Atli Gíslason, 4. þingmaður Suðurkjördæmis
F. í Reykjavík 12. ágúst 1947. Börn með Unni Jónsdóttur, leikskólastjóra, f. 1949, (skildu): Jón Bjarni, f. 1971, Gísli Hrafn, f. 1974, Friðrik, f. 1975. Fósturdóttir: Guðrún Erna Levy, f. 1991. Móðir hennar er Rannveig Sigurðardóttir f.1953.
Tölvupóstur: atlig@althingi.is
Fastar tekjur:
Þingfararkaup: 520.000 kr.
Húsnæðis- og dvalarkostnaður: 90.700 kr.
Ferðakostnaður: 61.400 kr.
Starfskostnaður: 66.400 kr.
Formaður fastanefndar: 78.000 kr.
Aðrar tekjur verða breytilegar, þ.e. hlutdeild í hagnaði vegna eignarhluts í lögfræðiskrifstofu og leigutekjur af skrifstofuhúsnæði, nú 224.025 kr. á mánuði.
Hlunnindi:
Alþingi greiðir símakostnað og aksturskostnað fyrir lengri ferðir vegna þingmannsstarfa.
Eignir:
Tvær íbúðir til fjölskylduafnota í Reykjavík, sumarhús í Grímsnes- og Grafningshreppi ásamt 1.5 ha landi og skrifstofuhúsnæði í Reykjavík til afnota fyrir eigin lögfræðiskrifstofu. Eignarhluti, 50%, í Lag – lögmönnum, sf., lögfræðiskrifstofa í Reykjavíki. Hlutabréf í Friðarhúsi, ehf., að nafnverði 200.000 kr. Hlutabréf í Smugunni ehf., að nafnvirði 25.000 kr.
Hagsmunatengsl:
Lag – lögmenn, sf., sinna föstum verkefnum fyrir Eflingu – stéttarfélag, Félag íslenskra atvinnuflugmanna, Blaðamannafélag Íslands og Lífeyrissjóðinn Gildi. Sit ekki í stjórnum, nefndum eða ráðum utan þings.
Er í sambúð með Rannveigu Sigurðardóttur, skrifstofumanni. Fjárhagur aðskilinn.

