi meirihluti utangarðsfólks, útigangsmanna og heimilislausra í Reykjavík eiga  ýmist við alvarlega fíkn að stríða eða alvarlega geðsjúkdóma, og margir hverjir hvort tveggja og teljast þannig tvígreindir. Fjallað var um aðbúnað og þjónustu við þetta fólk á fundi VGR síðasta fimmtudag. Á fundinum kom skýrt fram sú skoðun félagsmanna VG í Reykjavík að óþolandi sé að fólk sem er alvarlega veikt búi við ófullnægjandi aðstæður eða eigi ekki í nein hús að vernda, og að slíkt eigi ekki að líðast í velferðarsamfélagi.

Lesa meira
 
Sjomadur

27.3.2012 : Þjóðin nýtur auðlindarentunnar

„Með frumvarpinu eru forsendur til að ná sátt. Skýlaus ákvæði um þjóðareign, að auðlindarentan komi til þjóðarinnar og opnun kerfisins fyrir nýja aðila skipta í þessu samhengi miklu máli. Svigrúm stjórnvalda til að mæta hagsmunum byggðaralaganna er aukið um leið og sjávarútveginum er tryggður stöðugleiki,“ segir Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um nýtt fiskveiðistjórnunarfrumvarp. Hægt er að fá nánari upplýsingar um frumvarpið með því að ýta á lesa meira

Lesa meira
 

26.3.2012 : Stjórn VG í Skagafirði vill Jökulsárnar í Skagafirði í verndarflokk

Á fundi stjórnar svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Skagafirði sem haldinn var í gær var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Stjórn svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði skorar á þingflokk VG að tryggja að Jökulsárnar í Skagafirði verði í verndarflokki í tillögum að verndar- og orkunýtingaráætlun landssvæða.

Stjórnin minnir á að verndun Jökulsánna hefur verið eitt stærsta baráttumál VG og hafa þingmenn flokksins flutt tillögur á Alþingi um friðlýsingu ánna, sbr. meðfylgjandi þingsályktunartillögu. Ennfremur minnir stjórn svæðisfélagsins á að verndun Jökulsánna er í fullu samræmi við stefnu beggja stjórnarflokkanna og gefin fyrirheit.

Lesa meira
 

23.3.2012 : Orkuveitan þjóni almenningi

Forsenda framkvæmdanna við Hverahlíðarvirkjun orkar tvímælis, í fjárhagslegu jafnt sem umhverfislegu tilliti, og nauðsynlegt er að ákvarðani mótist af siðferðilegri ábyrgð í anda sjálfbærrar þróunar. Þetta segir meðal annars í ályktun sem Vinstri græn í Reykjavík sendu frá sér í gær og hægt er að lesa alla með því að ýta á lesa meira

Lesa meira
 

22.3.2012 : Íbúar ráði málefnum Norðurslóða

Umhverfisvernd, friður og aðkoma íbúa eru mikilvægustu málin nordurslodirþegar rætt er um málefni Norðurslóða. Þetta er meðal þess sem fram kom á sameiginlegum fundið Vinstri-grænu flokkanna á  Norðurlöndunum en fjallað er um Norðurskautið á fyrsta árlega þemafundi Norðurlandaráðs sem nú fer fram í Reykjavík. Hægt er að fá nánari fréttir af fundinum með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

19.3.2012 : Ofnýting forsenda Hverahlíðarvirkjunar?

„Við verðum að vera meðvituð um áhættuna sem við erum að taka og gera okkur grein fyrir rétti komandi kynslóða og þeim afleiðingum sem framkvæmdir samtímans geta haft á þær,“ segir Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sem lagði fram fyrirspurn um orkuöflun og nýtingu á Hengilssvæðinu á síðasta fundi stjórnar.Bitruferd-056

Þar spurði hún hvaða upplýsingar lægju fyrir hjá fyrirtækinu sem réttlættu áform um frekari virkjanir. Sóley vísaði í skýrslu Orkustofnunar um mat á vinnslugetu háhitasvæða, en þar er gert ráð fyrir að hægt sé að nýta u.þ.b. 425 MW af rafafli í 100 ár á svæðinu, 213 MW í 200 ár og 142 MW í 300 ár.

Orkuveitan framleiðir nú þegar 423 MW samtals í Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkjun og hefur þar með fullnýtt það sem hægt er miðað við 100 ára nýtingartíma samkvæmt skýrslu Orkustofnunar. Ef af Hverahlíðarvirkjun verður myndu bætast við 90 MW og þannig yrðu virkjuð samtals 513 MW á svæðinu eða umtalsvert meira en skýrslan gefur tilefni til.

Því var spurt:

1. Hvaða upplýsingar liggja fyrir hjá Orkuveitu Reykjavíkur sem réttlæta áform um að byggja Hverahlíðarvirkjun?

2. Hafa komið fram einhverjar áreiðanlegar upplýsingar eftir tiltölulega skamman rekstur orkuvera á Nesjavöllum og Hellisheiði sem réttlæta áform um frekari orkuvinnslu á Hengilssvæðinu?

3. Liggur fyrir áætlun um það hvernig Orkuveitan hyggst uppfylla heitavatnsþörf höfuðborgarsvæðisins næstu aldirnar? 

„100 ár eru ekkert endilega rétta viðmiðið, enda erum við stutt á veg komin í rannsóknum á endurnýjanleika jarðhitans og því er aldrei of varlega farið,“ segir Sóley.

Lesa meira
 

16.3.2012 : Hersetan og dreifibréfsmálið hjá EVG - myndir

Í dagskrá EVG miðvikudaginn 7. mars síðastliðinn voru rifjaðir upp atburðir sem gerðust árið 1941 og höfðu mikil áhrif á afstöðu manna varðandi hersetu og verkalýðsmál. Þá hefur saga barnanna sem hermennirnir skildu eftir á Íslandi og afskipti opinberra aðila af þeim ekki farið hátt en á fundinum sagði Magnea J. Rivera Svipm.-ur-sal-(184)Reinaldsdóttir þroskaþjálfi  frá því hvernig hún hafði upp á föður sínum sem var bandarískur hermaður, en litla hjálp var að hafa til þess frá íslenskum yfirvöldum.
Þá var tónlistaratriði þar sem nemandi úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar kom í heimsókn ásamt kennara sínum auk þess sem Björgvin Gíslason (gítar) og Reynir Jónasson (harmonikka), Árni Björnsson og Gunnar Guttormsson  rifjuðu upp revýusöngva og önnur lög frá þessum árum á milli atriða.
Þá sagði Þórhallur Sigurðsson leikstjóri frá handtöku föður síns, Sigurðar Guðmundssonar, ritstjóra Þjóðviljans og samstarfsmanna hans og dvöl þeirra í fangelsi í Bretlandi. og Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur dó upp ramma atburðanna.
Næsti fundur EVG verður miðvikudagskvöldið 11. apríl 2012.
Hægt er að skoða myndir af kvöldinu með því að ýta á lesa meira.

Lesa meira
 

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica