Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þingmaður Norðvesturkjördæmis
tölvupóstur: lrm@althingi.is
Fastar tekjur:
Þingfararkaup: 545.480 kr.
Húsnæðis- og dvalarkostnaður: 126.980 kr.
Ferðakostnaður: 61.400 kr.
Starfskostnaður: 66.400 kr.
Íslandspóstur hf. varaformaður stjórnar. 90.000.-
Hlunnindi:
Alþingi greiðir síma- og tölvukostnað auk aksturskostnað fyrir lengri ferðir vegna þingmannsstarfa.
Eignir:
Helmingur í húsi fjölskyldunnar að Hjallavegi 31 og bílskúr Aðalgötu 35 ásamt helming í bifreið og vörubíl með eiginmanni.
Hagsmunatengsl:
Stjórnarmaður í Verkalýðsfélagi Vestfjarða greitt er fyrir fundarsetu.
Er í eftirtöldum félögum:
Samtökum Herstöðvarandstæðinga, Náttúruverndarsamtökum Vestfjarða, Vinstri grænum Vestfjörðum, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Laufinu félagi flogaveikra, Hollvinasamtökum Félagsheimilis Súgfirðinga.
Lilja Rafney er gift Hilmari Oddi Gunnarssynin vörubílstjóra og eru eignir þeirra sameiginlegar.

