Lilja Mósesdóttir

Lilja Mósesdóttir, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Suður

Lilja Mosesd NETtölvupóstur: liljam@althingi.is

Fastar tekjur:

Þingfararkaup: 520.000 kr.

Ferðakostnaður: 61.400 kr.

Starfskostnaður: 66.400 kr.

Formaður fastanefndar: 78.000 kr.

Hlunnindi:

Alþingi greiðir síma- og tölvukostnað.

Eignir:

Helmingur í íbúðarhúsnæði fjölskyldunnar og eigin bifreið. 

Hagsmunatengsl:

Fulltrúi Íslands, þ.e. ráðuneytis byggðamála, í stjórn rannsóknarstofnunarinnar Nordregio (sjá www.nordregio.se). Stofnunin er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og hefur aðsetur í Stokkhólmi. Nordregio sinnir gagnöflun, rannsóknum og upplýsingamiðlum um málefni sem tengjast svæðisbundinni þróun á Norðurlöndunum. Stjórnin fundar 4 sinnum á ári og greitt er fyrir ferðakostnað og stjórnarstörf. 

Skipuð haustið 2007 sem fulltrúi Háskólans á Bifröst í ráðgjafahóp félags- og tryggingamálaráðherra um launamun kynja. Ráðgjafahópurinn er einn þriggja starfshópa sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar skipaði til að gera tillögur um aðgerðir til að draga úr launamun kynja í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ráðgjafarhópurinn hefur ekki lokið störfum.

Er í eftirtöldum félögum:

Eyrbyggja - Hollvinasamtök Grundarfjarðar, Hollvinasamtök Bifrastar, Femínistafélagi íslands, UNIFEM, UNICEF, Samtökum hernaðarandstæðinga og Vinstri grænum í Reykjavík. 

Lilja er gift Ívari Jónssyni forstöðumanni þjóðdeildar Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns og eru eignir þeirra sameiginlegar.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica