Ásmundur Einar Daðason, 9. þingmaður Norðvesturkjördæmis
Lambeyrum, Búðardal. F. 29. október 1982
Sambýliskona Ásmundar er Sunna Birna Helgadóttir og eiga þau dæturnar Aðalheiði Ellu og Júlíu Hlín.
tölvupóstur: asmundurd@althingi.is
Fastar tekjur:
Þingfararkaup: 520.000 kr.
Húsnæðis- og dvalarkostnaður: 126.980 kr.
Ferðakostnaður: 61.400 kr.
Starfskostnaður: 66.400 kr.
Hlunnindi:
Alþingi greiðir síma- og tölvukostnað auk aksturskostnað fyrir lengri ferðir vegna þingmannsstarfa.
Eignir:
Eigin bifreið auk þess sem ég á ásamt sambýliskonu íbúðarhús að Lambeyrum sem hefur verið í byggingu.
Hagsmunatengsl:
Varamaður í stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda, varamaður VG í Sveitarstjórn Dalabyggðar, Formaður félags sauðfjárbænda í Dalasýslu, varamaður í stjórn heilbrigðiseftirlits Vesturlands, varamaður í stjórn Lambeyrabúsins ehf.
Er í félagi í eftirtöldum félögum:
Félagi sauðfjárbænda í Dalasýslu, Geitfjárræktarfélag Íslands, Búnaðarfélag Laxárdalshrepps, Ólafsdalsfélaginu, Heimssýn (Félag sjálfstæðissinna í Evrópumálum), Ungmennafélagið Æskan, Glímufélag Dalamanna, Samtök hernaðarandstæðinga.
Ásmundur er í sambúð með Sunnu Birnu Helgadóttur og eru eignir og tekjur sameiginlegar.

