Ung vinstri græn (UVG)
Unga fólkið í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði stofnaði með sér formlegan samstarfsvettvang haustið 2001 og allar götur síðan hefur þessi hreyfing unga fólksins vaxið og dafnað. Tilgangur UVG er að tryggja ungu fólki í VG vettvang til málefnaumræðu og mynda inngönguleið fyrir nýja félaga. Ung vinstri-græn hafa undanfarin ár byggt upp samband við erlend systurfélög sín og tekið þátt í alþjóðsamstarfi í tvennum samtökum SUN (Socialistisk ungdom i Norden) og ENDYL (European network of democratic young left).
Heimasíða UVG: www.vinstri.is
Netfang stjórnar: ung@vinstri.is
Stjórn UVG skipa:
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir – formaður
Bjarni Þóroddsson – varaformaður
Þórir Ingvarsson – gjaldkeri
Una Hildardóttir – ritari
Daníel Haukur Arnarson – meðstjórnandi
Eva Hrund Hlynsdóttir – meðstjórnandi
Helgi Hrafn Ólafsson – meðstjórnandi
Sindri Geir Óskarsson – meðstjórnandi
Tinna Ingólfsdóttir – meðstjórnandi
Björk Emilsdóttir – varamaður
Björn Reynir Halldórsson – varamaður
Hrund Malín Þorgeirsdóttir – varamaður

